Morgunblaðið - 19.09.2005, Side 47
ÁHORFENDUR fögnuðu með látum þegar
leikrit Árna Ibsen, Himnaríki, var „endursýnt“
eftir tíu ár í Hafnarfjarðarleikhúsinu, en
Himnaríki var fyrsta leikritið sem leikhúsið
setti upp. Í þetta skipti fóru þau Elma Lísa
Gunnarsdóttir, Erling Jóhannesson, Friðrik
Friðriksson, Guðlaug Elísabet Ólafsdóttir, Jó-
hann G. Jóhannsson og Þrúður Vilhjálmsdóttir
með aðalhlutverkin, en leikstjórn var í hönd-
um Hilmars Jónssonar. Þá var leikskáldinu
klappað lof í lófa, en hann fékk heilablóðfall
fyrir nokkru og kom því á svið í hjólastól.
Eitt af sérkennum Himnaríkis er að það ger-
ist í raun á tveimur sviðum og fá áhorfendur
að sjá sinn hvorn hlutann fyrir og eftir hlé.
Þannig varpar nýtt sjónarhorn nýju ljósi á sög-
una, sem gerist annars vegar inni í sum-
arbústað og hins vegar úti á sólpalli bústað-
arins.
Verkið var sýnt hundrað sinnum veturinn
1995 og hætti fyrir fullu húsi. Segja má að það
hafi verið vísir að mikilli velgengni Hafn-
arfjarðarleikhússins, en það hefur blómstrað
alla tíð síðan.
Leikhús | Tíu ára afmælissýningu Hafnarfjarðarleikhússins á Himnaríki vel fagnað
Upphafið að velgengninni
Árni Ibsen og Hilmar Jónsson voru klappaðir upp og fengu mikið lof þakk-
látra aðdáenda, en tíu ár eru síðan verkið var síðast sett upp hjá leikhúsinu.
Leikhópurinn fagnaði baksviðs að sýningu lokinni og var ekki
annað að sjá en að allir væru ánægðir með hvernig til tókst.
Morgunblaðið/Kristinn
Steindór Hjörleifsson, Margrét Ólafsdóttir
og Kristbjörg Kjeld voru ánægð með hina
nýju uppfærslu á Himnaríki.
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. SEPTEMBER 2005 47
HINN þekkti kvikmyndaleikstjóri Pawel
Pawlikowski kemur hingað til lands vegna Al-
þjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík dag-
ana 29. sept.–9. okt nk., en hann mun verða við-
staddur sýningar á mynd sinni „My Summer of
Love“ auk þess sem hann veitir dómnefnd hátíð-
arinnar forstöðu. Pawlikowski vann bresku
BAFTA-verðlaunin fyrir „My Summer of Love“
fyrr á þessu ári.
Á Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík
verða veitt glæsileg verðlaun sem kennd eru við
Uppgötvun ársins. Leiknar myndir eftir upp-
rennandi leikstjóra úr ólíkum flokkum hátíð-
arinnar munu keppa um verðlaunin sem veitt
verða af fimm manna dómnefnd, skipaðri auk
Pawlikowskis, Hilmi Snæ Guðnasyni leikara,
Kristínu Jóhannesdóttur kvikmyndaleikstjóra,
Nínu Dögg Filippusdóttur leikkonu og norska
blaðamanninum Dag Sødtholt en hann er jafn-
framt fulltrúi FIPRESCI, alþjóðlegra samtaka
kvikmyndagagnrýnenda og blaðamanna.
Pawlikowski er fæddur í Varsjá í Póllandi en
hefur búið í Bretlandi frá árinu 1971, en þangað
fluttist hann fjórtán ára gamall. Hann lagði
stund á bókmenntir og heimspeki og starfaði
síðar við rannsóknir hjá Oxford-háskóla.
Snemma á tíunda áratugnum gerði hann nokkr-
ar heimildarmyndir fyrir BBC sem fjölluðu á
einn eða annan hátt um Austur-Evrópu. Mynd-
irnar þóttu heppnast vel og unnu til verðlauna á
hátíðum víðsvegar um heim.
Árið 2000 gerði Pawlikowski sína fyrstu
leiknu mynd í fullri lengd, Last Resort. Fyrir þá
mynd hlaut hann verðlaun sem efnilegasti kvik-
myndaleikstjóri Breta á BAFTA-hátíðinni, en
myndin var líka tilnefnd sem besta mynd. Auk
þess var hún tilnefnd til evrópsku kvikmynda-
verðlaunanna. Last Resort fjallar um rússneska
hælisleitendur í Bretlandi.
My Summer of Love fjallar um samband
tveggja vinkvenna, Monu (Natalie Press) og
Tamsin (Emily Blunt), en þær eru hvor af sinni
stéttinni. Hugmyndin að myndinni er fengin að
láni úr samnefndri skáldsögu eftir Helen Cross.
Mona er táningsstúlka sem býr með bróður sín-
um Phil í gamalli krá sem hann sá um áður en
hann tók heilagan anda fram yfir vínandann.
Hún er einfari í eðli sínu og dálítil strákastelpa.
Dag einn hittir hún hina ríku og rótlausu Tasmin
ofan við þorpið þeirra í Yorkshire, en Tasmin
hefur nýverið verið rekin úr enn einum heima-
vistarskólanum. Þær vilja báðar flýja líf sitt
meðan Phil vill bjarga þeim, eins og hann vill
bjarga öllum öðrum. Þegar þessir þrír ein-
staklingar mætast fer sérkennileg atburðarás af
stað sem tekur óvænta beygju undir lokin.
Myndin sýnir á stórkostlegan en látlausan
hátt skin og skúri sumarsins hjá þremur ensk-
um ungmennum. My Summer of Love vann
verðlaun sem besta mynd á Edinborgarhátíðinni
árið 2004. Auk þess var hún valin besta breska
myndin á BAFTA-verðlaunahátíðinni 2005.
Kvikmyndir | Pawel Pawlikwski formaður dómnefndar á Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík
Sumar ástarinnar er fullt af birtu, fegurð og freistingum, bæði holds og anda.
Nýtur mikillar virðingar fyrir kvikmyndir sínar
400 kr. í bíó!* * Gildir á allar sýningar merktar meðrauðu
Sýnd kl. 8 og 10.20 B.i 10 áraSýnd kl. 5.30, 8 og 10.20
O.H.H. / DV. . . /
H.J. / Mbl.. . / l.
kvikmyndir.comkvik yndir.co
Sýnd kl. 6 ísl tal
Verðið á karlhórum hefur lækkað
töluvert fyrir evrópskar konur!
Sprenghlægileg gamanmynd!
Sýnd kl. 6, 8 og 10 b.i. 14 ára
Sýnd kl. 8 og 10.15
Sýnd kl. 8
KVIKMYNDIR.COM
RÁS 2 Ó.H.T
S.K. DV
KVIKMYNDIR.IS
VINCE VAUGHN OWEN WILSON
Sýnd kl. 6 ísl talSýnd kl. 6, 8 og 10 B.i 16 ára
ÞEGAR EKKI ER
MEIRA PLÁSS Í
HELVÍTI MUNU
HINIR DAUÐU RÁFA
UM JÖRÐINA
TOPPFIMM.IS
DV
KVIKMYNDIR.IS
ALLS EKKI FYRIR VIÐKVÆMA!
MEISTARI
HROLLVEKJUNNA
R SNÝR AFTUR
TIL AÐ HRÆÐA
ÚR OKKUR
LÍFTÓRUNA
BESTA GRÍNMYND
SUMARSINS
„FGG“ FBL.
Fyrsti hluti í epískum fantasíu þríleik Aldrei
annað eins hefur sést í bíó hérlendis áður! Mynd
sem slegið hefur í gegn! Missið ekki af þessari
Night Watch is F***ING COOL!
Quentin Tarantino
i t t i I !
ti r ti
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30 b.i. 16 ára
FRÁBÆR
GRÍN OG
SPENNU
MYND
Harðasta
löggan í
bænum
er þann
mund að
fá stórs
krýtinn f
élaga!
Miðasala opnar kl. 17.15
Sími 551 9000
553 2075☎
Sýnd kl. 6, 8 og 10