Morgunblaðið - 25.10.2005, Side 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 25. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
HB FASTEIGNIR
Sími 534 4400 • Hús verslunarinnar, Kringlan 7, 103 Reykjavík
Hrafnhildur Bridde löggiltur fasteignasali
LAUS FLJÓTLEGA! HRÍSATEIGUR, 105 RVÍK - 4RA HERB.
M/SÉRINNGANGI - VERÐ 16,9 MILLJ.
Mikið endurnýjuð 82,4 fm íbúð á
jarðhæð/kjallara. Þrjú svefnherb., stofa,
eldhús, baðherb. og saml. þvottahús.
Parket og flísar á gólfi. Eignin er staðsett í
grónu hverfi þar sem stutt er í alla
þjónustu, þ.m.t sundlaug og skóla.
Hrafnhildur Bridde, s. 821 4400.
LAUS! EGILSGATA, 101 RVÍK - 3JA HERB.
Á JARÐHÆÐ - VERÐ 16,9 MILLJ.
Nýuppgerð og rúmgóð íbúð á jarðhæð á
þessum frábæra stað. Íbúðin er 71,1 fm
og skiptist í tvær samliggjandi stofur,
svefnherb., hol og baðherb. m/sturtu.
Sérhiti og -rafmagn. Sérbílastæði á
baklóð. Stutt er í skóla, sundlaug,
heilsugæslu, Landspítalann og verslun.
Hrafnhildur Bridde, s. 821 4400.
LAUST! SUÐURGATA, 101 RVK - EINBÝLISHÚS M/BÍLSKÚR
Um er að ræða ca 235 fm einbýlishús,
sem er á tveimur hæðum og kjallara.
Bílskúr. 6 svefnherb. og tvær stofur.
Glæsilegur garður. Sjón er sögu ríkari!
Kristinn R. Kjartansson, s. 820 0762.
HÆÐARGARÐUR, 108 RVÍK - VERÐ 15,3 MILLJ.
Mjög góð 2ja herbergja íbúð með
sérinngangi. Íbúðin er með góðu
svefnherbergi, stofu, baðherbergi með
sturtu og fínu eldhúsi. Stutt er í alla
þjónustu. Góður garður.
Íbúðin getur verið laus
með stuttum fyrirvara!
Kristinn R. Kjartansson,
s. 820 0762.
Hrafnhildur Bridde, löggiltur fasteignasali, sími 821 4400
Mánalind 4 - Glæsieign
564 6464
Síðumúla 24 • 108 Reykjavík
hof@hofid.is • www.hofid.is
Guðm. Björn Steinþórsson
lögg. fasteignasali
Jón Guðmundsson sölustjórifasteignasala
Glæsilegt 237 fm einbýlishús á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr. Skiptist í stórar
stofur, stórt eldhús, fjögur svefnherb. baðherbergi og gestasnyrtingu Glæsilegar sér-
smíðar innréttingar og vönduð gólfefni. Suðursvalir og 120 fm sólpallur með góðri
skjólgirðingu út af efri hæðinni. Verð 59,8 millj.
Hraunbær 84 - Aukaherbergi
Hvassaleiti 14 - Laus
Mjög góð 4ra herbergja íbúð í góðu fjölbýlishúsi. Íbúðin er opin og björt með 2 til 3
svefnherbergjum. Eldhús er opið fram í hol og baðherbergi flísalagt með þvottaaðstöðu.
Stofa björt og falleg með vestursvölum. Sérgervihnattardiskur fylgir. Íbúðin er laus. Verð
19 millj.
Mjög góð 118 fm endaíbúð í nýlega viðgerðu húsi með aukaherbergi í kjallara. Hol og
stofa með ljósum flísum á gólfi, rúmgott eldhús með upphafl. innr. Íbúðin er innréttuð
með þremur svefnherbergjum en þau gætu verið fjögur, auk íbúðarherbergis í kjallara.
Góðar suðursvalir. Fallegur verðlaunagarður í suður. Íbúðin er laus. Verð 19,8 millj.
ÚT er komin bókin Hallormsstaður í Skógum eftir
Hjörleif Guttormsson og Sigurð Blöndal ásamt sjö
meðhöfundum sem lögðu efni til ritsins. Í bókinni
er leitast við að draga saman og miðla fróðleik um
náttúru og sögu þessa merka staðar og þjóðskógar
sem nú hefur notið friðunar að heita má í heila öld.
Hjörleifur, sem ritstýrði verkinu auk þess að
vera annar aðalhöfundur þess, segist vona að bókin
þyki fróðleg og einnig skemmtileg á köflum.
„Í upphafi bókarinnar er að finna náttúrufars-
legt yfirlit um Hallormsstaðarland og Skóga, en
lengst af var staðurinn nefndur Hallormsstaður í
Skógum, sem er einnig heiti bókarinnar,“ segir
Hjörleifur. „Landlýsingin nær frá Vallaneshálsi
inn í Hornbrynju, rakin er rannsóknasaga í
tengslum við áhrif friðunar og skógrækt og saga
skógræktarstarfsins síðustu hundrað árin. Þar er
Sigurður Blöndal á heimavelli. Þá er sögð saga
staðarins eins langt aftur og rýnt verður og fram
um miðja 20. öld. Jarðfræðikafli er og í bókinni, en
ég beitti mér fyrir jarðfræðirannsóknum á svæð-
inu með ritið í huga, því að þarna var tilfinnanleg
eyða. Dr. Haukur Jóhannesson vann það verk og
er einn meðhöfunda ritsins. Sama á við um forn-
leifaskráningu sem Guðný Zoëga annaðist og feng-
um við styrk frá Fornleifasjóði í því skyni. Saga
Hússtjórnarskólans og Hallormsstaðarskóla er
rakin, ritað um svæðið sem ferðamannastað og
sögulegar Atlavíkursamkomur svo og um Hall-
ormsstaðarskóg sem uppsprettu skáldskapar og
lista.“
Skrifa þarf um merka staði
Hjörleifur fæddist árið 1935 á Hallormsstað og
var faðir hans, Guttormur Pálsson, skipaður skóg-
arvörður þar árið 1909. Hann skrifaði eina heild-
stæða ritið sem áður hefur komið út um staðinn og
heitir það Hallormsstaður og Hallormsstað-
arskógur og var 25 ára afmælisrit frá upphafi
skógræktarinnar, gefið út árið 1931.
Hjörleifur segir nýjar og forvitnilegar jarð-
fræðiupplýsingar vera í bókinni, ásamt merkum
fornleifaþáttum. „Allar bækur af þessum toga
þurfa að sameina það tvennt, að hafa þýðingu sem
upplýsingarit fyrir nútíð og framtíð, en vera fólki
einnig til ánægjuauka. Enn vantar tilfinnanlega rit
um marga merka staði, sæmilega heildstæða frá-
sögn bæði um náttúru og sögu. Það er eftirspurn
eftir fróðleik um sögustaði og náttúruperlur og þá
er undirstöðuatriði að skyggnst sé aftur í tímann
og leidd fram vitneskja um það helsta sem náttúr-
an hefur að geyma. Þetta var haft að leiðarljósi í
aðdraganda þessa rits. Þar lögðu margir hönd á
plóg.“
Auk þeirra Hauks Jóhannessonar og Guðnýjar
Zoëga eru meðhöfundar að bókinni þau Gunnar
Guttormsson, Loftur Guttormsson, Sif Vígþórs-
dóttir, Sigrún Hrafnsdóttir og Þór Þorfinnsson.
Hallormsstaður í Skógum er 351 bls. með við-
aukum og skrám. Bókina prýða fjölmargar myndir
úr ýmsum áttum, auk margra uppdrátta sem Guð-
mundur Ó. Ingvarsson hefur séð um. Edda-útgáfa
(Mál og menning) gefur út og var Ólöf Eldjárn
helsti tengiliður við forlagið.
Á döfinni í ritsmíðum
Hjörleifur segist fátt eitt vilja segja um hvar
hann beri næst niður í ritsmíðum. „Ég er með eitt
rit sem er samningsbundið og mun fjalla um ut-
anvert Hérað ásamt Borgarfjarðarsvæðinu. Það
lítur væntanlega dagsins ljós innan þriggja ára
sem árbók Ferðafélags Íslands. Það er margt sem
kallar þar fyrir utan, en skynsamlegast væri lík-
lega að kasta mæðinni um stund.“
Náttúra og saga höfuðbóls og þjóðskógar
Hallormsstaður í Skógum
Eftir Steinunni Ásmundsdóttur
austurland@mbl.is
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Hallormsstaður Teikningin sýnir húsakost á Hallormsstað um miðja 19. öld. Kirkju á Hallormsstað
getur fyrst í heimildum frá um 1200. Torfkirkja stóð til 1869, en þá var byggð timburkirkja sem rifin
var 1895. Síðan þá hefur ekki verið kirkja á staðnum.
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Skyggnst um Hjörleifur Guttormsson við gamla
kirkjugarðinn á Hallormsstað.
„ÞETTA er eina
altæka ritið um
Hallormsstað sem
til er og okkur
þótti tímabært að
setja það saman,“
segir Sigurður
Blöndal, fv. skóg-
arvörður í Hall-
ormsstað, skóg-
ræktarstjóri
Skógræktar ríkisins í yfir áratug og
annar aðalhöfundur Hallormsstaðar í
Skógum. Hann segir ritið yfirgrips-
mikið og miðað hafi verið við að það
kæmi út samhliða aldarfriðun skóg-
arins.
„Ég vil sjá skóginn stækka og
blómgast, fyrst og fremst upp til
fjalls, sem var algjörlega skóglaust
þegar ég man eftir,“ svarar Sigurður
spurningu um hvers hann óski skóg-
inum til handa í framtíðinni. „Nú er
skógurinn að ná upp að girðingu og
ég vil gjarnan sjá það svæði fyllast al-
veg og að skógurinn færist eins langt
upp eftir og hann getur hér lengra út
frá. Ég vil jafnframt að þær erlendu
trjátegundir sem hafa verið gróð-
ursettar í Hallormsstaðarskógi og er
meira af þar en annars staðar á Ís-
landi dafni vel. Ég vil t.d. sjá ein-
hverjar þeirra ná 30 metra markinu,
þær eru ekki komnar nema í 22 til 23
metra eins og er, en þegar ég byrjaði
að vinna í skógræktinni 1952 lét ég
það í ljósi einhvers staðar að trén
myndu kannski geta orðið 15 metra
há. Mér hefur orðið meira en að ósk
minni með það eins og fleira.“
Aldarfriðun
Hallormsstaður að hausti.
Sigurður Blöndal
AUSTURLAND
Egilsstaðir | Ellert Grétarsson opn-
aði um helgina myndlistarsýningu í
Níunni á Egilsstöðum. Þar sýnir
hann á þriðja tug ljósmynda og staf-
rænna verka og eru þau öll til sölu.
Ellert, sem er Húsvíkingur, hefur
unnið í prentiðnaði og verið mik-
ilvirkur ljósmyndari, bæði á vett-
vangi fjölmiðla og myndlistar, auk
þess að kenna stafræna ljósmyndun
og myndvinnslu. Ellert rekur vef-
galleríið Gallerí Elg (www.eld-
horn.is/elg) og sýnir þar verk sín.
Mynd úr Gallerí Elg prýddi m.a.
listatímaritið Art Business News í
fyrra.
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Sýnir á Egilsstöðum Ellert Grét-
arsson opnaði myndlistarsýningu í
Níunni um helgina.
Ellert sýnir
í Marco