Morgunblaðið - 25.10.2005, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. OKTÓBER 2005 31
UMRÆÐAN
ÞESSA spyr Ög-
mundur Jónasson í
blaðagrein fyrir
stuttu og þykist
merkja hættur; Sam-
fylkingin sé að verða
svo hægrisinnuð. Ég
get svarað fyrir mig
sem oddviti Samfylk-
ingarinnar í höf-
uðborginni: Hún er á
góðri leið. Sem betur
fer er til fólk innan
Samfylkingarinnar
sem er tilbúið að end-
urskoða margt í
vinstripólitík liðinna ára og taka
öðrum tökum en hefðbundið er. Ég
er einn af þeim og skal útskýra
fyrir Ögmundi og öðrum hver leið-
in er, því ég tel að við séum um
margt sammála.
Við þurfum nýja sýn á hlutverk
og tilgang opinberrar stjórnar og
þjónustu. Hinu hefðbundna
vinstrasjónarmiði um útblásið vel-
ferðarríki af gamla skólanum í
formi stofnana, mannahalds og
kerfishugsunar má breyta. Það
þýðir ekki að við föllum fyrir kröfu
frá hægri um markaðslausnir, sem
stundum eiga þó við, og við þurf-
um ekki heldur að ganga plankann
á enda í kröfum um peningalegt
hagræði og rekstarvitund, þótt oft
séu réttmætar. Ég sé málin ekki
fyrir mér eins og mér virðist Ög-
mundur gera: annaðhvort eða. En
við erum sammála um það að nak-
in markaðshyggja leiði til sam-
félagslegrar gliðnunar og minni
velferðar en viðunandi er, þar sem
grefur undan því sem er mikilvæg-
ast: félagsauður í borgaralegu
samfélagi. Við vitum að velferð
fyrir fólk er líka velferð fyrir fyr-
irtæki því hún býr umgjörð sem
hæfir góðu starfsfólki í fram-
sæknum rekstri. Það sem hægri
menn flaska á er að hagræðing í
opinberri þjónustu, svo góð sem
hún kann að vera, leysir ekki fé-
lagsleg vandamál og skapar ekki
félagsauð sem hverju samfélagi er
nauðsynlegur.
En hlutverk opinberrar þjónustu
snýst ekki bara um skilgreind hólf-
uð verkefni, þar sem spurningin er
um stærð hólfa og fjölda hún snýst
um meira.
Sé markmið okkar ,,sjálfbær vel-
farnaður" er hlutverk stjórnar,
hvort sem er á landsvísu eða í
heimahéraði, að tryggja þrjár
nauðsynlegar meginstoðir: fé-
lagsleg markmið, efnahagslega vel-
gengni, og umhverfisvernd. Sam-
kvæmt minni sýn þýðir þetta ekki
að ríki eða stjórn stundi beina
þátttöku í öllu er varðar þessa
þætti. Stjórnin setur markmið, en
leiðir, athafnir og útfærsla er á
hendi margra: einkarekstrar,
óháðra félagasamtaka, einstaklinga
í bland við opinberan rekstur. Skil-
virk borgarstjórn leitar þar af leið-
andi ekki eftir beinni þátttöku í
sem flestum athöfnum samfélags-
ins, en leitast við að hvetja, skipu-
leggja og koma á þátttöku sem
flestra að sameiginlegu markmiði.
Skilningurinn er sá að náist sam-
félagsleg markmið, skipti ekki máli
hvaða leið er farin. Og það sem
meira er: geti hið opinbera virkjað
sem flesta til að ná markmiðinu,
með því að kalla til einkarekstur,
félög og einstaklinga, er líklegra
að um það gildi sátt. Þarna bregst
hinum hefðbundnu stjórnmálum
bogalistin, því þau virðast ófær um
að skapa það traust sem sjálfbær
velfarnaður í samfélagi hlýtur að
byggjast á. Stjórnmálin sjálf eru
ótrúverðug í augum almennings,
átakahefð þeirra og sundurlyndi.
Ég get nefnt ótal dæmi úr stjórn
borgarinnar þar sem svona leiða er
leitað með batnandi árangri, og
dæmin um hvernig við getum enn
gert betur eru líka mörg.
Frjálslyndi, ekki
stjórnlyndi
Fyrir vinstrimenn
er áskorunin þessi: Að
láta af stjórnlyndi,
sýna það frjálslyndi að
fela fleirum en sjálfum
sér það verkefni að
skapa sameiginlegan
velfarnað. Hættan til
hægri felst í þeirri
villutrú að allt gott
skapist aðeins í arð-
semisknúnum athöfn-
um og auðleit. Hættan til vinstri
hefur verið sú að telja að fé-
lagslegum markmiðum verði ekki
náð nema með pólitísku valdboði í
gegnum opinberar stofnanir. Milli
þessara andstæðu póla er miklu
fjölbreyttari veruleiki með samspili
ólíkra þátta samfélagsins. Eitt höf-
uðhlutverk stjórnar sem starfar í
umboði almennings er að stilla
saman þessa krafta. Þá á ég t.d.
við ólík markmið eins og að fá
einkarekstur til að sýna samfélags-
lega ábyrgð, eða það að knýja ein-
staklinga til að taka ábyrgð á eigin
lífi eftir fyllsta mætti en gera ekki
kröfu á félagslegt kerfi fyrst. En
höfuðverkefni opinbers stjórntækis
er að byggja undir og treysta fé-
lagsauð í samfélagi sem skynjar
sig sem heild er vinnur að skil-
greindu markmiði um þær meg-
instoðir sem ég nefndi: hið fé-
lagslega, efnahagslega og um-
hverfið. Það hugtak sem felur í sér
þessa sýn er sjálfbær velfarnaður,
því það tekur til miklu fleiri þátta
en venja hefur verið varðandi op-
inbera þjónustu (klippt og skorið
velferðarkerfi), en felur samtímis í
sér meiri valddreifingu, minni
forsjá, aukið frjálslyndi, meiri al-
menna þátttöku og aukna ábyrgð
einstaklinga á leiðum og útfærslu
framkvæmda. Því er svarið við
spurningu Ögmundar, á hvaða leið
er Samfylkingin? hvorki hægri né
vinstri, heldur beint áfram. Til
framtíðar.
Á hvaða leið er Samfylkingin?
Stefán Jón Hafstein svarar
Ögmundi Jónassyni ’Því er svarið við spurn-ingu Ögmundar, á hvaða
leið er Samfylkingin?
hvorki hægri né vinstri,
heldur beint áfram. Til
framtíðar.‘
Stefán Jón Hafstein
Höfundur er oddviti Samfylk-
ingarinnar í Reykjavík og
formaður borgarráðs.
WWW.NOWFOODS.COM
Góð heilsa gulli betri
www.fl ugger.is
10
3
5
4
3
Gæðamálning
Gott verð
Polytex 7
Ljósir litir 4 lítrar 1.990 kr.
Íslensk gæðamálning með góða hulu,
endingargóð og auðveld í notkun.
Skeifan 4
Snorrabraut 56
Bæjarlind 6
Dalshraun 13
Hafnargata 90
Austursíða 2
Austurvegur 69
Hlíðarvegur 2-4
Sólbakka 8
Flügger ehf
Stórhöfða 44
110 Reykjavík
Sími 567 4400