Morgunblaðið - 25.10.2005, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. OKTÓBER 2005 41
DAGBÓK
Jafnréttisráð heldur á fimmtudag málþingum launajafnrétti. Hefst málþingið kl. 14og stendur til 16.30 en það fer fram í ÁrsalRadisson SAS Hótel Sögu. Fanný Gunn-
arsdóttir er formaður Jafnréttisráðs og einn af
skipuleggjendum þingsins: „Undirtitil málþings-
ins fáum við lánaðan úr jafnréttislögunum: „Jöfn
laun og sömu kjör fyrir jafnverðmæt og sambæri-
leg störf“. Þetta er í annað sinn sem Jafnréttisráð
stendur fyrir málþingi í tengslum við afhendingu
Jafnréttisviðurkenningar Jafnréttisráðs en Jafn-
réttisviðurkenningin hefur verið veitt síðan 1992,
ætíð kringum 24. október.“
Vel valinn hópur tekur til máls á þinginu: „Við
höfum fengið til liðs við okkur bæði fræðimenn og
fólk sem í sínum daglegu störfum kemur að kjara-
samningagerð. Fyrstan ber að nefna Byrial
Bjørst, lögfræðing frá Danmörku, sem fjalla mun
um lagarammann. Hann hefur skoðað íslensk lög í
tilefni af málþinginu, en í doktorsritgerð sinni bar
hann saman dönsku jafnlaunalöggjöfina og lög-
gjöf Evrópusambandsins. Hann mun í erindi sínu
fjalla um íslenska lagaumhverfið og bera það sam-
an við það evrópska.“
Dr. Lilja Mósesdóttir mun þá flytja erindi sitt
„Mælistikur á launajafnrétti“, en hún stýrir sam-
norrænu verkefni sem vinnur að gerð sam-
norrænnar aðferðar, n.k. mælistiku, til að bera
saman laun á Norðurlöndunum. „Til að hægt sé að
bera saman vinnuframlag og laun kynjanna þarf
að hafa samanburðarhæft mælitæki svo hægt sé
að fá niðurstöður sem ekki má hrekja eða teygja
sundur og saman,“ segir Fanný.
Sigurður Óli Kolbeinsson, lögfræðingur hjá
Sambandi íslenskra sveitarfélaga, og Halldór
Grönvold flytja sitt erindið hvor. „Það verður
fróðlegt að sjá mismunandi sjónarmið þessara
manna sem sitja hvor sínum megin við borðið þeg-
ar samið er um kjör.“ Í þessu sambandi nefnir
Fanný þau réttindi og skyldur sem sköpuðust
með setningu Jafnréttislaga sem gildi tóku árið
2000 þar sem atvinnurekendum eru gefin tilmæli
um að jafna stöðu kynjanna og stuðla að því að
ekki sé litið á störf sem sérstök kvenna- eða karla-
störf, en slík skipting er nokkuð sterkt einkenni á
íslenskum vinnumarkaði.
„Síðasta erindið flytur Árni Magnússon félags-
málaráðherra. Ég hlakka til að heyra hans mál.
Ég á von á að hann fjalli um hugmynd sína um
gæðavottun fyrirtækja og nýlega ákvörðun ríkis-
stjórnarinnar um stofnun sérstaks sjóðs sem
helgaður er rannsóknum á stöðu kynjanna.“
Skráning á málþingið fer fram á www.jafnretti.-
is. Að málþinginu loknu mun Félagsmálaráðherra
afhenda Jafnréttisviðurkenningu Jafnréttisráðs
við sérstaka athöfn.
Málþing | Jafnréttisráð heldur þing um launajafnrétti og veitir viðurkenningu
Jöfn laun og sömu kjör
Fanný Gunnarsdóttir
er fædd í Reykjavík
1957. Hún útskrifaðist
með B.Ed. frá KHÍ 1981.
Síðan þá hefur hún
starfað sem kennari og
einnig námsráðgjafi við
Álftamýrarskóla. Fanný
var skipuð formaður
Jafnréttisráðs 2003
og sat í starfshóp um
endurskoðun náms-
skrár í Lífsleikni fyrir grunn- og framhalds-
skóla 2005. Einnig hefur Fanný komið að
kennsluefnisgerð, forvarnarmálum og jafn-
réttismálum.
Fanný er gift Herði Gunnarssyni fram-
kvæmdastjóra og eiga þau einn son.
Deildakeppnin.
Norður
♠Á974
♥D S/Allir
♦G10764
♣D95
Vestur Austur
♠KG106 ♠32
♥87542 ♥G1093
♦ÁD ♦3
♣64 ♣KG10732
Suður
♠D85
♥ÁK6
♦K9852
♣Á8
Keppnissalur Bridssambandsins við
Síðumúla 37 var þéttsetinn um helgina,
en þá fór fram fyrri umferð Deilda-
keppni BSÍ. Alls spiluðu 24 sveitir í
þremur deildum (8 sveitir í deild), og
var spiluð einföld umferð af 14 spila
leikjum.
Eyktarsveitin er efst í fyrstu deild
með 135 stig (19,28 að meðaltali úr
leik), sveit Garða & véla er langefst í
annarri deild með 150 stig (21,42 að
meðaltali), en í þriðju deild er sveit
Straums í forystu með 132 stig (18,85
að jafnaði).
Spilið að ofan kom upp í síðustu um-
ferð á sunnudaginn og yfirleitt varð
suður sagnhafi í þremur gröndum.
Sem er spennandi samningur eftir út-
spil í hjarta, en ætti þó að fara einn nið-
ur. Margir unnu samt þrjú grönd, ann-
aðhvort eftir varnarmistök eða útspil í
spaða. En nokkrir sagnhafar fóru
hvorki meira né minna en sex niður!
Hvernig gat það gerst?
Sjáum til. Á þeim borðum hafði aust-
ur útspilsdoblað Stayman-spurningu
norðurs og þannig leitt vörnina á rétta
braut í byrjun. Vestur kom út með
laufsexu, lítið úr borði og GOSI frá
austri. Frá bæjardyrum suðurs virðist
sem útspilið sé frá 1076, svo það er
eðlilegt að taka slaginn strax. Síðan er
farið inn í borð á hjartadrottningu og
tígli spilað.
Vestur kemst inn og spilar laufi og
austur tekur þar fimm slagi. Spilar svo
spaða og sprengir litinn fyrir makker,
enda suður kominn niður á Dx í spaða
og Áx í blindum.
Það er ekki á hverjum degi sem
sama sveitin fær 600 á báðum borðum!
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. Bb5+ Rc6
4. Bxc6+ bxc6 5. O-O e5 6. c3
Rf6 7. He1 Be7 8. d4 cxd4 9.
cxd4 Dc7 10. dxe5 dxe5 11. Rbd2
O-O 12. Rc4 Bg4 13. Bd2 Rd7
14. Ba5 Db7 15. h3 Be6 16. Hc1
f6 17. b3 Rb6 18. Re3 Hfd8 19.
De2 Ba3 20. Hc3 c5 21. Rc2 Bb2
22. Hxc5 Hac8 23. Hxc8 Hxc8
24. Hd1 Rd7 25. Re3 Ba3 26.
Rf5 Hc6 27. b4 Rb6 28. Hd8+
Kf7
Staðan kom upp í fyrri hluta
Íslandsmóts skákfélaga sem
lauk fyrir skömmu í Mennta-
skólanum í Hamrahlíð.
Tékkneski stórmeistarinn,
Tomas Oral (2548), hafði hvítt
gegn Patrick Svansson (1710).
29. Rxe5+! fxe5 30. Dh5+ Kf6
31. Hf8+ Bf7 32. Dh4+ Ke6 33.
Rxg7+ Kd6 34. Hd8+ Rd7 35.
Df6+ og svartur gafst upp enda
getur hvítur mátað á þrjá mis-
munandi vegu eftir 35... Be6: 36.
Dxe6#; 36. Re8#; 36. Rf5#.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Hvítur á leik.
Svona er þetta bara,
við búum í stórborg!
ÉG ER ein af þeim sem þurfa að
nota strætó daglega. Það virðist
engu máli skipta þótt nýtt leiðakerfi
sé tekið í notkun, aldrei batnar
þetta. Einstaka vagn er á réttum
tíma en flestir eru þeir annaðhvort
of seinir eða of fljótir. Ég hef lent í
því oftar en einu sinni að vagnarnir
koma allt að 5 mínútum of fljótt, sem
á auðvitað ekki að gerast. Þá er
betra að þeir séu 5 mínútum of sein-
ir. Þetta verða vagnstjórar að hafa í
huga.
Ég hef þurft að hringja á leigubíl
til að koma ekki of seint í vinnuna
þar sem strætó var of fljótur og því
missti ég af honum. Þá hafði ég sam-
band við skrifstofuna og fór fram á
að strætó greiddi fargjaldið sem ég
þurfti að borga í leigubíl en það var
sko ekki einu sinni til umræðu. Ég
hringdi einn morguninn í höfuð-
stöðvarnar til að spyrjast fyrir um
vagn sem ég hafði beðið ansi lengi
eftir. Þá fékk ég þær upplýsingar að
fleiri hefðu hringt og að línurnar hjá
þeim væru í raun rauðglóandi og var
svo sagt að þessi tiltekni vagn yrði
13 mínútum of seinn. Ég tók það
fram við konuna sem svaraði síman-
um hjá Strætó að það væri oft algjör
hryllingur að þurfa að treysta á
strætó og svarið sem ég fékk var:
„Svona er þetta bara, við búum í
stórborg!“
Stórborg? Síðan hvenær hefur
Reykjavík talist til stórborga?
Hvernig stendur á því að strætis-
vögnum í stórborgum tekst að vera á
réttum tíma en ekki vögnunum í
Reykjavík sem er jú töluvert minni
en aðrar höfuðborgir í heiminum?
Sjálfsagt er erfitt fyrir strætó að
svara því. Og fyrst fulltrúar Strætó
segja að svona sé þetta bara… verð-
um við víst bara að sætta okkur við
það. Eða hvað?
Óánægður farþegi.
Giftingarhringur í óskilum
GIFTINGARHRINGUR fannst
austur í Grímsnesi. Í hringnum er
áletrunin: Þín Sigrún, 14-6-97. Upp-
lýsingar í síma 863 8814.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
80 ÁRA afmæli. Birgir Þórhalls-son varð áttræður í gær, 24.
október. Hann starfaði að flug- og
ferðamálum í tuttugu ár en hefir verið
framkvæmdastjóri hjá Sólarfilmu
undanfarna áratugi þar til á þessu ári
að hann lét af störfum.
Árnaðheilla
dagbók@mbl.is
Hlutavelta | Þær Freydís Eva Halls-
dóttir og Elísabet Anna Hermanns-
dóttir í 4. bekk í Patreksskóla héldu
hlutaveltu í heimabæ sínum Patreks-
firði, til ágóða fyrir fórnarlömb jarð-
skjálftanna í Pakistan. Þær söfnuðu
2.827 kr. sem þær lögðu inn á reikning
Hjálparstarfsins með aðstoð prestsins
á staðnum.
Hlutavelta | Krakkar safna á Ísafirði.
Þau Júlíana Lind og Daníel Örn
Skaptabörn og Natalía Ösp Ómars-
dóttir, duglegir krakkar á Ísafirði,
gengu í hús í lok sumars og söfnuðu
„fyrir fátæk börn í útlöndum“. Þau af-
hentu Hjálparstarfi kirkjunnar 4.364
krónur.
42. Skálda-
spírukvöldið
verður haldið á
Iðu, Lækjargötu,
í kvöld. Þor-
steinn frá Hamri
les úr glænýrri
ljóðabók. Hægt
verður að spjalla
við skáldið um
verk þess. Upplesturinn hefst kl.
20.00. Hægt verður að hafa með sér
hressingu frá kaffihúsinu á annarri
hæðinni.
Guðmundur Björgvinsson og
Gunnar Randversson leika nokkur
sígild lög á gítar.
Þorsteinn frá Hamri
á Skáldaspírukvöldi
JPV ÚTGÁFA hefur sent frá sér nýja
skáldsögu eftir Ólaf Gunnarsson, Höf-
uðlausn, en Ólafur hlaut Íslensku
bókmenntaverðlaunin fyrir síðustu
skáldsögu sína, Öxin og jörðin.
Það er sumarið 1919 og á svip-
stundu breytist Reykjavík úr þorpi í
borg þegar hópur leikara og kvik-
myndagerðarmanna kemur til Íslands
til þess að filma Sögu Borgarætt-
arinnar eftir Gunnar Gunnarsson.
Jakob Ólafsson, ungur maður sem
rekur sína eigin leigubílastöð, ekur
fyrir útlendingana, og verður fyrr en
varir yfir sig ást-
fanginn af aðal-
leikkonunni enda
þótt hann eigi kær-
ustu fyrir.
Ýmsar nafn-
kunnar persónur
verða á vegi Jak-
obs; svo sem Þor-
steinn Erlingsson
skáld, listmálarinn Muggur, Thor Jen-
sen útgerðarmaður, að ógleymdum
Árna Óla blaðamanni og Knut Ham-
sun.
Skáldsaga
Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali
Vegna mikillar sölu undanfarið vantar okkur flestar stærðir
raðhúsa og einbýlishúsa víðs vegar á höfuðborgar-
svæðinu - einnig vantar flestar stærðir og gerðir íbúða -
traustir kaupendur. Dæmi úr kaupendaskrá:
Íbúð við miðborgina óskast
- t.d. í 101 Skuggi, við Klapparstíg eða Skúlagötu.
Traustur kaupandi óskar eftir 110-150 fm íbúð á
framangreindu svæði. Rýming samkomulag. Verið er að
leita að íbúð á gæðabilinu (verðbilinu) 50-70 milljónir.
Staðgreiðsla.
Nánari uppl. veitir Sverrir Kristinsson. Sverrir Kristinsson,
löggiltur fasteignasali.