Morgunblaðið - 12.11.2005, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 12.11.2005, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 307. TBL. 93. ÁRG. LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is Umbreyting Barneys Matthew Barney í samtali við Heiðu Jóhannsdóttur | Menning Lesbók | Mídas á meðal okkar  Jónas Hallgrímsson Börn | Ljóð  Verðlaunaleikur  Verðlaunasaga Íþróttir | Kemur Borgvardt aftur?  Byrd til Skallagríms  Farinn frá KR Lesbók, Börn og Íþróttir Jerúsalem. AFP. | Nýkjörnum leiðtoga Verkamannaflokksins í Ísrael, Amir Peretz, þykir afskaplega vænt um víga- legt yfirskeggið sitt. Hann vísar eindregið á bug tillögum um að hann raki það af sér – nema málið verði borið undir þjóðina. „Þetta vörumerki mitt er ekki lengur ein- göngu mín eign. Það er ekki einkaeign heldur í eigu almennings,“ sagði Peretz í viðtali við dag- blaðið Yediot Aharanot í gær. „Og ef fólk vill að það verði rakað af mér verður að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu.“ Peretz, sem er 53 ára og fæddur í Mar- okkó, sigraði Shimon Peres í atkvæða- greiðslu um leiðtogaembættið meðal liðs- manna flokksins í vikunni. Er Peretz fyrsti verkalýðsforinginn sem hreppir embættið og verður hann forsætisráðherraefni Verkamannaflokksins í næstu kosningum sem talið er að verði á næsta ári. Skeggið er þjóðareign Amir Peretz SKÝRT var frá því í Þýskalandi í gær að samn- ingamenn öflugustu flokka landsins hefðu eftir fjögurra vikna þóf komist að samkomulagi um að mynda samsteypustjórn, svonefnda „mikla sam- steypu“. Verður Angela Merkel, leiðtogi Kristi- legra demókrata (CDU), fyrst kvenna til að hreppa kanslaraembættið ef flokkarnir sam- þykkja tillögurnar í næstu viku. „Ég naut við- ræðnanna enda þótt þær væru erfiðar,“ sagði Merkel í gær og brosti breitt. „Ekkert okkar var reiðubúið fyrir „mikla sam- steypu“, ekkert ykkar heldur. En við lærðum að finna málamiðlanir,“ sagði Franz Müntefering, sem verið hefur formaður Jafnaðarmanna- flokksins (SPD) en lætur senn af því starfi. Hann verður varakanslari og ráðherra atvinnumála í stjórn Merkel. Utanríkisráðherra verður jafn- aðarmaðurinn Frank Walter Steinmeier og Wolfgang Schäuble úr CDU verður innanríkis- ráðherra. Stjórnarmyndun Merkel þarf að fá formlegt samþykki CDU og systurflokks CDU í Bæjara- landi, Kristilega sósíalsambandsins (CSU), auk Jafnaðarmannaflokks Gerhards Schröders, frá- farandi kanslara. Leiðtogi CSU, hinn áhrifamikli Edmund Stoiber, sem er forsætisráðherra sam- bandsríkisins Bæjaralands, tekur ekki sæti í stjórninni. Angela Merkel er 51 árs, tvígift en barnlaus. Hún er eðlisfræðingur að mennt, fædd í Ham- borg en ólst upp í Austur-Þýskalandi kommún- ismans. Merkel fær nú það hlutverk að vera í forystu fyrir umbótum í efnahagsmálum lands- ins en mikið atvinnuleysi, geysilegur fjárlaga- halli og lítill hagvöxtur hafa hrjáð Þjóðverja síð- ustu árin. CDU-maðurinn Roland Koch, forsætisráðherra í Hessen, tók þátt í viðræðun- um með Merkel og sagði hann að Þjóðverjar ættu að búa sig undir harkalegustu aðhaldsað- gerðir sem dæmi væru um eftir heimsstyrjöld- ina síðari. „Við verðum að horfast í augu við að fjárlög sambandslýðveldisins eru í svo geigvænlegu ástandi að engum ætti að líðast að brjóta æ ofan í æ stjórnarskrárákvæðin með halla,“ sagði Koch. Stjórnarskrá Þýskalands leggur bann við því að samþykkt séu fjárlög með halla. Í stjórnarsáttmálanum segir m.a. að Þjóðverj- ar muni leitast við að efla góð samskipti og traust milli Evrópusambandsins og Bandaríkjanna. Lýst er stuðningi við aðild Tyrklands að ESB. Reuters Angela Merkel, leiðtogi CDU, brosir hlýlega til valdaminni karla fyrir blaðamannafundinn í gær, þeirra Edmund Stoibers, leiðtoga systurflokks CDU í Bæjaralandi, formanns Jafnaðarmannaflokksins (SPD), Franz Münteferings, og væntanlegs arftaka Münteferings í SPD, Matthias Platzeck. Samstarf í burðarliðnum Eftir Kristján Jónsson kjon@mbl.is París. AFP. | Yfirvöld í París gripu til víð- tækra ráðstafana í gær til að reyna að hindra óeirðir í fátækrahverfum um helgina og settu m.a. tímabundið bann við opinber- um fundum. Kveikt var í fjölda bíla í París aðfaranótt föstudags þótt almennt hafi ástandið lagast í landinu síðustu daga. Um 12.000 lögreglumenn verða í við- bragðsstöðu í mörgum borgum Frakklands um helgina af ótta við átök. Ljóst þykir að koma muni í ljós hvort ýmsar aðgerðir sem stjórnvöld hafa samþykkt í krafti neyðar- laga, þ. á m. útgöngubann á ungmenni undir 16 ára aldri að næturlagi, muni duga til að stöðva óeirðaseggi úr röðum fátæklinga í innflytjendahverfum. Þeir hafa kveikt í þús- undum bíla og húsa síðustu vikurnar og slegist við lögreglumenn. Lögreglan segir að vitað sé um fjölda smáskeyta og tölvuskeyta sem borist hafi á milli manna með hvatningum um frekari óeirðir. Reuters Slökkviliðsmaður beinir slöngunni að brennandi bíl í Strassborg í gærkvöldi. Búa sig undir átök  Fátækt og agaleysi | 20 ♦♦♦ ÁVÖXTUNARKRAFA á skulda- bréfamarkaði hækkaði og gengi krónunnar lækkaði í gær í kjölfar þess að Landsbanki Íslands til- kynnti hækkun vaxta á íbúðalánum um 0,3 prósentustig, úr 4,15 í 4,45%. Alls hækkaði ávöxtunarkrafa um 20–30 prósentustig í öllum flokkum íbúðabréfa en gengi krónunnar lækkaði um 0,34%. Ingólfur Helgason, forstjóri KB- banka á Íslandi, segir að engar ákvarðanir hafi verið teknar af hálfu bankans um að hækka vexti á íbúða- lánum. „En við fylgjumst alltaf með breytingum á grunnvöxtum, þ.e.a.s. löngu vöxtunum og miðum okkar ákvarðanir við það. Við horfum einnig á hvað samkeppnisaðilar okkar eru að gera og ekki síst sá að- ili sem er að keppa á þessum mark- aði með ríkisábyrgð [þ.e. Íbúðalána- sjóður]. Eins og sakir standa er sá aðili að bjóða upp á 4,15% vexti og við höfum ákveðið að bjóða okkar viðskiptavinum upp á þau kjör, að minnsta kosti enn um sinn. En auð- vitað er þetta ýmsum breytum háð.“ Þegar hann er spurður út í vexti á skuldabréfamarkaði, sem eru hærri en þeir vextir sem bankinn býður upp á segir hann að KB banki telji í augnablikinu að samkeppnisstaðan sé mikilvægari en að hækka vexti. „Ég tel að þessi breyting sé í samræmi við það sem Seðlabankinn hefur verið að gera að undanförnu þannig að þetta kemur ekki á óvart og ég tel að þetta verði til fordæmis annars staðar í bankakerfinu,“ segir Davíð Oddsson, formaður banka- stjórnar Seðlabankans. Aðspurður segir hann það ekki tímabært að segja til um hvaða áhrif þetta muni hafa á stýrivaxtaákvarð- anir bankans. Guðmundur Bjarnason, fram- kvæmdastjóri Íbúðalánasjóðs, segir að ákvörðun Landsbankans sé skynsamleg og rétt skref. Íbúða- lánasjóður hafi þó ekki tekið ákvörðun um breytingar en málin verði rædd næstu daga. „Við vitum að langtímavextir hafa verið að hækka, markaðurinn hefur sagt okkur það,“ segir hann og bætir við að Íbúðalánasjóður verði að fara í útboð á síðasta fjórð- ungi ársins. Að sögn Guðmundar er ávöxtunarkrafan hins vegar það há að vextir myndu hækka mikið ef farið yrði í útboð núna. „Þessi mál eru alltaf í skoðun en af þessu tilefni höfum við ekkert ákveðið um vaxtabreytingar ennþá,“ segir Haukur Oddsson, framkvæmdastjóri viðskiptabanka- sviðs Íslandsbanka. Landsbanki Íslands hækkaði vexti á íbúðalánum úr 4,15 í 4,45% í gær Kemur ekki á óvart segir seðlabankastjóri KB-banki: 4,15% vextir enn um sinn  Íslandsbanki: Ekkert ákveðið um vaxtabreytingar ennþá  Íbúðalánasjóður: Skynsamlegt og rétt skref Eftir Guðmund Sverri Þór og Árna Helgason                                       ! "#  %     &'  Landsbankinn vill stuðla | 18
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.