Morgunblaðið - 12.11.2005, Side 2

Morgunblaðið - 12.11.2005, Side 2
2 LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR LÍ hækkar vexti íbúðalána Landsbanki Íslands hækkaði í gær vexti á íbúðalánum úr 4,15 prósentum í 4,45 prósent. Bankinn kveðst með þessu vilja stuðla að því að viðhalda efnahagslegum stöðugleika en segir að hækkanirnar megi rekja til hækk- unar markaðs- og stýrivaxta að und- anförnu. Hækkunin hefur ekki áhrif á kjör þeirra sem þegar hafa tekið lán hjá bankanum. Stjórn Merkel að fæðast Samningamenn stóru stjórn- málafylkinganna tveggja, kristilegra og jafnaðarmanna, í Þýskalandi náðu í gær samkomulagi um að mynda rík- isstjórn undir forystu Angelu Merkel, leiðtoga Kristilegra demókrata. Verður hún fyrst kvenna í sögu þjóð- arinnar til að gegna kanslaraembætt- inu ef flokkarnir samþykkja tillög- urnar. Halldór ósáttur við fram- gang varnarviðræðna Halldór Ásgrímsson forsætisráð- herra er óánægður með það hversu hægt hefur miðað í viðræðum um varnarmál við Bandaríkjamenn. Hann segir skýringuna á því hversu hægt miði vera skoðanamun milli ís- lenskra stjórnvalda og áhrifamikilla afla í Bandaríkjunum um öryggis- og varnarmál. Íslendingar verði að gera þá kröfu til Bandaríkjamanna að þeir tali skýrar í málinu. Hungursneyð vofir yfir Hungursneyð vofir yfir í Mið- Ameríkuríkinu Guatemala sem varð fyrir miklum skakkaföllum af völdum fellibylsins Stan í byrjun október. Sameinuðu þjóðirnar hafa hvatt ríki heims til að aðstoða Guatemala en undirtektir hafa verið litlar. Y f i r l i t Í dag Fréttaskýring 8 Umræðan 34/43 Úr verinu 14 Íslenskt mál 42 Viðskipti 18 Minningar 44/51 Erlent 20/21 Messur 52 Minn staður 22 Kirkjustarf 53 Landið 23 Skák 56 Akureyri 24/25 Dagbók 58/61 Suðurnes 26 Myndasögur 58 Árborg 26 Víkverji 58 Menning 28/29, 62/69 Velvakandi 59 Daglegt líf 30/31 Staður&stund 60/61 Ferðalög 32/33 Ljósvakar 70/71 Úr vesturheimi 34 Staksteinar 71 Forystugrein 36 Veður 71 * * * Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi, orri@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir, ingarun@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkju- starf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is        & ( ) *    +   ,  * - .    ,/   0    *'   *    1 -  2  *,3 4  5           6  (    -  /  78 9  (  : ;;;                        VERALDAR“ Ó lafur G unnarsson, rithöfundur „BESTA BÓKVERALDAR“ www.jpv.isKynningar – Morgunblaðinu fylgir Audi-bæklingur frá Heklu. FRONTUR ehf. hyggst flytja þá net- þjóna sína, sem sinna alþjóðlegri net- umferð, til útlanda. Fyrsti netþjónn- inn verður opnaður í Danmörku á næstunni. Þessi ákvörðun var tekin vegna hárrar verðlagningar á er- lendu niðurhali og ótrausts netsam- bands um Farice-strenginn, að sögn Þórs Sigurðssonar, framkvæmda- stjóra Fronts. Frontur rekur til dæmis vefsetur fyrir danskan, bandarískan og kín- verskan markað. Barnaland.is, bloggland.is og dyraland.is, sem einnig eru í eigu Fronts, verða þó áfram hýstir á Íslandi til að forða inn- lendum aðilum frá kostnaði vegna niðurhals. Þór segir að það sé ellefu sinnum dýrara að hafa netþjónana, sem flutt- ir verða, hér á landi en t.d. í Dan- mörku. Vefsetur með bloggi, ætluð fyrir erlendan markað, fara mjög vaxandi að sögn Þórs. Miðað við nú- verandi verðlagningu stefni í gríðar- legan kostnað verði netþjónarnir áfram hýstir hér. Auk hárrar verðlagningar segir Þór að ekki sé hægt að treysta rekstraröryggi Farice-strengsins. Það hafi gerst fimm sinnum frá 30. júní síðastliðnum að landið hafi orðið nær netsambandslaust um lengri eða skemmri tíma. Rekstraraðilar megi ekki við slíkum skakkaföllum. „Þetta er nokkuð sem ráðamenn verða að taka á mjög fljótlega. Þegar menn hlaupa með netþjónana úr landi koma þeir ekki svo auðveldlega til baka,“ sagði Þór. Hann segir að netþjónarnir kalli á talsverða vinnu og sú vinna hverfi nú úr landi. Hjá Fronti sé líklega um þrjú stöðugildi að ræða, miðað við áætlaðan vöxt fyr- irtækisins. Hann nefnir að fleiri fyr- irtæki séu einnig á förum með sína netþjóna svo að störfin sem tapist í heild séu enn fleiri. Ríkisstjórnin ræddi um FARICE-strenginn Í fréttatilkynningu frá Fronti segir að stjórn fyrirtækisins skori á ráða- menn að grípa í taumanna „því ekki er auðvelt að fá fyrirtæki heim aftur með þá netþjóna sem fluttir eru úr landi. Það er alveg ljóst að hér eru störf og tekjur að tapast fyrir þjóð- arbúið þar sem margir aðilar í skyld- um rekstri hafa þegar tekið af skarið og flutt sína netþjóna úr landi“. Sturla Böðvarsson samgönguráð- herra sagði við Fréttavef Morgun- blaðsins í gær að hann hefði lagt fram minnisblað um stöðu mála varðandi FARICE-sæstrenginn á fundi ríkis- stjórnarinnar í morgun. Hann segir minnisblaðið ekki vera endanlegt, en unnið verði í málinu áfram. Verið sé að skoða tvöföldun sæstrengsins. Sturla sagði jafnframt að sér hefðu borist fjölmargar athugasemdir frá fyrirtækjum sem eigi allt sitt undir því að netsamband við útlönd sé greitt og gott. Kveðst ráðherra hljóta að bregðast við því. Sturla segir að hann muni ræða við stjórn FARICE um þetta mál og kanna hvaða leiðir séu færar til þess að tryggja öruggt netsamband. Fyrirtækið Frontur ehf. hefur ákveðið að flytja netþjóna sína úr landi Þjónusta Farice of dýr og óstöðug LITLU munaði að manntjón yrði þegar fólksbifreið sem var á leið til Sauðárkróks fór suður af veginum við vesturósbrúna snemma í gær- morgun. Talið er að ökumaðurinn, sem var einn á ferð, hafi fengið að- svif og fór bifreiðin alllanga leið í vegöxlinni, en síðan yfir ísilagða vík og þaðan yfir grjótvarnargarð og hafnaði á hjólunum úti í ánni, en nokkuð djúpt er við bakkann og var bifreiðin á kafi. Ökumaðurinn komst af sjálfs- dáðum út úr bílnum og var fluttur til aðhlynningar á Heilsustofnunina á Sauðárkróki, en reyndist ómeidd- ur og fékk að fara heim að rann- sókn lokinni. Að sögn lögreglu er talin mikil mildi að ekki fór verr og nánast með ólíkindum að ökumann- inum tækist að komast út úr bílnum og sleppa óskaddaður úr þessari háskaför, en ljóst að bílbeltin voru það sem bjargaði. Björgunarmenn vinna við að ná bílnum upp úr ósnum. Bíll lenti í vesturósi Héraðsvatna SÝSLUMAÐURINN í Reykjavík hafnaði í gær kröfu um lögbann á sýningu heimildamyndarinnar Skuggabarna, en móðir drengs sem kemur við sögu í myndinni og var myrtur eftir að tökum lauk lagði fram kröfuna. Skuggabörn er heimildarmynd Þórhalls Gunnarssonar og Lýðs Árnasonar, en í henni fylgja þeir Reyni Traustasyni eftir þar sem hann rannsakar undirheima Reykja- víkur. Búið er að klippa myndskeið með syni konunnar út og kemur hann ekki fram í myndinni, en móð- irin taldi hana engu að síður brjóta gegn friðhelgi einkalífs síns. Hilmar Gunnlaugsson, lögmaður Þórhalls og Lýðs, segir sýslumann hafa staðfest að ekki væri verið að brjóta gegn hagsmunum móðurinn- ar með því sem sýnt er í myndinni. Af tillitssemi við hana hafi mynd- skeið með syni hennar verið klippt út, og annað sem fram komi í mynd- inni sé ekki talið skaða hana á nokk- urn hátt. Var því haldið í áform um að forsýna myndina í gærkvöldi, en hún verður sýnd í Sjónvarpinu nk. þriðjudagskvöld. Lára V. Júlíusdóttir, lögmaður móðurinnar, segir að málinu sé lokið af hennar hálfu, ekki verði höfðað mál gegn aðstandendum myndarinn- ar. Lög- banns- kröfu hafnað STARFSEMI sjálfstætt starfandi barna- og unglingageðlækna verður tryggð, segir Jón Kristjánsson heil- brigðisráðherra, en útlit er fyrir að þessi hópur muni fara um 10% fram yfir kvóta ráðuneytisins á þessu ári, eða starfsemi verða lögð niður í des- ember verði ekki aukið við kvótann. „Samninganefndin okkar er að fara yfir þetta til að tryggja þjónustu,“ segir Jón „Það liggur alveg fyrir hjá okkur að við viljum leita leiða til að halda þessari þjónustu út árið.“ Í Morgunblaðinu í gær gagnrýndi Páll Tryggvason, barna- og unglinga- geðlæknir á Akureyri, seinagang yf- irvalda í að bregðast við yfirvofandi samdrætti á þjón- ustu. Kvóti sjálf- stætt starfandi barna- og ung- lingageðlækna var aukinn árið 2003, en svo dreg- ið úr honum aftur í ár þar sem hann var ekki fullnýtt- ur í fyrra, segir Jón. „Nú stefnir í að þeir muni klára hann, en þeir voru ekki búnir með hann núna nýverið að minnsta kosti.“ Ráðherra segir verið að skoða hvort kvóti þessa hóps verði aukinn á næsta ári. Starfsemi barna- geðlækna tryggð Jón Kristjánsson „Leitum leiða til að halda þessari þjónustu út árið“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.