Morgunblaðið - 12.11.2005, Qupperneq 10
10 LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
OPIÐ prófkjör fer fram hjá Fram-
sóknarflokknum í Kópavogi í dag
vegna komandi sveitarstjórnarkosn-
inga. Fjórtán manns eru í framboði.
Kjörstaður er í Smáraskóla í Kópa-
vogi. Hann opnar kl. tíu og er hægt
að kjósa til kl. 20. Allir sem eiga lög-
heimili í Kópavogi og verða orðnir
átján ára þegar sveitarstjórnarkosn-
ingarnar fara fram næsta vor, hafa
rétt á að taka þátt í prófkjörinu.
Eftirfarandi eru í framboði: Jó-
hannes Valdimarsson, Samúel Örn
Erlingsson, Una María Óskarsdótt-
ir, Linda Björk Bentsdóttir, Gestur
Valgarðsson, Þorgeir Þorsteinsson,
Hjörtur Sveinsson, Ólöf Pálína Úlf-
arsdóttir, Andrés Pétursson, Hjalti
Þór Björnsson, Guðmundur Freyr
Sveinsson, Dollý Nielsen, Friðrik
Gunnarsson og Ómar Stefánsson.
Samkvæmt upplýsingum frá skrif-
stofu flokksins er kosningin ekki
bindandi, en reglur flokksins í Kópa-
vogi gera ráð fyrir því að það þurfi að
vera jafnt kynjahlutfall í sex efstu
sætunum. Flokkurinn fékk þrjá bæj-
arfulltrúa í síðustu kosningum.
Opið prófkjör
í Kópavogi
ÞORSTEINN Gunnarsson, rektor
Háskólans á Akureyri, boðaði starfs-
fólk skólans til fundar í gær, þar sem
kynntar voru ákvarðanir háskólaráðs
HA varðandi nýtt deildaskipulag og
breytingar á stjórnsýslu og þjónustu.
Háskólinn hefur átt í rekstrarerfið-
leikum og markmiðið með þessum að-
gerðum er að búa skólann betur und-
ir framtíðina, ná fram liðlega 50
milljóna króna sparnaði og koma á
jafnvægi í rekstri. Eins og fram kom í
Morgunblaðinu í gær verður deildum
Háskólans á Akureyri fækkað úr sex
í fjórar. Auðlindadeild og upplýsinga-
tæknideild verða sameinaðar við-
skiptadeild og heiti viðskiptadeildar
breytt í viðskipta- og raunvísinda-
deild. Í samræmi við þessar skipu-
lagsbreytingar er við það miðað að
deildarforseti viðskiptadeildar stýri
hinni sameinuðu deild þar til ráðning-
artíma hans lýkur í október 2008.
Auk þessarar deildar starfa fé-
lagsvísinda- og lagadeild, heilbrigðis-
deild og kennaradeild við háskólann.
Þegar kennaradeild flyst á háskóla-
svæðið er stefnt að enn frekari fækk-
un og endurskipulagningu deilda
þannig að þær verði ekki fleiri en
þrjár. Námsleiðum í félagsvísinda- og
lagadeild verður fækkað og hagrætt
verður í námsframboði í öðrum deild-
um án þess að það hafi áhrif á náms-
framvindu nemenda. Jafnframt er
gert ráð fyrir því að framhaldsnám
verði eflt til muna og núverandi
námsframboð verði aukið.
Þá samþykkti háskólaráð að
stjórnsýslu- og þjónustueiningum
verði fækkað úr sex í eina háskóla-
skrifstofu sem skiptist í akademíska
stjórnsýslu og stoðþjónustu undir
stjórn eins framkvæmdastjóra. Verk-
efnum verður útdeilt eftir því sem
hagkvæmt þykir. Jafnframt er lagt til
við menntamálaráðuneyti að lögum
um háskólann verði breytt á þann veg
að háskólaráð verði þannig skipað að
þar eigi sæti fimm manns. Einnig
hefur verið veitt heimild til innheimtu
skólagjalda af nemendum frá ríkjum
utan EES.
Háskólaráð hefur falið rektor að
hrinda þessum tillögum í fram-
kvæmd. Miðað er við að breytingar á
stjórnsýslu og þjónustu hefjist strax
og verði lokið eigi síðar en 1. júní
2006. Sameining auðlinda- og upplýs-
ingatæknideildar við viðskiptadeild
hefjist strax og nýtt skipulag fyrir
viðskipta- og raunvísindadeild taki
gildi eigi síðar en 1. ágúst 2006.
Skipulagsbreytingar í Háskólanum á Akureyri voru kynntar fyrir kennurum skólans í gær
Markmiðið að búa skól-
ann undir framtíðina
Morgunblaðið/Kristján
Fyrirhugaðar breytingar í Háskólanum á Akureyri voru kynntar á starfs-
mannafundi í gær. Ekki voru allir ánægðir með breytingarnar.
ÞÓRIR Sigurðsson, lektor í auð-
lindadeild Háskólans á Akureyri
og formaður Félags háskólakenn-
ara á Akureyri, sagðist hafa orðið
var við töluverða óánægju innan
veggja skólans með þær aðferðir
sem notaðar voru við ákvarð-
anatöku um boðaðan niðurskurð.
Málið hefði heldur ekki verið
kynnt nógu vel. Hann sagðist
hafa heyrt efasemdarraddir um
að þessar samþykktir skiluðu til-
ætluðum sparnaði í rekstri skól-
ans. Þá sagði Þórir að svo virtist
sem það væri stefna stjórnvalda
að hindra vöxt skólans í framtíð-
inni. „Við höfum þá tilfinningu
hér að þingmönnum og ráðherr-
um finnist nóg komið.“
Átti að birta skýrsluna strax
Þórir sagði það sína skoðun að
birta hefði átt skýrslu sparnaðar-
nefndarinnar um leið og hún var
tilbúin og taka hana til umræðu
innan skólans. „Eftir það hefði
svo mátt taka ákvarðanir. Það
var ekki gert og þeir einu sem
sáu skýrsluna voru fulltrúar í há-
skólaráði.“ Þórir sagði að þetta
væri vissulega stór frétt, fyrir
starfsfólk skólans, bæjarfélagið
og landsbyggðina.
„Það sem hefur verið ákveðið
fer ekki að hafa áhrif fyrr en
seinna. Vormisserið er fyrirfram
ákveðið og það gerist ekki mikið
á þeim tíma. Þeir nemendur sem
eru byrjaðir og
halda áfram á
næstu árum
verða að fá að
ljúka námi eins
og það var
skipulagt í upp-
hafi. Það er ein-
mitt þess vegna
sem ég get ekki
séð þennan
mikla sparnað að svo stöddu.
Við lítum á þennan vanda
sem hret en ekki stórhríð
Fyrir næsta haust verður búin
til ný kennsluskrá fyrir samein-
uðu viðskipta- og raunvís-
indadeildina sem vekur vissar
vonir um fjölbreytni og hag-
kvæmni. Það er talað um breyt-
ingar í stjórnsýslu sem er góðra
gjalda vert, því að hún er frekar
stór miðað við smæð skólans.
Hingað til hafa flestar sparnaðar-
aðgerðir aðallega bitnað á
kennslu,“ sagði Þórir. „Annars
vona ég að þessar aðgerðir nái
tilgangi sínum. Þrátt fyrir allt
eru þær fjárhæðir sem um ræðir
smávægilegar. Við Norðlendingar
lítum á þennan vanda sem hret en
ekki stórhríð. Kostnaður við
menntun úti á landi er framtíð-
arfjárfesting.
Háskólinn á Akureyri er og
verður þungt lóð á byggðavog-
inni.“
Stefna stjórnvalda virðist
að hindra vöxt skólans
Þórir Sigurðsson
styðja Samfylkinguna var stuðningur
við Stefán Jón sá sami; þ.e. hann var
með um tvo þriðju hluta fylgisins.
Á vefnum heimur.is kemur fram að
lítill munur hafi verið á afstöðu
kynjanna en þó hafi Stefán Jón haft
heldur meira fylgi meðal kvenna.
Sjálfstæðisflokkurinn
með meirihluta
Frjáls verslun gerði einnig könnun
á fylgi flokkanna í Reykjavík. Sam-
kvæmt niðurstöðunum fengi Sjálf-
stæðisflokkurinn 52,9% atkvæða og
níu borgarfulltrúa, Samfylkingin
30,6% atkvæða og fimmborgarfull-
trúa, Framsóknarflokkurinn 3,1% og
engan borgarfulltrúa, Vinstri-Grænir
10,4% og einn borgarfulltrúa og
Frjálslyndir 2,4% og engan fulltrúa.
ALLS 67% þeirra sem tóku afstöðu í
könnun Frjálsrar verslunar fyrir vef-
svæðið heimur.is sögðust treysta
Stefáni Jóni Hafstein betur en Stein-
unni Valdísi Óskarsdóttur sem borg-
arstjóra. Könnunin var símakönnun
og var valið handahófskennt úrtak úr
símanúmeraskrá Reykvíkinga, skv.
upplýsingum frá heimur.is. Könnunin
var gerði í vikunni.
Spurt var: „Hvoru treystir þú bet-
ur sem borgarstjóra, Stefáni Jóni
Hafstein eða Steinunni Valdísi Ósk-
arsdóttur?“
Samtals 564 einstaklingar voru
spurðir. Um 27% vildu hvorugt, 16%
voru óviss og 4% neituðu að svara. Af
þeim sem afstöðu tóku sögðust 67%
treysta Stefáni Jóni betur en um 33%
Steinunni Valdísi. Meðal þeirra sem
Stuðningur við
Stefán Jón 67%
TÍMARITAÚTGÁFAN Fróði
braut gegn lögum um fæðingar-
og foreldraorlof með því að gefa
fyrrum ritstjóra tímaritsins Húsa
og híbýla ekki kost á því að
hverfa að fyrra starfi sínu, eða að
sambærilegu starfi, eftir lok fæð-
ingarorlofs. Úrskurðarnefnd í
fæðingar- og foreldraorlofsmál-
um hefur komist að þessari nið-
urstöðu.
Ritstjórinn, Lóa Aldísardóttir,
ól barn 17. júlí í fyrra og hóf þá
töku átta mánaða fæðingarorlofs.
Í framhaldinu hugðist hún taka
sumarleyfi og ætlaði að hefja
störf að nýju 25. apríl í ár. Í mars
fékk hún þær fregnir að búið
væri að ráða nýja ritstjóra á Hús
og híbýli.
Í niðurstöðu úrskurðarnefndar
segir að samkvæmt gögnum
málsins hafi Lóu ekki staðið til
boða að hverfa aftur að starfi
sínu sem ritstjóri Húsa og híbýla
við lok fæðingarorlofs. Í 29. grein
fæðingarorlofslaganna segir að
starfsmaður skuli eiga rétt á að
hverfa aftur að starfi sínu að
loknu fæðingarorlofi. Sé þess
ekki kostur skuli hann eiga rétt á
sambærilegu starfi hjá vinnuveit-
anda í samræmi við ráðningar-
samning.
Segir í niðurstöðu nefndarinn-
ar að Fróði ehf. hafi ekki vísað til
þess að rekstrarlegar breytingar
hafi verið ástæða þess að Lóu
bauðst ekki að hverfa aftur að
starfi sínu. Því sé haldið fram af
hálfu fyrirtækisins að henni hafi
verið boðið að gerast ritstjóri að
öðru tímariti og með því sam-
bærilegt starf. „Ekkert liggur
hins vegar fyrir um að kæranda
hafi verið boðið ákveðið starf.
Eingöngu er vísað til óljósra fyr-
irætlana eða hugmynda fyrirtæk-
isins um að hefja útgáfu nýrra
tímarita,“ segir meðal annars í
niðurstöðunni.
Fróði braut gegn lög-
um um fæðingarorlof
HÆGT er að nálgast ársreikninga
Samfylkingarinnar frá árinu 2001 til
ársins 2004 á vef flokksins: samfylk-
ingin.is. Ari Skúlason, gjaldkeri
Samfylkingarinnar, segir að fyrir ut-
an Samfylkinguna, sé Frjálslyndi
flokkurinn, eini flokkurinn sem birti
ársreikninga sína með þessum hætti
á Netinu.
Í ársreikningi Samfylkingarinnar
fyrir árið 2003 kemur fram að kostn-
aður vegna alþingiskosninganna hafi
verið 87,8 milljónir króna. Ari segir
aðspurður að það sé kosningastjórn-
ar flokksins að ákveða hvort upplýst
verði nánar um framlög vegna kosn-
inga flokksins.
Í fyrra námu tekjur flokksins 84
milljónum króna. Þar af námu styrk-
ir og frjáls framlög 3,3 milljónum
króna. 73 milljónir koma af fjárlög-
um og 7 milljónir frá þingflokknum.
Baráttan
kostaði 87,8
milljónir
TENGLAR
..............................................
Meira á ítarefni/mbl.is
MAÐUR þarf ekki endilega að vera á skautum til að
njóta þess að vera á Vífilsstaðavatni. Aðalatriðið er að
vera tilbúinn til að hreyfa sig og njóta þess að vera úti.
Þessir krakkar úr Hjallaskóla í Kópavogi vita að það er
hægt að gera fleira skemmtilegt en að sitja yfir tölvu
og sjónvarpi.
Morgunblaðið/Golli
Gaman á Vífilsstaðavatni