Morgunblaðið - 12.11.2005, Blaðsíða 14
Afhentu
forsætisráðherra
krónu konunnar
UNGLIÐAHÓPUR Femínistafélags
Íslands hefur látið útbúa svonefnda
krónu konunnar, en það er barm-
næla sem er eftirlíking af krónu-
peningi en 35% peningsins hafa ver-
ið skorin úr til marks um að
heildarlaun kvenna eru 35% lægri
en heildarlaun karla. Krefjast ungliðarnir þess að króna
kvenna verði gerð jafnstór og króna karla.
Ungliðahópurinn afhenti Halldóri Ásgrímssyni for-
sætisráðherra eina krónu konunnar í gær. Sagði Elín Ósk
Helgadóttir, talsmaður hópsins, að skorið væri úr krónunni
svo misréttið væri áþreifanlegt og hvatti hún Halldór til að
berjast fyrir því að krónan yrði heil.
Halldór sagðist gjarnan vilja bera þessa krónu í
barminum. Hann óskaði konunum velgengni í bar-
áttunni og sagðist trúa því að þær yrðu komnar
með heila krónu í hendur fljótlega.
Morgunblaðið/RAX
Halldór Ásgrímsson tekur við krónu konunnar í Ráð-
herrabústaðnum í gær.
14 LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Tenórinn og
tækifærin
Svo mannlegt
að einn tónn klikki
á morgun
FORMAÐUR Vélstjórafélags Ís-
lands segir að sjávarútvegurinn
muni til lengri tíma litið verða
helzta atvinnugrein Íslendinga, þó
fjármálastofnanir virðist hafa tekið
við því hlutverki um tíma. Hann
telur að svo verði ekki um öll
ókomin ár.
Þetta kom fram í ræðu Helga
Laxdal, formanns VSFÍ á vél-
stjóraþingi, sem nú stendur yfir.
„Í þau 24 ár sem ég hef verið í
forsvari Vélstjórafélags Íslands
hefur ekki verið um það deilt að
sjávarútvegurinn, það er veiðarnar
og vinnslan, sé höfuðatvinnugrein
þessarar þjóðar. Sú atvinnugrein
sem skaffi þjóðinni stærstan hluta
teknanna sem fer í að brauðfæða
hana. Sú atvinnugrein sem önnur
atvinnustarfsemi byggist á að
stærstum hluta ásamt lífsvið-
urværi þeirra fjölmörgu sem
byggja sjávarþorpin við ströndina.
Sú atvinnugrein sem hefur ráðið
mestu um skráningu á gengi ís-
lenzku krónunnar á hverjum
tíma,“ sagði Helgi.
Hann hélt síðan áfram og sagði
einnig: „Hér hefur orðið breyting
á, í fyrsta lagi virðast landsfeð-
urnir ekki þjakaðir af svefntrufl-
unum vegna stöðugt lækkandi
launa sjómanna sem helgast af allt
of háu gengi krónunnar. Það veld-
ur því að illa gengur að manna
fiskiskipin hæfum sjómönnum sem
mun koma fram í lélegri afköstum
og aukinni slysatíðni um borð. Hér
er auðvitað um ástand að ræða
sem ekki getur varað mikið leng-
ur. Haldi það áfram mun það leiða
til stöðugt vaxandi fólksflótta frá
þessari atvinnugrein sem verður
ekki rekin nema með dugmiklum
og hæfum sjómönnum.
Í dag virðist peningaiðnaðurinn
hafa tekið við af sjávarútveginum
sem höfuðatvinnugrein þjóð-
arinnar. Peningaiðnaðurinn vex
hraðast og greiðir hæstu launin.
Sá bankanna sem hefur vaxið mest
hefur rúmlega fimmfaldað verð-
mæti sitt á skömmum tíma og skil-
aði tæpum 1 milljarðs tekjuafgangi
á viku það sem af er árinu. Trúa
menn því virkilega að svo verði um
öll ókomin ár? Ég að minnsta kosti
trúi því ekki. Ég held að sjávar-
útvegurinn muni til lengri tíma lit-
ið verða okkar höfuðatvinnugrein
og að hafið umhverfis landið verði
um ókomin ár helzta auðlindin.
Auðlind sem okkur ber að nýta af
skynsemi og fyrirhyggju í fullri
sátt við okkar helztu vísindamenn
á þessu sviði“.
Vélstjóraþingið er haldið á Hótel
Sögu og þar hefur verið sett upp
sérstök sýning samhliða þinginu. Á
þinginu er fjallað um meng-
unarvarnir, orkusparnað, notkun
vetnis sem orkugjafa fyrir fiski-
skip, öryggismál og margt fleira.
Þinginu lýkur síðdegis í dag.
Allt of hátt gengi
lækkar laun sjómanna
Morgunblaðið/Ómar
Fundahöld Frá vélstjóraþingi. Helgi Laxdal, formaður VFSÍ, er lengst til vinstri.
Ástand sem ekki
getur varað mik-
ið lengur segir
formaður VSFÍ
ÚR VERINU
„MÉR finnst verða vatnaskil í skipu-
lagsmálum í borginni og hugsun um
þau þegar öflugustu aðilarnir í bygg-
ingariðnaði, fag-
fólk og sannarlega
við stjórnmála-
mennirnir, sem
stundum höfum
upplifað okkur
svolítið eina í því
að tala fyrir þéttri
byggð og því að
fara með bílastæði
neðanjarðar,
séum farin að tala
einum rómi,“ seg-
ir Dagur B. Eggertsson, formaður
skipulagsráðs Reykjavíkurborgar, í
samtali við Morgunblaðið um árangur
af sérstakri vinnustofu um borgar-
skipulag, samgöngur og gæði byggð-
ar, sem haldin var að frumkvæði
skipulags- og byggingarsviðs á Grand
hóteli á miðvikudag.
Líkt og kom fram í Morgunblaðinu
í vikunni hélt Gunnlaugur Kristjáns-
son, framkvæmdastjóri þróunarsviðs
Íslenskra aðalverktaka, meðal ann-
arra erindi þar sem kom fram gagn-
rýni á skipulag atvinnulóða við Borg-
artún. Meðal annars gagnrýndi hann
að mikill hluti lóða væri nýttur undir
bílastæði og að göngutengingar á milli
lóðanna gætu ekki talist eðlilegar.
Dagur B. segir Gunnlaug ekki einan
um að hafa áhyggjur af útkomunni í
Borgartúni og vísar til þess að þó svo að
gert hafi verið ráð fyrir töluverðum
fjölda bílastæða ofanjarðar hafi einnig
verið kveðið á um betri umhverfisfrá-
gang í tengslum við þau stæði en raun-
in hafi verið og það sé hugsanlega atriði
sem þurfi að kanna nánar. Gönguteng-
ingarnar á milli lóða séu einnig mál sem
þurfi að taka á.
Miklabraut í stokk
Ein þeirra hugmynda sem ræddar
voru á miðvikudag er að setja Miklu-
braut í stokk frá Grensásvegi til
Snorrabrautar. Hugmyndin fékk góð-
ar undirtektir fundargesta og telur
Dagur hana tvímælalaust vera raun-
hæfa. Skipulagsráð mun taka hug-
myndina til frekari útfærslu og kanna
hver hugsanlegur kostnaður við
framkvæmdir af slíku tagi gæti orðið.
Gunnlaugur benti á í máli sínu að
seldur byggingarréttur við Miklu-
braut ofanjarðar gæti farið langleið-
ina með að borga kostnaðinn en telur
Dagur það orðum aukið, það muni
hins vegar vera kannað nánar. Hon-
um líst vel á þær hugmyndir að færa
stofnbrautir í stokka og mun betur en
á ýmis mislæg gatnamót og aðrar
lausnir sem eiga kannski ekki heima í
blómlegum íbúðarhverfum eða í mið-
borginni.
Með stokkum er hægt að bregðast
við því að umferð á yfirborði sé ein-
faldlega orðin of mikil til að hægt sé
að vera með góð íbúðarhverfi og þó að
slíkar framkvæmdir séu vissulega
dýrar kemur á móti að meira bygg-
ingarmagn fæst, betri íbúðarhverfi og
ekki síst aukin lífsgæði fyrir íbúana á
svæðinu.
Dagur B. Eggertsson, formaður skipulagsráðs, segir stjórn-
málamenn og fagaðila í byggingariðnaði tala einum rómi
Vatnaskil í skipulags-
málum borgarinnar
Dagur B.
Eggertsson
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is