Morgunblaðið - 12.11.2005, Qupperneq 18
18 LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
BANKASTJÓRN Landsbanka Ís-
lands tilkynnti í gær ákvörðun sína
þess efnis að hækka vexti á verð-
tryggðum íbúðalánum á föstum vöxt-
um, úr 4,14% í 4,45%. Blaðamaður
Morgunblaðsins hitti af því tilefni
bankastjóra bankans, þá Sigurjón Þ.
Árnason og Halldór J. Kristjánsson,
að máli.
Sigurjón segir vaxtahækkunina til
komna vegna hækkunar á markaðs-
vöxtum að undanförnu. Hann segir
það þó nánast óráðlegt fyrir bankann
að hækka vextina, fyrstur banka.
„Við metum það þannig að aðstæður
á Íslandi séu slíkar að það sé nauðsyn
að bregðast við. Seðlabankinn reynir
að hækka vexti til þess að hægja á
þenslunni og til þess að þær aðgerðir
skili árangri verða bankarnir að
hækka vexti á íbúðalánum,“ segir
Sigurjón og bætir við: „Við teljum
okkur stuðla að kælingu hagkerfis-
ins, jafnframt því að draga úr verð-
bólgu en til lengri tíma séð teljum við
það verðmeira fyrir lántakendur að
það takist að koma böndum á verð-
bólguna. Langtímamarkmiðið hlýtur
einnig að vera að auka stöðugleika
svo hægt sé að lækka útlánsvexti án
þess að allt fari úr böndum. Þar af
leiðandi lítum við á það sem svo að
vaxtahækkun þjóni hagsmunum okk-
ar sem lánveitenda og þjóðfélagsins í
heild og þess vegna ákváðum við að
taka af skarið, þrátt fyrir að hætta sé
á að neytendur líti það neikvæðum
augum.“
Aðspurður segir Sigurjón að
hækkun þessi hafi ekki áhrif á lán
sem fólk hefur þegar tekið þar sem
ekki sé um að ræða hækkun á breyti-
legum vöxtum.
Ábyrgur banki
Halldór segir að bankaleg sjónar-
mið hafi að sjálfsögðu verið höfð til
hliðsjónar við lækkunina. „Við verð-
um að breyta okkar vaxtaákvörðun-
um í takt við vaxtabreytingar á
markaði. Við erum ábyrgur banki
sem lætur markaðslögmál ráða og
sömuleiðis liggur í þessari ákvörðun
ábyrgðartilfinning gagnvart þróun-
inni í hagkerfinu, svo sem verð-
lagsþróun og gengisþróun.
Þetta leiðir vonandi til þess að
áhrif stýrivaxtahækkunar Seðla-
bankans skili sér fyrr inn í hagkerfið
og ef það skilar sér með ákvörðunum
okkar og annarra aðila á fasteigna-
markaði dregur það kannski enn úr
mati Seðlabankans á hækkunarþörf
skammtímavaxta. Þetta ætti enn-
fremur að snúa við ferli gengishækk-
unar krónunnar sem hefur verið
áhyggjuefni fyrir bankann og alla í
efnahagslífinu.“
En mun bankinn lækka vexti sína
aftur ef samkeppnisaðilar hans fylgja
ekki þessari hækkun?
„Við segjum skýrt í yfirlýsingu
bankans að við munum meta mark-
aðsaðstæður og þróun og þessi
ákvörðun er til endurskoðunar ef að-
stæður á markaði breytast. En við
tökum þessa ákvörðun út frá eigin
forsendum og bankalegum sjónar-
miðum og við reiknum með að mark-
aðslögmálin eigi við hjá fleirum en
okkur, þ.e.a.s. að aðilar á markaði
muni taka markaðslegar ákvarðanir.
Vaxtaþróun verðtryggðra vaxta hef-
ur verið hröð síðustu daga og það er
ljóst að þeir aðilar sem taka mark-
aðslegar ákvarðanir hljóta að taka
mið af þeirri þróun, þá á ég einnig við
Íbúðalánasjóð,“ segir Halldór.
Mikilvægt að tempra hagkerfið
Hann segir hag viðskiptavina
bankans fyrst og fremst liggja í því
að halda efnahagslegum stöðugleika
sem sé forsenda hagvaxtar og kaup-
máttaraukningar sem innistæða sé
fyrir til lengri tíma litið. Allt haldist
þetta í hendur og það sé því mjög
mikilvægt að tempra hagkerfið. En
telja þeir Halldór og Sigurjón að
þetta muni verða til þess að lækka
stýrivexti Seðlabankans?
„Ef markaðurinn tekur ákvarðanir
eins og þróun ávöxtunarkröfu gefur
fullt tilefni til ætti það að leiða til þess
að metin hækkunarþörf Seðlabank-
ans á stýrivöxtum yrði minni og það
ætti aftur að koma neytendum á
lánamarkaði mjög til góða. Það má
ekki gleyma því að þeir sem taka
íbúðarlán eru margir með skamm-
tímalán á breytilegum vöxtum og
þeir ættu að hafa hag af því að
skammtímavextir lækki. Jafnframt
gæti þetta orðið til þess að flýta
nauðsynlegri aðlögun krónunnar en
ég held að flestir séu sammála um að
hún er orðin óæskilega há, fyrir efna-
hagslífið, sérstaklega útflutnings- og
samkeppnisgreinar,“ segir Halldór.
Landsbankinn vill stuðla
að kælingu hagkerfisins
Eftir Guðmund Sverri Þór
sverrirth@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn
Styðja Seðlabankann Með hækkun vaxta vilja þeir Sigurjón Þ. Árnason
og Halldór J. Kristjánsson stuðla að því að það hægi á þenslu í hagkerfinu.
!"#$
%&$ '"( )
*& '"( )
+ '"( )
+, '"( )
* '- )
.$ -$! )
/#!" )
0(1 * )
0 )
,-$! .$ -$ )
2 )
3.+ )
34*#5$ +65! )
7$$ )
" '"( )
+$4# .$ -$ )
4(#6 )
8% -% '"( )
2"$% +$)"$ )
9:) 6 )
;$!< )
=>+ % = " 4
4#$# )
$ $# )
!"
+$ - ?66# )
3 5@ 3# -$ $&
AA )
! #$ %
8B?C
3D#$
&#$& #
* 5
&#$& #
E FG
E FG
E FG
E
FG
E FG
E FG
E
FG
E FG
E FG
E FG
E FG
-&#$(
-$$
!"# D " -$
0( 3
#$( D 1<$
H ) $ +6 -
&#$(
ÞETTA HELST ...
VIÐSKIPTI
● HEILDARVIÐSKIPTI í Kauphöll Ís-
lands í gær námu um 18,4 millj-
örðum króna, þar af voru viðskipti
með hlutabréf fyrir um 3,3 milljarða.
Mest hækkun varð á bréfum
Dagsbrúnar, 5,6%, en mest lækkun
varð á bréfum Atorku, 0,9%.
Úrvalsvísitala aðallista hækkaði
um 0,9% og er hún nú 4.729 stig.
0,9% hækkun
Úrvalsvísitölu
● Íslandsbanki leitar nú leiða til að
fylla upp í þær eyður sem bankanum
finnst vera í eignasafni sínu í Noregi
og vill stjórn bankans annað hvort
kaupa eða stofna verðbréfafyrirtæki
þar í landi. Kemur þetta fram í frétt
norska blaðsins Finansavisen.
Íslandsbanki hefur nú þegar keypt
norsku bankana Kredittbanken og
BN bank og hefur norska blaðið það
eftir Bjarna Ármannssyni, forstjóra
Íslandsbanka, að bankinn vilji styrkja
stöðu sína á norskum verðbréfa-
markaði. Hann viðurkennir þó að erf-
itt geti verið að finna gróðavænleg
tækifæri, þar sem norsk verðbréfa-
fyrirtæki séu flest mjög vel stæð eftir
mikið vaxtarsumar á þarlendum
verðbréfamarkaði.
ÍSB leitar norsks
verðbréfafyrirtækis
ÚTBOÐI á nýju hlutafé í FL Group
lauk á fimmtudag. Heildarfjöldi
hluta í útboðinu var liðlega 3,2 millj-
ónir, á genginu 13,6, og er söluverð-
mæti hinna nýju hluta 44 milljarðar
króna.
Stærstu hluthafar FL Group
kaupa nýtt hlutafé í félaginu fyrir 28
milljarða króna. KB banki og Lands-
banki Íslands kaupa nýtt hlutafé fyr-
ir 3,1 milljarð, en þeir höfðu umsjón
með hlutafjárútboðinu. Þá kaupa
fagfjárfestar nýtt hlutafé fyrir 12,9
milljarða króna.
Fagfjárfestar óskuðu eftir að
kaupa 33,6 milljarða króna í hluta-
fjárútboði FL Group. Ráðgert var að
selja þeim hlutafé fyrir 8 milljarða. Í
tilkynningu frá FL Group til Kaup-
hallar Íslands segir að vegna veru-
legrar umframeftirspurnar hafi KB
banki og Landsbankinn ákveðið að
skerða þann hlut sem þeir höfðu
ákveðið að kaupa.
Eftir hlutafjárútboðið hefur FL
Group aukið hlut sinn í Íslandsbanka
úr 3,05% í 6,63%. Jafnframt hefur
FL Group eignast 5,83% hlut í
Straumi-Burðarási Fjárfestingar-
banka, en félagið átti engan hlut í því
fyrir. Frá þessu var greint í tilkynn-
ingum til Kauphallarinnar í gær.
Fram kemur í tilkynningu til
Kauphallarinnar að af þeim 28 millj-
örðum króna sem stærstu hluthaf-
arnir í FL Group kaupa, sé hlutur
Baugs Group stærstur, eða 15 millj-
arðar. Þá kaupir Eignarhaldsfélagið
Oddaflug, sem er í eigu Hannesar
Smárasonar, forstjóra FL Group, 7,5
milljarða króna, og óstofnað einka-
hlutafélag (Materia Invest) kaupir
5,5 milljarða, en það verður í jafnri
eigu Magnúsar Ármann, Þorsteins
M. Jónssonar og Kevin Stanford.
Eftir hlutafjárútboðið verða Eign-
arhaldsfélagið Oddaflug og Baugur
Group stærstu hluthafar félagsins
með samtals tæp 50%. Oddaflug
mun eiga um 25,1% og Baugur um
24,6%.
Gengi hlutabréfa FL Group
hækkaði um 4,7% í Kauphöll Íslands
í gær og er lokaverð þeirra 14,60.
Umframeftirspurn eftir
nýju hlutafé í FL Group
ÞORGILS Óttar Mathiesen, forstjóri Sjóvár, hef-
ur keypt 40% hlut í fasteigna- og þróunarfélaginu
Klasa. Aðrir eigendur Klasa eru Sjóvá og Íslands-
banki. Þorgils Óttar mun í kjölfar fjárfestingarinn-
ar taka við stjórnun félagsins og um leið láta af
störfum sem forstjóri Sjóvár. Ragnar Atli Guð-
mundsson, sem stýrt hefur bæði Klasa og Eign-
arhaldsfélaginu Fasteign, mun áfram stýra Fast-
eign.
Stjórn Sjóvá hefur ráðið Þór Sigfússon sem for-
stjóra félagsins en hann mun hefja störf í desem-
bermánuði. Þór Sigfússon hefur gegnt starfi fram-
kvæmdastjóra Viðskiptaráðs Íslands frá árinu
2003 en áður gegndi hann stöðu aðstoðarfram-
kvæmdastjóra Norræna fjárfestingarbankans frá
árinu 1998. Þór er 41 árs gamall og er hagfræð-
ingur að mennt. Þór Sigfússon segir nýja starfið
leggjast afar vel í sig enda sé Sjóvá geysilega öfl-
ugt félag. „Þetta er félag sem hefur verið með ótrú-
legan traustan hóp starfsfólks og það skiptir miklu
máli hjá tryggingafélagi að svo sé. Við höfum bæði
starfsfólk og stjórnendur með mikla reynslu og
líka nýtt fólk og ég held að það sé draumastaða.“
Þór hefur töluvert skrifað um útrás íslenskra
fyrirtækja og hann segir hluta af verkefnum sínum
felast í því að leita nýrra tækifæra. „Útrás verður
tvímælalaust á borðinu hjá okkur.“
Fleiri breytinga að vænta
Þá hefur Sjóvá ráðið Helga Bjarnason trygg-
ingastærðfræðing sem aðstoðarforstjóra félagsins
en hann mun einkum sinna verkefnum tengdum
vátryggingastarfsemi félagsins. Helgi er 36 ára og
hefur undanfarin ár starfað að uppbyggingu og
rekstri KB-líftryggingar, nú síðast sem forstöðu-
maður vátryggingasviðs. Fleiri breytingar hafa
verið gerðar á framkvæmdastjórn Sjóvá sem verða
kynntar nánar á næstu vikum.
Þorgils Óttar kaupir 40% í Klasa
Morgunblaðið/Ómar
Forstjóraskipti Þorgils Óttar Mathiesen býður
Þór Sigfússon velkominn í starfið.
● SAMKVÆMT uppgjöri Atorku Group
fyrir fyrstu níu mánuði ársins jókst
rekstrar- og stjórnunarkostnaður veru-
lega milli ára, nemur nú 286 millj-
ónum króna miðað við 15 milljónir ár-
ið áður. Aukningin stafar aðalega af
því að gerður var upp kaupréttar-
samningur við fyrrverandi fram-
kvæmdastjóra félagsins, Styrmi Þór
Bragason, og nam kostnaður vegna
samningsins 160 milljónum króna.
Hagnaður Atorku fyrir skatta á
þriðja ársfjórðungi nam 224 milljón-
um króna samanborið við 751 milljón
króna á sama tíma í fyrra og dregst
hagnaðurinn saman um 70% milli
tímabila. Fyrstu níu mánuði ársins
nam hagnaðurinn fyrir skatta 642
milljónum króna samanborið við um
2,5 milljarða króna á síðasta ári.
Hreinar fjármunatekjur voru jákvæðar
um 590 milljónir króna en voru 933
milljónir króna á síðasta ári. Samtals
nam eigið fé um 8,5 milljörðum og
heildareignir félagsins voru um 18,6
milljarðar króna miðað við um 8,97
milljarða í upphafi tímabilsins.
160 milljóna
starfslokasamningur
9$-I
3J= F
F
+
3?
;K
F
F
BB
L2K
F
F
L2K 0)
9
F
F
8B?K ;"M /" $
F
F