Morgunblaðið - 12.11.2005, Qupperneq 21
„Hreinasti bravör“
Fréttablaðið
Sýning í kvöld!
Gautaborg. Morgunblaðið. | Enn eitt
peningaránið var framið í Svíþjóð í
gærmorgun þegar vopnaðir menn
létu til sín taka í aðsetri Securitas og
talningarmiðstöð í Jönköping.
Þetta er er hið fimmta í röð óupp-
lýstra rána af svipuðu tagi í Svíþjóð
síðan í ágúst.
Ræningjarnir höfðu reyndar lítið
upp úr krafsinu að þessu sinni en
þeirra var enn leitað seinnipartinn í
gær. Rýma þurfti miðborg Jönköp-
ing vegna þess að grunur lék á að
tveir bílar sem talið var að þeir hefðu
skilið eftir innihéldu sprengiefni.
Fjórum öryggisvörðum var hótað
með vélbyssum en þeim tókst að
komast inn í flutningabíl og læsa sig
þar inni. Talið er að fjórir til sjö
menn hafi komið að ráninu. Tveir
þeirra hurfu á mótorhjólum og hinir í
tveimur bílum. Lögreglan hafði ekki
náð þeim um miðjan dag í gær en
hafði margar ábendingar frá al-
menningi að styðjast við.
Það veldur áhyggjum hve rán af
þessu tagi eru algeng í Svíþjóð, þ.e.
rán á bönkum, pósthúsum, peninga-
geymslum eða peningaflutningabíl-
um. Á lista ESTA – European Secur-
ity Transport Association (samtaka
evrópskra fyrirtækja er annast
flutninga á verðmætum og fjármun-
um) yfir verðmætaflutningarán í
Evrópu á árunum 1998–2004 er Sví-
þjóð í fjórða sæti yfir tíðni slíkra
rána en þau voru 224 talsins á því
tímabili. Fleiri rán voru framin í
Bretlandi, Frakklandi og Póllandi.
Í Finnlandi voru fjögur sambæri-
leg rán framin á sama tíma, 93 í Dan-
mörku og 42 í Noregi. Á vef dag-
blaðsins Dagens Nyheter kemur
fram að á tímabilinu frá janúar 2002
til september á þessu ári var framið
slíkt rán eða ránstilraun þriðja
hvern dag í Svíþjóð.
Í ágúst voru tvö rán framin, ann-
ars vegar á peningageymslu í Stokk-
hólmi og hins vegar á peningaflutn-
ingabíl suður af Stokkhólmi. Í
báðum tilvikum voru þjófarnir með
vélbyssur og talið er að ránsfengur-
inn í fyrra tilvikinu hafi verið um 60
milljónir sænskra króna, þ.e. um 450
milljónir íslenskra króna.
Í lok október var peningageymsla
í Helsingborg rænd og notuðu þjóf-
arnir gaffallyftara til verksins. Í
byrjun nóvember rændu þrír menn
peningaflutningabíl á vesturströnd
Svíþjóðar.
Segja lausnina vera
aukin kortaviðskipti
Það var kornið sem fyllti mælinn
hjá starfsfólki Securitas og það lagði
tímabundið niður vinnu. Seðlaþurrð
skapaðist í hraðbönkum og upp
spunnust umræður um að neytendur
þyrftu að byrja að nota greiðslukort í
auknum mæli.
Johan Eriksson, forstjóri Secur-
itas í Svíþjóð, segir í samtali við
Svenska Dagbladet, að öryggisvið-
búnaður Securitas hafi verið aukinn
og verði enn aukinn eftir þetta.
Eftir ránið í Jönköping leggja
Samtök verslunarinnar áherslu á að
kortaviðskipti og minna af reiðufé í
umferð sé eina lausnin á ránunum
Enn eitt vopnað rán í Svíþjóð
Rán eða ránstilraunir af þessu tagi
verða þriðja hvern dag í landinu
Eftir Steingerði Ólafsdóttur
steingerdur@mbl.is
Dubai. AFP. | Al-Qaeda-hryðjuverka-
samtökin sendu frá sér yfirlýsingu í
gær þar sem frá því er skýrt að fjórir
Írakar hafi framið sjálfsmorðsárás-
irnar í Amman í Jórdaníu á miðviku-
dag. Hjón voru að verki í einu tilfell-
inu.
Jórdanski hryðjuverkamaðurinn
Abu Musab al-Zarqawi, sem sagður
er stjórna aðgerðum al-Qaeda í Írak,
hefur lýst yfir ábyrgð á árásunum á
þrjú hótel í Amman, sem kostuðu 57
manns lífið.
Í yfirlýsingu, sem barst frá sam-
tökunum í gær, segir að þrír menn
hafi skipulagt og framkvæmt sjálfs-
morðsárásirnar. Þar hafi rætt um þá
Abu Khabib, Abu Muaz og Abu
Omaira. Fjórði hryðjuverkamaður-
inn hafi verið kona, Om Omaira, sem
kosið hafi að fylgja eiginmanni sín-
um í dauða píslarvættisins. „Þau
hétu því að deyja og kusu stystu leið-
ina til að hljóta blessun guðs,“ sagði
m.a. í yfirlýsingunni.
Áður hafði al-Qaeda-hryðjuverka-
netið sent frá sér yfirlýsingu þar sem
ákvörðunin að ráðast gegn óbreytt-
um borgurum á hótelum í Amman
var réttlætt. Þykir ýmsum það til tíð-
inda heyra að samtökin skuli leitast
við að réttlæta gjörðir flugumanna
sinna og var þeirri skýringu velt upp
m.a. á vefsíðum breska ríkisútvarps-
ins, BBC, að hörð viðbrögð almenn-
ings í Jórdaníu hefðu komið foringj-
um al-Qaeda á óvart.
Í yfirlýsingunni sagði meðal ann-
ars að ráðist hefði verið á hótelin
sökum þess að þau hefðu verið „mið-
stöðvar“ þeirra, sem berðust gegn
íslam.
Hjón voru á meðal
tilræðismannanna
AP
Þúsundir manna flykktust í gær út á götur og torg í Amman, höfuðborg Jórdaníu, til að mótmæla hryðjuverkum
al-Qaeda-samtakanna. Hrópuðu menn ókvæðisorð um foringja þeirra og sögðu þá eiga skilið „að stikna í víti“.
Jórdanir mótmæla al-Qaeda
Bagdad. AFP. | Ezzat Ibrahim al-Duri,
sem var næstráðandi Saddams Huss-
eins, fyrrverandi Íraksforseta, er lát-
inn. Kom það
fram í yfirlýsingu
frá Baath-flokkn-
um, sem nú er
bannaður.
Í yfirlýsingunni
sagði, að al-Duri
hefði látist í gær
en hann var einn
af fáum, fyrrver-
andi ráðamönn-
um, sem ekki féllu
í hendur Bandaríkjamanna. Hafði
mikið fé, rúmlega 600 millj. ísl. kr.,
verið sett honum til höfuðs.
Al-Duri sá um ýmis óþrifaverk fyr-
ir Saddam og stýrði heilli herdeild
þótt hann hefði enga menntun til
þess eða annars.
Al-Duri
látinn
Al-Duri