Morgunblaðið - 12.11.2005, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 2005 23
MINNSTAÐUR
Lesa Njálu | Í tilefni af degi ís-
lenskrar tungu, miðvikudaginn 16.
nóvember næstkomandi, standa
nemendur 10. bekkjar Hvolsskóla í
Rangárþingi eystra fyrir upplestri á
Brennu-Njáls sögu í samstarfi við
Sögusetrið á Hvolsvelli. Lesturinn
hefst kl. 6.30 að morgni og munu
nemendur 10. bekkjar lesa úr sög-
unni til skiptis fram á kvöld.
Upplesturinn fer fram í sal skól-
ans. Áætlað er að lestrinum ljúki um
kl. 22. Öðru hvoru verður gert hlé á
upplestrinum og verður þá m.a. boð-
ið upp á söngatriði og ljóðaflutning.
Meðal þeirra sem fram koma eru
yngri nemendur skólans, söngv-
ararnir Jón Smári Lárusson og Gísli
Stefánsson og fleiri listamenn.
LANDIÐ
Þórshöfn | Stórum áfanga er nú lok-
ið varðandi aðbúnað aldraðra á Þórs-
höfn og í nágrenni en lokið er við-
byggingu dvalar- og hjúkrunar-
heimilsins Nausts á Þórshöfn. Við-
byggingin var tekin formlega í
notkun að viðstöddum góðum gest-
um. Jón Kristjánsson heilbrigðisráð-
herra var meðal gestanna ásamt nær
öllum þingmönnum kjördæmisins og
óskaði hann íbúum öllum til ham-
ingju með áfangann.
Aðeins ár er síðan fyrsta skóflu-
stungan var tekin að viðbyggingunni
og hafa framkvæmdir gengið bæði
hratt og vel en verktakinn er Tré-
smiðjan Rein í Suður-Þingeyjar-
sýslu. Flutti Björn Ingimarsson
sveitarstjóri þeim bestu þakkir fyrir
vel unnið verk.
Nýja viðbyggingin samanstendur
af hjúkrunarálmu, borðsal og and-
dyri, samtals um 400 fermetrum, en
auk þess voru verulegar endurbætur
gerðar á eldhúsi, starfsmannaað-
stöðu og þvottahúsi. Rýmin eru 17
auk tveggja dagvistarrýma og eru öll
hjúkrunarrými þegar nýtt og eru
horfur á að dvalarrýmin fyllist einnig
fljótlega en á þessari stundu eru þrjú
dvalarrými laus. Aðbúnaður heimil-
isfólks og starfsfólks telst nú til fyr-
irmyndar en í upphafi var stefnt að
því.
Meðan á framkvæmdum stóð var
oft mikið álag á starfsfólki heimilis-
ins sem leysti allan vanda með sóma
svo erfiðar aðstæður komu ekki nið-
ur á vistfólki en heimilið hefur alltaf
verið svo lánsamt að hafa gott starfs-
fólk innan sinna veggja, sagði sveit-
arstjóri ennfremur.
Vel búið að öldruðum
Margt hefur breyst á þeim rúmu
15 árum frá því heimilið var fyrst
tekið í notkun, þá með plássi fyrir sjö
vistmenn, og myndaðist strax bið-
listi.
Það er víða pottur brotinn í mál-
efnum aldraðra í landinu og því er
ástæða til að fagna þegar vel gengur.
Hér ríkir almenn ánægja með þann
árangur sem nú hefur náðst. Þeir
eru margir sem bera hag aldraðra
fyrir brjósti og vilja búa sem best að
Nausti. Það kom vel í ljós þennan
vígsludag því bæði einstaklingar, fé-
lagasamtök og fyrirtæki í byggðar-
laginu gáfu heimilinu stórgjafir á
þessari vígsluhátíð en nefna má að
Vörubílstjórafélagið Þór gaf eina
milljón króna til kaupa á sjúkrakall-
kerfi fyrir heimilið en brýn þörf var á
því. Sjúkrasjóður Verkalýðsfélags
Þórshafnar gaf kr. 350 þús. til kaupa
á sjúkrabaðlyftu og Sparisjóður
Þórshafnar 400 þúsund en auk þess
bárust heimilinu fleiri góðar gjafir
frá ýmsum velunnurum.
Fólk hefur í gegnum tíðina sýnt
heimilinu Nausti velvild og hlýhug á
ýmsan hátt; t.d. hétu rjúpnaskyttur
á heimilið fyrir tveimur árum og ætl-
uðu heimilinu þá tíundu hverja rjúpu
sem veidd var, einnig hafa sjómenn
hugsað til heimilisins og gefið af afla
sínum. Fólk gefur einnig af tíma sín-
um, t.d með heimsóknum á Naustið
við spjall og sögulestur, en það er
ekki síður dýrmæt gjöf.
Viðbygging dvalar- og hjúkrunar-
heimilisins Nausts tekin í notkun
Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir
Veitingar Valgerður Sverrisdóttir og Jón Kristjánsson voru meðal gesta
við formlega opnun viðbyggingar við Naust og gæddu sér á veitingunum.
Sautján ný
hjúkrunarpláss
Eftir Líneyju Sigurðardóttur
Ingólfur Margeirsson fékk heilablóðfall fyrir fáum
árum og fjallar í þessari bók um baráttu sína við
að öðlast bata á nýjan leik.
Afmörkuð stund er mögnuð frásögn af alvarlegum
veikindum og einstakri baráttu úr faðmi
dauðans til lífsins.
Afmörkuð stund er einstök lesning og mikil uppörvun
öllum þeim sem lent hafa í alvarlegum skakkaföllum í
lífinu. Bókin fjallar á góðu og auðskiljanlegu máli um
hverfulleika lífsins og átök við brigðula tilveru.
Lifandi og sönn frásögn
eins og Ingólfi Margeirssyni
er einum lagið.
Ný bók eftir Ingólf Margeirsson
SKRUDDA
Eyjarslóð 9 - 101 Reykjavík
s. 552 8866 - skrudda@skrudda.is
www.skrudda.is
Bók sem breytir lífssýn þinni!
30%
afsláttur næstu
daga
Ævi Jörgens Jörgensen, eða Jörundar hundadagakonungs, hefur
alltaf verið Íslendingum hugleikin. Í þessari bók er ótrúlegt
lífshlaup hans rakið allt frá æskuárunum í Kaupmannahöfn
þar til hann lýkur ævi sinni á Tasmaníu.
Sagt hefur verið um Jörund að líf hans væri lygilegra en
nokkur skáldskapur enda hafa margir spreytt sig á því að
skrifa skáldsögur sem byggja á lífi hans. Þessi bók sýnir þó
að engin þörf er á að grípa til skáldskapar til að skrifa
æsilega bók um Jörund.
Frásagnargleði og atburðarás sem minnir einna helst
á Munchhausen greifa gera þessa bók að frábærri
skemmtun en jafnframt veitir hún nýja innsýn í sögu
Evrópu á fyrri hluta 19. aldar. Björn Jónsson þýddi.
Sérlega vel skrifuð og vönduð ævisaga.
Bók sem enginn má láta fram hjá sér fara!
Einstakur lífsferill
30%
afsláttur næstu
daga