Morgunblaðið - 12.11.2005, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 12.11.2005, Blaðsíða 24
24 LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNSTAÐUR AKUREYRI „ÞAÐ var algjört slys að hætta við Dalsbrautina og afdrifaríkustu mistök í skipulagsmálum Akureyr- ar. Um það eru mér margir sam- mála, menn eru ekki komnir fram úr því máli og það sést vel núna hver áhrifin verða,“ sagði Guð- mundur Guðlaugsson, fram- kvæmdastjóri Sorpsamlags Eyja- fjarðar og fyrrverandi deildar- stjóri framkvæmdadeildar Akur- eyrarbæjar. „Það er verið að banna umferð stórra bíla um Mýr- arveg um nætur og helgar og ég er alveg sammála framkvæmdastjóra GV grafa um að með því sé verið að gera hlutina kostnaðarsamari, ekki bara fyrir framkvæmdaaðila, held- ur líka fyrir íbúa vegna lengri akstursleiða.“ Í Morgunblaðinu á þriðjudag var fjallað um þá ákvörðun bæjaryf- irvalda að takmarka umferð stórra bíla um Mýrarveg og rætt við þá Guðmund Jóhannsson, formann umhverfisráðs, og Guðmund Gunn- arsson, framkvæmdastjóra GV grafa. Fyrirtæki hans stundar efn- isflutninga, m.a. um Mýrarveg, í Íbúi í Lundarhverfi telur það slys að hætt var við Dalsbrautina Afdrifaríkustu mistök í skipulagsmálum bæjarins Takmarkanir Umferð stórra bíla um Mýrarveg er takmörkuð. Eftir Kristján Kristjánsson krkr@mbl.is FROSTMENN ehf. hafa fest kaup á Kælismiðjunni Frosti af Stáltaki ehf. en fyrirtækið er það stærsta á landinu í uppbyggingu og þjónustu á kæli- og frystikerfum í útgerðar- og matvælaframleiðslufyrirtækjum. Kaupverð er trúnaðarmál. Frost- menn ehf. eru að meirihluta í eigu þrettán starfsmanna Kælismiðjunn- ar Frosts og einnig koma tveir fjár- festar að félaginu. Gunnar Larsen framkvæmdastjóri er einn þeirra starfsmanna sem standa að kaup- unum og hann mun starfa áfram sem framkvæmdastjóri. Gunnar sagðist ánægður með að kaupin hefðu gengið í gegn, eftir nokkuð langt og flókið ferli. Hann sagði að gjaldþrot Slippstöðvarinnar hefði gert það að verkum að inn í málið hefðu blandast margir aðilar. „Menn voru líka að horfa til þess að verða sinnar gæfu smiðir sjálfir og missa fyrirtækið ekki í hendur ein- hverra óviðkomandi.“ Rekstur Kælismiðjunnar Frosts hefur gengið vel undanfarin ár og árið 2005 stefnir í að verða það besta í sögu fyrirtækisins. Framundan eru næg verkefni og rekstrarhorfur góð- ar. Gunnar sagði að velta síðasta árs hefði verið um 350 milljónir króna og að veltan færi yfir 400 milljónir króna í ár. Hjá Kælismiðjunni Frosti, sem var stofnuð árið 1993, starfa 28 manns, þar af 20 á Ak- ureyri og 8 í Garðabæ. Höfuðstöðvar fyrirtækisins eru við Fjölnisgötu á Akureyri en fyrirtækið er í leigu- húsnæði bæði norðan og sunnan heiða. Ekki er í stórum dráttum gert ráð fyrir breytingum á starfsemi fyrir- tækisins í kjölfar eigendaskiptanna. Eftir sem áður verður Kælismiðjan Frost þjónustu- og verktökufyrir- tæki fyrir kæli- og frystiiðnaðinn og veitir sérfræðiþjónustu, tækniráð- gjöf og heildarlausnir á þessu sviði m.a. fyrir sjávarútveginn, kjöt- vinnslur og mjólkuriðnaðinn. Eigendaskipti á Kælismiðjunni Frosti Um helmingur starfs- manna á meðal eigenda HAUKUR Jóhannesson, jarðfræð- ingur og fyrrverandi forseti Ferða- félags Íslands, heldur myndasýn- ingu um Ódáðahraun í Ketilhúsinu á Akureyri kl. 20 næstkomandi mánu- dagskvöld, 14. nóvember. Haukur mun fjalla um jarðfræði Ódáða- hrauns í máli og myndum, m.a. sýnir hann myndir af 10 þúsund ára göml- um ís sem nýlega fannst í Dyngju- fjöllum. Einnig verða myndir af fáförnum slóðum í Herðubreiðarfjöllum og af sjaldséðum jarðhitafyrirbærum í Fremrinámum.    Ódáðahraun Þorskdómur | Haraldur Ingi Har- aldsson opnar sýningu sína „Cod- head 4“ í Gallerí+, í Brekkugötu 35 á Akureyri í dag, laugardaginn 12. nóvember á fimmtugsafmælisdaginn sinn, klukkan 16. Sýningin stendur til og með 27. nóvember. Galleríið er opið um helgar milli klukkan 14 og 17. „Codhead“ er orð sem búið er til á sama hátt og enska orðið „God- head“ eða guðdómur. „Codhead“ eða þorskdómur vísar til veraldar og heimsskipanar rétt eins og guð- dómur gerir. Þorskurinn stóð undir íslenska efnahagsundrinu og viðhorf okkar til hans lýsir okkur sjálfum.    Lok | Sýningu Bjargar Eiríksdóttur í sýningarsal Gallerís Svartfugls og Hvítspóa, Brekkugötu 3a lýkur um helgina. Opið er helgina kl. 13 til 17.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.