Morgunblaðið - 12.11.2005, Page 65
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 2005 65
LOKAHÓF Októberbíófest fer fram
í kvöld þegar kvikmyndin Hostel
verður heimsfumsýnd hér á landi.
Viðstaddir verða ekki ómerkari menn
en leikstjórinn og framleiðandinn Eli
Roth og framleiðandinn Quentin Tar-
antino auk leikaranna Dereks Rich-
ardson og Eyþórs Guðjónssonar, sem
leikur Íslendinginn Óla í myndinni.
Fjórmenningarnir mættu á fjör-
ugan blaðamannafund á Hótal Nor-
dica við komuna til landsins í gær og
léku við hvern sinn fingur. Roth
mærði land og þjóð í hástert, en þetta
er í fjórða sinn sem hann kemur hing-
að til lands. Þó að ófullgert eintak
myndarinnar hafi verið sýnt á kvik-
myndahátíðinni í Toronto fyrr á árinu
fannst Roth ekki koma annað til
greina en að heimsfrumsýna hana
hér á landi, en hún verður ekki sýnd í
Bandaríkjunum fyrr en í janúar á
næsta ári. Myndin byggist á sönnum
atburðum að einhverju leyti og segir
sögu þriggja bakpokaferðalanga sem
lenda í afar óhugnanlegum að-
stæðum.
„Ég sá heimasíðu þar sem þú getur
skráð þig og borgað 10 þúsund doll-
ara fyrir að labba inn í herbergi og
skjóta einhvern í höfuðið. Þetta leit
allt saman mjög raunverulega út og
hvort sem þetta var í alvöru eða ekki
fór ég að velta fyrir mér þeim hlutum
sem fólk er tilbúið að gera við hvert
annað til að svala fýsnum sínum. Ég
vildi gera mynd um þetta og gera það
með augum bakpokaferðalanga. Þá
fannst mér tilvalið að tengja einn
ferðalanganna við Ísland,“ sagði Ís-
landsvinurinn Roth.
„Ég ræddi við háttsettan mann
innan kvikmyndageirans hér á landi
þegar ég var hér síðast og hann bað
mig um að gera mynd sem end-
urspeglaði menningu og þjóð. Mér
fannst því tilvalið að kynna Íslend-
inga fyrir samlöndum mínum gegn-
um persónu Eyþórs sem er íslenskur
vitleysingur sem sefur hjá fullt af
stelpum. Eyþór er hin nýja ímynd Ís-
lands, mér fannst kominn tími til að
gefa Björk smá frí,“ Roth og við-
staddir skellihlæja, sessunautar hans
manna hæst.
Fegurðardísir á McDonalds
Tarantino sagðist hafa verið tals-
vert fróður um Ísland fyrir gerð
Hostel. „Vinkona mín, Heba Þór-
isdóttir, sá meðal annars um förðun í
Kill Bill. Hún var alltaf að hvetja mig
til að heimsækja landið og sýna mér
myndir og mig hefur langað að koma
hingað í 10 ár. Ekki minnkaði áhug-
inn þegar Roth sagði mér að hér
ynnu meira að segja fegurðardrottn-
ingar á McDonalds,“ segir Tarantino
og skellihlær.
„Ég er reyndar með tengingu við
Ísland í Kill Bill en Budd, persóna
Michael Madsen, drekkur mikið ís-
lenskt brennivín, Svarta dauða,“
sagði Tarantino og bætti við að hug-
myndin hafi orðið til þegar þeir Mad-
sen sátu að sumbli með íslenskt
brennivín um hönd og ræddu per-
sónusköpun myndarinnar.
„Þegar Budd selur persónu Darryl
Hannah Hattori Hanzo-sverðið átti
hann upphaflega að lýsa yfir hversu
mikinn Svarta dauða væri hægt að
kaupa fyrir söluþóknunina. Það var
reyndar klippt út úr myndinni á end-
anum.“
Eli Roth dvaldi hér á landi eitt
sumar 19 ára gamall í sveit á Ingólfs-
hvoli við Selfoss. „Ég á hest þar og
við Tarantino eru mjög spenntir að
komast á hestbak.“ Hann segir
ólæknandi Íslandsáhuga sinn hafa
kviknað í ferðinni og hann sæki jafn-
framt innblástur í myndir sínar héð-
an. Myndir Roths þykja flestar afar
óhugnanlegar og ekki ætlaðar við-
kvæmum. Hann segist ekki vita
ástæðu þess hvers vegna hið hrylli-
lega heilli hann svo mikið en hann
hafi alla tíð verið áhugasamur um
draugasögur og hryllingsmyndir.
„Ég átti afar hamingjusama og
eðlilega æsku og vinir mínir sem eru í
hryllingsmyndabransanum eru in-
dælasta fólk. Ég held að ef ég hafði
verið alinn upp við ofbeldi og hrylling
væri ég að gera rómantískar gam-
anmyndir.“
Þeir Tarantino eru sammála um að
ofbeldi og hryllingur séu nauðsynleg
framvinda í kvikmyndum og Tarant-
ino tekur svo djúpt í árinni að fullyrða
að það hafi verið tilgangur Edisons
með uppfinningu á myndavélinni.
„Öll saga okkar Bandaríkjamanna
er drifin áfram af ofbeldi og svo er
enn í dag. Munurinn er að við sýnum
gerviútgáfu af ofbeldinu. Alvöru of-
beldið geturðu séð í fréttunum á
hverju kvöldi,“ sagði Roth.
Myndin var bönnuð börnum yngri
en 18 ára í Bandaríkjunum og sagðist
Roth vera hæstánægður með það.
„Ég var dauðhræddur um að myndin
yrði bönnuð með öllu,“ segir Roth.
„Sérstaklega þar sem rassinn á
Eyþóri sést vel í myndinni. Ég var
viss um að hún yrði bönnuð!“ gantast
Tarantino.
Afeitrun í Laugum
Eyþór segir það hafa verið stór-
skemmtilega upplifun að leika í
Hollywood-mynd en segist ekki huga
á frekari landvinninga í draumaborg-
inni. Roth segist þó ekki sammála og
segir að eftir sýningu Hostel muni
stjarna Eyþórs skína svo skært að
hann komi ekki til með að hafa efni á
að hafa hann í fleiri myndum.
„Fullt af setningum í myndinni
eiga eftir að festa sig í sessi og flestar
þeirra segir Eyþór,“ segir Tarantino
og Roth tekur undir.
„Það var haldin prufusýning í
Bandaríkjunum fyrir örfáar hræður
og fólk byrjaði strax að vitna í mynd-
ina að henni lokinni. Ég vissi að tak-
marki mínu var náð þegar ég heyrði
venjulega bandaríska háskólanema
koma gangandi út úr bíóhúsinu segj-
andi orðið „snípur“ á íslensku,“ sagði
Roth og uppskar roknahlátur við-
staddra.
Þeir félagar sögðust eiga skemmti-
lega Íslandsför í vændum en hluti
dagskrárliða væri þeim hulinn. „Mér
skilst að hver dagur hefjist á afeitrun
í Laugum,“ segir Roth og allir hlæja.
„Ég vona svo bara að Íslendingum
líki myndin svo mér verði ekki mein-
aður aðgangur að landinu. Ólíkt
Bobby Fischer,“ sagði leikstjórinn að
lokum.
Kvikmyndir | Eli Roth og Quentin Tarantino eru staddir hér á landi að kynna Hostel
Vona að Íslending-
um líki myndin
Ísleifur hjá Októberbíófest, leikstjórinn Roth, Tarantino sjálfur, leikararnir Eyþór og Derek ásamt Chris Briggs.
Morgunblaðið/Kristinn
Tarantino var ánægður með að vera loksins kominn hingað til lands.
Eftir Birtu Björnsdóttur
birta@mbl.is
Aðeins verða tvær sýningar á
Hostel auk forsýningarinnar, á
sunnudag og mánudag í Regnboga
klukkan 20 og eru örfáir miðar eft-
ir.