Morgunblaðið - 15.11.2005, Blaðsíða 36
36 ÞRIÐJUDAGUR 15. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Karl P. Maackfæddist við Ný-
lendugötuna í
Reykjavík 15. febr-
úar 1918. Hann
andaðist aðfaranótt
5. nóvember síðast-
liðins. Foreldrar
hans voru hjónin
Pjetur Andreas
Maack skipstjóri, f.
11.11. 1892, d. 11.1.
1944, fórst með b.v.
Max Pemberton, og
Hallfríður Hall-
grímsdóttir Maack
húsmóðir, f. 7.6. 1885, d. 5.1.
1967. Systkini Karls voru Pjetur
Andreas, f. 24. febrúar 1915, d.
11. jan. 1944, fórst með föður sín-
um á Max Pemberton, Aðalheið-
ur, f. 11. okt. 1916, d. 27. des.
1919, Aðalsteinn, f. 17. nóvember
1919, Viggó Einar, f. 4. apríl
1922, og Elísabet Thorsteinsson,
f. 23. febrúar 1925, d. 7. sept-
ember 2003.
Eiginkona Karls var Þóra Run-
ólfsdóttir húsmóðir, f. 31. október
lærði húsgagnasmíði hjá Guð-
mundi Grímssyni húsgagnasmíða-
meistara, lauk prófum frá Iðn-
skólanum í Reykjavík 1941 með
hæstu einkunn sem gefin var það
árið, lauk sveinsprófi í sinni grein
og öðlaðist meistararéttindi 1946.
Karl stofnaði, ásamt Sigurgeiri
Gíslasyni og Guðmundi Gíslasyni,
fyrirtækið Húsgögn Co 1943 og
starfrækti fyrirtækið með þeim í
meira en hálfa öld. Karl var kos-
inn í stjórn Húsgagnameistara-
félags Reykjavíkur, um 1950 og
sat í stjórn þess til 1972, og var
formaður 1963–71. Hann er heið-
ursfélagi arftaka þess félags, Fé-
lags húsgagna- og innréttinga
framleiðenda. Karl var félagi í
Tennis- og badmintonfélagi
Reykjavíkur, sat í byggingar-
nefnd húss félagsins við Gnoð-
arvog, var kosinn heiðursfélagi
TBR 1985, var formaður Badmin-
tonsambands Íslands 1972–76.
Hann var virkur félagi í Skíða-
deild KR frá því á fjórða áratugn-
um, hefur setið í stjórn deild-
arinnar og tók þátt í byggingu
allra skíðaskála KR í Skálafelli
utan þess nýjasta. Hann var
sæmdur gullmerki KR.
Karl verður jarðsunginn frá
Háteigskirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 13.
1919, d. 2. mars
1994, dóttir
hjónanna Runólfs
Sigurjónssonar
verkamanns í
Reykjavík, og Guð-
rúnar Þorbjörnsdótt-
ur húsmóður. Börn
Karls og Þóru eru:
1) Pétur K. Maack
verkfræðingur og
framkvæmdastjóri, f.
1.1. 1946, kvæntur
Sóleyju Ingólfsdótt-
ur, þau eiga þrjár
dætur. 2) Runólfur
K. Maack verkfræðingur og
framkvæmdastjóri, f. 15.11. 1949,
kvæntur Stefaníu Kjartansdóttur,
þau slitu samvistir, þau eiga þau
einn son. Runólfur er kvæntur
Benediktu Haukdal. 3) Gunnar
Maack viðskiptafræðingur og
framkvæmdastjóri, f. 14.3. 1954,
d. 8.7. 1994, kvæntur Eygló Bald-
ursdóttur, þau eiga tvo syni.
Karl ólst upp í Vesturbænum.
Hann lauk prófi frá Gagnfræða-
skólanunm í Reykjavík 1936,
Hvernig kveður maður vin sinn
og félaga sem um leið er faðir
manns? Einfaldlega með því að
segja takk. Kærar þakkir fyrir allar
ferðirnar inn á hálendi Íslands með-
an þar var varla nokkur sála á ferð
og að kenna okkur sem ungum
mönnum að læra að meta landið.
Þakkir fyrir samveruna í Skógar-
seli, veiðiferðir, spilamennsku, ferðir
á KR-völlinn og skíðaferðir jafnt ut-
an sem og í Skálafellið. Það var gott
að eiga þig að við smíðar og að ráða
okkur heilt. Það var notalegt að
finna stuðning þinn og traust við
hvað svo sem við tókum okkur fyrir
hendur svo sem námið, vinnu og líf-
ið sjálft. Það er mikils virði að geta
litið upp til þín og hafa fundið það
traust og álit sem þú naust meðal
fólks. Óneitanlega fyllti það mann
stolti að finna slíkt. Að vera sonur
Kalla merkti að mál voru oft auð-
sóttari en ella enda væru þau rök-
rétt og skynsöm.
Hvað gerði þig svona heilsteyptan
og æðrulausan? Var það upplagið,
uppeldið, reynslan, ástin og sorgin,
eða þetta allt? Allavega leiddi það
til þess að handleiðsla þín varð okk-
ur ómetanleg. Þökkum stuðning og
hlýhug í okkar garð og fjölskyldna
okkar og við biðjum að heilsa
mömmu og Gunnari.
Pétur og Runólfur.
Tengdafaðir minn Karl Maack er
látinn. Mig langar í nokkrum orðum
að þakka honum samfylgdina síðast-
liðin 35 ár eða frá því að ég kom
fyrst á heimili hans og Þóru konu
hans í fylgd með Pétri elsta syni
þeirra.
Það var ávallt gott að koma til
þeirra í Skipholtið. Þar var tekið
höfðinglega á móti öllum jafnt
stórum sem smáum og það kom
ekki síst í ljós þegar barnabörnin
komu til skjalanna. Karl var ein-
stakur afi og það eru ekki bara
barnabörnin sem kölluðu hann afa
Kalla, heldur allir vinir þeirra og
kunningjar. Hann fylgdist með því
sem þau tóku sér fyrir hendur af
miklum áhuga og var mættur til að
hvetja þau, hvort sem það var á
skíðum, í sundi, við skákborðið eða í
götuhlaupum. Hann fylgdist með
framvindu þeirra í skóla og gladdist
yfir góðum árangri á öllum sviðum.
Í sumarbústaðnum þeirra Skóg-
arseli var oft glatt á hjalla þegar
stórfjölskyldan var mætt og oft var
þröngt á þingi og sofið í hverju
skoti. Þar fór Kalli í fótbolta, út á
vatn að veiða, eða í lengri eða
styttri ferðir í nágrenninu og alltaf
var krakkaskarinn á eftir honum. Á
kvöldin voru svo spilin tekin upp og
allir voru með. Á síðari árum eru
það barnabarnabörnin sem notið
hafa góðs af nærveru langafa og
ekki er langt síðan að hann spilaði
Veiðimann við eina fimm ára sem
virðist hafa erft spiladelluna frá
honum.
Ævi Karls hefur ekki ávallt verið
dans á rósum, en hann tók því sem
að höndum bar með því einstaka
æðruleysi sem ávallt hefur einkennt
hann í mínum huga.
Mig langar að þakka honum fyrir
að vera skilningsríkur tengdafaðir
og frábær afi og langafi. Hann
reyndist líka fjölskyldu minni ein-
stakur vinur. Hans verður sárt
saknað, en hann skilur eftir minn-
ingar sem verða okkur öllum leið-
arljós á ókomnum árum.
Sóley Ingólfsdóttir.
Við kveðjum með söknuði kæran
tengdaföður og vin. Kalli kom inn í
okkar líf með Runa fyrir fimm árum
og tók hann okkur strax sem hluta
af sinni fjölskyldu og erum við hon-
um hjartanlega þakklát fyrir mót-
tökurnar. Á þessum tíma höfum við
notið margra góðra samverustunda
með Kalla, margt farið og gert.
Kalli var skemmtilegur félagi og
hvar sem við vorum svo sem í Skóg-
arseli, veiði- og fjallaferðum, hesta-
mennsku eða hann í heimsókn hjá
okkur fylgdu fræðandi og skemmti-
legar lífsreynslusögur sem hæfðu
tilefninu. Sýndist okkur að Kalli hafi
lifað æði viðburðaríku og jákvæðu
lífi og ekki látið neitt buga sig.
Kalli var maður sem umgekkst
alla með vinsemd og virðingu, jafnt
háa sem lága, menn og málleys-
ingja. Hvar sem hann fór öðlaðist
hann jafnframt virðingu þeirra. Við
erum lánsöm að hafa kynnst honum
og fengið að njóta einstakrar nær-
veru hans.
Elsku Pétur, Sóley, Eygló og fjöl-
skyldur, Runi, Kjartan, Gyða og
Stefán Gunnar, þið eigið alla okkar
samúð.
Benedikta, Bjarni Einar,
Sigurður Haukur, Jóhann
Auðunn og Andri Már.
Þegar ég skrifa þessi orð er ég
staddur í námi í Bandaríkjunum og
get því miður ekki fylgt þér til graf-
ar, enda eins og þú hefur sagt við
mig þá á maður ekki að láta neitt
koma í veg fyrir námið. Það hefði
verið óskandi að hlutirnir hefðu
þróast öðruvísi og ég getað verið
nær þér undir lokin en ég veit að þú
verður alltaf meðal oss þótt þú hafir
kvatt í bili. Nú hefurðu aftur end-
urheimt þinn fyrri mátt og ert trú-
lega farinn að renna þér aftur á
skíðum eins og þú varst vanur að
gera. Ég man eftir því á mínum
yngri árum þegar við nafnarnir vor-
um vanir að fara saman upp í fjall á
skíði og varð Skálafell jafnan fyrir
valinu enda sannir KR-ingar á ferð.
Þú fylgdir mér eftir á mörg skíða-
KARL P.
MAACK
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
JÓNA MARGRÉT TÓMASDÓTTIR,
Vesturgötu 7,
Reykjavík,
sem andaðist miðvikudaginn 9. nóvember, verður
jarðsungin frá Fossvogskirkju miðvikudaginn
16. nóvember klukkan 15.00.
Tómas Guðmundsson, Sigurbjörg Ásta Magnúsdóttir,
Margrét Guðmundsdóttir, Sigurður Skúlason,
Sigurður Guðmundsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
JÓHANNA I. ÞORBJÖRNSDÓTTIR,
Einigrund 5,
Akranesi,
verður jarðsungin frá Akraneskirkju miðvikudaginn
16. nóvember kl. 14.00.
Sveinsína Guðrún Steindórsdóttir, Björn Mikaelsson,
Inga Þorbjörg Steindórsdóttir, Sigurður Mikaelsson,
Sigurður Heiðar Steindórsson, Sigríður Haraldsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær sonur okkar, bróðir og mágur,
BIRGIR DAVÍÐ KORNELÍUSSON,
verður jarðsunginn frá Hvítasunnukirkjunni, Hátúni 2,
fimmtudaginn 17. nóvember kl. 13:00.
Blóm og kransar eru afþakkaðir, en þeim, sem
vilja minnast hans, er bent á Félag krabbameins-
sjúkra barna.
Sigríður Pétursdóttir, Kornelíus Jónsson,
Haraldur Kornelíusson, Íris Ægisdóttir,
Kornelía Kornelíusdóttir, Gísli Árni Atlason,
Pétur Kornelíusson, Gunnhildur Sigurðardóttir
og fjölskyldur.
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
SIGURÐUR E. ÞORKELSSON
fyrrverandi skólastjóri,
Vatnsnesvegi 29,
Keflavík,
andaðist á heimili sínu föstudaginn 11. nóvember.
Jarðarförin auglýst síðar.
Hildur Harðardóttir,
Melkorka Sigurðardóttir, Valtýr Guðbrandsson,
Þorkatla Sigurðardóttir, Þröstur Ingvarsson,
Þorkell Snorri Sigurðarson
og barnabarnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
GUÐRÍÐUR JÓELSDÓTTIR
fótaaðgerðafræðingur,
Laufskógum 19,
Hveragerði,
sem lést á Sjúkrahúsi Suðurlands mánudaginn
7. nóvember, verður jarðsett frá Fossvogskirkju
föstudaginn 18. nóvember kl. 11.00.
Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á Styrktarfélag krabbameins-
sjúkra barna.
Þórhallur B. Ólafsson,
Þórdís Þórhallsdóttir,
Halla Þórhallsdóttir,
Ingiríður B. Þórhallsdóttir, Kristberg Óskarsson,
Guðríður Þórhallsdóttir,
Vilborg Þórhallsdóttir, Egill Jón Kristjánsson,
Björgvin Þór Þórhallsson, Sigrún Björk Cortes,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, dóttir,
tengdamóðir, systir, mágkona og tengdadóttir,
GUÐBJÖRG HILMARSDÓTTIR,
Seljahlíð 7e,
Akureyri,
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri föstu-
daginn 11. nóvember.
Útförin fer fram frá Glerárkirkju mánudaginn
21. nóvember kl. 14.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir. Þeim, sem vilja minnast henn-
ar, er bent á félag aðstandenda langveikra barna á Akureyri, Hetjurnar.
Smári L. Einarsson,
Hilmar Örn Smárason, Sigurveig Gunnarsdóttir,
Haukur Þór Smárason, Signý Sigurlaug Smáradóttir,
Hilmar Ágústsson,
Þora Jones, Axel Alan Jones,
Kristbjörg Hilmarsdóttir, Ingólfur Sveinsson,
Valgeir Hilmarsson, Elín Högnadóttir,
Signý Sigurlaug Tryggvadóttir, Haukur Þórðarson.