Morgunblaðið - 15.11.2005, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. NÓVEMBER 2005 29
DAGLEGT LÍF
Harpa Sjöfn
heitir nú Flügger litir
Endurbættar verslanir • Gott vöruval • Tilboð • Skemmtileg getraun
Málning og
málarameistari!
Þú getur unnið málningu og
meistara til að mála fyrir þig
að upphæð 200.000 krónur.
10
3
5
5
5
4
3
/0
5
Reykjavík:
Stórhöfða 44
Sími 567 4400
Reykjavík:
Skeifunni 4
Sími 568 7878
Reykjavík:
Snorrabraut 56
Sími 561 6132
Kópavogur:
Bæjarlind 6
Sími 544 4411
Hafnarfjörður:
Dalshrauni 13
Sími 544 4414
Borgarnes:
Sólbakka 8
Sími 430 5620
Akureyri:
Austursíðu 2
Sími 461 3100
Hvolsvöllur:
Hlíðarvegi 2-4
Sími 487 8413
Selfossi:
Austurvegi 69
Sími 482 3767
Keflavík:
Hafnargötu 90
Sími 421 4790
www.flugger.is
„Hávaði í umhverfi barna“
Fyrirlestur hjá Umhverfisstofnun í dag, þriðjudaginn
15. nóvember, kl. 15-16
Aðgangur ókeypis.
Fyrirlesarar: Inngangur: Brynja Jóhannsdóttir frá Umhverfisstofnun, Gunnar Kristinsson frá
Umhverfissviði Reykjavíkur, Ólafur Hjálmarsson frá Línuhönnun og
Sigurður Karlsson frá Vinnueftirlitinu. Fjallað verður m.a. um hönnun
hljóðvistar og hljóðmælingar í grunn- og leikskólum.
Fyrirlesturinn verður haldinn í húsnæði Umhverfisstofnunar
á Suðurlandsbraut 24, 5. hæð.
Upplýsingar á heimasíðu Umhverfisstofnunar www.ust.is
mig, en þau féllu fyrir þessum kett-
lingum með árs millibili og tóku þá
með sér heim, en þar lá ekki sam-
þykki fyrir. Svo ég sat uppi með þá
og krakkarnir koma reglulega hing-
að að heimsækja kisurnar sínar. En
ég er mjög glaður með að hafa þá á
heimilinu, þeir eru svo góðir félagar
mínir. Brandur er sérstaklega kel-
inn og gæfur, hann situr alltaf við
hliðina á mér þegar ég er að lesa
eða skrifa. Hann hænist líka að öll-
um sem við hann vilja tala og hann
heimsækir nágrannakonu mína
reglulega og gistir iðulega hjá henni
yfir nóttina. Svartrass fer aftur á
móti aldrei inn í annarra manna
hús. En þó hann sé styggur þá
kemur hann á hverju kvöldi upp á
sængina hjá mér þegar ég er hátt-
aður og spígsporar þar og vill láta
klappa sér. Á öllum öðrum tímum
dagsins kærir hann sig ekkert um
klapp.“
Þegar Svartrass flutti til Sig-
urðar smá kettlingur, þá tók Brand-
ur honum mjög vel og gekk honum í
móður stað. „Þeir sofa oft saman
hér í stól og halda hvor utan um
annan. Og Brandur tók Svartrassi
fagnandi þegar hann kom í leitirnar
eftir útlegðina. Fyrst gáfu þeir hvor
öðrum koss á trýnið og svo nudduðu
þeir saman vöngunum.“
Trölli beygir sig fyrir kónginum
Þriðji kötturinn, sá guli sem heit-
ir Trölli, flutti eiginlega sjálfur til
Sigurðar. „Ég var búinn að sjá
hann oft á vappi hér í kring og hann
kom stundum til mín í garðinn og
leyfði mér að klappa sér og ég gaf
honum stundum fiskbita. Einn dag-
inn kom hann inn um gluggann hjá
mér og lagðist upp í sófa. Þegar ég
fór að athuga með hann þá komst
ég að því að hann var fárveikur og
með mikinn hita. Hann var stokk-
bólginn og með ígerð í afturfæti svo
ég fór með hann til Dagfinns dýra-
læknis. Ég tók hann svo með mér
heim, hjúkraði honum og gaf hon-
um sýklalyf á tilsettum tímum og
hann hefur ekki litið af mér síðan
og á sinn stól hér í stofunni. Hann
stendur vörð um heimilið og aðrir
kettir í hverfinu eru skíthræddir við
hann. En hann beygir sig alltaf fyr-
ir Brandi sem er kóngurinn á heim-
ilinu og hefur aldrei verið alveg dús
við Trölla,“ segir Sigurður sem á
líka kanínurnar Tinna og Agnesku
sem fengu að búa hjá honum fyrir
áeggjan barnabarnanna, rétt eins
og Brandur og Svartrass. Mjög gott
samkomulag er milli kanínanna og
kattanna og hann hleypir þeim
gjarnan út í garð þar sem þær leika
sér við kettina.
Morgunblaðið/Sverrir
Kóngurinn Brandur teygir vel á sér
til að sjá hvað er á seyði fyrir utan
heimilið.
khk@mbl.is
AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is, sími 569 1111