Morgunblaðið - 26.11.2005, Síða 2
2 LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Séra Þórhallur Heimisson
er landsþekktur fyrir
afburða færni við að
gæða fortíðina lífi.
Hér sannast orðsporið.
Lesið um orusturnar sem
breyttu gangi
mannkynssögunnar.
Athugið!
Séra Þórhallur kynnir bók
sína og áritar fimmtudaginn
24. nóvember á Bókasafni
Hafnarfjarðar.
Hvað gerðist í raun á
ströndinni í Normandí
árið 1944?
BÓKAÚTGÁFAN HÓLAR
ÆFÐU VIÐBRÖGÐ
Íslendingar tóku á dögunum þátt í
evrópskri æfingu þar sem æfð voru
viðbrögð við heimsfaraldri inflúensu.
Almannavarnadeild ríkislögreglu-
stjóra og embætti sóttvarnalæknis
stjórnuðu æfingunni hér á landi. Að
sögn Haraldar Briem sóttvarnalækn-
is var fyrst og fremst verið að prófa
samhæfingu og samskipti Evrópu-
landa, en einnig stjórnun hér innan-
lands.
200 bíla hús tekið í notkun
Nýtt bílahús á Stjörnubíósreitn-
um, fyrir 200 bíla, verður tekið í notk-
un í dag. Þá verður Laugavegur allur
opnaður fyrir umferð, eftir fram-
kvæmdir milli Snorrabrautar og Bar-
ónsstígs.
CIA-fangelsi í Kosovo?
Bandaríkjaher var með fangabúðir
í herstöð sinni í Kosovo fyrir þremur
árum og minnti það einna helst á Gu-
antanamo-fangabúðirnar á Kúbu.
Kom þetta fram í gær hjá Alvaro Gil-
Robles, mannréttindafulltrúa Evr-
ópuráðsins. Skoðaði hann fangelsið á
sínum tíma og hneykslaðist á aðbún-
aði fanganna, sem var haldið án
ákæru. Ekki segist Gil-Robles vita
hvort fangelsið í Kosovo hafi tengst
meintum, leynilegum fangelsum
CIA, bandarísku leyniþjónustunnar.
Y f i r l i t
Í dag
Fréttaskýring 8 Dans 52/53
Úr verinu 19 Skák 52/53
Viðskipti 22 Kirkjustarf 62/65
Erlent 24/25 Minningar 41/49
Minnstaður 26 Myndasögur 70
Akureyri 27 Dagbók 70/75
Árborg 28 Víkverji 70
Landið 29 Velvakandi 71
Vesturheimur 30 Staður og stund 72
Menning 31/32 Leikhús 74
Daglegt líf 34/35 Fólk 77/81
Ferðalög 36/37 Ljósvakamiðlar 82
Umræðan 40/50 Staksteinar 83
Forystugrein 42 Veður 83
* * *
Kynning – Morgunblaðinu í dag fylgir
kynningarrit frá Skálholtsútgáfunni.
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi,
orri@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir, ingarun@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkju-
starf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
!
"
#
$
%
&
'() *
+,,,
ÍSLENSK tunga I–III, fræðirit í
þremur bindum um íslenskt mál, kom
út í gær. Útgefandi er Edda útgáfa hf.
í samvinnu við Lýðveldissjóð.
Verkið skiptist í þrjú bindi eftir höf-
uðgreinum málfræðinnar. Fyrsta
bindið fjallar um hljóðin, sem eru við-
fangsefni hljóðfræði og hljóðkerfis-
fræði. Aðalhöfundur og ritstjóri þess
er Kristján Árnason og meðrithöf-
undur Jörgen Pind. Annað bindi fjallar
um orðin, gerð þeirra og beygingu sem
er viðfangsefni beygingar- og orð-
hlutafræði. Höfundur og ritstjóri er
Guðrún Kvaran. Þriðja bindið fjallar
um setningar og viðfangsefni setn-
ingafræðinnar. Aðalhöfundur og rit-
stjóri er Höskuldur Þráinsson og með-
höfundar Eiríkur Rögnvaldsson,
Jóhannes Gísli Jónsson, Sigríður
Magnúsdóttir, Sigríður Sigurjóns-
dóttir og Þórunn Blöndal.
Lýðveldissjóður styrkti verkið
Forseti Alþingis bauð til útgáfuhá-
tíðar í Alþingishúsinu í gær. Þar voru
fyrstu eintök verksins afhent Sólveigu
Pétursdóttur, forseta Alþingis, Hall-
dóri Ásgrímssyni forsætisráðherra og
aðalhöfundum. Sólveig þingforseti
setti athöfnina og greindi frá tilurð
verksins. Upphaf þess er stofnun Lýð-
veldissjóðs á hátíðarfundi Alþingis á
Þingvöllum 17. júní 1994 í tilefni 50 ára
afmælis lýðveldisstofnunar. Lýðveld-
issjóður skyldi m.a. stuðla að eflingu
íslenskrar tungu.
„Nú kemur fyrir almenningssjónir
síðasti áþreifanlegi árangur verkefn-
isins sem Lýðveldissjóður styrkti,“
sagði Sólveig í ræðu sinni. „Þrjú rit um
íslenskt mál, mikil að vöxtum, sann-
arlega gott nesti fyrir nemendur,
kennara og raunar alla sem áhuga
hafa á íslensku máli.“ Óskaði Sólveig
Íslendingum til hamingju með þetta
stórvirki.
Bætir úr brýnni þörf
Skipuð var verkefnisstjórn Lýðveld-
issjóðs vegna íslenskuverkefnisins. Í
henni voru Eiríkur Rögnvaldsson pró-
fessor, Ásta Svavarsdóttir fræðimaður
og Þórunn Blöndal lektor. Eiríkur
sagði frá samningu verksins. Verkefn-
isstjórnin samdi ýtarlega ritstjórn-
arstefnu. Þar kemur m.a. fram að
markmiðið með samningu handbók-
anna væri að bæta úr brýnni þörf á ýt-
arlegu yfirliti um íslenskt mál og mál-
fræði. Verkefnisstjórnin leitaði víða
ráða og var m.a. stofnuð 12 manna
baknefnd kennara á öllum skólastig-
um til ráðuneytis. Eiríkur sagði að höf-
undar hafi þurft að hafa í huga að
verkið þyrfti að geta nýst á tvo vegu.
Annars vegar yrði þetta yfirlitsrit, sem
lesa mætti í samfellu, og hins vegar
ætti að vera hægt að nota bækurnar
sem handbækur.
Verkefnisstjórnin samdi við Eddu
útgáfu hf. um útgáfu verksins. Mar-
grét Guðmundsdóttir, ritstjóri fræði-
rita og kennslubóka hjá Eddu útgáfu
hf., sagði í ávarpi sínu verkið bæði
viðamikið og margslungið. Auk hefð-
bundinnar textavinnu sé þar að finna
bæði ljósmyndir og sérteiknaðar skýr-
ingarmyndir, töflur, ýmis tákn, sér-
íslensk og alþjóðleg, gömul og ný, og
jafnvel hríslur og tré eins og málfræð-
ingar nota til að skýra byggingu orða
og setninga.
„Íslensk tunga er tvímælalaust viða-
mesta verk um íslenskt mál og mál-
fræði sem út hefur komið,“ sagði Mar-
grét m.a. í ávarpi sínu.
Fræðiritið Íslensk tunga í þremur bindum kom út í gær
„Viðamesta verk um íslenskt mál
og málfræði sem út hefur komið“
Morgunblaðið/Þorkell
Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra leyndi ekki ánægju sinni með út-
komu Íslenskrar tungu I-III þegar hann tók við bókinni. Margrét Guð-
mundsdóttir, ritstjóri hjá Eddu útgáfu, gladdist með forsætisráðherra.
Fyrir aftan eru þau Sólveig Pétursdóttir, forseti Alþingis, og Eiríkur
Rögnvaldsson, formaður verkefnisstjórnar Lýðveldissjóðs.
Eftir Guðna Einarsson
gudni@mbl.is
FJÁRHAGSLEG staða Íbúðalána-
sjóðs er bæði skýr og sterk og sjóð-
urinn nýtur óumdeilanlega ríkis-
ábyrgðar. Þetta kom fram á
blaðamannafundi sem haldinn var á
vegum Íbúðalánasjóðs í gær, en
fundurinn var haldinn vegna um-
mæla sem höfð voru eftir forstjóra
Lánasýslu ríkisins í frétt NFS-sjón-
varpsstöðvarinnar, en forstjórinn
hefur síðan sagt að rangt hafi verið
haft eftir honum í þeirri frétt.
Hallur Magnússon, sviðsstjóri
þróunar og almannatengsla, benti á í
máli sínu að Íbúðalánasjóður upplýsi
lögbundna eftirlitsaðila um stöðu
sjóðsins með reglubundinni skýrslu-
gjöf. Þessar skýrslur séu jafnframt
sendar til lánshæfismatsfyrirtækj-
anna Standard & Poor’s og Moody’s.
Þessir aðilar allir fái aðgang að þeim
upplýsingum sem til þarf til að meta
fjárhagslegt heilbrigði sjóðsins og
hafi ekki séð ástæðu til að finna að
því. Þvert á móti hafi sjóðurinn sama
lánshæfismat og íslenska ríkið hjá
Moody’s, eða Aaa.
CAD-hlutfall yfir 5%
Hvað varðar ríkisábyrgðina sagði
Guðmundur Bjarnason, fram-
kvæmdastjóri sjóðsins, hana ótví-
ræða og vísaði til lagagreina og um-
mæla forsætisráðherra. Jóhann G.
Jóhannsson, sviðsstjóri áhættu- og
fjárstýringarsviðs, sagði að heildar-
útlán sjóðsins hefðu dregist saman
milli áranna 2003 og 2004 um rúma
13 milljarða og að heildarútlán verði
nálægt 380 milljörðum um næstu
áramót, sem sé um 50 milljörðum
lægra en árið áður. Hins vegar sé bú-
ist við að heildarútlán aukist 2006.
Langtímamarkmið sjóðsins væri að
halda CAD-eiginfjárhlutfalli yfir 5%
sem hefði tekist undanfarin ár.
Fjárhagstaða Íbúða-
lánasjóðs sögð sterk
LÍFEYRISSJÓÐUR verzlunar-
manna mun væntanlega fylgja
vaxtaþróun á markaði, eins og sjóð-
urinn hefur gert, hvað varðar
vaxtakjör á lánum til sjóðfélaga, að
sögn Þorgeirs Eyjólfssonar, for-
stjóra sjóðsins. Ákvörðun um breyt-
ingu vaxta á lánum með föstum
vöxtum hefur ekki verið tekin, en
Þorgeir taldi að það yrði fljótlega.
Örn Guðnason hjá lánadeild Líf-
eyrissjóðsins Gildis sagði breytingu
á vaxtakjörum lána til sjóðfélaga
hafa komið til tals en verið ákveðið
að breyta ekki vöxtunum að sinni.
Lífeyrissjóður starfsmanna sveitar-
félaga ákvað í byrjun mánaðarins
að vextir sjóðfélagalána með
breytilega vexti yrðu 4,35% frá 15.
nóvember síðastliðnum. Fastir
vextir eru 4,15%.
Vextir lífeyris-
sjóðslána
að breytastALÞINGI hefur samþykkt að draga til baka heimild
ríkisstjórnarinnar í fjárlagafrumvarpinu til að selja
varðskipið Óðin úr landi þegar því verður skipt út fyrir
nýtt varðskip Landhelgisgæslunnar. Guðmundur Hall-
varðsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, hefur beitt sér
fyrir því að Óðni verði þess í stað breytt í minjasafn
þorskastríðsáranna og var tillaga hans um það efni
samþykkt á landsfundi Sjálfstæðisflokksins í síðasta
mánuði.
Guðmundur kveðst í samtali við Morgunblaðið ætla
að flytja tillögu um það á Alþingi innan tíðar að Óðinn
verði afhentur Sjóminjasafninu í Reykjavík þegar
Gæslan fær nýtt skip. Tillaga hans um að draga fyrr-
greinda heimild ríkisstjórnarinnar til baka var sam-
þykkt samhljóða á Alþingi í gær.
Guðmundur sagði í atkvæðagreiðslunni að skipið
myndi sem minjasafn draga að sér ferðamenn, ekki síst
Breta, sem vafalaust myndu telja sögu þorskastríðsins
forvitnilega. „Saga Landhelgisgæslunnar, þá ekki síst
þau afrek sem unnin voru í þorskastríðinu við Breta, er
stórmerkilegur þáttur í sögu Íslands á 20. öld,“ sagði
hann. „Íslendingar öðluðust yfirráð yfir náttúru-
auðlindum sínum og gerðust brautryðjendur á alþjóð-
legum vettvangi í baráttunni fyrir rétti strandríkja til
fiskveiðilögsögu. Þessi barátta var háð annars vegar af
embættismönnum og stjórnmálamönnum sem börðust
með rökum á alþjóðaráðstefnum og samningafundum
og hins vegar af áhöfnum varðskipanna sem þrátt fyrir
erfiðar aðstæður stóðu uppi í hárinu á flota hennar há-
tignar með ævintýralegum og oft ótrúlegum hætti. Lít-
ill vafi er á því að skipið myndi draga að sér ferða-
menn, ekki síst Breta sem vafalaust þætti þessi þáttur
sögu þeirra gamla heimsveldis forvitnilegur. Saga
þorskastríðsáranna má ekki gleymast.“
Óðinn ekki seldur úr landi
Morgunblaðið/Sverrir