Morgunblaðið - 26.11.2005, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 2005 19
ÚR VERINU
SJÁVARÚTVEGSRÁÐHERRA
hefur lagt fram á Alþingi frumvarp
til laga um breytingu á lögum um
stjórn fiskveiða. Breytingin felst í
því að fallið verði frá sérstakri út-
hlutun á 3.000 lestum af þorski til
tiltekinna báta og að hlutdeild
þeirra í þorskaflanum verði aukin
að sama skapi frá og með fisk-
veiðiárinu 2005/2006.
Þarna er um að ræða eina af
þeim sértæku úthlutunum afla-
heimilda, sem verið hafa í gildi
undanfarin ár. Aðrar slíkar eru
línuívilnun, tvenns konar byggða-
kvótar og bætur vegna aflabrests.
Alls hefur þar verið um að ræða
um 12.000 tonn af þorski. Þessum
3.000 tonnum hefur verið úthlutað
til jöfnunar samkvæmt ákveðnum
reglum.
Dregið frá leyfilegum
heildarafla
Samkvæmt þeim var ákveðið að
árlega skyldi á fiskveiðiárunum
1999/2000–2005/2006 úthluta 3.000
lestum af óslægðum þorski til fiski-
skipa sem aflahlutdeild höfðu 1.
desember 1998 og eru minni en 200
brúttótonn, enda hefðu þau landað
þorskafla á fiskveiðiárinu 1996/1997
eða 1997/1998. Aflaheimildir þessar
eru dregnar frá leyfðum heildarafla
í þorski áður en heildaraflaheim-
ildum er skipt á grundvelli afla-
hlutdeildar. Úthlutun til einstakra
báta var miðuð við heildaraflamark
þeirra í þorskígildum talið. Við út-
hlutun var miðað við aflahlutdeild-
arstöðu þeirra 1. desember 1998,
úthlutað heildaraflamark fiskveiði-
ársins 1998/1999 og verðmæta-
stuðla á því fiskveiðiári, þó þannig
að enginn bátur fái meira en 100%
aukningu í þorskaflamarki og eng-
inn hærri úthlutun en 10 lestir mið-
að við óslægðan fisk. Aldrei skyldi
þó úthlutun leiða til þess að heild-
araflaheimildir einstakra skipa
yrðu meiri en 450 þorskígildislestir
samtals. Aflaheimildum samkvæmt
ofangreindri grein hefur verið út-
hlutað árlega síðan á fiskveiðiárinu
1999/2000. Í upphafi áttu 497 fiski-
skip rétt til úthlutunar og þar af
voru 234 fiskiskip með hámarks-
úthlutun en aðrir með minna. Há-
marksúthlutun til hvers skips er 10
lestir af óslægðum þorski sem gera
8,4 lestir af slægðum fiski.
Skapar óhagræði
Í athugasemdum við frumvarpið
segir meðal annars svo: „Ástæða
þess að þessi breyting er lögð til er
sú að sérstök úthlutun sem byggist
ekki á aflahlutdeild heldur öðrum
forsendum skapar óhagræði án
þess að séð verði, eftir að fallið var
frá að hafa ákvæðið tímabundið, að
það hafi lengur nokkurn sérstakan
tilgang. Eins og áður segir þarf
aflamarksstaða fiskiskips að vera
með ákveðnum hætti um hver fisk-
veiðiáramót til þess að rétturinn
nýtist að fullu. Hjá nokkrum hluta
skipanna hefur það leitt til þess að
aflaheimildir eru ýmist fluttar af
skipum eða á til þess að þau verði í
heppilegri aflmarksstöðu um fisk-
veiðiáramótin. Þá hafa þröngar
reglur um flutning þessa réttar
milli skipa valdið óhagræði, m.a við
endurnýjun skipa og sameiningu
aflaheimilda. Þykir því ástæða til
þess að einfalda fiskveiðistjórnar-
kerfið og gera þá breytingu sem
hér er lögð til. Rétt er að árétta að
þetta raskar ekki þorskveiðiafla-
heimildum einstakra fiskiskipa þar
sem þessi sérstaka úthlutun hefur
ávallt verið dregin frá leyfilegu
heildaraflamarki í þorski fyrir út-
hlutun á grundvelli aflahlutdeildar
en fellur nú inn í hina almennu út-
hlutun.“
Úthlutun til jöfnunar í
þorski færð inn í kvóta
FRÉTTIR
mbl.is
Það þarf varla að kynna John Lennon, einn frægasta og áhrifamesta tónlistarmann 20.
aldar. Stormasamt líf hans var fullt af öfgum og andstæðum, hann var ýmist hetja eða
skúrkur. Hér er á ferðinni hrífandi ævisaga sem segir okkur heillandi sögu af sigrum og
ósigrum, baráttu Lennons við djöfulinn í sjálfum sér, dópið og brennivínið og endalausar
tilraunir hans við að gera upp við æsku sína. Steinþór Steingrímsson þýddi.
Frábær bók sem varpar nýju ljósi á eina helstu
rokkstjörnu 20. aldar.
John Lennon
SKRUDDA
Eyjarslóð 9 - 101 Reykjavík
s. 552 8866 - skrudda@skrudda.is
www.skrudda.is
Spiderwick-sögurnar hafa farið sigurför um heiminn
og hlotið fjölda verðlauna frá því að þær komu fyrst út fyrir
tveimur árum. Þrjú systkini uppgötva ósýnilegan hulduheim
þegar þau flytjast með móður sinni í gamalt og skuggalegt hús.
Álfar, tröll og hvers kyns furðuskepnur koma við sögu í þessum
heillandi nútímaævintýrum.
Fyrstu tvær bækurnar í þessum bókaflokki
koma út fyrir þessi jól en þrjár seinni bækurnar á næsta ári.
Frábærlega spennandi og fallegar bækur
fyrir börn og unglinga í snilldarþýðingu
Böðvars Guðmundssonar.
Spiderwick-sögurnar
Farðu á
www.spiderwick.com
og fáðu að vita meira um þessar
frábæru bækur.
Ingólfur Margeirsson fékk heilablóðfall fyrir fáum árum og fjallar
í þessari bók um baráttu sína við að öðlast bata á nýjan leik.
Afmörkuð stund er mögnuð frásögn af alvarlegum veikindum
og einstakri baráttu úr faðmi dauðans til lífsins.
Afmörkuð stund er einstök lesning og mikil uppörvun öllum þeim sem
lent hafa í alvarlegum skakkaföllum í lífinu. Bókin fjallar á góðu og
auðskiljanlegu máli um hverfulleika lífsins og átök við brigðula tilveru.
Lifandi og sönn frásögn eins og Ingólfi Margeirssyni er einum lagið.
Áhrifamikil og sönn
Frábærar jólabækur
Jólasöfnun
Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur
er hafin
Þeir sem vilja leggja nefndinni lið vinsamlega hafið samband
á skrifstofutíma í síma 551 4349 eða á netfangið
maedur@simnet.is. Einnig er hægt að leggja framlög inn á
reikning nr. 0101-26-35021, kt. 470269-1119.
Dagana 28. og 29. nóv. og 5. og 6. des. er tekið á móti
umsóknum vegna jólaúthlutunar.
Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur, Sólvallagötu 48.