Morgunblaðið - 26.11.2005, Síða 21
edda.is EDDA
Guðjón Friðriksson er einn vinsælasti
ævisagnahöfundur landsins og hefur
þrívegis hlotið Íslensku bókmennta-
verðlaunin fyrir verk sín.
Sonurinn ...
„... En svo kom bréfið þitt,
andandi allt þessum blíða,
elskulega anda sem ég
hvergi finn nema hjá þér
og ég varð svo glaður. Þú
skilur mig svo
fullkomlega og tekur tillit,
já meira en ég á skilið, til
tilfinninga minna. Þú veist
hvernig ástatt er með
stúderingarnar --- já, elsku
mamma, ég skal reyna að
horfa niður í öldurnar og lifa mig inn í gang
þeirra. Ég skal ekki leggjast fyrir sjóveikur á
lagarskipið svo ég verði ónýtur farangur og verra
en það. Ég kem smátt og smátt og, mamma mín,
mér „tekst held ég að verða tollheimtumaður“.“
Pabbinn ...
„Sigurður er mikið úti og vanalega heldur þægur en
allraddljótur þegar hann fer í bassa. En það gjörir hann
þegar hann fær ekki allan sinn vilja. Ástríður segir
ennþá ekkert annað en „Adda, Adda“ með mörgum
nuancer [tilbrigðum], frá urri til skræks, frá skipan til
bænar, og er digur mjög eins og hún á nafn til og
nefljót. Kristjana nafna þín er mest „interessant“ sem
stendur. Andlitið á henni er okkar einasta staðkvæmi
(substitut) fyrir suðrænt „Landskab“. Blátt er
Miðjarðarhafið og blár er himinninn í Nizza en blárra
er þó undir augunum á Nönu og á nefinu og enninu eru
rauðar rósir með dökkgrænum lundum á milli. Hún fór
nefnilega svo herfilega á hausinn í hálku á Skólabrúnni
– var mærkelig nok að elta stelpu en ekki strák, verður
kannski annað ofan á ef hún eldist. Andlitið varð eins
og rúskumsnúsk af undarlega löguðum
skilningarvitum. En hún meiddist ekkert í höfðinu
sjálfu, var frísk og glöð strax sama daginn og er nú að
útenda sín glóðaraugu.“
Skáldið og sjarmörinn
Einstök sýn á óvenjulega heillandi mann
Ég elska þig stormur
– ævisaga Hannesar Hafstein
Hannes Hafstein var bráðgert glæsimenni, orti kvæði sem
enn lifa á vörum landsmanna og sagt var að kvenhylli hans
væri „óendanleg“. Hann var auk þess sá stjórnmálamaður
sem þjóðin hefur haft hvað mest dálæti á, lífs og liðinn.
Færri vita hins vegar að þessi óskasonur Íslands átti um
margt stormasama ævi og á milli stóru sigurstundanna voru
sárir ósigrar. Í þessari vönduðu og skemmtilegu ævisögu
dregur Guðjón Friðriksson fram heilsteypta og um margt
óvænta mynd af manninum Hannesi, meðal annars í ljósi
fjölmargra einkabréfa og nýrra heimilda sem aldrei áður
hafa komið fyrir almenningssjónir.
Hannes hafstein
Hannesarganga
27. nóvember klukkan 11
Á morgun sunnudag klukkan 11,
verður sérstök Hannesarganga,
undir leiðsögn Guðjóns Friðriks-
sonar. Lagt verður af stað frá
Menntaskólanum í Reykjavík, við
Lækjargötu og farið um helstu
söguslóðir Hannesar Hafstein í
Reykjavík.
Allir velkomnir