Morgunblaðið - 26.11.2005, Page 30
30 LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
ÚR VESTURHEIMI
DR. BIRNA Bjarnadóttir, pró-
fessor við íslenskudeild Mani-
tobaháskóla í Winnipeg, fékk
viðurkenningu fyrir störf sín í
hófi í skólanum í vikunni.
Árlega verðlaunar Manito-
baháskóli nokkra kennara fyrir
starf þeirra í þágu skólans utan
veggja kennslustofunnar. Birna
segir ánægjulegt að fá þessa við-
urkenningu og hún veki vonandi
enn frekar athygli á íslensku-
deildinni og starfi hennar.
Markaðsstarf
Yfirstandandi skólaár er hið
þriðja hjá Birnu við Manitoba-
háskóla og fær hún verðlaunin fyrir starf sitt á liðnu skólaári. Hún er verð-
launuð fyrir að vera í lifandi sambandi við samfélagið og skýra starf háskól-
ans fyrir fólki,og ekki síst fyrir að koma íslenskudeildinni á hærri stall með
með því að laða nemendur, listamenn og fræðimenn að Manitóbaháskóla.
Dr. David Arnason, yfirmaður íslenskudeildarinnar, fékk þessi verðlaun
fyrir fimm árum en auk þeirra kennir Helga Hilmisdóttir við deildina.
Birna Bjarnadóttir
verðlaunuð í Winnipeg
Dr. Birna Bjarnadóttir með verðlauna-
skjalið sem hún fékk í vikunni.
FÉLAGSSTARF Kanadamanna af
íslenskum ættum í Edmonton hefur
verið mjög öflugt undanfarin ár og
nú hefur verið blásið til nýrrar sókn-
ar með breyttu félagsnafni og
breyttu heimilisfangi.
Íslenska félagið í Edmonton (the
Icelandic Club of Edmonton) var
stofnað 1937. Nafninu var breytt
1976 í the Icelandic Society of Ed-
monton og nú heitir það Íslensk-
kanadíska félagið í Edmonton (the
Icelandic Canadian Club of Edmon-
ton).
Félagið leggur rækt við íslenska
menningu á ýmsan hátt. Það heldur
úti blönduðum kór, býður upp á ís-
lenskukennslu og skipuleggur ýmsar
árlegar uppákomur eins og þorrablót
og haustfagnað. Formaður er Del
Sveinsson (del@haidarealty.com).
Íslenska nafn félagsins er áfram
Norðurljós og það hefur aðstöðu í
hollensku félagsmiðstöðinni í borg-
inni. Utanáskriftin er eftirfarandi:
The Icelandic Canadian Club of
Edmonton
c/o The Dutch Canadian Centre
13312 - 142 Street N.W.
Edmonton, AB. T5L 4T3
Canada.
Nýtt nafn og
heimilisfang
Morgunblaðið/Steinþór Guðbjartsson
Walter Sopher, forseti Þjóðrækn-
isfélags Íslendinga í Norður-
Ameríku (til vinstri), og Del Sveins-
son, formaður Íslensk-kanadíska
félagsins í Edmonton, hafa rifið
upp starfið í Edmonton.
„ÞETTA er mikið tjón og úr því sem komið er getum við aðeins
beðið eftir að Winnipegvatn verði ísi lagt svo við getum reynt
að fylla upp í landbrotið,“ segir Ernest Stefanson, lyfsali í
Gimli, Manitoba.
Flóðavarnirnar, sem reistar voru við Winnipegvatn í haust,
héldu í áhlaupi á dögunum og er almennt gert ráð fyrir að
flóðahætta sé liðin hjá þetta haustið, „þó að ekkert sé öruggt
fyrr en ísinn er kominn,“ eins og Stefan J. Stefanson í Gimli
orðar það.
Yfirborð Winnipegvatns hefur verið hærra undanfarna mán-
uði en eðlilegt er á þessum árstíma og því var gripið til fyrr-
nefndra forvarnaráðstafana. Manitobastjórn ákvað að verja
átta milljónum dollurum í verkið, um 425 milljónum íslenskra
króna, en skaðinn var skeður á landi hjónanna Ernests og
Claire við golfvöllinn, rétt norðan við byggðina í Gimli.
Þegar ljóst var hvert stefndi varðandi vatnshæð Winnipeg-
vatns í sumar gripu ýmsir eigendur húsa og landa við vest-
urströnd vatnsins til þess ráðs að reyna að verja eigur sínar.
Aðrir, þar á meðal yfirvöld, töldu litla hættu á ferðum og biðu
átekta, að sögn Ernests. Eigandi sumarhússins næst fyrir norð-
an land hans og Claire ákvað til dæmis að styrkja bakkann á
landi sínu og kom stórgrýti þar fyrir. Sú framkvæmd virðist
hafa auðveldað landbrotið á lóð lyfsalahjónanna.
Undanfarin ár hefur ásókn í lóðir við vestanvert Winni-
pegvatn aukist mikið og má heita að nú sé nær samfelld sum-
arhúsa- og heilsársbyggð við vatnið frá Heclu-eyju suður til
Selkirk. Verð á lóðum á þessu svæði hefur hækkað með auk-
inni eftirspurn og segir Ernest að tjón þeirra sé mikið. Hins
vegar sé ekki loku fyrir það skotið að einhverjar bætur fáist,
ekki síst vegna þess að yfirvöldum hafði verið bent á hættuna
löngu áður en landeyðingin varð.
„Þar sem við höfum ekki byggt á lóðinni komum við ekki
reglulega við á lóðinni okkar við golfvöllinn, þó að við búum í
næsta nágrenni,“ segir Ernest. „Þess vegna fór landeyðingin
framhjá okkur í byrjun. Vatnið skrúfaði sig inn í landið og
eyddi öllu sem fyrir varð. Eigandi sumarhússins fyrir sunnan
okkur sá til dæmis trén í garðinum hjá sér rifna upp með rót-
um og hverfa í vatnið. Hann brá skjótt við og fékk leyfi til að
verja það sem eftir var landsins og um leið húsið. Við höfðum
misst okkar og gerðum ráðstafanir til að missa ekki meira
land en treystum á að geta fyllt upp í skarðið í vetur. Hug-
myndin er að brjóta ísinn að fyrri endamörkum lóðarinnar
og fylla upp í skarðið.“
Ljósmynd/Claire Gillis Stefanson
Svona leit lóðin út eftir landbrotið í sumar. Um tveir þriðju hlutar landsins farnir í vatnið.Ernest Stefanson við núverandi endamörk lóðar sinnar skammt norðan við Gimli.
Reyna að fylla upp í landbrot við Gimli
Ljósmynd/Grétar Axelsson
Mörg hundruð þúsund 20 kg sandpokum hefur verið komið
fyrir við vesturströnd Winnipegvatns. Varnirnar sunnan við
víkingastyttuna í Gimli stóðust áhlaupið á dögunum.
Eftir Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
!
" #
$ % & '() *
+
'
& '() ,$ & '()
) ! & '() " -
)./ 0-.
1121 &3
./ 0+ 45 *
+
!!! !!! !!! "
## $ #
%!!&
6+'*
)./ 00
.' 7!'
) 8
+
) 9 '+'*