Morgunblaðið - 26.11.2005, Page 32
LEITAÐ verður í krókum og kim-
um í Þjóðleikhúsinu í dag og taka
börn þátt í leitinni. Það sem verið
er að leita gæti hins vegar orðið
örðugt að finna – því þar er verið
að leita að jólunum sjálfum og
spurning hvort þau séu einmitt fal-
in í Þjóðleikhúsinu.
Það er Þorvaldur Þorsteinsson,
höfundur hinna vinsælu bóka um
Blíðfinn, sem er hugmyndasmið-
urinn að baki þessu aðventu-
ævintýri, sem nefnist Leitin að jól-
unum og fram fer í Þjóðleikhúsinu
frá og með deginum í dag og fram í
janúar.
Mæta með athyglina í lagi
Ekki er ævintýrið bundið við
neitt svið í leikhúsinu, heldur er
tekið á móti gestum við aðal-
inngang Þjóðleikhússins og þeir
síðan leiddir um húsið – í gegnum
Kristalsalinn, upp á leikhúsloftið
og allt upp á þak, og þaðan niður í
Leikhúskjallara. Á leið sinni munu
gestir lenda í ýmsum skemmti-
legum og jafnvel tvísýnum uppá-
komum.
Þorvaldur mælir með að fólk
mæti með athyglina í lagi. „Það er
betra að vera vel vakandi, því það
er ýmislegt sem má ekki fara
framhjá manni og mikilvægt að
finna sumt og forðast annað. Ég
held að það sé ekki vitlaust að taka
sinn innbyggða leynilögreglumann
með sér – jafnvel stækkunargler
líka,“ segir hann.
Jólasveinakvæði Jóhannesar úr
Kötlum kemur þó nokkuð við sögu
í sýningunni, en við það hefur Árni
Egilsson tónskáld samið ný lög.
Þorvaldur segist áður hafa fengið
tækifæri til að skrifa með Árna,
einmitt í tengslum við kvæði Jó-
hannesar, og vinnan við verkið því
notaleg upprifjun. „Hins vegar er
maður alltaf dálítið hikandi gagn-
vart hinum köllunum – jólasvein-
unum íslensku, sem sagt – því
maður veit aldrei hverju þeir geta
tekið upp á. Það tók mig því dálít-
inn tíma að finna út hvernig ég
gæti gert alvöru jólasveinaleikrit
án þess að setja Þjóðleikhúsið á
annan endann,“ segir hann og
minnir á að þeim fylgi líka alls
kyns „ruslaralýður“, eins og Grýla
og jólakötturinn. „En Þórhalli leik-
stjóra hefur tekist, ásamt öðrum
snjöllum listamönnum, að tryggja
það að allt fari vel að lokum.“
Mikið í húfi
Leikhúsgestir munu fara æv-
intýraleitarferðina undir leiðsögn
leikhúsálfa og hljóðfæraleikara,
sem hafa víst talsvert ólíkar skoð-
anir á sannleikanum um jóalsvein-
ana. „Í ferðinni mun virkilega
reyna á þá spurningu hvort þetta
slekti sé yfirhöfuð til, og hvort það
breyti einhverju hvort maður trúir
á það eða ekki. Krakkarnir sjálfir
verða í lykilhlutverki á hverri sýn-
ingu og við treystum á að þau
bregðist ekki jólasveinunum. Mik-
ið er í húfi að við berum virðingu
fyrir þessum hefðum, getur jafnvel
verið spurning um líf og dauða
ákveðinna persóna í verkinu. Þetta
er því bæði líflegt og þrælspenn-
andi,“ segir Þorvaldur að síðustu.
Leitin að jólunum er sett upp
með 5–11 ára börn í huga og yngri
í fylgd með fullorðnum, en getur
hentað fólki á öllum aldri. Sýningin
tekur tæpa klukkustund.
Leiklist | Aðventuævintýri frumsýnt í Þjóðleikhúsinu í dag
Leikhúsálfar og hljóðfæraleikarar munu leiða gesti um Þjóðleikhúsið í Leitinni að jólunum.
Ævintýraferð um króka
og kima leikhússins
„Í ferðinni mun virkilega reyna á þá spurningu hvort þetta slekti sé yf-
irhöfuð til, og hvort það breyti einhverju hvort maður trúir á það eða
ekki,“ segir höfundurinn Þorvaldur Þorsteinsson.
Eftir Ingu Maríu Leifsdóttur
ingamaria@mbl.is
32 LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
Ingibjörg Guðjónsdóttir, sópran
Sinfóníuhljómsveit Íslands
Stjórnandi: Gerrit Schuil
Óperuaríur eftir
G. Puccini og W.A. Mozart.
Kominn í verslanir
Dreifing:
BENÓNÝ Ægisson hefur lengi unn-
ið með hugmyndina um samband
leikpersóna við höfund sinn, sam-
band sem einatt er spennuþrungið
og hreint ekki alltaf á vinsamlegu
nótunum. Einþáttungur hans, Tví-
leikur fyrir höfund og leikara, þykir
mér alltaf eitt af hans betri verkum
þótt lítill sé að vöxtum. Nú hefur
Benóný tekið eintalaröð sína, Glæsi-
bæjareintölin, steypt þeim saman í
eina sýningu og kryddað með skír-
skotunum í það sama vandamál og
um ræðir í fyrrnefnda þættinum. Að
þessu sinni er sjónum beint að því
hvernig persónur þrífast eða þrífast
ekki í einskismannslandi eintalsins.
Þetta eru fyrstu kynni undirritaðs
af Glæsibæjareintölunum, sem áður
hafa verið flutt að ég held oftar en
einu sinni. Hér eru á ferðinni nokkuð
hefðbundin stutt eintöl, nokkurs
konar skyndimyndir af persónunum.
Velflest falla þau í sama mótið, eru
varnarræður fólks í misalvarlegum
lífskrísum sem þau eru ekki nema að
litlu leyti meðvituð um. Sjálfsrétt-
læting þeirra er síðan afhjúpandi,
við sjáum í gegnum lygina sem er
varnarbúnaður persónanna. Í
spennunni milli sjálfsmyndar per-
sónanna og þess sem við skynjum
bak við orðin er leikrænn máttur
textans fólginn.
Benóný hefur þetta stílbragð vel á
valdi sínu. Ég saknaði þess samt að-
eins að sjá ekki fjölbreyttari nálg-
anir frá höfundinum. Þrettán eintöl
sem öll fylgja svipaðri formúlu
draga á endanum máttinn hvert úr
öðru.
Mörg þeirra eru prýðilegar smíð-
ar. Einkum eru minnisstæð hin yf-
irborðsglaðlynda kona Þórunnar
Clausen og harðneskjulegur sjóari
Gunnars Eyjólfs-
sonar, og það er
sjálfsagt ekki til-
viljun að þessi tvö
voru líka fram-
úrskarandi í
flutningnum.
Fleiri áttu góðar
innkomur, ekki
síst Aðalbjörg
Þóra Árnadóttir,
Ingibjörg Stef-
ánsdóttir og Valgeir Skagfjörð.
Umbúnaður og framsetning öll
ber þess merki að ekki hafi verið
nostrað sérlega mikið við uppsetn-
ingu verksins. Trúlega ekki gefist
tími til þess. Það er í sjálfu sér skilj-
anlegt og allt í lagi. Hitt þótti mér
heldur verra að sá rammi sem snið-
inn er virkar ekki sérlega sannfær-
andi. Mér þótti vangavelturnar um
stöðu persónanna gagnvart höfundi
sínum ekki bæta neinu við myndina
af þeim, og tilraunir til að flétta ein-
tölin saman gengu annaðhvort of
skammt eða of langt. Að forsend-
unum um tímaskort gefnum hefði
meiri einfaldleiki þar sem hverju
eintali væri gefið svigrúm, með
kynningu og skýrum endi, trúlega
verið heppilegri. Að öðrum kosti
hefði þurft að gera mun meira í að
fleyga eintölin, vinna með hverjir
hlusta á hvað eða eru vitni að hverju
og ganga lengra með hugsunina um
ófullnægju eintalspersónanna og af-
stöðu þeirra til höfundarins sem
guðs í þeirra heimi. Tónlistarinnskot
þóttu mér mörg áheyrileg en litlu
bæta við heildarupplifunina.
Drauganet er áhugaverð tilraun
höfundar til að þróa efnivið sinn í
samvinnu við áhorfendur. Viðbrögð
þessa áhorfanda sem hér skrifar eru
löngun til að upplifa efniviðinn án
umbúðanna, með meiri rækt við
hvert eintal fyrir sig og þroskaðri
tök leikaranna sem meiri tími myndi
ljá þeim. Því ég efast um að þessi
eina sýning muni fullnægja þessum
óstýrlátu persónum og fá þær til að
sættast við eilífa glatkistuvist.
Glatkistubúar
rísa upp
Þorgeir Tryggvason
LEIKLIST
Lýðveldisleikhúsið
Höfundur: Benóný Ægisson, leikstjóri:
Darren Foreman, sviðshreyfingar: Kol-
brún Anna Björnsdóttir, tónlist: Benóný
Ægisson, lýsing: Einar Þór Einarsson.
Leikendur: Aðalbjörg Þóra Árnadóttir,
Benóný Ægisson, Brynja Valdís Gísla-
dóttir, Gunnar Eyjólfsson, Höskuldur Sæ-
mundsson, Ingibjörg Stefánsdóttir, Ingi-
björg Þórisdóttir, Kolbrún Anna
Björnsdóttir, Ólafur Guðmundsson, Páll
Sigþór Pálsson, Valgeir Skagfjörð, Þór-
unn Clausen og Þröstur Guðbjartsson.
Drauganet
Benóný Ægisson
TÓNLEIKAR Lúðrasveitar verka-
lýðsins í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag
kl. 15 verða sérstaklega ætlaðir
yngri áheyrendum. Það er löngu
orðin hefð hjá sveitinni að höfða til
barna á hausttónleikum og verða
flutt lög úr Kalla á þakinu og Lata-
bæ. Einnig verða spiluð íslensk ætt-
jarðarlög sem börn og fullorðnir
kannast vel við. Þetta eru fyrstu tón-
leikar nýs stjórnanda, Malcolms
Holloway, en hann hefur útsett
nokkur þeirra laga sem leikin verða,
þar af eitt sérstaklega fyrir þessa
tónleika. Að þessu sinni koma góðir
gestir á tónleikana en félagar í
Skólahljómsveit Austurbæjar ætla
að spila jólalag undir stjórn Vilborg-
ar Jónsdóttur. Lúðrasveit verka-
lýðsins og Skólahljómsveit Austur-
bæjar hafa átt í samstarfi í nokkur
ár og spila nokkrir fyrrum félagar úr
Skólahljómsveitinni nú með Lúðra-
sveitinni. Tónleikunum lýkur með
því að hljómsveitirnar spila saman
jólalag og þá fá tónleikagestir af
ungu kynslóðinni að spreyta sig á
því að stjórna öllu saman. Kynnir á
tónleikunum er Linda Ásgeirsdóttir.
Aðgangur er ókeypis.
Lúðrasveit verkalýðsins í Ráðhúsinu
eftir Þorvald
Þorsteinsson
Tónlist: Árni Egilsson við
kvæði Jóhannesar úr Kötl-
um
Leikendur: Rúnar Freyr
Gíslason, Þórunn Erna
Clausen, Guðrún S. Gísla-
dóttir,Hrefna Hallgríms-
dóttir og Ísgerður Elfa
Gunnarsdóttir
Hljóðfæraleikur: Vadim
Fedorov og Darri Mikaels-
son
Búningar: Þórunn E.
Sveinsdóttir
Lýsing: Ásmundur Karls-
son
Leikmynd: Geir Óttar
Geirsson
Tónlistarstjórn: Davíð Þór
Jónsson
Grímugerð: Stefán Jörgen
Ágústsson
Leikstjórn: Þórhallur Sig-
urðsson
Leitin að
jólunum