Morgunblaðið - 26.11.2005, Síða 35
ERLA Sigurðardóttir hjá IMG dreif sig á
skíði með fjölskylduna til Akureyrar í byrj-
un nóvember.
– Með hverjum fórstu?
„Við fórum litla fjölskyldan, maðurinn
minn og átján mánaða dóttir.“
– Hvernig fóruð þið?
„Við ókum norður á fjallabílnum á föstu-
degi og til baka á sunnudegi og vorum
fimm klukkustundir á leiðinni norður. Veð-
urspáin var reyndar leiðinleg fyrir föstu-
daginn en sem betur fer rættist hún ekki.
Færðin var fín alla leiðina þar til við kom-
um á Öxnadalsheiðina. Þar var bylur en
þetta gekk allt vel.“
– Hvar gistuð þið?
„Við gistum hjá vinum. Þetta var heim-
sókn til þeirra en tilgangurinn var að fara
á skíði í Hlíðarfjalli.“
– Hvernig var skíðafærið?
„Við lentum í yndislegu veðri í fjallinu á
laugardegi. Færið var frábært, með ný-
föllnum mjúkum púðursnjó, búið að troða
allar brekkur, sólskin, logn og sex stiga
frost. Það gat ekki verið betra og ótrúlegt
að þetta var í byrjun nóvember.“
– Hvað með birtuna svona í skammdeg-
inu?
„Það var rosalega bjart í sólinni eins og
myndirnar bera með sér. Við vorum í fjall-
inu frá ellefu um morguninn til þrjú og
hefðum getað verið lengur en það var að-
eins farið að rökkva.“
– Farið þið oft á skíði hér heima?
„Já, við förum þegar hægt er og þá á
snjóbretti en annars förum við til útlanda
þegar við komumst. Hlíðarfjall er mjög
boðlegt og sambærilegt við þau skíðalönd
sem við höfum farið til erlendis enda keyr-
um við þangað þegar við getum.
Þar eru heldur aldrei neinar bið-
raðir eins og til dæmis í Skálafelli.
Lyfturnar eru svo fínar. Svo er eins og
Akureyringar drífi
sig ekki í fjallið á
skíði þrátt fyrir
gott veður.
Kannski er það
vegna þess að
stutt er í fjallið og
þeir hafa það alltaf
fyrir augunum.“
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 2005 35
DAGLEGT LÍF | FERÐALÖG
Nýr ferðamöguleiki
Nýlega var opnað bókunar-
og þjónustufyrirtæki hér á
landi sem sér um að bóka í
ferðir út um allan heim. Fyr-
irtækið heitir Ferð.is ehf og
er á vefslóð, www.ferd.is. Í
fréttatilkynningu frá fyr-
irtækinu kemur fram að öll
þjónusta þess sé á Netinu, svo
viðskiptavinir geta sjálfir
pantað sínar ferðir á hvaða
tíma sem er. Bókunarkerfið
er beinlínutengt við Amadeus
bókunarkerfið.
Ferð.is ehf er í samvinnu
við Ticket2Travel sem eru
samtök rúmlega 50 danskra
ferðaskrifstofa.
Hægt er að bóka flugmiða
til meira en fjögur þúsund
borga um allan heim og í boði
eru ótal hótel á góðu verði .
Viðskiptavinir geta pantað
sér bílaleigubíl hjá við-
urkenndum bílaleigum og
með þessu móti getur fólk
sett saman ferðir eftir eigin
höfði. Einnig er hægt að bóka
skipulagðar ferðir með leið-
sögn.
Ferðaskrifsofurnar fara yf-
ir allar bókanir til að athuga
hvort allt sé rétt og hafa síð-
an samband annað hvort í
síma eða með tölvupósti. Allir
sem fara með í pakkaferðir
eru á ábyrgð hjá Dansk
Rejsegarantifond þegar við-
skipti eru í gegnum Tic-
ket2Travel og Ferð.is.
Sumarhús og íbúðaleiga
Þá er ferð.is einnig með
bókunarþjónustu fyrir Guid2-
hotel, og Holiday Hotels, bíla-
leigur um allan heim með
Holiday Autos og bjóða einn-
ig upp á sumarhús og sum-
aríbúðir í Evrópu frá Novasol
og Dansommer.
Á netinu veitir Ferð.is þjón-
ustu í gegnum MSN og
SKYPE þar sem fólk getur
hringt eða skrifað.
Ferð.is ehf er íslenskt fyr-
irtæki, en Islandsrejser er
skráð í Danmörku. Slóðirnar
eru www.ferd.is og www.is-
landsrejser.is
Kynning á gönguferðum
Sunnudaginn 27. nóv. verð-
ur kynning á gönguferðum ÍT
ferða erlendis 2006. Fund-
urinn verður í Íþrótta-
miðstöðinni í Laugardal og
hefst kl. 17:00. Hjördís Hilm-
arsdóttir kynnir ferðir til
Búlgaríu, Slóveníu og Pýre-
neafjalla sem verða í júní og
næsta haust.
HVAÐAN ERTU AÐ KOMA?
Á skíðum í
Hlíðarfjalli
Erla Sigurðardóttir brá sér á snjóbretti í Hlíðarfjalli.
Vera Helgadóttir, 18 mánaða
lætur fara vel um sig á snjóþot-
unni í fyrstu skíðaferðinni.