Morgunblaðið - 26.11.2005, Síða 36

Morgunblaðið - 26.11.2005, Síða 36
36 LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LÍF | FERÐALÖG O kkur langaði til að stokka upp í lífi okkar og láta langþráðan draum ræt- ast um að gerast heims- hornaflakkarar,“ segja hjónin Hrafnhildur Magnúsdóttir og Guðmundur Hárlaugsson sem lögðu upp í ævintýraferð í febrúar á þessu ári og komu heim fjórum mánuðum síðar, reynslunni ríkari. „Við fórum til Indlands, Kína, Fil- ippseyja, Ástralíu, Nýja-Sjálands, Chile, Argentínu, Brasilíu og Banda- ríkjanna,“ segir Guðmundur og bæt- ir við að hann hafi frá barnæsku dreymt um að skoða veröldina nánar. „Alveg frá því ég var smástrákur í Biskupstungum, þar sem ég er fædd- ur og uppalinn, hefur mig langað til að vita hvað væri hinum megin við fjöllin. Mamma sagði að ég hefði bent á mynd af Kínamúrnum þegar ég var lítill og sagt að þetta ætlaði ég að skoða einhvern daginn. Og nú hefur það orðið að veruleika, fjörutíu árum síðar.“ Safnar ekki lengur dauðum hlut- um Hrafnhildur átti og vann á hár- greiðslustofu í sautján ár og segir stofuna aldrei hafa gengið eins vel og þegar þau seldu hana til að fjár- magna heimsreisuna. „Mér fannst ekki auðvelt að kveðja trygga við- skiptavini sem höfðu komið til mín í áraraðir, en mér fannst tímabært fyrir mig að breyta til. Og ég sé ekki eftir því. Þetta ferðalag var mögnuð upplifun og hefur breytt lífsviðhorfi okkar mikið og verðmætamati. Nú leggjum við meira upp úr því að njóta lífsins og láta draumana rætast. Það er mikið frelsi að losna úr viðjum vinnubrjálæðis og hlutasöfnunar.“ Börn og villisvín berjast um mat Þótt helstu viðkomustaðir hafi ver- ið ákveðnir fyrirfram segja þau ferð- ina ekki hafa verið niðurnjörvaða. „Stundum fórum við í lengri eða styttri óvænta útúrdúra, sem ekki voru á ferðaplaninu. Við keyptum okkur til dæmis ferð frá Hong Kong til Peking þegar við vorum í Kína. Eins fórum við aukarúnt til Argent- ínu og heimsóttum Buenos Aires. Á Indlandi röngluðum við inn á ferða- skrifstofuna NEXUS og keyptum þrettán daga ferð um söguslóðir í norðvesturhluta landsins. Í þá ferð fórum við á litlum bíl með einkabíl- stjóra og þetta varð eftirminnileg- asta upplifunin í reisunni allri,“ segja Þessi börn á Indlandi lögðust á bílrúðuna hjá Guðmundi og Hrafnhildi.Á leið út í eyðimörkina á úlföldum til að horfa á sólarlagið í Rajasthan. Ferðin breytti lífsviðhorfi okkar Þau seldu raðhúsið sitt og fyrirtæki í góðum rekstri og lögðu upp í fjögurra mánaða heimsreisu. Kristín Heiða Kristinsdóttir spjallaði við hugrökk hjón sem nú eru óstöðvandi og á leið til Chile í hálfs árs spænskunám. Ekki er hróflað við heilögum kúm á götum Dehlíborgar.                    Hrafnhildur og Guðmundur við Taj Mahal.  HEIMSREISA AMSTERDAM er fyrsta borgin í heiminum sem býður ferðamönnum að leigja gps-staðsetningartæki eins og notuð eru í bátum og bílum. Ferðamenn geta nú stuðst við stað- setningartæki á ferð sinni um hol- lensku borgina. Hvar er hús Önnu Frank? Hvar er ódýr veitinga- staður? Spurningum af þessum toga getur staðsetningartækið í hendi ferðamannanna svarað. Leiga á tækinu kostar 16 evrur á dag eða 70 evrur fyrir eina viku, þ.e. frá u.þ.b. 1.200 til 5.000 krónur. Morgunblaðið/Brynjar Gauti Staðsetningartæki fyrir ferðamenn  AMSTERDAM FJÖLSKYLDUMÓÐIRIN er sú sem oftast ræður áfangastaðnum og pantar ferðina þegar ferðalag fjölskyldunnar er ákveðið. Á vef Politiken er greint frá skoðanakönnun ferðaskrifstofunnar Bravo Tours þar sem fram kemur að konurnar í fjölskyldunni hringi og panti fjölskylduferðina í 80% til- vika. Norsk könnun styður þessa nið- urstöðu en þar kemur fram að kon- ur bóka hótel í 78% tilvika.  KÖNNUN Mamma ræður Morgunblaðið/Ómar Almenningsbaðströndin í Limassol á Kýpur. frá 8.300 3 dagar í Bretlandi Ford Fiesta eða sambærilegur kr. - ótakmarkaður akstur, kaskó, þjófavörn, flugvallargjald og skattar. ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S H ER 3 00 09 10 /2 00 5 Sími: 50 50 600 www.hertz.is Bókaðu bílinn heima - og fáðu 500 Vildarpunkta www.gisting.dk sími: 0045 3694 6700 Ódýr og góð gisting í hjarta Kaupmannahafnar
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.