Morgunblaðið - 26.11.2005, Qupperneq 37
Guðmundur og Hrafnhildur og bæta
við að þau séu ekki söm eftir að hafa
komið til Indlands. „Það var bæði
gaman og erfitt. Vissulega til-
komumikið að koma til Taj Mahal en
þarna urðum við líka vitni að gríð-
arlegri fátækt og virkilega ömurleg-
um aðstæðum fólks. Sumstaðar
börðust börnin og villisvínin um mat-
arafgangana. Þá fórum við að hugsa
um hversu gott við höfum það á Ís-
landi og við skömmuðumst okkar
fyrir að hafa verið að kvarta og væla
yfir léttvægum hlutum heima í vel-
sældinni.“
Nýtt ferðalag í hverju landi
Aðspurð sögðust þau eiga erfitt
með að gera upp á milli þeirra landa
sem þau komu til, því hvert land
væri heillandi á sinn hátt. „Þegar við
fórum svona úr einu landi í annað og
flökkuðum á milli ólíkra menningar-
heima var eins og við værum í nýju
ferðalagi í hverju landi. Og það var
virkilega gaman að aðlaga sig ólíkum
lífsháttum. Við byrjuðum oft á því að
fara á söfn og kynntum okkur sögu
staðanna sem við dvöldum á.“ Þau
segja Ástralíu hafa verið sérlega
skemmtilegt land heim að sækja en
þau heilluðust líka af Suður-
Ameríku og Chile stendur upp úr.
„Við héldum til í Santiago, sem er
frábær borg. Götulífið og mannlífið
allt í miðbænum var svo skemmti-
legt og alltaf eitthvað um að vera.
Enda erum við á leiðinni þangað eft-
ir áramótin og ætlum að búa þar í
sex mánuði og læra spænsku. Við
ætlum líka að ferðast meðan við er-
um í Chile, fara til Perú, Bólivíu og
Argentínu.“
Í heimsreisunni gistu þau aldrei á
fínum hótelum af því ferðin átti ekki
að vera lúxusferð. „Við vildum ekki
vera innpökkuð í bómull. Okkur
langaði meira til að njóta nærveru
við heimafólk í sínu hversdagslega
umhverfi. Á ódýru gistihúsunum
kynntumst við líka alls konar ferða-
löngum á öllum aldri. Við kynntumst
til dæmis manni í Brasilíu sem var
kjarnorkueðlisfræðingur frá Sviss,
og hann hafði verið á skútuferðalagi
um heiminn í tvö ár og meðal annars
komið til Íslands. Hann sagðist hafa
átt allt það veraldlega sem hugurinn
girnist, flott hús og dýran bíl, en það
veitti honum enga ánægju. Hann los-
aði sig við allt saman, sigldi út í heim
og var alsæll með ákvörðun sína.“
Þau segjast aðeins einu sinni hafa
verið rænd á þessum fjórum mán-
uðum sem þau flökkuðu um veröld-
ina. „Það var í Rio de Janeiro og ekk-
ert alvarlegt. Okkur fannst þessi
heimsreisa minna mál en við bjugg-
umst við og þetta gekk í raun betur
en við héldum. Nú finnst okkur allir
vegir vera færir. Það er þroskandi að
gjörbreyta svona lífsmunstrinu og
ferðalagið veitti okkur nýja sýn á líf-
ið. Við ætlum ekki að láta það líða
áfram í vana og við ætlum ekki að
bíða með að láta drauma okkar ræt-
ast. Við horfum líka á umhverfi okk-
ar öðrum augum. Ég veitti til dæmis
fagurri birtu fjallanna í heimasveit
minni óvænta eftirtekt þegar ég fór
þangað um daginn. Og ég fann að
Hlíðarfjöllin verða alltaf einstök í
mínum huga, hversu víða sem ég fer
um heiminn,“ segir Guðmundur og
Hrafnhildur bætir við að hún hafi
upplifað svipað í sumar þegar hún
var í heyskap í Vestmannaeyjum þar
sem hún er fædd og uppalin. „Ég hef
aldrei áður verið eins snortin yfir
fegurð þeirra og fann svo vel fyrir að
þetta eru eyjarnar mínar.“
Þeir sem vilja lesa nánar um
heimsreisuna eða langar til að
fylgjast með þeim hjónum í
komandi Chiledvöl geta kíkt á
bloggsíðuna:
www.heimsreisa.blogdrive.com
khk@mbl.is
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 2005 37
DAGLEGT LÍF | FERÐALÖG
FRÁ Berlín er nú hægt að senda
persónuleg póstkort sem maður
prentar út úr svokölluðum „Cos-
mocard“-sjálfsölum sem nú er að
finna á þremur upplýsingaskrif-
stofum fyrir ferðamenn í Berlín,
að því er m.a. er greint frá á vef
Politiken.
Í sjálfsalanum getur maður
sjálfur sett saman póstkort með
myndum frá stórborginni auk
texta.
Persónuleg
póstkort frá Berlín
ÞÝSKALAND
Góð gisting í Kaupmannahöfn
Hótel í miðbænum. Snyrtileg herbergi. 295 danskar kr.
fyrir manninn í 2ja manna herb. með wc og sturtu.
Tökum einnig á móti hópum.
Løven Hotel, Vesterbrogade 30, DK-1620 Cph. V.
Sími +45 33 79 67 20.
www.loeven.dk • loeven_bb@hotmail.com
Skóverslun - Kringlunni
Sími 553 2888
www.skor.is
Teg. 2004
Stærðir 36-41
Litir: Svartur og brúnn
Verð 16.995
Teg. 10126
Stærðir 36-41
Litir: Svartur, brúnn
og camel
Verð 18.995
Teg. 10128
Stærðir 36-41
Litir: Svartur, brúnn,
rauður og camel
Verð 19.995
Teg. 163671
Stærðir 36-41
Litur: Svartur
Verð 16.950
Flott
leðurstígvél
Mikið úrval
Teg. 1841
Stærðir 36-41
Litir: Brúnn og svartur
Verð 16.995
Úrval af töskum