Morgunblaðið - 26.11.2005, Side 40

Morgunblaðið - 26.11.2005, Side 40
40 LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN MIÐVIKUDAGINN 9. nóv. sl. var haft viðtal við Árna Bjarnason, formann Farmanna- og fiskimanna- sambands Íslands, og birtist í „Úr verinu“ Morgunblaðsins. Í viðtalinu fjallar formaðurinn um hina miklu tekjulækkun, sem orðið hefir hjá sjómönnum á síðustu tveimur árum, og kennir fyrst og fremst um hinu háa gengi krónunnar. Orðrétt segir í viðtalinu: „Það sem ef til vill er svo ennþá verra er að það fækkar stöðugt þeim sem leggja fyrir sig skipstjórnarnám og fari svo sem horfir munum við ekki eiga nóg af menntuðum skipstjórnarmönnum til að stýra fiskiskipa- flotanum.“ Bætir svo við að við blasi, að Ís- land verði háð erlend- um skipstjórn- armönnum. Svo mörg eru þau orð, en engin skýring gefin á því ófremdar- ástandi að ungir menn eru hættir að sækja í sjómannafræðin, því trauðla geta ástæður þess verið gengis- skráning ein og sér. En handbendi lénsherranna forð- ast að nefna orsökina, sem honum er vafalaust kunn, og af eigin raun efa- laust. Það hefir áður verið rifjað upp af undirrituðum, að hin skjóta framþróun þjóðar okkar á liðinni öld ætti rætur sínar öllu öðru fremur að rekja til athafnamanna í sjávar- útvegi. Alveg sérstaklega ungra sjó- sóknarmanna, sem báru hitann og þungann af þjóðlífsbyltingunni þeg- ar við risum úr öskustó örbirgðar til bjargálna. Þá var það keppikefli ungra sjó- manna að mennta sig til skipstjórnar með það í huga að eignast síðar bát og verða sjálfs sín. Og sjómanna- skólar voru fullsetnir og námskeið einnig haldin víða til undirbúnings. Formanni Farmanna- og fiski- mannasambandsins er fullkunnugt um ástæð- ur fyrir þeirri gjör- breytingu, sem orðið hefir í þessum efnum. Lungann úr síðustu öld, og allar götur frá landnámi, ríkti fullt at- hafnafrelsi í íslenzkum sjávarútvegi. Mönnum var leyfilegt að sækja sinn eigin sjó, og ein- staklingsfrelsið sat í fyrirrúmi. Nú er þetta breytt. Gjörbreytt. Nú er sjáv- arauðlindin gefin örfáum útvöldum. Ungir menn hafa ekki að því sama að keppa og áður, með því að afla sér réttinda til skipstjórnar. Að óbreyttu eiga þeir þess engan kost að kaupa fiskveiðiheimildir, enda halda gjafakvótaþegarnir uppi á þeim okurverði. Og ekki er nú sví- virðan síðri þegar þeir taka að leigja frá sér gjafakvótann við verði, sem neyðir leigjandann til að kasta brott í hafið aftur öllu nema verðmætasta fiskinum. Eins og nú er komið stærð þorsks á miðum við landið, er talið, að sá sem leigir sér 100 tonna kvóta, þurfi að drepa margfalt það magn af þorski til að ná þeim verðmætum í afla, sem gerir honum kleift að standa undir leiguokrinu og rekstri útgerðar. Að öðru jöfnu skyldu menn halda, að sjómannastéttin ætti eitthvað undir samtökum sínum: Farmanna- og fiskimannasambandinu, Sjó- mannasambandi Íslands og Vél- stjórafélaginu, svo þau stærstu séu nefnd. Svo er þó ekki, því miður. Núver- andi forystumenn þessara samtaka hafa flestir reynzt liðleskjur, sem hafa gefið lénsherrunum próventu sína. Til skýringar: Áður fyrr gaf fólk húsbóndanum aleigu sína gegn því að hann sæi því farborða til æviloka. Hét það að gefa próventu sína. Próventukarlar Sverrir Hermannsson fjallar um sjávarútvegsmál ’Það hefir áður veriðrifjað upp af undirrit- uðum, að hin skjóta framþróun þjóðar okkar á liðinni öld ætti rætur sínar öllu öðru fremur að rekja til athafna- manna í sjávarútvegi.‘ Sverrir Hermannsson Höfundur er fv. form. Frjálslynda flokksins. FYRIR Alþingi liggur að endur- skoða alræmd eftirlaunalög frá í desember 2003. Alvarlegur galli reyndist fylgja löggjöfinni og undrar engan sem þekkir málatilbúnaðinn. Gallinn felst í því að þeir sem lögin taka til, alþingismenn og æðstu embætt- ismenn, geta tekið eft- irlaun og verið jafn- framt í fullu starfi. Hitt er þó verra að með löggjöfinni var aukið við eftirlauna- forréttindi kjörinna fulltrúa á Alþingi og þau fest í sessi. Engin boðleg rök eru þó fyrir forréttindum alþing- ismanna í lífeyr- ismálum, ekki fremur en í heilbrigðiskerfinu eða skattkerfinu. For- réttindin hefði átt að afnema. Því má ekki henda þingmenn nú að þeir leggist í katt- arþvott á löggjöfinni. Heldur verði jafnrétt- issjónarmið höfð að leiðarljósi og löggjöfin þannig gerð að enginn þurfi að fyrirverða sig fyrir að nýta sér þau réttindi sem kveðið verður á um. Þingmenn hlusti á umbjóðendur sína Nauðsynlegt er að þingmenn taki mið af ályktun Al- þýðusambandsins frá í janúar: „Al- þýðusambandið lýsti andstöðu við samþykkt laganna um eftirlaun æðstu embættismanna og sú litla reynsla sem fengist hefur af þeim sýnir svo ekki verður um villst að þau eru ósanngjörn og óeðlileg í alla staði. Þess vegna ber að fella þau úr gildi í heild.“ Frjálshyggjufélagið mótmælti frumvarpinu á sínum tíma sem óréttlæti og það gerðu Ungir jafnaðarmenn líka. Vel á þriðja þús- und manns sendi svohljóðandi til- mæli til alþingismanna: „Við mælumst til þess að lög um eftirlaun forseta Íslands, ráðherra, alþingismanna og hæstaréttardóm- ara frá 15. desember 2003, verði endurskoðuð. Við endurskoðun lag- anna verði haft að leiðarljósi að al- menningur og kjörnir fulltrúar al- mennings búi í grundvallaratriðum við sömu eftirlaunaréttindi. Forrétt- indi ganga gegn réttlætis- og lýð- ræðishugmyndum þorra lands- manna, sérstaklega forréttindi kjörinna fulltrúa. Þeir sem kjörnir eru til að setja lögin mega hvorki búa sjálfum sér almenn réttindi um- fram þau sem umbjóðendur þeirra njóta né afmarka almenningi grund- vallarréttindi sem þeir sjálfir vilja ekki una við og telja ófullnægjandi.“ Flokksstjórnarfundur Samfylk- ingarinnar sendi þingflokki sínum áskorun með svipuðum orðum. Ög- mundur Jónasson, þingflokksformaður Vinstri grænna, kallaði eftirlaunafrumvarpið „myrkraverk“ á sínum tíma og mikil andstaða var við það innan þing- flokks Frjálslynda flokksins. Í þingflokki Sjálfstæðisflokksins eru réttsýnir menn sem hafa talað fyrir jöfnum lífeyrisréttindum lands- manna og innan þing- flokks Framsóknar finnst ábyggilega ær- legur maður. Nú er lag Bjarni Benediktsson, þingmaður Sjálfstæð- isflokksins, og þing- maðurinn Helgi Hjörv- ar, áttu nýlega orðaskipti um vænt- anlega endurskoðun eftirlaunalaganna. Þeir voru einhuga um að eðlilegt gæti talist að al- þingismenn nytu sam- bærilegra eftirlauna- réttinda og aðrir opinberir starfsmenn. Það væri skref í rétta átt og ásættanleg byrjun. Þá væri með réttu hægt að segja sóma- samlega búið að þingmönnum og nú er lag að koma þessu í kring. Launamunur á Íslandi er skamm- arlegur, sá mesti á Norðurlöndum. Meiri en í Austurríki, Hollandi, Belgíu, Þýskalandi. Ef marka má opinber gögn mun kaupmáttur ráð- stöfunartekna þingmanna, á tíma- bilinu 1995–2007, aukast langt, langt umfram kaupmátt ráðstöfunartekna almennings. Kaupmáttur ráðherra svo þaðan af meira. Allt má það heita harla gott en ekki er á bætandi með forréttindum. Fulltrúar almennings mættu leiða hugann að bláfátæku fólki sem kostaði til frelsi sínu og efnum fyrir hugsjón um réttlátara samfélag. Fólki sem hafnaði mis- rétti, forréttindahyggju og forrétt- indum sjálfu sér til handa. Af hinum verður ávallt nóg sem eiga þá hug- sjón stærsta að mylja undir sjálfa sig. Þeir eru óþarfir á Alþingi. Óþarfir á Alþingi Hjörtur Hjartarson fjallar um hlutverk alþingismanna og starfsemi Alþingis Hjörtur Hjartarson ’Fulltrúar al-mennings mættu leiða hugann að bláfátæku fólki sem kostaði til frelsi sínu og efnum fyrir hugsjón um réttlátara sam- félag.‘ Höfundur er kynningarstjóri. AUGLÝSING UM ALMENNT ÚTBOÐ HLUTABRÉFA Í MINDARK PE AB (PUBL) Þann 30. nóvember nk. hefst almennt útboð hlutabréfa í MindArk PE AB (publ). Útboðstímabilið hefst 30. nóvember og stendur til kl. 16:00 þann 2. desember nk. (að íslenskum tíma), en útboðið fer jafnframt fram í Svíþjóð og Noregi. Í útboðinu verður boðið hlutafé að nafnverði allt að 146.350 sænskar krónur og er útboðsgengið 205. Heildarsöluverð hluta í útboðinu er þar af leiðandi 30.001.750 sænskar krónur. Umsjónaraðili með útboðinu er Tamm & Partners AB, Stokkhólmi, Svíþjóð. Útboðlýsingu á sænsku og ensku, auk viðauka við hana fyrir íslenska fjárfesta, er hægt að nálgast hjá útgefanda (www.mindark.se), umsjónaraðila (www.tammpartners.se) og hjá Bridge Investment Network (www.bridgeltd.com), en skilyrði fyrir þátttöku í útboðinu er að menn séu meðlimir í Bridge Investment Network. I Í Fréttablaðinu hinn 12. nóv- ember sl. er að finna frétt á forsíðu undir fyrirsögninni „Mannréttinda- dómstóll Evrópu lokar á fólk.“ Koll- egar mínir úr stétt lögfræðinga hafa sumir skilið fréttina þannig að hún væri byggð á viðtali við mig. Hið rétta er þó að fréttmaður frá Frétta- blaðinu hefur aldrei tekið viðtal við mig um málefni Mannréttinda- dómstóls Evrópu. Á hinn bóginn var einn fréttamaður frá Fréttablaðinu í hópi 17 norrænna fréttamanna sem voru í endurmenntunarnámsferð í Strassborg hinn 21. október sl. Undirrit- aður var fenginn til að segja þeim frá dóm- stólnum. Líklega er fréttin af þessu fræðsluerindi sprottin. Þó veit ég það ekki fyr- ir víst. Í erindi mínu fór ég víða og flest var það á mjög almennum nótum eins og vera ber við þessar aðstæður. Ræddi ég m.a. mála- fjölda og áform um breytingar á starfsháttum dómstóls- ins til að mæta þeim vanda sem hlot- ist hefur af fjölgun mála og möguleg viðbrögð til að gera dómstólnum kleift að takast á við hann. Þótt hvorki hafi verið um að ræða viðtal við viðkomandi fréttamann, né fréttamannafund, hefur blaðamaður Fréttablaðsins ákveðið að nýta tæki- færið til að afla frétta. Í tilefni af um- ræddri frétt og til að fylla upp í þær stóru eyður sem eru í fréttinni er við hæfi að koma á framfæri frekari upplýsingum. II Þróun í málafjölda er haganlegt að lýsa með meðfylgjandi töflu, en hún segir meira en mörg orð (sjá töflu). Samkvæmt þessari töflu er búist við að ný mál á árinu 2005 verði tæp- lega 51.000. Dómstólnum berast samkvæmt þessu um eitt þúsund mál í viku hverri. Löndin sem flest mál komu frá á árinu 2004 eru: Rúss- land, 6.691, Pólland 5.445, Rúmenía 3.776, Tyrkland 3.491, Frakk- land 2.921, Þýskaland 2.470, Úkraína 2.131, Ítalía 1.821, Tékkland 1.370 og Bretland 1.366. Um 80.000 mál bíða nú úrlausnar. Mönnum hefur verið ljóst um nokkurn tíma að aðgerða væri þörf til að gera dómstólnum kleift að veita úrlausn í öllum þeim málum sem honum ber- ast innan hæfilegs tíma. III Í því skyni að auðvelda dóm- stólnum að takast á við málafjöldann hafa verið lagðar til breytingar á Mannréttindasáttmála Evrópu. Þær koma fram í svonefndum 14. viðauka við hann, en um þetta fjallaði ég stuttlega í yfirliti mínu fyrir hina ágætu endurmenntunarnemendur, þótt fréttin beri það ekki með sér. Viðaukinn er nú til meðferðar í að- ildarríkjunum til fullgildingar. Með- al breytinga sem gert er ráð fyrir er að einn dómari geti kveðið á um hvort mál uppfyllir kæruskilyrði, í stað minnst þriggja eins og nú er, þá geti 3 dómarar kveðið upp dóma í vissum einföldum málum (en gild- andi reglur gera ráð fyrir að þeir skuli vera minnst sjö). Ennfremur er gert ráð fyrir að sett verði ný kæru- skilyrði, til viðbótar þeim sem nú eru, sem geri dómstólnum kleift að vísa máli frá á þeirri forsendu að brot hafi ekki valdið viðkomandi ein- staklingi verulegu óhagræði. Ýmsar aðrar breytingar eru fyrirhugaðar sem ekki er ástæða til að ræða hér. Vonir standa til þess að með þessum breytingum megi auðvelda dóm- stólnum að takast á við sívaxandi málafjölda og veita hraðari úrlausn en nú er. Ýmsir er þó á þeirri skoðun að þetta sé smáskammtalækning þegar til lengri tíma litið og frekari aðgerða sé þörf. Er það úrlausn- arefni fyrir stjórnmálamenn að finna lausn á þeim vanda og undirbúa þá Um vanda Mannrétt- indadómstóls Evrópu Davíð Þór Björgvinsson skrifar vegna fréttar í Fréttablaðinu Davíð Þór Björgvinsson ’Það stendur aftur ámóti ekki til samkvæmt 14. viðauka að setja sér- stakar skorður við rétti einstaklinga til að kæra mál til dómstólsins, né heldur eru uppi áform um að dómstóllinn „loki á fólk“ …‘

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.