Morgunblaðið - 26.11.2005, Side 45

Morgunblaðið - 26.11.2005, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 2005 45 UMRÆÐAN SÆLL, Einar. Rauði þráðurinn í grein þinni í Blaðinu laugardaginn 12. nóvember sl. er hinn sami og gagnrýni Sig- urjóns Þórðarsonar og fleiri aðila beinist jafnan að. En hann er sá að ef gagnrýni á fiskveiðikerfið fellur ekki að hinum einu sönnu ríkisvís- indum og þar með talið Hafró vís- indakirkjunni, þá er hlutunum snú- ið á haus að þínu mati. Af hverju var t.d. ekki ein- hverjum þeirra sem gagnrýnt hafa fiskveiðikerfið á undanförnum ár- um boðið að halda erindi á nýaf- staðinni ráðstefnu Hafró? Af hverju var bara einsleitum hópi vísindamanna boðið – sem allir koma úr sama klakinu? Af hverju eru það bara eintómir „rósenberg- ar“ eða eru þetta bara allt tilvilj- anir? Og segðu mér, Einar, finnst þér það virkilega vænlegt til árangurs að setja á laggirnar ráðgjafanefnd erlendra fræðimanna og Íslendinga sem sumir hverjir geta rétt með herkjum tjáð sig á móðurmálinu – hvað þá læsir á framandi fræði- gögn? Fyrir um ári síðan sagði Jóhann Sigurjónsson, forstjóri Hafró, í við- tali að þorskstofninn væri að „braggast“ en það hefur sem kunn- ugt er ekki gengið eftir. Þá sagði hann í Speglinum mánudaginn 14. nóvember sl. að okkur hefði bara tekist „bærilega upp“ því víða hafi nú gengið verr en hjá okkur hugg- un harmi gegn. Þá sagði Jóhann í sama viðtali að svokölluð langtímanefnd hefði lagt til að veiðihlutfallið yrði lækk- að verulega. Ég verð að segja að mér finnast þrjú prósentustig, úr 25% í 22%, ekkert „verulegt“ eða neitt aðalatriði í þessu sambandi þegar innbyggð skekkja í stofn- matinu gæti verið allt að 30%. Ég er bara að benda á að sumir menn virðast endalaust komast upp með það að afvegaleiða um- ræðuna eða aðlaga hana að sér og sínum söfnuði. Varðandi fundaherferð Hafró um landið sem nú stendur yfir þá mæli ég eindregið með því að hún verði slegin af hið snarasta. Því hún get- ur aldrei þjónað yfirlýstu markmiði sínu. Sem er að sögn Jóhanns: „ætluð til að stuðla að upp- byggilegri umræðu um kerfið, svo okkur farnist vel í framtíðinni“. Því samkvæmt fyrri reynslu ganga kynningafundir Hafró út á það að troða kenningum stofnunarinnar inn í viðstadda með línuritum og sannfæra þá sjálfa í leiðinni um að þeirra fræði séu þrátt fyrir hrak- farir þau einu réttu. Þá er stöðugt verið að tala um að hrygningarstofn þorsks verði að „byggja“ upp, þrátt fyrir að seiða- talningar sýni að ekki hafi verið neinn skortur á þeim mörg und- anfarin ár heldur þvert á móti hef- ur hvert seiðametið verið slegið. Vandinn liggur því ekki í fjölda seiða, heldur einhvers staðar eftir að kviðpokastiginu sleppir og þar til fiskurinn á að koma inn í veið- ina sem nýliðun sem hann gerir ekki. Í Silfri Egils sunnudaginn 13. nóvember sl. sakaði Magnús Þór Hafsteinsson ykkur ráðherra sjáv- arútvegs um aðgerðaleysi á und- anförnum árum: „að þið gerðuð aldrei neitt ... og hvað á það nú að taka mörg ár“ eins og Magnús orð- aði það. Í því sambandi bentir þú t.d. á að möskvar í þorskanetum hafi nú verið minnkaðir til að vernda mikilvægasta hrygningarfiskinn. Ég vil í því sambandi að fram komi að um- ræðan um að banna bæri notkun á stór- riðnum þorskanetum var byrjuð fyrir 1992. En þá vorum við sem stóðum að innflutn- ingi á þessum netum varaðir við því af starfsmanni Hafró að eiga of stór- an lager, því við gætum átt það á hættu að brenna inni með hann. Það var svo um 1994 sem notkun stórmöskva (9–10 tommu) var orð- in almenn á vetrarvertíð og náði hún hámarki 1998 2000. Það tók ykkur því heil 12 ár að setja skorður á þessa slátrun á stærsta hrygning- arfiskinum eftir að vit- að var hvaða afleið- ingar það kynni að hafa. En að lokum þetta: Í því ljósi að þorskstofn- inn er nú mældur vera rétt um 800 þúsund tonn og meðalþyngd hans eftir aldri sú lak- asta sem mælst hefur. Sandsíli, rækja og loðna nær horf- in. Hvað væru þá tvær milljónir tonna af þorski að éta í dag, ef uppbyggingin sem endalaust er beðið eftir hefði gengið upp? Fyrir það fyrsta, þá er að mínu viti ekki hægt að byggja upp fisk- stofna, enda hefur það mér vit- anlega hvergi tekist. Það er ein- ungis hægt með skynsamlegum aðferðum að stuðla að því að stofn- ar fái sem best þrifist og hámarka síðan afrakstur þeirra. Við gerum það ekki með því að slátra stærsta hrygningarfiskinum sem kunnugt er. Ekki heldur með því að plægja upp botninn, til að mynda með botntrollum. Þá tekst það heldur ekki með því að taka frá fiskinum fóðrið sem hann á að nærast á, svo það helsta sé upp talið. Einar, er nú ekki kominn tími á aðgerðir og að þú stuðlir að því sem í þínu valdi stendur í stað þess að bíða eftir því sem ekki er hægt og aldrei gerist? Bréf til sjávar- útvegsráðherra Atli Hermannsson fjallar um Hafrannsóknastofnunina ’Varðandi fundaherferðHafró um landið sem nú stendur yfir þá mæli ég eindregið með því að hún verði slegin af hið snarasta.‘ Atli Hermannsson Höfundur er fyrrverandi veiðarfærasölumaður. flísar Stórhöfða 21, við Gullinbrú, sími 545 5500. www.flis.is ● netfang: flis@flis.is Allt fyrir baðherbergið

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.