Morgunblaðið - 26.11.2005, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 2005 47
UMRÆÐAN
„Bráðskemmtileg“
saga sem „blekkir
og trekkir“
„Saga Rúnars er bráðskemmtileg. Hann er
hugkvæmur víða í uppátækjum sínum . . .
skrifar líflegan og útúrdúralausan stíl, hann er
laus við alla stæla, rekur stóran hluta sögunnar
fram með samtölum sem eru trúverðug og
prýðilega samsett.“
Páll Baldvin DV
„Og það er greinilegt að Rúnar Helgi gerir
þetta glottandi, snýr upp á hefðir og venjur,
hefur endaskipti á klisjum og notar tákn og
líkingar þegar honum sýnist eða beitir
sjónhverfingum. Þetta er saga sem blekkir og
trekkir.“
Hávar Sigurjónsson Morgunblaðinu
„Bestu
meðmæli“
„Ég er búin að lesa Silfurvæng og get gefið
henni mín mestu meðmæli. Sagan er
spennandi og mjög skemmtileg, með þeim
allra bestu sem koma út núna fyrir jólin. Ég
er þegar búin að lesa 10 barnabækur og af
þeim ætla ég að velja Silfurvæng í mína
jólapakka.“
Bréf frá safnkennara í grunnskóla
„Stórkostleg fantasía.“
Smithsonian Magazine
„Stjörnustöðu sína hefur Armstrong
nýtt til að telja kjark í þá sem takast
þurfa á við illvíga sjúdóma og safna
miklum fjármunum til baráttunnar
gegn þeim sjúkdómum. Saga hans er
einstök og öllum holl lesning.“
Sigurður Björnsson, læknir,
formaður Krabbameinsfélags Íslands
„Þessi bók hafði mikil áhrif á mig og
gat ég ekki lagt hana frá mér. Saga
Armstrongs er vel sögð og með
ólíkindum skemmtileg frásögn.“
Valdís Gunnarsdóttir, Bylgjunni
G r æ n a h ú s i ›
Ú t g á f a n o k k a r
Útgáfuhátíð
Þriðjudaginn 29. nóvember kl. 20 heldur Græna húsið
útgáfuhátíð á Súfistanum Laugavegi 18. Bækur for-
lagsins verða kynntar og Rúnar Þórisson og Lára
Rúnarsdóttir flytja nokkur lög af nýútkominni plötu
Rúnars, Ósögð orð og ekkert meir. Allir velkomnir!
„Sagan hans
er einstök“
*Á við um verslanir Pennans-Eymundsson.
Rúnar H. Vignisson þýddi.
Helga Soffía Einarsdóttir þýddi.
30% kynningarafsláttur
UPPI Í SKÝJUNUM
Paul McCartney
Geoff Dunbar og Philip Ardagh
Útgáfuhátíð
Bókabúðinni IÐU Lækjargötu, kl. 14 - 17
www.uppheimar.is
Kemur út í dag!
ÉG VIL byrja á að þakka Jóni
Hlöðveri Áskelssyni fyrir umfjöll-
un hans um tónleika í Laugarborg
í vetur sem og aðra tónleika á
Eyjafjarðarsvæðinu. Aukin um-
fjöllun um viðburði hér norðan
heiða er af hinu góða, sérstaklega
þegar faglega er skrifað á jákvæð-
um og uppbygglegum nótum eins
og raun er með skrif Jóns.
Í Morgunblaðinu þriðjudaginn
22. nóvember sl. birtist umfjöllun
um tónleika mína og Gunnars
Guðbjörnssonar. Sem verkefn-
isstjóri tónleikaraðar Tónlistar-
hússins Laugarborgar í Eyjafjarð-
arsveit get ég ekki látið hjá líða
að gera athugasemd
við eitt atriði í grein
Jóns Hlöðvers.
Jón skrifar
„…Dagskráin sem
Tónlistarhúsið Laug-
arborg býður tónlist-
arunnendum sínum
upp á í vetur ber vott
um einlægan vilja að
veita okkur tónlist í
sinni fjölbreyttustu
mynd með ann-
áluðum flytjendum.
Akureyringa myndi
örugglega fleiri fýsa
að hlýða á þessa viðburði …en
þeir sömu þyrftu að eiga kost á
ferðaþjónustu, því þegar verið er
að bera saman að fjarlægðin frá
Akureyri fram í Laugarborg sé
svipuð og úr efra Breiðholtshverfi
í miðbæ Reykjavíkur má ekki
gleymast að þar er hægt að taka
strætó …“
Í þessu sambandi er mér sönn
ánægja að vekja athygli á að í vet-
ur hefur verið tekin upp sú ný-
breytni, sem í raun er sjálfsögð
þjónusta við tónleikagesti Laug-
arborgar, að bjóða upp á rútuferð-
ir á tónleikastað. Slíkar ferðir
hefðu verið kallaðar sætaferðir
hér í eina tíð og var alsiða að
bjóða upp á slíka þjónustu t.d. í
tenglum við sveitaböll – sem oft
voru haldin í Laugarborg „i den
tid“. Í vetur hefur lítil rúta farið
ákveðinn hring á Akureyri þar
sem þeir sem ekki eiga þess kost
að ferðast á einkabíl eða í samfloti
með öðrum, geta komist á tón-
leikastað. Þessi þjónusta hefur
verið auglýst á veggspjöldum og í
auglýsingu í Dagskránni fyrir tón-
leika. Sá háttur var einnig hafður
á varðandi áðurnefnda tónleika
Gunnars Guðbjörnssonar. Greini-
legt er þó að bæta þarf kynningu
á þessum ferðamögu-
leika.
Tónleikagestir
Laugarborgar koma
flestir frá Akureyri.
Tónleikasókn er góð
að öllu jöfnu og al-
menn ánægja ríkir
með aðstöðuna og þá
dagskrá sem í boði er.
En fleiri komast að en
vilja eða geta, eins og
einhver sagði.
Aksturstími frá
miðbæ Akureyrar í
Laugarborg er um tíu
mínútur. Ekið er um fagurt land, í
misjöfnu veðri að vísu en öll
veðrabrigði eru áhugaverð og gefa
umhverfinu nýjan karakter. Stað-
setning Laugarborgar utan Ak-
ureyrar er að því leyti einkar
ákjósanleg. Hvort er nú betri und-
irbúningur fyrir tónleika að aka í
rólegheitum í tíu mínútur um
fagra sveit eða sitja stressaður í
borgarumferðinni og leita svo log-
andi ljósi að bílastæði sem næst
tónleikastað með misjöfnum ár-
angri?
Að tónleikum í Laugarborg
loknum er svo sjálfsagt að setjast
niður til dæmis á veitingastað við
hlið Laugarborgar nú eða halda
áfram för um Eyjafjarðardalinn
og njóta útsýnis á meðan endur-
ómur tónverkanna hljómar í kyrrð
fjallanna.
Verið ávallt velkomin í Tónlist-
arhúsið Laugarborg.
Rútuferðir í
Tónlistarhúsið
Laugarborg
Þórarinn Stefánsson gerir at-
hugasemd við grein Jóns Hlöð-
vers Áskelssonar um tónleika í
Tónlistarhúsinu Laugarborg
Þórarinn Stefánsson
’Í þessu sambandi ermér sönn ánægja að
vekja athygli á að í vet-
ur hefur verið tekin upp
sú nýbreytni, sem í raun
er sjálfsögð þjónusta við
tónleikagesti Laug-
arborgar, að bjóða
upp á rútuferðir á
tónleikastað. ‘
Höfundur er listrænn stjórnandi og
framkvæmdastjóri tónlistardagskrár
Tónlistarhússins Laugarborgar í
Eyjafjarðarsveit.