Morgunblaðið - 26.11.2005, Side 52
52 LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
EIN stærsta danskeppni vetr-
arins fór fram í íþróttahúsinu við
Strandgötu í Hafnarfirði 19. nóv-
ember sl. Það er Dansíþróttafélag
Hafnarfjarðar sem stendur fyrir
þessari keppni. Framkvæmdastjóri
keppninnar er Auður Haraldsdótt-
ir danskennari og er þetta í 14.
sinn sem hún stendur fyrir þessari
keppni.
Mótið er alþjóðlegt og er þetta
annað árið í röð sem keppnin er
opin fyrir dansara erlendis frá og
heitir því mótið „Lotto open“. Alls
komu fimm pör til landsins til þess
að taka þátt í mótinu, fjögur pör
frá Danmörku og eitt frá Eng-
landi, en daman í því pari er ís-
lensk. Sex dómarar dæmdu keppn-
ina en þó voru það alltaf fimm
dómarar sem dæmdu í einu. Það
voru þau Julie Tomkins frá Eng-
landi, Annette Funch Nielsen frá
Danmörku, Arne Ringaard frá
Danmörku, Thomas Lindner frá
Þýskalandi, Anna Svala Árnadóttir
frá Íslandi og Vilborg Sverrisdótt-
ir frá Íslandi. Keppt var í öllum
aldurs- og styrkleikaflokkum og
var mótið því mjög fjölmennt.
Keppnisstjórar og kynnar voru
þau Auður Haraldsdóttir og Jó-
hann Gunnar Arnarsson danskenn-
arar.
Mikil spenna í loftinu
Mikil spenna lá í loftinu fyrir
þessa keppni enda voru öll bestu
danspör landsins mætt til leiks.
Sömuleiðis er það frábært fyrir
íslenska dansara að fá pör erlendis
frá til þess að keppa við sig.
Keppnisdagurinn hófst með því að
húsið var opnað kl. 8.30 og var
áætlað að keppni hæfist kl. 10 en
vegna þess að einhver ruglingur
var á númerum paranna hófst hún
ekki fyrr en 40 mínútum seinna.
Það hafðist sem betur fer að keyra
dagskrána áfram og vannst tíma-
tapið upp um hádegisbil. Þá hófst
setningarathöfn með innmarsi
keppenda og síðan setti formaður
Dansíþróttafélags Hafnarfjarðar,
Haukur Eiríksson, mótið. Að því
loknu mættu ungir dansarar sem
ekki hafa keppt í dansi og sýndu
nokkra dansa.
Umgjörð keppninnar er sú
glæsilegasta sem boðið er upp á í
keppnum hér á landi í dag. Sal-
urinn var fallega skreyttur og
kastarar lýstu upp gólfið sem gerir
það að verkum að dansbúningar,
sem oft á tíðum er búið að leggja
mikla peninga í, njóta sín mikið
betur. Góð lýsing myndar betri
stemningu og væri óskandi að
þetta væri gert á fleiri keppnum
og þá mætti leggja ennþá meiri
metnað í lýsinguna. Því miður er
kostnaður við góða lýsingu mikill
og því er henni yfirleitt sleppt.
Einn fastur liður í Lottokeppn-
inni er að valin eru Lottopör árs-
ins. Þann titil hljóta þau pör sem
fá flest fyrstu sæti dæmd frá dóm-
urum og er valið eitt par sem
keppir í dansi með grunnaðferð og
annað sem keppir í dansi með
frjálsri aðferð.
Öll bestu danspör landsins mættu til leiks
Andreas Lenskjold og Chathrine Kjeldgaard
unnu í Standard-dönsum í F-riðli 16–18 ára.
Björn Ingi Pálsson og Hanna Rún Óladóttir sigurvegarar í
báðum greinum í F-riðli í flokki 14–15 ára.
DANS
Íþróttahúsinu við Strandgötu,
Hafnarfirði
Lottokeppnin
Opið mót í samkvæmisdönsum
Björn Sveinss. og Bergþóra M. Bergþórsd.
sigruðu í Standard-dönsum 35 ára og eldri.
ÞAÐ er ekki heiglum hent að
halda skákmót þar sem virðing fyrir
skáklistinni skín í gegn samhliða því
sem skemmtigildið er í hávegum
haft. Ritstjóri Tímaritsins Skákar
um margra áratuga skeið, Jóhann
Þórir Jónsson heitinn, hafði einstakt
lag á að halda helgarskákmót þar
sem þetta tvennt hélst í hendur. For-
svarsmenn Taflfélags Snæfellsbæjar
hafa að sumu leyti fetað í fótspor Jó-
hanns en á undanförnum þremur ár-
um hefur félagið staðið fyrir skák-
veislu á Klifi, félagsheimili
Ólafsvíkinga. Mót þetta er m.a. hald-
ið til að heiðra minningu Ottós Árna-
sonar en sá var mikill skákáhuga-
maður og frumkvöðull í félagsstarfi í
Ólafsvík. Að þessu sinni fór mótið
fram í fjórða skipti laugardaginn 19.
nóvember sl. og snemma þann dag
bauðst skákmönnum á höfuðborgar-
svæðinu að taka rútu frá BSÍ á skák-
stað. Skákmenn eru ekki þekktir
fyrir að vera árrisulir en margir létu
það ekki á sig fá enda skákveislur á
borð við þá í Ólafsvík orðnar fátíðar.
Fullsetin rúta af glaðværum skák-
mönnum kom um eittleytið á móts-
stað og tekið var á móti þeim með
kostum og kynjum. Stuttu síðar
komu fulltrúar skákdeildar KR og
ekki fengu þeir lakari móttökur en
gott samstarf hefur tekist á milli KR
og Taflfélags Snæfellsbæjar. Við
setningu mótsins hélt Tryggvi Leif-
ur Óttarsson, formaður Taflfélags
Snæfellsbæjar, stutta tölu ásamt
Kristni Jónassyni, bæjarstjóra Snæ-
fellsbæjar, sem lék fyrsta leikinn á
mótinu. Á síðasta ári sá Sturla Böðv-
arsson samgönguráðherra um það
hlutverk en í þetta skiptið var hann
vant við látinn í sextugsafmælis-
veislu sinni.
Umhugsunartíminn í fyrstu fjór-
um umferðunum var sjö mínútur og
þegar þeim lauk var gert hlé á tafl-
mennskunni til þess að hægt væri að
gæða sér á ljúffengum veitingum
sem mótshaldarar buðu upp á. Í
kaffihléinu var hægt að spá og spek-
úlera um seinni hluta mótsins en
margir skákmenn voru í hnapp í
efsta sæti með 3½ vinning áður en
síðustu fjórar umferðirnar hófust.
Umhugsunartíminn í þeim skákum
var 20 mínútur og spennan um efsta
sætið stigmagnaðist. Þegar ein-
göngu einni umferð var ólokið hafði
alþjóðlegi meistarinn Jón Viktor
Gunnarsson forystu á mótinu með 6
vinninga af sjö mögulegum en
nokkrir keppendur komu í humátt á
eftir með 5½ vinning. Úr hópi þeirra,
sem höfðu hálfum vinningi minna en
forystusauðurinn, fékk greinarhöf-
undur það hlutskipti að etja kappi
við Jón í síðustu umferðinni.
Hvítt: Helgi Áss Grétarsson
Svart: Jón Viktor Gunnarsson
1. d4 g6 2. c4 Bg7 3. e4 c5 4. d5 d6
5. Bd3 e6 6. h3 Re7 7. Rf3 0-0 8. Rc3
a6 9. 0-0 e5 10. Hb1 Rd7 11. a3 h6
12. b4 f5 13. Bc2 Dc7
Þessi staða er um margt sérkenni-
leg en í meginatriðum hyggst svart-
ur reyna að máta hvítan á kóngs-
væng á meðan hvítur ætlar sér að
murka lífstóruna úr svörtum á
drottningarvæng.
14. a4 cxb4 15. Hxb4 Rc5 16. Ba3
Bd7 17. Rd2 f4 18. De2 g5 19. Hfb1
Hab8 20. Hb6 Rc8 21. Bxc5! dxc5
Hvítum hefur tekist að vera á und-
an í sókn sinni á drottningarvæng og
næsti leikur tryggir honum varan-
legt frumkvæði.
Sjá stöðumynd 1.
22. d6! Dxb6
Svartur hefði tapað manni eftir 22.
... Rxd6 23. Rd5. Eftir textaleikinn
eru færi hvíts mjög hættuleg þar
sem menn hans vinna vel saman.
23. Hxb6 Rxb6 24. a5 Rc8 25. Rb3
Bc6 26. Rxc5 Rxd6 27. Re6 Hfe8 28.
c5
Hér hefði 28. Bb3 verið nákvæm-
ara.
28. ...Rb5 29. Dc4 Kh7 30. Bb3
Hxe6?! 31. Rxb5 He7 32. Rd6
Sjá stöðumynd 2.
Þegar hér var komið við sögu var
tími keppenda orðinn naumur en á
borðinu stendur hvítur hartnær til
vinnings. Ekki er hægt að fullyrða
hvert framhaldið var nákvæmlega
en í hnotskurn leiddi hvítur taflið til
sigurs með því að leika Dc4-Db4 og
svo Bb3-d5 en sú tilfæring jók þrýst-
inginn verulega á svörtu stöðuna.
Þessi úrslit þýddu að Jón varð af
efsta sætinu en greinarhöfundur
varð hlutskarpastur á mótinu með
6½ vinning ásamt Stefáni Kristjáns-
syni og Sigurði Daða Sigfússyni.
Eins og venja er til var efnt til auka-
keppni um sigurinn þar sem um-
hugsunartíminn var 5 mínútur. Stef-
án hóf keppnina með sigri á
greinarhöfundi og í næstu skák hafði
hann svart gegn Sigurði Daða og
kom eftirfarandi staða upp:
Sjá stöðumynd 3.
14... Rxa2+! 15. Kb1
Riddarinn er friðhelgur vegna
leppunarinnar á c8. Í framhaldinu
nær svartur undirtökunum eftir að
hvítur leikur nokkrum ónákvæmum
leikjum.
15...Rxc3+ 16. Dxc3 f6 17. exf6?!
exf6 18. Bh4 Dd6 19. Db3?! f5 20.
Bb5 a6 21. Be2 Hfe8 22. Hhe1 He4!
23. Bd3 Hb4 og hvítur gafst upp
enda fokið í flest skjól. Stefán hélt
áfram að sýna mikið öryggi í hrað-
skákunum í seinni hlutanum og vann
aukakeppnina sannfærandi með 3½
vinning. Greinarhöfundur kom næst-
Skákveisla í Ólafsvík
Morgunblaðið/Alfons
Kristinn Jónasson, bæjarstjóri Snæfellsbæjar, lék fyrsta leik mótsins.
Stefán Kristjánsson, t.h., varð sigurvegari mótsins í Ólafsvík.
SKÁK
Taflfélag Snæfellsbæjar
19. nóvember 2005
4. minningarmót Ottós Árnasonar
Stöðumynd 3
Stöðumynd 2
Stöðumynd 1