Morgunblaðið - 26.11.2005, Síða 53
Í ár voru það Sigurþór Björg-
vinsson og Þórdís Bergmann frá
Dansíþróttafélagi Hafnarfjarðar
sem hlutu viðurkenninguna fyrir
dans með grunnaðferð og Alex
Freyr Gunnarsson og Ragna Björk
Bernburg frá Dansdeild ÍR fyrir
dans með frjálsri aðferð. Einnig
fór fram liðakeppni þar sem hvert
félag mætti með lið skipað þremur
pörum, einu úr hverjum aldurs-
flokki, þ.e. börn, unglingar og full-
orðnir, og var keppt í suður-amer-
ískum dönsum. Skemmst er frá því
að segja að það var lið Dans-
íþróttafélags Hafnarfjarðar sem
fór með sigur úr býtum.
Mjög góður keppnisandi
Julie Tomkins, einn dómari
keppninnar, sagði að stemningin á
keppninni hefði verið mjög góð.
Henni fannst ríkja góður keppn-
isandi og pörin í heildina dansa
mjög vel. Hún sagði að sér hefði
oft fundist hálfgert stríðsástand
ríkja á keppnum vegna þess að það
hafi verið svo mikil harka í þeim
en hennar upplifun af þessari
keppni hér á Íslandi sé að hér hafi
ríkt heilbrigður keppnisandi þar
sem dansararnir séu vinir þó að
þeir séu að keppa sín á milli á
dansgólfinu.
Þetta var síðasta mót ársins og
fara pörin nú að undirbúa sig fyrir
næsta ár og munu þónokkuð mörg
pör flytjast upp um aldursflokka
um áramótin. Þó er einn möguleiki
á að sjá þessi pör stíga á svið fyrir
áramót og er það á árlegri jólasýn-
ingu Dansráðs Íslands sem fram
fer á Broadway sunnudaginn 27.
nóv.
Að lokum vil ég óska Dans-
íþróttafélagi Hafnarfjarðar til
hamingju með góða keppni. Hægt
er að nálgast öll úrslit keppninnar
á heimasíðu Dansíþróttafélags
Hafnarfjarðar, www.dih.is.
Ljósmynd/Jens Ormslev
Þessir stoltu krakkar tóku við verðlaunum fyrir keppni í K-riðli 10–11 ára.Frá danssýningu barna 7 ára og yngri. Kara Arngrímsdóttir
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 2005 53
DVD TÓNLIST Á
LÆGRA VERÐI Í SKÍFUNNI
Eagles
Farewell Tour Part One
U2 – Vertigo Tour
Live In Chicago
2DVD
DVD+CD
4DVD
2DVD
2DVD
2DVD
2DVD
2DVD
2DVD
2DVD
-20%
2DVD
Paul McCartney
In Red Square
Pixies
Sell Out 2004: Reunion Tour
50 Years Of Eurovision
1956-1980
50 Years Of Eurovision
1981-2005
Live8 Keane
Strangers
Jack Johnson
A Weekend At The Greek
Eminem
The Anger Management Tour
Abba
The Movie
Jimi Hendrix
Live At Woodstock
Limp Bizkit
The Videos
Audioslave
Live In Cuba
Queens Of The Stone Age
Over The Years&Through The Woods
AC/DC
Family Jewels
Bruce Springsteen
VH1 Storytellers
Radiohead
Live At The Astoria
Deep Purple
Live In California ’74
Sex Pistols - The Great
Rock’n’roll Swindle
Cream
Royal Albert Hall
Brian Wilson
Smile DVD Collection
George Harrison and friends
Concert For Bangladesh
Nirvana
Nevermind: Classic Albums
Skífan Laugavegi 26 opið alla daga til 22 · Skífan Smáralind · Skífan Kringlunni · Póstkröfusími 591-5310 · www.skifan.is
AFSLÁTTUR AF ALLRI DVD
TÓNLIST FRAM TIL JÓLA!
skemmtir þér ;)
2DVD
2DVD
ur með tvo vinninga en Sigurður
Daði rak lestina með ½ vinning. Í
næstu sætum á eftir þremenningun-
um komu Jón Viktor Gunnarsson,
Þröstur Þórhallsson og Gunnar
Björnsson með 6 vinninga.
Þegar keppendur höfðu notið
góðrar máltíðar Sigfúsar Al-
marssonar og undirleiks Jazzbands-
ins var röðin komin að sjálfri verð-
launaafhendingunni. Snæfellsbær,
Deloitte og Hafnarsjóður Snæfells-
bæjar gáfu vegleg verðlaun fyrir
efstu þrjú sætin en einnig voru veitt
eftirsótt verðlaun í ýmsum undir-
flokkum. Í unglingaflokki varð Paul
Frigge hlutskarpastur, Harpa Ing-
ólfsdóttir varð efst í kvennaflokki og
Björgvin Hauksson bar sigur úr být-
um í flokki stigalausra. Fyrir utan
þetta gátu allir 66 keppendur móts-
ins verið dregnir út í happdrætti þar
sem í boði voru veglegar gjafir frá
Hótel Búðum, Eddu útgáfu hf. og
Tólf tónum. Einnig fengu allir kepp-
endur eintak af bókinni Tær snilld
sem gefin var út nýlega í tilefni af
fertugsafmæli Hrafns Jökulssonar.
Þorri gesta var kominn í miklar
gleðskaparstellingar þegar Kristján
Jónsson skipstjóri ruddi sér rúms
með karaókí-tækin sín og nokkrir
skákmenn hófu upp raust sína.
Söngur og dans flytjenda vakti mikla
kátínu viðstaddra en klukkan 23.00
var orðið tímabært að ljúka skemmt-
uninni og flestum aðkomumönnum
var smalað í rútuna sem flytja átti þá
suður á meðan KR-ingar og Snæ-
fellsbæingar skunduðu á Hótel Hell-
issand til að takast á í árlegri skák-
keppni félaganna. Rútuferðin suður
gekk snurðulaust fyrir sig þó að far-
þegar söknuðu Helga Ólafssonar til
að sjá um spurningarkeppnina. Grip-
ið var til þess ráðs að láta Sigurbjörn
Björnsson og greinarhöfund fylla
hans vandfyllta skarð. Misjafnt var
hversu mikla eftirtekt spurningarn-
ar fengu enda sumir ferðalangar
orðnir þreyttir. Sjálfsagt hefur
mótinu í Ólafsvík að ári brugðið fyrir
í draumum þeirra enda fellur það
skákgyðjunni Caissa vel í geð þegar
skákmót eru haldin sem einkennast
af virðingu, hlýju og léttleika.
Helgi Áss Grétarsson
daggi@internet.is