Morgunblaðið - 26.11.2005, Qupperneq 59
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 2005 59
MINNINGAR
✝ HólmfríðurHanna Magnús-
dóttir fæddist í
Eystra-Stokkseyr-
arseli í Stokkseyrar-
hreppi í Árnessýslu
7. júlí 1933. Hún lést
á Sjúkrahúsi Suður-
lands 19. nóvember
síðastliðinn. For-
eldrar hennar voru
Magnús Gíslason
bóndi frá Arakoti á
Skeiðum, f. 13. júní
1886, d. 27. nóvemer
1937, og María Ara-
dóttir frá Hólakoti í Grímsnesi, f.
9. desember 1895, d. 24. október
1971. Systkini Hólmfríðar eru:
Þóra, f. 7. nóvember 1920, giftist
Þorvarði Þórðarsyni, d. 1998;
Hinrik, f. 6. maí 1922, d. 5. mars
1997, verkamaður, ókvæntur;
Hjörtur, f. 4. mars 1924, d. 2. des-
ember 1992, verkamaður,
ókvæntur; Eggert, f. 31. mars
1925, bifvélavirki á Selfossi,
ókvæntur; Eyþór Gísli, f. 26. nóv-
ember 1926, kvæntur Fanneyju
Guðmundsdóttur, þau eiga einn
son, Magnús Ástmar; Sigurþór, f.
28. júlí 1928, kvæntur Svanlaugu
Þorgeirsdóttur, bú-
sett í Reykjavík,
fósturdætur Svava
og Sunna; Jón Ingi,
f. 6. apríl 1931, d.
28. október árið
2000, bifvélavirki á
Selfossi, ókvæntur;
og Arnheiður, f. 28.
maí 1935, ekkja, bú-
sett í Hveragerði,
hún á tvær dætur,
Björgu og Ragn-
heiði.
Eftirlifandi eigin-
maður Hólmfríðar
er Hallgrímur S. Guðmannsson, f.
7. júlí 1939. Börn þeirra eru: 1)
Guðmann, f. 11.1. 1971. 2) María,
f. 11.1. 1971, börn hennar eru Jó-
hanna, Ásta Björg og Rakel Fríða.
3) Þóra S., f. 15.1. 1972, gift Björg-
vin S. Guðmundssyni, dóttir
þeirra eru Sara Rut. 4) Hanna, f.
28. maí 1974, gift Víði Davíðssyni,
börn þeirra eru Hólmfríður
Linda, Ísak Aron og Ester Eva. 5)
Magnús Aron, f. 23. mars 1976,
kvæntur Völu Flosadóttur.
Útför Hólmfríðar Hönnu verð-
ur frá Selfosskirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 11.
Þegar við hugsum um móður okk-
ar kemur í hugann bæði umhyggju-
söm, kærleiksrík og sterk kona. Hún
reyndist okkur einstaklega góð móð-
ir og var alltaf til staðar. Hún hélt
alltaf sínu jafnaðargeði á hverju sem
gekk og bros hennar breiddi yfir alla
okkar bresti. Hún var stoð okkar og
styrkur eins og hún var jafnframt
föður okkar.
Mamma eignaðist okkur systkinin
fimm á fimm árum. Fyrst tvíburana
þegar hún var 36 ára og yngsta
barnið 42 ára. Mamma var heima-
vinnandi fyrstu æviár okkar og hef-
ur haft í nógu að snúast fyrstu árin
og nýtti hún þá tímann vel. Iðulega
þegar ungarnir hennar fimm komu
sársvangir úr skólanum voru nýbak-
aðar pönnukökur eða lummur á
borðum. Hún hjálpaði okkur við
heimanámið og saumaði á okkur föt.
Þegar við urðum aðeins eldri fór
hún að starfa við hjúkrun á nýjan
leik. Móðir okkar unni hjúkrunar-
starfi sínu og líknaði mörgum með
alúð sinni og bænum. Hún vissi hvað
það var að eiga bágt því sjálf hafði
hún misst föður sinn barnung og
horft á móður og systkin kljást við
erfið veikindi. Hún barðist síðan
sjálf hetjulega við sjúkdóm og hafði
gjarnan betur þar til Drottinn kall-
aði hana heim í dýrð sína.
Við viljum öll feta í fótspor móður
okkar. Hún var okkur fyrirmynd,
kærleikur hennar, stuðningur og
trúmennska.
Elsku mamma. þín er sárt saknað,
enginn kemur í staðinn fyrir þig.
Minning þín mun alltaf lifa í hjörtum
okkar þar til við sameinumst á ný á
himnum.
Þín elskandi börn,
Guðmann, María, Þóra,
Hanna og Magnús.
Það var þægilegt og gott að ganga
inn í fjölskyldu konu minnar. Þáttur
Hólmfríðar, tengdamóður minnar,
var ekki minnstur í þeim efnum.
Ávallt tók hún á móti mér með brosi
og útréttum faðmi. Eftir því sem ég
kynntist Hólmfríði meir komu hinir
góðu eiginleikar hennar enn frekar í
ljós.
Ég minnist þess að hún hafði ein-
stakt jafnaðargeð, aldrei kom það
fyrir að ég sæi hana æsta eða reiða.
Hugprýði hennar og kurteisi við
aðra eru okkur sem minnumst henn-
ar vegvísir og varða. Eins var það
með bros hennar, það lifir áfram í
minningunni og er eins og meitlað í
börn hennar. Sem eiginkona var
Hólmfríður manni sínum einstök
stoð og stytta í öllum málum.
Ég vissi að ég átti góðan bakhjarl
í Hólmfríði þar sem hún var trúföst
bænakona. Ég man að eitt sinn kom
ég úr nokkuð erfiðu verkefni en
hafði gengið einstaklega vel að leysa
það. Stuttu síðar hitti ég Hólmfríði
og kom þá í ljós að hún hafði einmitt
verið að minnast mín í bænum sínum
á sama tíma og ég fékkst við verk-
efnið. Ég veit að þetta var ekki ein-
stakt tilfelli gagnvart þeim sem
Hólmfríður þekkti. Þó svo að Hólm-
fríður sé dáin lifa bænir hennar
áfram.
Ég er þakklátur fyrir að hafa
eignast Hólmfríði sem tengdamóður
og vin og bið góðan Guð að blessa
fjölskylduna alla og sérstaklega
Hallgrím, eftirlifandi eiginmann
hennar.
Hólmfríður var hógvær kona og
voru það verkin sem hún lét tala. Að
trúa á hið góða, fagra og fullkomna
er lítils virði ef því er ekki lifað.
Hólmfríður lifði því, lifði í trú á Jesú
Krist. Sum verk eru þannig að þau
hafa eilíft gildi, þannig voru verk
Hólmfríðar Hönnu.
Björgvin Smári
Guðmundsson.
Svo er endar ógn og stríðin,
upp mun renna sigurtíðin
oss þá kallar heim til hallar
himna Guð, er lúður gjallar.
Nú hafa orðið fagnaðarfundir á
himnum. Ég sé Hólmfríði fyrir mér,
hlaupa fríska og alheilbrigða í faðm
Jesú. Hann leiðir hana inn í him-
ininn, inn í dýrðina sem þeim hefur
verið lofað sem elska hann af hjarta
og sannleika og það veit ég að Hólm-
fríður gerði. Ég var tíður gestur á
heimili Hómfríðar og Hallgríms á
Austurveginum þar sem dætur
þeirra eru vinkonur mínar. Ég kom
oft þar við á leið minni í og úr tónlist-
arskólanum og alltaf var jafn vel
tekið á móti mér með heimabökuðu
bakkelsi og einstakri hlýju – Hólm-
fríður, þessi myndarlega kona, bros-
andi út að eyrum og Hallgrímur með
klapp á kollinn minn. Ég átti líka
alltaf sætið mitt við endann á eld-
húsborðinu og man sérstaklega eftir
því þegar ég varð tvítug, þá beið mín
lítill pakki og kort, eins og ég væri
eitt af börnunum á heimilinu.
Ég vil þakka Guði fyrir að hafa
leyft mér að kynnast Hólmfríði og
bið fyrir elsku vinum mínum, fjöl-
skyldunni hennar sem nú syrgir
dugmikla og yndislega konu.
Sjálfur Guð á Síons fjöllum
sól og skjöldur reynist öllum
barnaskaráí bölı́og hörmum,
ber hann þau á föðurörmum.
(Þýð. Friðrik Friðriksson.)
Megi algóður Guð styrkja ykkur í
sorginni.
Ykkar
Kolbrún.
HÓLMFRÍÐUR
HANNA
MAGNÚSDÓTTIR
Steinsmiðjan MOSAIK
Hamarshöfða 4 • 110 Reykjavík • sími 587 1960 • www.mosaik.is
MIKIÐ ÚRVAL AF LEGSTEINUM
OG FYLGIHLUTUM
Sendum myndalista
Alúðarþakkir til allra þeirra sem sýndu okkur hlý-
hug og vináttu við andlát og útför eiginmanns
míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa,
EINARS JÓHANNESSONAR
bónda,
Jarðlangsstöðum
í Borgarbyggð.
Sérstakar þakkir eru færðar starfsfólki Dvalarheim-
ilis aldraðra Borgarnesi og lyflækningadeildar Sjúkrahúss Akraness.
Sigríður Bárðardóttir,
börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
Móðurbróðir okkar,
MAGNÚS EGGERT PÁLSSON,
Ásvallagötu 17,
lést á Landspítalanum í Fossvogi miðvikudaginn 23. nóvember.
Þrúður Pálsdóttir,
Gerður Berndsen,
Margrét Berndsen,
Sólveig Berndsen,
Jóhanna Sigríður Berndsen.
Innilegar þakkir færum við öllum þeim, sem sýndu
okkur samúð, vinarhug og hlýju við andlát og útför
elskulegs eiginmanns míns, sonar, föður, tengda-
föður, afa og langafa,
SVERRIS STEINDÓRSSONAR,
Grundartjörn 14,
Selfossi.
Sérstakar þakkir færum við hjúkrunarfólki Heil-
brigðisstofnunar Suðurlands fyrir góða umönnun, stuðning og hlýju.
Sigríður Þóra Yngvadóttir,
Guðbjörg Pálsdóttir,
Guðbjörg Dóra Sverrisdóttir, Magnús Bergsson,
Steindór Sverrisson, Hjördís Ásgeirsdóttir,
Ríkharður Sverrisson, Valgerður Hansdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Eiginmaður minn,
ÓSKAR GEIRSSON
frá Hallanda,
Miðengi 12,
Selfossi,
lést á heimili sínu miðvikudaginn 23. nóvember.
Jarðarförin auglýst síðar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Sigríður Ólafsdóttir.
Faðir minn, tengdafaðir og afi,
ÁSGEIR JÓNSSON
framkvæmdastjóri,
Hólavallagötu 3,
lést á Landspítalanum við Hringbraut mánudag-
inn 14. nóvember.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey.
Sérstakar þakkir til starfsfólks deildar 13D á Land-
spítalanum.
Jón Ásgeirsson, Þorbjörg Skjaldberg,
Ásgeir Jónsson yngri.
Hjartkær móðir okkar,
GUÐRÚN ARADÓTTIR,
Aragötu 5,
og síðustu ár Skjóli,
er látin.
Ari H. Ólafsson,
Björn G. Ólafsson,
Jónas Ólafsson.
Útfararþjónustan ehf.
Stofnað 1990
Þegar andlát ber að
Síðastliðin 15 ár höfum við feðgar
aðstoðað við undirbúning útfara.
Alhliða útfararþjónusta
Símar: 567 9110,
893 8638 og 897 3020
Rúnar
Geirmundsson
Sigurður
Rúnarsson
Elís
Rúnarsson