Morgunblaðið - 26.11.2005, Page 62
62 LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
KIRKJUSTARF
Kirkjudagur og
aðventukvöld
Bústaðakirkju
FYRSTI sunnudagur í aðventu er
kirkju og vígsludagur Bústaða-
kirkju. Dagsins er minnst í helgi-
haldi kirkjunnar.
Barna- og fjölskylduguðsþjón-
usta er kl. 11. Sú nýbreytni er í ár
að við sameinum hina almennu
guðsþjónustu safnaðarins barna-
guðsþjónustunni kl. 11 Þar munu
félagar úr Kór kirkjunnar syngja
og organisti er Guðmundur Sig-
urðsson. Tendrað verður á fyrsta
aðventukertinu og barnasöngvar
sungnir. Fermingarbörn og for-
eldrar þeirra eru hvött til þátttöku
í guðsþjónustunni. Að lokinni guðs-
þjónustu er boðið upp á vöfflukaffi
og það eru karlar í sóknarnefnd
sem sjá um framkvæmd þess.
Aðventukvöldið verður að venju
kl. 20. Það er mikilvægur liður í
jólaundirbúningi margra og hefur
fyrir löngu fest sig í sessi sem einn
fjölsóttasti viðburður kirkjuársins.
Allir kórar kirkjunnar og okkar
nýja bjöllu- og bongósveit koma
fram. Kór Bústaðakirkju flytur
Magnificat (Lofsöngur Maríu úr
Lúkasarguðspjalli eftir Dietrich
Buxtehude (1637-1707) ásamt
kammersveit undir stjórn Guð-
mundar Sigurðssonar, organista
kirkjunnar Þá munu barna- og ung-
lingakórar ásamt bjöllusveit flytja
fjölbreytta og skemmtilega dag-
skrá aðventu- og jólalaga við undir-
leik Guitar Islancio. Stjórnandi er
Jóhanna V. Þórhallsdóttir. Einnig
munu allir kórarnir syngja saman
að ógleymdum almennum söng
safnaðarins. Ræðumaður kvöldsins
er Sigríður Snævarr, sendiherra
Í lok athafnarinnar verða ljósin
tendruð
Aðventukvöld
í Glerárkirkju
FYRSTA sunnudag í aðventu 27.
nóvember kl: 20.30. Sigríður Stef-
ánsdóttir, deildarstjóri markaðs-
og kynningarmála hjá Akureyr-
arbæ, flytur aðventuhugleiðingu.
Barnakór ásamt með unglingakór
Glerárkirkju syngur undir stjórn
Ástu Magnúsdóttur. Organisti er
Hjörtur Steinbergsson. Prestarnir
sr. Gunnlaugur og sr. Arnaldur
ásamt Pétri Björgvin djákna leiða
bænagjörð. Jólasaga, ljóð og lestr-
ar ásamt ljósaathöfn að venju. Fjöl-
mennum í góða kvöldstund í Gler-
árkirkju.
Aðventumessa hjá
Hrafnistu í Reykjavík
AÐVENTUMESSA verður haldin á
sunnudag kl. 15.30 í samkomusaln-
um Helgafelli á 4. hæð.
Organisti Kári Þormar en kór
Hrafnistu og kórfélagar úr kirkju-
kór Áskirkju munu syngja. Einnig
koma fram nemendur við Tónlist-
arskólann í Reykjavík, þau María
Konráðsdóttir, Ívar Baldvin Júl-
íusson, Ólöf Ásta Jósteinsdóttir og
Víðir Petersen. Prestur sr. Svan-
hildur Blöndal.
Heimilisfólk, starfsfólk og að-
standendur eru sérstaklega boðnir
velkomnir.
Aðventusamvera
í Seljakirkju
AÐVENTUSAMVERA verður í
Seljakirkju sunnudagskvöldið kl.
20. Jón Ómar Gunnarsson les að-
ventusögu. Ólafur Jóhann Borg-
þórsson flytur hugleiðingu. Kirkju-
kór Seljakirkju og kór
kvenfélagsins Seljur syngja. Að-
ventuljós tendruð. Verið velkomin.
Grafarvogskirkja
fyrsta sunnudag
í aðventu
HELGILEIKUR fluttur í tónum og
tali. Sameiginleg barna- og fjöl-
skylduguðsþjónusta kl. 11 í Graf-
arvogskirkju. Prestur séra Anna
Sigríður Pálsdóttir. Helgileikur í
flutningi Barna- og Krakkakór
Grafarvogskirkju. Stjórnandi er
Oddný J. Þorsteinsdóttir og undir-
leikari er Gróa Hreinsdóttir. Rútu-
ferð verður frá Borgarholtsskóla
kl. 10:30.
Aðventuhátíð
í Grafarvogskirkju
AÐVENTUHÁTÍÐ kl. 20. Guð-
laugur Þór Þórðarson alþing-
ismaður flytur hugleiðingu. Þór-
arinn Eldjárn les upp úr ljóðabók
sinni. Kór Grafarvogskirkju og
Unglingakór Grafarvogskirkju
syngja. Stjórnendur kóra: Hörður
Bragason organisti og Oddný J.
Þorsteinsdóttir. Undirleikari er
Gróa Hreinsdóttir. Fermingarbörn
flytja helgileik. Einsöngur: Ragn-
heiður Gröndal og Arnþrúður Ösp
Karlsdóttir. Prestar safnaðarins
flytja bænarorð.
Grafarvogskirkja.
Aðventukvöld
Fella- og Hólakirkju
AÐVENTUKVÖLD verður í Fella-
og Hólakirkju sunnudag kl. 20.
Barna-og unglingakór Fella- og
Hóla syngur undir stjórn Þórdísar
Þórhallsdóttur og Lenku Matéóvu.
Helgileikur í umsjá æskulýðsstarfs
kirkjunnar. Örn Árnason leikari
flytur hugvekju. Mikill almennur
söngur og boðið er upp á kaffi, djús
og smákökur. Allir velkomnir.
Kolaportsmessa
HELGIHALD þarfnast ekki hús-
næðis heldur lifandi fólks. Kirkja
Jesú Krists er ekki steypa, heldur
lifandi steinar, manneskjur af holdi
og blóði. Þess vegna er hægt að
fara út úr kirkjubyggingum með
helgihald og fagnaðarerindið og
mæta fólki í dagsins önn. Í tilefni af
því bjóðum við til guðsþjónustu í
Kolaportinu næsta sunnudag sem
er fyrsti sunnudagur í aðventu kl.
14.
Bjarni Karlsson prestur í Laug-
arneskirkju flytur hugleiðingu og
þjónar ásamt prestunum Irmu
Sjöfn Óskarsdóttur og Jónu Hrönn
Bolladóttur
Tónlistarmaðurinn Þorvaldur
Halldórsson mun leiða lofgjörðina,
en hann mætir kl. 13:30 til að
gleðja fólk með söng og spjalli. Þá
er hægt að leggja inn fyrirbæn-
arefni til þeirra sem þjóna í guðs-
þjónustunni áður en stundin hefst,
en í lok stundarinnar verður bless-
un með olíu.
Guðsþjónustan fer fram í kaffi-
stofunni Kaffiport í Kolaportinu,
þar er hægt að kaupa sér kaffi og
dýrindis meðlæti og eiga gott sam-
félag við Guð og menn. Það eru all-
ir velkomnir.
Miðborgarstarf KFUM/KFUK og
þjóðkirkjunnar.
Á leiðinni heim –
helgistundir í
Grafarvogskirkju
ALLA virka daga aðventunnar
verður boðið upp á sérstakar helgi-
stundir í Grafarvogskirkju. Þær
kallast: Á leiðinni heim. Hugsunin
að baki þessari nafngift er sú, að
fólk geti komið við í Grafarvogs-
kirkju kl. 18, á leiðinni heim til sín,
að loknum vinnudegi. Þessar stund-
ir gefa fólki tækifæri til að eiga
friðar- og kyrrðarstund í erli að-
ventunnar.
Um er að ræða 20 skipti. Fyrsta
helgistundin hefst mánudaginn 28.
nóvember nk. og sú síðasta á Þor-
láksmessu. Hver helgistund sam-
anstendur af ritningarlestri, hug-
leiðingu, víxllestri og bæn.
Ensk messa
í Hallgrímskirkju
Á sunnudag, 27. nóvember nk. kl.
14 verður haldin ensk messa í Hall-
grímskirkju. Prestar verða sr.
Bjarni Þór Bjarnason og sr. Jón
Hagbarður Knútssson. Organisti
verður Lára Bryndís Eggerts-
dóttir. Jónína Guðrún Krist-
insdóttir mun leiða almennan safn-
aðarsöng. Fjórða árið í röð er boðið
upp á enska messu í Hallgríms-
kirkju síðasta sunnudag hvers mán-
aðar. Messukaffi.
Service in English
SERVICE in English at the Church
of Hallgrímur (Hallgrímskirkja)
27h of November, at 2 pm. Holy
Communion. The First Sunday of
Advent. Priests: The Revd Bjarni
Þór Bjarnason and The Revd Jón
Hagbarður Knútsson. Organist:
Lára Bryndís Eggertsdóttir. Lead-
ing singer: Jónína Guðrún Krist-
insdóttir. Refreshments after the
Service.
Aðventuhátíð
fjölskyldunnar
í Hjallakirkju
FYRSTA sunnudag í aðventu, 27.
nóvember, verður aðventuhátíð
fjölskyldunnar í Hjallakirkju,
Kópavogi, kl. 17. Um er að ræða
skemmtilega stund fyrir alla fjöl-
skylduna með léttri jóladagskrá,
söngvum og sögum. Barnakór úr
Hjallaskóla kemur í heimsókn og
syngur undir stjórn Guðrúnar
Magnúsdóttur. Þá mun Björgvin
Frans Gíslason, leikari, sýna brúðu-
leikritið Pönnukakan hennar
Grýlu. Leikritið segir frá hugvit-
samri pönnuköku sem nær að flýja
steikarpönnu Grýlu með það fyrir
augum að ferðast alla leið í arma
Jesú litla og foreldra hans sem
dvelja svöng og köld í fjárhúsi í
Betlehem. Auk þessa munum við öll
syngja saman jólasöngva og njóta
stundarinnar í kirkjunni. Þau sem
vilja geta mætt fyrr, svona upp úr
kl. 16, og fengið sér kakó og pip-
arkökur í safnaðarsal áður en há-
tíðin hefst.
Við hvetjum fjölskyldur til að
fjölmenna á aðventuhátíðina þenn-
an fyrsta sunnudag aðventunnar.
Um morguninn, kl. 11, verður fjöl-
skyldu- og tónlistarguðsþjónusta í
kirkjunni og barnaguðsþjónusta kl.
13.
Geir Jón talar
í Grensáskirkju
GEIR Jón Þórisson, yfirlög-
regluþjónn í Reykjavík, flytur hug-
vekju á aðventukvöldi í Grens-
áskirkju annað kvöld,
sunnudagskvöldið 27. nóv.
Á aðventukvöldinu syngur
Kirkjukór Grensáskirku undir
stjórn Árna Arinbjarnarsonar org-
anista og nemendur í Tónskóla
Björgvins Þ. Valdimarssonar leika
á hljóðfæri.
Aðventukvöldið hefst kl. 20 og
dagskráin tekur tæpa klukkustund
en að henni lokinni er á boðstólum
kaffi og smákökur.
Á sunnudagsmorgun er að venju
guðsþjónusta kl. 11 og barnastarf á
sama tíma.
Aðventukvöld
í Dómkirkjunni
AÐVENTUKVÖLD Dómkirkj-
unnar verður að venju á 1. sunnu-
degi í aðventu. Ræðumaður kvölds-
ins er Jón Sigurðsson, seðlabanka-
stjóri. Dómkórinn flytur aðventu-
og jólatónlist undir stjórn Marteins
H. Friðrikssonar. Barna- og ung-
lingakór kirkjunnar syngur einnig
lög tengd aðventu og jólum. Stjórn-
andi er Kristín Valsdóttir.
Prestar Dómkirkjunnar, sr. Karl
V. Matthíasson og sr. Hjálmar Jóns-
son flytja ritningarorð og bæn.
Aðventukvöld
Ástjarnarsóknar
AÐVENTUKVÖLD verður í sam-
komusal Hauka að Ásvöllum sunnu-
dagskvöld kl. 20. Gestur kvöldsins
og ræðumaður er Jón Jósep Snæ-
björnsson (Jónsi í Svörtum fötum).
Kór Ástjarnarsóknar undir stjórn
Aðalheiðar Þorsteinsdóttur leiða
samsöng. Heitt súkkulaði og pip-
arkökur á eftir.
Ástjarnarsókn stendur fyrir fjöl-
breyttu barna- og æskulýðsstarfi á
virkum dögum og árið um kring.
Við minnum sérstaklega á barna-
starf kirkjunnar á sunnudögum kl.
11 í samkomusal Hauka, síðasta
samvera fyrir jól verður 18. desem-
ber, byrjað aftur 8. janúar.
Samverur fyrir 6–9 ára tengdar
heilsudagskólunum í Áslandsskóla
og Hraunvallaskóla.
TTT (Töff, töfrandi, taktfast)
fyrir 10–12 ára á þriðjudögum kl.
17–18 í Áslandsskóla.
Guðsþjónustur eru að jafnaði
þriðja sunnudag hvers mánaðar kl.
20 í samkomusal Hauka.
Aðventukvöld
í Ísafjarðarkirkju
SUNNUDAGSKVÖLDIÐ 27. nóv-
ember nk., verður aðventukvöld í
Ísafjarðarkirkju kl. 20 þar sem
fram koma kirkjukór Ísafjarð-
arkirkju, Sunnukórinn, Karlakór-
inn Ernir og Kammerkórinn. Þá
mun Lúðrasveit Ísafjarðar koma
fram sem og nemendur Tónlistar-
skóla Ísafjarðar og Guðrún Jóns-
dóttir syngur einsöng.
Dagskráin er afar viðamikil og
fjölbreytt og ósvikin leið til þess að
koma fólki í sannkallað aðventu- og
hátíðarskap. Ólafur Skúlason bisk-
up flytur aðventuhugvekju á sam-
komunni.
Aðventusamkoma
í Prestsbakkakirkju
á Síðu
AÐVENTUSAMKOMA verður í
Prestsbakkakirkju, kl. 14, á fyrsta
sunnudegi í aðventu, 27. nóvember
2005. Fjölbreytt efnisskrá við allra
hæfi. Söngur og tónlist í umsjón
kórfólks, organista, hljóðfæraleik-
ara og tónlistarnema.
Upplestur og bæn sem Haraldur
M. Kristjánsson flytur og annast.
Hittumst í kirkjunni og hefjum
jólaföstuna saman þar. Fjölmennið
og bjóðið gestum ykkar með.
Aðventuhátíð
í Breiðholtskirkju
HIN árlega aðventuhátíð Breið-
holtssafnaðar verður haldin í
Breiðholtskirkju í Mjódd nk. sunnu-
dag, fyrsta sunnudag í aðventu, kl.
20. Að venju verður fjölbreytt dag-
skrá sem miðuð er við alla fjöl-
skylduna:
Börn tendra ljós á fyrsta kertinu
á aðventukransinum. Kór Breið-
holtskirkju og Eldri barnakór
Breiðholtskirkju flytja aðventu- og
jólasöngva undir stjórn organist-
ans, Keith Reed og Ástu B. Schram.
Börn úr tíu til tólf ára starfi kirkj-
unnar færa kirkjunni fjárhúsið í
Betlehem. Fermingarbörn sjá um
upplestur og helgileik, og Sigþór
Magnússon, skólastjóri Breiðholts-
skóla, flytur aðventuhugleiðingu.
Samkomunni lýkur með helgistund
Morgunblaðið/ÁsdísBústaðakirkja