Morgunblaðið - 26.11.2005, Blaðsíða 64
64 LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MESSUR Á MORGUN
ÁSKIRKJA: Barnastarf kl. 11. Gítarleik-
ari Pétur Þór Benediktsson, organisti
Kári Þormar, prestur sr. Þórhildur Ólafs.
Messa kl. 14, altarisganga. Félagar úr
Kór Áskirkju syngja, einsöngur Rósa Jó-
hannesdóttir, organisti Kári Þormar. Mar-
grét Svavarsdóttir djákni les ritningarorð
og aðstoðar við útdeilingu, prestur sr.
Þórhildur Ólafs. Kaffi eftir messu í efri
safnaðarsal í boði sóknarnefndar. Að-
ventukvöld verður 2. sunnudag í að-
ventu, 4. des., kl. 20. Nánar auglýst síð-
ar.
BÚSTAÐAKIRKJA: Fyrsti sunnudagur í
aðventu er kirkju- og vígsludagur Bú-
staðakirkju og verður þess minnst í
helgihaldi kirkjunnar. Barna- og fjöl-
skylduguðsþjónusta er kl. 11. Sú ný-
breytni verður í ár að sameina hina al-
mennu guðsþjónustu safnaðarins og
barnaguðsþjónusta. Félagar úr Kór kirkj-
unnar syngja. Organisti Guðmundur Sig-
urðsson. Kveikt verður á fyrsta aðventu-
kertinu og barnasöngvar sungnir.
Fermingarbörn og foreldrar þeirra eru
hvött til þátttöku í guðsþjónustunni. Að
lokinni guðsþjónustu er boðið upp á
vöfflukaffi og það eru karlar í sókn-
arnefnd sem sjá um framkvæmd þess.
Aðventukvöld kl. 20. Allir kórar kirkj-
unnar og okkar nýja bjöllu- og bongósveit
koma fram. Kór Bústaðakirkju flytur
Magnificat (Lofsöng Maríu úr Lúk-
asarguðspjalli eftir Dietrich Buxtehude
(1637–1707) ásamt kammersveit undir
stjórn Guðmundar Sigurðssonar, org-
anista kirkjunnar. Barna- og unglingakór-
ar ásamt bjöllusveit flytja fjölbreytta og
skemmtilega dagskrá aðventu- og jóla-
laga við undirleik Guitar Islancio. Stjórn-
andi Jóhanna V. Þórhallsdóttir. Einnig
munu allir kórarnir syngja saman að
ógleymdum almennum söng safnaðar-
ins. Ræðumaður kvöldsins er Sigríður
Snævarr sendiherra. Í lok athafnarinnar
verða ljósin tendruð.
DÓMKIRKJAN: Messa kl. 11. Sr. Hjálm-
ar Jónsson prédikar. Dómkórinn syngur.
Organisti Marteinn H. Friðriksson. Á
kirkjuloftinu fer fram barnastarf meðan á
messu stendur. Að þessu sinni hugum
við að jólaföndri og undirbúningi jólanna.
Aðventukvöld kl. 20. Ræðumaður Jón
Sigurðsson seðlabankastjóri. Barna- og
unglingakór Dómkirkjunnar syngur ásamt
Dómkórnum. Marteinn H. Friðriksson
leikur á orgel. Kirkjunefnd kvenna býður
kirkjugestum í kaffi og smákökur að lok-
inni dagskránni í kirkjunni.
GRENSÁSKIRKJA: Barnastarf kl. 11 í
umsjá Jóhönnu Sesselju Erludóttur
(Lellu) og unglinga úr kirkjustarfinu.
Guðsþjónusta kl. 11. Samskot til Hjálp-
arstarfs kirkjunnar. Kirkjukór Grens-
áskirkju syngur. Organisti Árni Arinbjarn-
arson. Molasopi að lokinni
guðsþjónustu. Aðventukvöld kl. 20. Geir
Jón Þórisson yfirlögregluþjónn í Reykja-
vík flytur hugvekju. Nemendur úr Tón-
skóla Björgvins Þ. Valdimarssonar leika
á hljóðfæri. Kirkjukór Grensáskirkju
syngur undir stjórn Árna Arinbjarnarsonar
organista. Kaffi og smákökur að lokinni
samverustund. Ólafur Jóhannsson.
GRUND dvalar- og hjúkrunarheimili:
Guðsþjónusta sunnudag kl. 14. Gerðu-
bergskórinn leiðir söng með sínu ágæta
tónlistar- og söngfólki. Organisti Kjartan
Ólafsson. Sr. Hreinn Hákonarson.
HALLGRÍMSKIRKJA: Laugard. kl. 17
verður opnuð sýning í forkirkjunni á verk-
um Kristínar Gunnlaugsdóttur og Mar-
grétar Jónsdóttur og kl. 18 verður að-
ventan hringd inn með klukkum
Hallgrímskirkju. Sunnud.: Fræðslumorg-
unn kl. 10. Dr. juris Herdís Þorgeirsdóttir
ræðir um frelsi og ábyrgð fjölmiðla.
Messa og barnastarf kl. 11. Biskup Ís-
lands Karl Sigurbjörnsson prédikar
ásamt prestum og djákna. Mótettukór-
inn syngur undir stjórn Harðar Áskels-
sonar. Drengjakór Reykjavíkur í Hall-
grímskirkju, Barnakór Austurbæjarskóla
og Hallgrímskirkju og Unglingakór Hall-
grímskirkju syngja undir stjórn Friðriks S.
Kristinssonar. Organisti Björn Steinar
Sólbergsson. Ensk messa kl. 14 í umsjá
sr. Bjarna Þórs Bjarnasonar og sr. Jóns
Hagbarðs Knútssonar. Organisti Lára
Bryndís Eggertsdóttir og forsöngvari Jón-
ína Guðrún Kristinsdóttir.
HÁTEIGSKIRKJA: Messa og barnaguðs-
þjónusta kl. 11.00. Organisti Douglas A.
Brotchie. Umsjón með barnaguðsþjón-
ustu: Erla Guðrún Arnmundardóttir, Þóra
Marteinsdóttir og Annika Neumann. Létt-
ar veitingar eftir messu. Sr. Helga Soffía
Konráðsdóttir.
LANDSPÍTALI – HÁSKÓLASJÚKRAHÚS:
Fossvogur: Guðsþjónusta kl. 10.30. Sr.
Sigfinnur Þorleifsson, organisti Helgi
Bragason.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guðbrands
biskups. Hátíðamessa og barnastarf kl.
11. Kveikt á fyrsta aðventukertinu. Grad-
ualekór Langholtskirkju syngur undir
stjórn Jóns Stefánssonar. Prestar sr. Jón
Helgi Þórarinsson og sr. Jón Hagbarður
Knútsson. Barnastarfið hefst í kirkjunni
en síðan fara börnin í safnaðarheimilið
með Rut, Steinunni og Arnóri. Kaffisopi
eftir messuna. Aðventuhátíð kl. 20.
Stund fyrir börn sem fullorðna. Börn úr
Kórskólanum flytja Lúsíuhelgileik. Herdís
Egilsdóttir les eigin sögu. Sr. Halldór
Reynisson flytur hugvekju. Kór Lang-
holtskirkju flytur aðventu- og jólalög.
Kaffi og kleinur eftir stundina.
LAUGARNESKIRKJA: Guðsþjónusta og
sunnudagaskóli kl. 11. Umsjón sunnu-
dagaskóla er í höndum Hildar Eirar
Bolladóttur, Heimis Haraldssonar og Þor-
valdar Þorvaldssonar, en Bjarni Karlsson
prédikar og þjónar fyrir altari ásamt Sig-
urbirni Þorkelssyni og fulltrúum les-
arahóps. Kór Laugarneskirkju syngur.
Gunnar Gunnarsson leikur á orgelið.
Vöfflusala Mömmumorgna í messukaffi.
Guðsþjónusta kl. 13 í sal Sjálfsbjargar á
höfuðborgarsvæðinu í Hátúni 12. Gunn-
ar Gunnarsson leikur undir sálma-
söngnum. Bjarni Karlsson prestur og
Guðrún K. Þórsdóttir djákni þjóna ásamt
hópi sjálfboðaliða. Uppskeruhátíð KMS
kl. 17. Unglingar úr hverfinu hvattir til að
koma, sjá og heyra. Aðventukvöld kl. 20.
Kór Laugarneskirkju syngur undir stjórn
Gunnars Gunnarssonar ásamt bjöllusveit
tónstofu Valgerðar og börnum úr Laug-
arnesskóla og Melaskóla. Þorvaldur Þor-
valdsson syngur einsöng. Fermingarbörn
flytja bænir og Björg Árnadóttir, for-
stöðukona Námsflokka Reykjavíkur, flyt-
ur ræðu kvöldsins.
NESKIRKJA: Messa og barnastarf kl.
11. Barna og unglingakórar Neskirkju
syngja. Stjórnandi Steingrímur Þórhalls-
son. Trompet, Hringur Grétarsson. Duo
Ciocoso, flauta og harpa og kvartett úr
Ungfóníu leika. Félagar úr Kór Neskirkju
leiða safnaðarsöng. Sr. Örn Bárður Jóns-
son prédikar og þjónar fyrir altari auk sr.
Kjartans Jónssonar og sr. Toshiki Toma.
Börnin byrja í kirkjunni en fara síðan í
safnaðarheimilið. Umsjónarfólk eru Guð-
munda, Björg og Ari. Boðið verður upp á
kaffi, kakó og piparkökur í safn-
aðarheimilinu eftir messu. Tónað inn í
aðventu kl. 17. Duo Giocoso. Pamela de
Sensi, þverflautu, og Sophie Marie
Schoojans, hörpu, flytja verk eftir
franska meistara á borð við Ibert og B.
André.
SELTJARNARNESKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 11. Félagar úr Kammerkór Seltjarnar-
neskirkju leiða sálmasöng. Ferming-
arbörn aðstoða við undirbúning mess-
unnar. Þorgeir Arason guðfræðinemi
predikar. Organisti Pavel Manasek. Sr.
Sigurður Grétar Helgason. Sunnudaga-
skólinn á sama tíma. Aðventukvöld kl.
20. Ræðumaður er frú Vigdís Finn-
bogadóttir fyrrverandi forseti Íslands.
Kammerkór kirkjunnar flytur Magnificat
e. Bach ásamt strengjasveit. Stjórnandi
Viera Manasek. Konsertmeistari Zbig-
niew Dubik. Organisti Pavel Manasek.
Barnakórinn syngur jólalög. Jólaljósin
tendruð í lok stundarinnar. Verið hjart-
anlega velkomin. Starfsfólk og sókn-
arnefnd Seltjarnarneskirkju. Æskulýðs-
félagið kl. 20 – Aðventukvöld eða keila.
ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN: Þjóðlagaguðs-
þjónusta kl. 14. Barnastarf á sama
tíma. Maul eftir messu.
FRÍKIRKJAN í Reykjavík:
Fjölskylduguðsþjónusta kl. 14 á fyrsta
sunnudegi í aðventu. Fermingarbörn
munu taka virkan þátt í guðsþjónustunni
á þessum upphafsdegi nýs kirkjuárs
m.a. með því að flytja ritningarlestra og
bænir. Hjörtur Magni Jóhannsson frí-
kirkjuprestur predikar og þjónar fyrir alt-
ari. Tónlistin er í höndum Önnu Sigríðar
Helgadóttur og Carls Möller auk Fríkirkju-
kórsins. Barn verður borið til skírnar.
Andabrauðið verður á sínum stað að lok-
inni stundinni en það er ómissandi þátt-
ur í barnastarfi safnaðarins að börnin
sjái til þess að fuglarnir við Tjörnina fái
sína líkamlegu næringu eftir að þau hafa
sjálf fengið sína andlegu næringu í kirkj-
unni.
ÁRBÆJARKIRKJA: Kirkjudagur Árbæj-
arsafnaðar. Dagurinn hefst í kirkjunni
með sunnudagaskólanum kl. 11. Al-
menn guðsþjónusta er síðan kl. 14. Jó-
hann F. Valdimarsson syngur einsöng.
Fyrir guðsþjónustuna verður harmonikku-
leikur. Eftir athöfnina í kirkjunni verður
farið í safnaðarheimilið þar sem kven-
félagið verður með kaffisölu og líkn-
arfélagið verður með sitt árlega happ-
drætti, en afraksturinn fer í að aðstoða
þá sem minna mega sín í sókninni.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Fjölskyldumessa
kl. 11. Yngri barnakórinn syngur. Kveikt
á fyrsta kertinu á aðventukransinum. Að-
ventusamkoma kl. 20. Sigþór Magn-
ússon, skólastjóri Breiðholtsskóla, flytur
aðventuhugleiðingu. Fjölbreytt dagskrá
úr starfi safnaðarins. Heitt súkkulaði og
smákökur í safnaðarheimilinu eftir sam-
komu þar sem ágóðinn rennur til Hjálp-
arstarfs kirkjunnar.
DIGRANESKIRKJA: Messa kl 11. Prest-
ur sr. Gunnar Sigurjónsson. Organisti
Kjartan Sigurjónsson. Kór Digraneskirkju
A-hópur. Sunnudagaskóli á sama tíma í
kapellu á neðri hæð. Stopp-leikhópurinn
flytur leikþáttinn Kamilla og þjófurinn eft-
ir Kari Vinje. Aðventustund kl. 20 í
umsjá kórs Digraneskirkju sem syngur
jólasöngva og kafla úr stærri verkum eft-
ir Vivaldi og Bach. Stjórnandi Kjartan
Sigurjónsson. Einsöngvari Vilborg Helga-
dóttir. Undirleikari Bjarni Þór Jón-
atansson ásamt flautuleikurum úr Tón-
listarskóla Kópavogs. Ræðumaður
kvöldsins: Anna Þrúður Þorkelsdóttir, fv.
framkvæmdastjóri Rauða kross Íslands.
Ágóði af kaffisölu rennur til Hjálparstarfs
kirkjunnar (www.digraneskirkja.is).
FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 11 í Fella- og Hólakirkju. Prestur sr.
Svavar Stefánsson. Konur úr kvenfélag-
inu Fjallkonurnar tendra fyrsta kertið á
aðventukransinum og lesa ritningarlestr-
ana. Strákastarf kirkjunnar sér um helgi-
leik. Sunnudagaskóli á sama tíma. Boð-
ið er upp á súpu og brauð eftir
messuna. Aðventukvöld kl. 20. Barna-
og unglingakór Fella- og Hóla syngja und-
ir stjórn Lenku Matéóvu og Þórdísar Þór-
hallsdóttur. Örn Árnason leikari hefur
hugvekju. Æskulýðsstarf kirkjunnar verð-
ur með helgileik undir stjórn Sigríðar
Tryggvadóttur. Mikill almennur söngur.
Boðið er upp á kaffi, djús og smákökur.
GRAFARHOLTSSÓKN: Messa kl. 11 í
Þórðarsveig 3. Grafarholtskórinn syngur.
GRAFARVOGSKIRKJA: Sameiginleg
barna- og fjölskylduguðsþjónusta kl. 11 í
Grafarvogskirkju. Prestur séra Anna Sig-
ríður Pálsdóttir. Helgileikur í flutningi
Krakkakórs Grafarvogskirkju. Stjórnandi
Oddný J. Þorsteinsdóttir. Organisti Gróa
Hreinsdóttir. Rútuferð verður frá Borg-
arholtsskóla kl. 10.30. Aðventuhátíð kl.
20. Ræðumaður Guðlaugur Þór Þórð-
arson, formaður Fjölnis. Þórarinn Eldjárn
les upp úr ljóðabók sinni. Kór Graf-
arvogskirkju og Unglingakór Grafarvogs-
kirkju syngja undir stjórn Harðar Braga-
sonar organista og Oddnýjar J.
Þorsteinsdóttur. Fermingarbörn flytja
helgileik. Undirleikari Gróa Hreinsdóttir.
Einsöngur Ragnheiður Gröndal og Arn-
þrúður Ösp Karlsdóttir. Flauta Guðlaug
Ásgeirsdóttir. Prestar safnaðarins flytja
bænarorð.
HJALLAKIRKJA: Fjölskyldu- og tónlistar-
guðsþjónusta kl. 11. Barn borið til skírn-
ar. Sr. Sigfús Kristjánsson þjónar. Fé-
lagar úr Kór kirkjunnar syngja og leiða
safnaðarsöng. Börn úr Tíu til tólf ára
starfinu aðstoða. Organisti Jón Ólafur
Sigurðsson. Barnaguðsþjónusta kl. 13.
Barn borið til skírnar. Aðventuhátíð fjöl-
skyldunnar kl. 17. Kakó og piparkökur í
safnaðarsal fyrir stundina. Barnakór úr
Hjallaskóla syngur. Brúðuleikritið Pönnu-
kakan hennar Grýlu flutt. Jólastund með
söngvum og sögum fyrir alla fjölskyld-
una. Við minnum á bæna- og kyrrð-
arstund á þriðjudag kl. 18 (sjá
www.hjallakirkja.is).
KÓPAVOGSKIRKJA: Helgistund kl. 11
sem sr. Ægir Fr. Sigurgeirsson annast.
Orgelleikur Sigrún Steingrímsdóttir.
Barnastarf í kirkjunni kl. 12.30 í umsjón
Önnu Kristínar, Péturs Þórs og Sigríðar.
Aðventusamvera kl. 17. Fjölbreytt efnis-
skrá. Hertha W. Jónsdóttir flytur aðvent-
uræðu, Linda Brá Hafsteinsdóttir les
jólasögu, kirkjukórinn syngur undir stjórn
Sigrúnar Steingrímsdóttur og Guðrún S.
Birgisdóttir leikur á flautu. Barnakór úr
Kársnesskóla syngur undir stjórn Þór-
unnar Björnsdóttur. Bæna- og kyrrð-
arstund þriðjudag kl. 12.10.
LINDASÓKN í Kópavogi: Guðsþjónusta í
Lindaskóla kl. 11. Kveikt verður á spá-
dómskertinu. María Magnúsdóttir djass-
söngkona flytur aðventu- og jólasálma
við undirleik Ómars Guðjónssonar gít-
arleikara. Hannes Baldursson organisti
leikur undir almennum söng. Sr. Guð-
mundur Karl Brynjarsson þjónar. Boðið
verður upp á kakó og piparkökur að
guðsþjónustu lokinni.
SELJAKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl.
11. Tendrað ljós á spádómskerti. Guðs-
þjónusta kl. 14. Sr. Valgeir Ástráðsson
prédikar. Kór Seljakirkju leiðir söng.
Barnakórinn syngur. Organisti Jón
Bjarnason. Guðsþjónusta í Skógarbæ kl.
16. Sr. Valgeir Ástráðsson prédikar. Kór
Seljakirkju leiðir söng. Barnakórinn syng-
ur. Aðventusamvera kl. 20. Jón Ómar
Gunnarsson les aðventusögu. Ólafur Jó-
hann Borgþórsson flytur hugleiðingu.
Kirkjukór Seljakirkju og Seljur syngja. Að-
ventuljós tendruð. Sjá www.seljakirkja.is.
ÍSLENSKA KRISTSKIRKJAN: Morgunguð-
sþjónusta kl. 11. Hvað er Guð að taka
til síns lýðs? Nýir safnaðarmeðlimir
kynntir. Barnakirkja á sama tíma. Sam-
koma kl. 20 með mikilli lofgjörð og fyr-
irbænum. Edda M. Swan predikar. Þáttur
kirkjunnar, „Um trúna og tilveruna“, er
sýndur á Ómega kl. 14. Samkoma á Eyj-
ólfsstöðum á Héraði kl. 17. Ólafur H.
Knútsson predikar.
BOÐUNARKIRKJAN, Hlíðasmára 9, Kóp:
Samkomur alla laugardaga kl. 11.
Bænastund alla miðvikudaga kl. 20.
Biblíufræðsla allan sólarhringinn í Út-
varpi Boðun fm 105,5. Allir velkomnir.
FÆREYSKA SJÓMANNAHEIMILIÐ: Sam-
koma sunnudag kl. 20.30. Kaffi á eftir.
Allir velkomnir.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Bænastund kl.
19.30. Samkoma kl. 20. Umsjón Anne
Marie Reinholdtsen. Heimilasamband
mánudag kl. 15. Allar konur velkomnar.
FRÍKIRKJAN KEFAS, Fagraþingi 2a: Fjöl-
skyldusamkoma kl. 14. Kaffi og sam-
félag eftir samkomu. Allir velkomnir.
KFUM og KFUK við Holtaveg: Samkoma
kl. 17. Fyrsti sunnudagur í aðventu. Börn
úr leikskóla KFUM og KFUK syngja.
Ræðumaður: Ragnheiður Sverrisdóttir.
Kveikt á 1. kerti í aðventukransinum.
Matur á góðu verði eftir samkomu. Allir
velkomnir.
FÍLADELFÍA: Almenn samkoma kl.
16.30. Ræðum. Snorri Óskarsson. Á
samkomunni er skírn. Gospelkór Fíladel-
fíu leiðir lofgjörð. Fyrirbænir í lok sam-
komu. Allir eru hjartanlega velkomnir.
Barnakirkja á meðan samkomu stendur,
öll börn frá 1-12 ára velkomin. Hægt er
að hlusta á beina útsendingu á Lindinni
fm 102.9 eða horfa á www.gospel.is. Á
Omega er sýnd samkoma frá Fíladelfíu
kl. 20. www.gospel.is.
KROSSINN: Almenn samkoma að Hlíða-
smára 5 kl. 16.30.
BETANÍA, Lynghálsi 3: Samkoma kl. 11
sunnudaga. Einnig samkomur kl. 19.30
á föstudögum.
KIRKJA JESÚ KRISTS hinna síðari daga
heilögu, Mormónar, Ásabraut 2, Garða-
bæ: Guðsþjónusta sunnudag kl. 9 ár-
degis á ensku og kl. 12 á hádegi á ís-
lensku.
KAÞÓLSKA KIRKJAN:
Reykjavík, Kristskirkja í Landakoti,
dómkirkja og basilíka: Sunnudaga:
Messa kl. 10.30. Messa á ensku kl.
18.00. Alla virka daga: Messa kl.
18.00. Tilbeiðslustund er haldin í Krists-
kirkju á hverju fimmtudagskvöldi að
messu lokinni, þ.e. frá kl. 18.30 til
19.15. Trúfræðsla barnanna fer fram á
laugardögum kl. 13.00 í Landakots-
skóla. Barnamessan er kl. 14.00 í
Kristskirkju. Reykjavík, Maríukirkja við
Raufarsel: Sunnudaga: Messa kl.
11.00. Laugardaga: Messa á ensku kl.
18.30. Virka daga: Messa kl. 18.30. Til-
beiðslustund á mánudögum frá kl.
19.00 til 20.00. Riftún í Ölfusi: Sunnu-
daga: Messa kl. 16.00. Miðvikudaga kl.
20.00. Hafnarfjörður, Jósefskirkja:
Sunnudaga: Messa kl. 10.30. Alla virka
daga: Messa kl. 18.30. Tilbeiðslustund
á hverjum degi kl. 17.15. Karmel-
klaustur: Sunnudaga: Messa kl. 08.30.
Virka daga: Messa kl. 8.00. Keflavík,
Barbörukapella: Skólavegi 38: Sunnu-
daga: Messa kl. 14.00. Stykkishólmur,
Austurgötu 7: Alla virka daga: Messa kl.
18.30. Sunnudaga: Messa kl. 10.00.
Ísafjörður: Sunnudaga: Messa kl.
11.00. Flateyri: Laugardaga: Messa kl.
18.00. Bolungarvík: Sunnudaga kl.
16.00. Suðureyri: Sunnudaga: Messa
kl. 19.00. Akureyri, Kaþólska kirkjan:
Péturskirkja, Hrafnagilsstræti 2: Laug-
ardaga: Messa kl. 18.00. Sunnudaga:
Messa kl. 11.00. Tilbeiðslustund á
hverjum föstudegi kl. 17.00 og messa
kl. 18.00.
BRAUTARHOLTSKIRKJA á Kjalarnesi:
Barnaguðsþjónusta sunnudag kl. 11 f.h.
Gunnar Kristjánsson, sóknarprestur.
LÁGAFELLSSÓKN: Messa sunnudag í
Mosfellskirkju kl. 11. Kór Lágafellskirkju
syngur. Organisti Jónas Þórir. Prestur sr.
Ragnheiður Jónsdóttir. Barnastarf í
Lágafellskirkju kl. 13. Prestarnir.
HAFNARFJARÐARKIRKJA: Messa kl.
11. Aðventu fagnað. Mikil og fjölbreytt
tónlist. Antonía Hevesi leikur á orgel.
Kirkjukórinn flytur auk sálma valin kór-
verk. Unglingakórinn syngur undir stjórn
Helgu Loftsdóttur við undirleik Önnu
Magnúsdóttur. Sigtryggur Óskar Hrafn-
kelsson, nemandi í píanóleik við Tónlist-
arskóla Hafnarfjarðar, leikur As-dúr imp-
romtu eftir Fr. Schubert. Prestur sr.
Gunnþór Þ. Ingason. Lesari Gunnlaugur
Sveinsson. Kirkjuþjónn Jóhanna Björns-
dóttir. Sunnudagaskólar í Strandbergi og
Hvaleyrarskóla á sama tíma.
VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði: Barna-
guðsþjónusta kl. 11. Morgunverður í
safnaðarheimilinu á eftir. Aðventukvöld
kl. 20. Fjölbreytt dagskrá. Fram koma:
Kór Víðistaðasóknar, Barnakór Víði-
staðakirkju, Unglingakór Víðistaðakirkju,
Sigurður Skagfjörð einsöngvari, Matthías
Stefánsson fiðluleikari og fl. Ræðumað-
ur: Pétur Georg Markan guðfræðinemi.
Kaffisala Systrafélagsins í safn-
aðarheimilinu eftir dagskrá.
FRÍKIRKJAN í Hafnarfirði: Barna-
samkoma kl. 11. Góð stund fyrir alla
fjölskylduna. Aðventustund kl. 13. Ritn-
ingartextar aðventu og jóla lesnir og hug-
leiddir og aðventu- og jólalögin sungin.
Fermingarbörn og foreldrar taka þátt.
Heitt súkkulaði í safnaðarheimilinu að
lokinni góðri stund í kirkjunni. Æðruleys-
ismessa kl. 20. Fríkirkjubandið leiðir
sönginn.
ÁSTJARNARSÓKN í samkomusal Hauka,
Ásvöllum: Barnastarf kirkjunnar er á
sunnudögum kl. 11. Léttar veitingar eftir
helgihaldið. Aðventukvöld Ástjarn-
arsóknar í samkomusal Hauka sunnu-
dagskvöldið 27. nóvember kl. 20. Kór
sóknarinnar leiðir samsöng undir stjórn
Aðalheiðar Þorsteinsdóttur. Gestur og
ræðumaður kvöldsins er Jón Jósep Snæ-
björnsson, betur þekktur sem „Jónsi í
svörtum fötum“. Heitt súkkulaði og pip-
arkökur eftir helgihaldið.
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Guðspjall dagsins:
Innreið Krists í
Jerúsalem.
1. sunnudagur í aðventu
(Matt. 21).