Morgunblaðið - 26.11.2005, Side 75

Morgunblaðið - 26.11.2005, Side 75
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 2005 75 MENNING STRAVINSKY benti einhverju sinni á að tónlist væri í eðli sínu merkingarlaus. Og það er vissulega rétt, þrátt fyrir að tónlist sé ágætt líkingamál og búi yfir tjáningarmöguleikum sem venjulegt talmál gerir ekki. Hægt er að herma eftir öllu mögu- legu með tónlist og hún getur líka tjáð hið ósegjanlega eins og Victor Hugo benti á er hann sagði að tónlist væri um eitthvað sem ekki væri mögulegt að segja með orðum en væri heldur ekki hægt að þegja yfir. Gallinn við tónlistina (ef hægt er að tala um galla í þessu samhengi) er að merking hennar er háð túlkun áheyrandans; þegar hann heyrir hratt nótnahlaup niður á við getur fálki að steypa sér eftir bráð komið upp í hugann, en líka lending flug- vélar eða maður í fínum fötum að detta ofan í læk. Dillandi flaututónar geta hugsanlega táknað fuglasöng, en einnig ískur í hurð eða hljóðið sem heyrist þegar maður steikir kartöflur á pönnu. Hermitónlist, þ.e. tónlist er segja á tiltekna sögu eða líkja eftir áþreifanlegum aðstæðum, virkar sjaldnast ein og sér; ann- aðhvort þarf að útskýra hana fyr- irfram eða eitthvað þarf að bera fyr- ir augu áheyrandans á meðan hún er leikin, hvort sem það er dans, leikrit, kvikmynd eða annað. Helgidansar eftir breska tón- skáldið Michael Tippett, sem upp- haflega eru atriði í óperunni Jóns- messubrúðkaupið, eru í þessum flokki, en þar er flókinni innvígsluat- höfn lýst með tónum. Dansarnir (án dansara) voru fluttir á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands á fimmtudagskvöldið og hélt stjórn- andinn, Rumon Gamba, langa tölu á undan þar sem hann útskýrði merk- ingu verksins með tóndæmum. Ég er ekki viss um að áheyrendur hafi verið einhverju nær meðan á sjálfum flutningnum stóð; atburðarásin var svo hröð að auðvelt var að tapa þræðinum og eftir stóð tónlist sem var merkilega innihalds- rýr. Annarsheimsleg stemningin sem manni finnst að ætti að ein- kenna helgiathöfn er byggist á keltneskum goðsagnaheimi og sál- fræði Carls Jung var víðsfjarri. Tónlistin sagði ekki neitt; víólu- kafli sem átti að tákna ísilagt fljót gat allt eins vísað til umferð- arhnúts; það var eins og Gamba væri að lesa upp smásögu með bundið fyrir munninn. Vissulega var tónlistin glæsilega leikin, en án dansara spurði maður sjálfan sig til hvers? Sem betur fer var annað á efnis- skránni áhugaverðara. Síðdegi skóg- arpúkans eftir Debussy var fallega draumkennt og maður gat skemmt sér við að ímynda sér klámfengna tilburði púkans í dansuppfærslu Di- aghilevs og Níjinskís árið 1912. Ekki síðri var tónlist Ravels við ballettinn Dafnis og Klói; flutningur hljóm- sveitarinnar var blæbrigðaríkur, spennuþrunginn og fádæma glæsi- legur. Hér stóð tónlistin fyllilega fyrir sínu og þurfti engar útskýr- ingar á borð við þær er lesa mátti í tónleikaskránni. Lífleg túlkun var svo sannfærandi að maður gleymdi sér gersamlega og vissi upp á hár um hvað málið snerist. Þannig eiga tónleikar að vera. Túlkun áheyrandans TÓNLIST Háskólabíó Debussy: Síðdegi skógarpúkans; Tip- pett: Helgidansar; Ravel: Dafnis og Klói. Rumon Gamba stjórnaði; Sinfóníu- hljómsveit Íslands lék. Fimmtudagur 24. nóvember. Sinfóníutónleikar Rumon Gamba Jónas Sen LEIKFÉLAG Hafnarfjarðar frumsýnir í dag leikritið Hin end- anlega hamingja. Höfundur og leikstjóri er Lárus Húnfjörð. Sýn- ingin var unnin og skrifuð á æf- ingatímabilinu. Freysteinn, andlegur leiðtogi Helgidóms hinnar endanlegu ham- ingju, er horfinn á brott. Mun söfnuðurinn jafna sig á þessu áfalli? Tæklar Sigurmar nýja hlut- verkið sem leiðtogi? Heldur El- ínborg, ekkja Freysteins, sönsum? Er Ingunn, kona Sigurmars, sátt við sitt hlutskipti? Eru Herlaugur og Fjóla, dóttir Freysteins, trúlof- uð eða ekki? Kemur tónlistarstjór- inn Hallgerður Ugla til með að halda lagi? Þessum spurningum verður kannski svarað á samkomu í Helgidóminum. Þó getur hugsast að allt öðrum spurningum verði svarað. Leikendur í sýningunni eru 13 talsins. Margir þeirra eru að stíga sín fyrstu skref á fjölunum en aðr- ir hafa mikla reynslu að baki. Hönnun lýsingar er í höndum Kjartans Þórissonar, Kristín Arna Sigurðardóttir hannar leikmynd og Dýrleif Jónsdóttir hefur yf- irumsjón með búningagerð. Þetta er fyrsta verkefni Leik- félags Hafnarfjarðar á þessu leik- ári. Leikritið verður sýnt í húsa- kynnum félagsins í gamla Lækjarskóla í Hafnarfirði. Sýn- ingin hentar ekki fyrir fólk með innilokunarkennd eða trúar- bragðafælni. Hin end- anlega hamingja í Hafnarfirði Magnús Bjarnfreðsson hefurskrifað eins konar viðtals-bók við Jón úr Vör sem byggist að nokkru á dagbókum Jóns. Hann segir í Aðfaraorðum: „Þessi bók um skáldið Jón úr Vör er ekki ævisaga í hefðbundinni merkingu, þar eð lífshlaupi skálds- ins er ekki fylgt skref fyrir skref. Viðtalsbók er líklega réttasta nafn- ið af þeim sem almennt eru notuð um bækur. Hér verður stiklað á ýmsu sem á daga skáldsins dreif og að mestu byggt á frásögn hans, bæði í verkum hans og samtölum við skrásetjara, en einnig er leitað fanga hjá ýmsum, sem um hann hafa skrifað og í dagbókum hans.“ Yfirleitt var skrifað vel um bæk- ur Jóns úr Vör. Þó er ein und- antekning. Í Helgafelli birtist óvenju rætinn dómur um aðra bók hans, Stund milli stríða (1942). Það var beinlínis haft á orði að ritdóm- arinn ætlaði að drepa skáld. Jóni sárnaði þetta eins og lesa má í bók Magnúsar Bjarnfreðssonar og gleymdi því aldrei. Jón tók þetta of nærri sér.    Þorpið var órímað og fékk aðgjalda þess. En sanngjarnir menn sáu að hér var um brautryðj- andaverk að ræða og létu það njóta sannmælis. Það er nú talið einn af hátindunum í ljóðagerð síðustu ald- ar. Svokallaður öreigaskáldskapur hafði náð fótfestu í Svíþjóð. Þangað fór Jón úr Vör ásamt Bryndísi konu sinni og varð fyrir áhrifum af sænskri ljóðagerð. Módernisminn lét hann að mestu ósnortinn og hann var alla tíð trúr stefnu öreigaskáldanna. Ekki var hægt að kalla hann dæmigert at- ómskáld. Það var hinn einfaldi góði hvers- dagsmaður sem Jón orti um, daglegt líf og minningar um erfiða tíma. Hið óræða var honum fjarri og djarfar myndhverfingar. Mér virðist Magnúsi Bjarnfreðs- syni takast einkar vel að lýsa lífinu á Patreksfirði, ætt og uppruna Jóns og skýra með því hvernig bók eins og Þorpið verður til. Þar er mikill fróðleikur um skáldið. Frekar dapurlegum tímum fyrir sunnan lýsir Magnús líka ágætlega. Ungum skáldum var ekki tekið fagnandi og mikið gert úr því að þeir kynnu ekki að yrkja. Fræg- astur er Stúdentafundurinn al- ræmdi. Magnús lýsir honum ít- arlega.    Þorpið var þýtt á sænsku og fékkafburða viðtökur. Þetta var Jóni uppörvun. Það sem olli honum aftur á móti miklum vonbrigðum var að Gott er að lifa varð ekki hlutskörpust þeg- ar hún var lögð fram til Bók- menntaverðlauna Norðurlanda- ráðs. Hann hafði gert sér vonir. Ungur höfundur, Færeyingurinn Rói Patursson, fékk verðlaunin. Á tímabili taldi Jón að sigurinn væri í höfn. Nokkur sárabót var það að Jón hlaut um svipað leyti heiðurslaun Alþingis og hróður hans fór sífellt vaxandi. Frá Stokkhólmsárunum er nokk- uð stuðst við lýsingar Hannesar Sigfússonar á háttum þeirra Steins og Jóns. Jón hallaði sér að öreiga- skáldskapnum sænska og því sem Magnús Ásgeirsson hafði þýtt. Jón segir: „Hins vegar pössuðu þau ljóð, sem menn voru þá að yrkja í Sví- þjóð, einhvern veginn ekki fyrir mig. Mér fundust nýju ljóðin of innihaldslítil, meira leikur að orð- um. Allt sem var franskt, amerískt eða enskt höfðaði til þeirra, en ekki til mín. Það höfðaði til rithöfund- anna og skáldanna, en ég efast um að það hafi höfðað til almennings, bara til menntamanna. Já, mér fannst þetta vera snobb.“    Þegar Jón gekk í Þjóðvarn-arflokkinn hér heima voru ekki allir ánægðir. Allra síst gamlir félagar í Sósíalistaflokknum. Jón fullyrðir að þeir sem harðast hafi lagt til sín hafi verið gamlir komm- únistar, ekki róttækt alþýðufólk. Það var því út í bláinn að kalla Jón kommúnista, hann afneitaði þeirri stefnu. Í einfeldni höfðu menn aftur á móti orðað Þorpsskáldið við komm- únisma. Þótt margt sé kunnuglegt í bók Magnúsar Bjarnfreðssonar er hún góð heimild um feril Jóns úr Vör. Magnúsi tekst m.a. einkar vel að sýna þá fordóma sem mættu braut- ryðjendum í skáldskap. Bókin er 184 síður. Útgefandi er Bókaútgáfan Hólar 2005. Ferill Jóns úr Vör ’Módernisminn léthann að mestu ósnort- inn og hann var alla tíð trúr stefnu öreigaskáld- anna. Ekki var hægt að kalla hann dæmigert atómskáld.‘ AF LISTUM Jóhann Hjálmarsson Jón úr Vör með bók sína Þorpið. johj@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.