Morgunblaðið - 26.11.2005, Síða 76
76 LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
Nýtt starfsár Listvina-félags Hallgrímskirkjuhefst í dag með opnunmyndlistarsýningar
Kristínar Gunnlaugsdóttur mynd-
listarmanns og Margrétar Jóns-
dóttur leirlistakonu í forkirkju
Hallgrímskirkju. Við það tækifæri
verður leikið á klukkuspil Hall-
grímskirkju og aðventan hringd
inn en venja er að starfsár List-
vinafélagsins fylgi kirkjuárinu.
Listvinafélag Hallgrímskirkju
var stofnað 1982 með það markmið
að efla listalíf við Hallgrímskirkju
í Reykjavík. Á 24. starfsári félags-
ins er sem fyrr lögð áhersla á að
undirstrika hátíðir kirkjuársins
með viðamiklum tónlistarflutningi
á aðventu, föstu, páskum, hvíta-
sunnu og Allra sálna messu.
Á starfsárinu verða tvær tónlist-
arhátíðir, Jólatónlistarhátíð í Hall-
grímskirkju 27. nóvember til 11.
desember og Alþjóðlega org-
eltónleikaröðin Sumarkvöld við
orgelið 17. júní til 13. ágúst. Þá
efnir Listvinafélagið til afmæl-
ishátíðar í tengslum við 20 ára
vígsluafmæli Hallgrímskirkju, þar
sem Óratórían Cecilía eftir Áskel
Másson verður frumflutt, málþing
um Hallgrím Pétursson og sam-
tímamenn hans verður haldið og
myndlistarsýning 20 íslenskra list-
málara verður opnuð.
Hádegistónleikaröðinni Klais-
orgelið hljómar, sem hóf göngu
sína fyrir tveimur árum, verður
haldið áfram, en markmiðið er að
opna hljómheim orgelsins enn
frekar fyrir áheyrendum á öllum
aldri. Þá stendur Listvinafélagið
fyrir fjórum myndlistarsýningum á
starfsárinu í forkirkjunni.
Jólatónlistarhátíð
Hallgrímskirkju 2005
Að venju verður boðið upp á
dagskrá í Hallgrímskirkju á að-
ventunni. Í ár verður tónleikahald-
ið með svipuðu sniði og í fyrra
þegar efnt var í fyrsta skipti til
tónlistarhátíðar á jólaföstu í kirkj-
unni. Auk árlegra jólatónleika
Mótettukórsins, sem jafnframt eru
útgáfutónleikar geisladisksins
Jólagjafarinnar með hugljúfum ís-
lenskum jólalögum, verður boðið
upp á orgeltónleika með Birni
Steinari Sólbergssyni, organista
Akureyrarkirkju, sem leikur
franska jólatónlist, og heildarflutn-
ing á Jólaóratóríu Bachs með
Schola cantorum og Alþjóðlegu
barokksveitinni í Den Haag.
Á jólatónleikum sínum 29. nóv-
ember og 3. og 4. desember flytur
Mótettukór Hallgrímskirkju ásamt
Ísak Ríkharðssyni drengjasópran,
Sigurði Flosasyni saxófónleikara
og Birni Steinari Sólbergssyni org-
elleikara hugljúf íslensk jólalög.
Efnisskráin, sem var á síðasta ári
með svipuðum hætti er komin út á
geisladiskinum Jólagjöfin.
Á tónleikum sínum í Hallgríms-
kirkju sunnudaginn 4. desember
kl. 17 mun Björn Steinar Sólbergs-
son leika orgeltónlist frá ýmsum
tímum tengda aðventu og jólum
með áherslu á franska jólatónlist,
m.a. frá barokktíma, en Frakkar
eiga þar drýgri sjóð en aðrar þjóð-
ir. Efnisskráin er fjölbreytt. Meðal
höfunda verkanna má nefna Louis-
Claude Daquin, Claude Balbastre
og Felix Alexandre Guilmant.
Eitt vinsælasta jólaverk allra
tíma, Jólaóratóría Bachs, hljómar í
fimmta sinn á vegum Listvina-
félagsins. Um er að ræða fyrsta
heildarflutning á verkinu með full-
skipaðri barokkhljómsveit hér á
landi. Einsöngvarar á tónleikunum
verða Hulda Björk Garðarsdóttir
sópran, Sesselja Kristjánsdóttir
alt, Eyjólfur Eyjólfsson tenór og
Ágúst Ólafsson bassi. Með þeim
leikur Alþjóðlega barokksveitin í
Den Haag með hljóðfæraleikurum
frá 20 þjóðlöndum, sem hafa sér-
hæft sig í flutningi barokk-
tónlistar. Jólaóratórían verður
flutt laugardaginn 10. desember kl.
17 (kantötur I–III), sunnudaginn
11. desember kl. 15 (kantötur I–
III) og kl. 18 (kantötur IV–VI).
Á gamlársdag verða árlegir há-
tíðartónleikar þremenninga sem
stundum koma fram undir nafninu
Trompeteria, trompetleikaranna
Ásgeirs H. Steingrímssonar og Ei-
ríks Arnar Pálssonar og Harðar
Áskelssonar, organista Hallgríms-
kirkju. Fyrir marga eru þessir há-
tíðarhljómar við áramót orðnir
ómissandi þáttur í hátíðahöldum
gamlárskvölds. Margir kjósa að
sitja áfram í kirkjunni og taka þátt
í aftansöng kl. 18. Á efnisskránni
eru þekkt verk eftir Bach, Albin-
oni og fleiri. Sunnudag 26. febrúar
taka þremenningarnir þátt í Vetr-
arhátíð 2006 með því að flytja efn-
isskrá sem þeir léku í Keis-
arasalnum í St. Pétursborg fyrir
fullu húsi. M.a. verður flutt nýtt
verk eftir Jón Hlöðver Áskelsson
ásamt sígildum perlum og verki
eftir franska tónskáldið Dubois.
Ný íslensk óratóría,
Cecilía eftir Áskel Másson
Auk kóra Hallgrímskirkju, Mót-
ettukórsins og Schola cantorum,
sem ávallt hafa lagt drjúgt af
mörkum til dagskrár Listvina-
félags Hallgrímskirkju, koma þrír
aðrir kórar fram á kórtónleikum
starfsársins sem verða alls sex að
tölu auk fyrrnefndra tónleika á
Jólatónlistarhátíðinni. Kór Ás-
kirkju og Hljómeyki flytja samein-
aðir franska og íslenska kórtónlist
án undirleiks á tónleikum sunnu-
dag 19. febrúar undir stjórn Kára
Þormar, m.a. Messu í G-dúr eftir
Francis Poulenc. Efnt verður til
barokktónleika á föstunni sunnu-
dag 2. apríl þegar kammerkór Ak-
ureyrarkirkju, Hymnodía, flytur
ásamt Önnu Zander mezzosópran
og hópi barokkeinleikara frá Sví-
þjóð verk eftir Dietrich Buxte-
hude, Membra Jesu nostri, sjö
kantötur um líkama Krists á
krossinum. Stjórnandi er Eyþór
Ingi Jónsson.
Mótettukór Hallgrímskirkju hef-
ur haldið tónleika annan dag hvíta-
sunnu allt frá upphafi starfs síns.
Á efnisskrá tónleika kórsins 5. júní
eru m.a. kórverk eftir Gorecki og
Brahms sem hafa ekki hljómað áð-
ur í flutningi Mótettukórsins. Á
allra heilagra messu 5. nóvember
frumflytur Schola cantorum ásamt
barokksveit hér á landi Requiem
eftir André Campra, verk eftir
franskan barokkhöfund. Einn af
hápunktum starfsársins er frum-
flutningur Mótettukórs Hallgríms-
kirkju, kammersveitar kirkjunnar
og einsöngvara á nýrri óratóríu
eftir Áskel Másson, sem nú er í
smíðum, Cecilíu, við texta Thors
Vilhjálmssonar, fyrir kór, hljóm-
sveit, einsöngvara og steinaspil en
hún er byggð á sögu heilagrar
Sesselju, verndardýrlings tónlist-
arinnar. Verkið verður flutt á degi
heilagrar Sesselju, miðvikudag 22.
nóvember.
Sumarkvöld við orgelið
Á þeim rúma áratug sem liðinn
er síðan Klais-orgel Hallgríms-
kirkju var tekið í notkun hefur
orðspor þess borist víða og á ann-
að hundrað erlendra organista í
fremstu röð hafa komið til að leika
á hljóðfærið, flestir á alþjóðlegu
tónleikaröðinni Sumarkvöld við
orgelið. Margir þeirra hafa einnig
hljóðritað verk á hljómdiska í
Hallgrímskirkju enda þykir hljóm-
ur orgelsins í sampili við rými
kirkjunnar einstakur. Org-
eltónleikaröðin hefst 17. og 18. júní
með tónleikum bróður Andreas
Warler frá Steinfelt í Þýskalandi.
Hinn heimskunni enski organisti,
Thomas Trotter, heldur tónleika
24. og 25. júní, Per Ahlman frá
Gävle í Svíþjóð leikur 1. og 2. júlí,
Guðný Einarsdóttir 8. og 9. júlí,
Íslandsvinurinn Hannfried Lucke
heldur tónleika 15. og 16. júlí, Sop-
hie-Veronique Cauchefer-Choplin
frá París leikur 22. og 23. júlí,
Bine Bryndorf frá Kaupmannahöfn
29. og 30. júlí, Christoph Schoener
organisti Michaeliskirkche í Ham-
borg leikur 5. og 6. ágúst og röð-
inni lýkur með tónleikum Eyþórs
Inga Jónssonar, organista Ak-
ureyrarkirkju 12. og 13. ágúst.
Haldnir eru stuttir hádegistón-
leikar á laugardegi en aðal-
tónleikar eru á sunnudagskvöldum
kl. 20.
Einnig verður hádegistón-
leikaröð á fimmtudögum allt sum-
arið sem er skipulögð í samvinnu
við Félag íslenskra organleikara.
Þar leika íslenskir organistar,
einnig í samleik með öðrum hljóð-
færaleikurum eða söngvurum. Þá
er einnig að geta hádegistónleika
með kynningum þar sem hlust-
endur eru leiddir um töfraheim
orgelsins. Guðmundur Sigurðsson
heldur slíka tónleika laugardaginn
21. janúar og Björn Steinar Sól-
bergsson laugardag 16. september.
Fjórar myndlistarsýningar
Efnt verður til fjögurra mynd-
listarsýninga í forkirkjunni á þessu
starfsári og tekur hver við af ann-
arri. Við upphaf nýs starfsárs
verður sem fyrr sagði opnuð sýn-
ing Kristínar Gunnlaugsdóttur
myndlistarmanns og Margrétar
Jónsdóttur leirlistakonu. Um sýn-
inguna segir Kristín: „Hér mætast
tveir miðlar, málun og leir. Hin
beina snerting handarinnar sem
heldur utan um leirinn og hin innri
snerting hugarins við lönd undir-
meðvitundarinnar sameina hér
verkin.“
Vorsýning Sigrúnar Eldjárn
verður opnuð 4. mars og ber yf-
irskriftina „... eilífðar smáblóm“.
Um sýninguna segir höfundur: „Í
svörtum sandauðnum landsins
leynast blóm. Blóm sem eru örsmá
en litsterk og kraftmikil. Blóm
sem hvert og eitt þjóna tilgangi í
hinni stóru heild.“
Sumarsýning Listvinafélagsins
verður opnuð laugardag 3. júní,
daginn fyrir hvítasunnu. Þar sýnir
Ásgerður Búadóttir textíllistakona
myndverk í forkirkjunni. Ásgerður
er frumkvöðull nútímaveflistar á
Íslandi. Verk hennar hafa ætíð
haft sterka skírskotun til landsins
og til náttúrunnar. Það er List-
vinafélagi Hallgrímskirkju mikill
heiður að fá tækifæri til að sýna
verk hennar á sumarsýningunni
2006. Loks er að geta haustsýning-
arinnar sem verður opnuð 2. sept-
ember með myndum Hafliða Hall-
grímssonar. Um þau segir
höfundur: „Það er ekki auðvelt að
færa í orð innihald þess, sem í
myndum mínum verður sýnilegt,
en eftirfarandi lesmál er ekki
fjarri lagi: Tákn … teiknuð …
túlkuð … máluð. Leiðin dulda að
settu marki. Listin að láta táknin
tala.“
20 ára vígsluafmæli
Hallgrímskirkju
Að ári verða 20 ár liðin frá
vígslu Hallgrímskirkju 27. október
1986. Í tilefni af vígsluafmælinu
verður efnt til myndlistarsýningar
tuttugu myndlistarmanna með
portrettmyndum af Hallgrími Pét-
urssyni. Enn fremur verður haldið
málþing um Hallgrím Pétursson
og samtímamenn hans í Evrópu í
umsjón dr. Margrétar Eggerts-
dóttur. Þá verður árleg hátíð-
armessa á Hallgrímsdegi, dán-
ardegi skáldsins, 27. október.
Afmælishátíðin stendur 26.–29.
október 2006.
Árgjald Listvinafélags Hall-
grímskirkju er 5000 kr. og í því
felst aðgangur að alþjóðlegu org-
eltónleikaröðinni Sumarkvöld við
orgelið og 50% afsláttur af al-
mennu miðaverði á aðra tónleika á
vegum Listvinafélagsins. Afslátt-
arverð fyrir eldri borgara, náms-
menn og maka er 3.000 kr. Stjórn
Listvinafélagsins skipa dr. Mar-
grét Eggertsdóttir, formaður, dr.
Gísli Sigurðsson íslenskufræð-
ingur, Jón Reykdal myndlist-
armaður, Guðmundur Hall-
grímsson lyfjafræðingur, Þóra
Kristjánsdóttir listfræðingur og
Hörður Áskelsson, kantor Hall-
grímskirkju, listrænn stjórnandi
félagsins. Framkvæmdastjóri er
Inga Rós Ingólfsdóttir sellóleikari.
Kirkjulist | Nýtt starfsár Listvinafélags Hallgrímskirkju hefst í dag með opnun myndlistarsýningar
Hátíðir kirkjuárs-
ins undirstrikaðar
Opnuð verður í dag sýning á verkum Margrétar Jónsdóttur og Kristínar
Gunnlaugsdóttur í forkirkju Hallgrímskirkju. Þar mætast málun og leir.
Morgunblaðið/Jim Smart
Hörður Áskelsson listrænn stjórnandi Listvinafélags Hallgrímskirkju.
www.hallgrimskirkja.is
Morgunblaðið/Ómar