Morgunblaðið - 26.11.2005, Qupperneq 78
78 LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Ný Íslensk heimildarmynd sem
hefur farið sigurför um heiminn
Sýnd kl. 3.30
Sýnd kl. 8 og 10.20 B.i. 14 ára
Þetta var hið
fullkomna frí
þangað til
þau fundu
fjársjóðinn!
Sýnd kl. 5 og 8 B.i. 16 ára
Þau eru góðu vondu gæjarnir.
Frá höfundi Buffy the Vampire Slayer.
Ótrúlegar brellur og svöl átakaatriði.
H.J. Mbl.
V.J.V. topp5.is
BYGGÐ Á SÖNNUM
ATBURÐUM
ÞAÐ SEM KOM FYRIR EMILY
ROSE ER ÓHUGNANLEGRA EN
NOKKUÐ SEM ÞÚ GETUR ÍMYN-
DAÐ ÞÉR
FÓR BEINT Á TOPPINN Í
BANDARÍKJUNUM!
Sýnd kl. 8 og 10.20 B.i. 16 ára
Sýnd kl. 5.45 og 10 B.i. 16 ára
Night Watch is
F***ING COOL!
Quentin Tarantino
Sýnd kl. 6
DREWBARRYMORE JIMMY FALLON
Hún fílar vinnuna, hann íþróttir...
munu þau fíla hvort annað?
Þetta var hið fullkomna frí
þangað til þau fundu
fjársjóðinn!
Sýnd kl. 3.30 B.i. 14 ára
Sýnd kl. 2 og10.40 B.i. 12
MBL
TOPP5.IS
BYGGÐ Á SÖNNUM ATBURÐUM
ÞAÐ SEM KOM FYRIR EMILY ROSE ER
ÓHUGNANLEGRA EN NOKKUÐ SEM ÞÚ
GETUR ÍMYNDAÐ ÞÉR
FÓR BEINT Á TOPPINN Í
BANDARÍKJUNUM!
Sýnd kl. 5, 8 og 10.40 B.i. 16 ára
kl. 2, 5, 8 og 10.40
Sýnd kl. 5.20
Sýnd kl. 3.20, 5.40, 8 og 10.20 B.i. 12 ára
Miðasala opnar kl. 13.30
Sími 564 0000
Spennutryllir af bestu gerð með
edward burns og ben Kingsley.
TILBOÐ Á FYRSTU SÝNINGAR DAGSINS - AÐEINS 400 KR.
ATH! SÝNINGAR SÉRMERKTAR MEÐ RAUÐU
TIL F ST S I SI S - I S .
T ! S I S T
KRAFT
SÝNING
KL. 10.2
0
Síð
uS
tu
Sý
ni
nG
ar
Síð
uS
tu
Sý
ni
nG
ar
Sýnd kl. 3
Með
íslensku tali
450 kr
-M.M.J. Kvikmyndir.com
-L.I.B.Topp5.is
-M.M.J. Kvikmyndir.com
-H.J. Mbl.
-L.I.B.Topp5.is
S.K. DV
Topp5.is
S.V. Mbl.
S.K. DV
Topp5.is
S.V. Mbl.
ALLIR UNNENDUR rapp-
tónlistar og góðs glens hafa nú svo
sannarlega eitthvað til að hlakka til.
Breska sveitin Goldie Lookin Chain
er nefnilega á leið hingað til lands
snemma á næsta ári og ætlar að
troða upp á NASA þann 10. febrúar
næstkomandi. Bandið telur átta
manna kjarna og er það þekkt fyrir
að fara á kostum á tónleikum með
rappi, gríni og glensi. Þeir félagar
hafa slegið í gegn í Bretlandi á und-
anförnum misserum og brátt fá Ís-
lendingar að sjá hvers vegna.
Goldie Lookin Chain hefur vakið
athygli fyrir bráðfyndna texta sína
sem innihalda þó einnig hárbeitta
þjóðfélagsgagnrýni. Lög á borð við
„Self Suicide“, „Your Mother’s Got a
Penis“ og „Your Missus is a Nutter“
eru dæmi um lagni hljómsveitar-
meðlima við að láta fólk skella upp
úr á meðan þeir deila í sömu andrá
harkalega á það sem þeim líst ekki á
í umhverfi og samfélagi sínu. Lagið
„Guns Don’t Kill People, Rappers
Do“ í þeirra flutningi hefur verið
spilað talsvert á öldum ljósvakans
hér á landi.
Átta manna kjarni
Goldie Lookin Chain er að sögn
afleiðing samstarfs nokkurra mestu
furðufuglanna í Newport í Bret-
landi, sem allir höfðu stefnt að ein-
hvers konar frama á tónlistarsvið-
inu. Snemma á níunda áratugnum
fór stofnandi sveitarinnar, Chon
Ben-Wa Balls, eða Mr. Love Eggs,
að taka upp úr sjónvarpsþáttum á
ferðaupptökutæki og hlaða ofan á
upptökurnar ógrynni af uppáhalds-
blótsyrðunum sínum. Þrettán árum
seinna fór annar stofnandinn og
taktmeistarinn Dwayne Xain Ze-
dong að skapa raftónlist með hjálp
Rave Generator og í kjölfarið lágu
leiðir þeirra Eggsie (Mr. Love
Eggs) saman. GLC fór smám saman
að taka á sig mynd. Þá hafði 21 ann-
ar karlmaður orðið nógu hrifinn af
þessu menningarfyrirbæri til að
bæta eigin stíl og takti í þennan ört
stækkandi hóp borgarskálda. Í átta
manna kjarnanum eru Eggsie, Xain
(Dwayne Xain Zedong), Adam
Hussain, Two-Hats, Mike Balls
(Hardest Man in Soccer Violence),
Billy Webb, Mystikal og Maggot.
Aðrir óformlegri liðsmenn GLC eru
DCI Burnside, Leeroy Fashions,
Lloyd Ganja 9T9, 38 DD Killa, BBJ
(Big Baby Jesus), Eugene the Ge-
nius, Mr. Compact, MC Flatpress,
Cannsie-T, Dipper Nan, Mac Dad,
One-Step Down, Will Dionysus og
Adam’s Nan.
Greatest Hits!
Þrátt fyrir að samstarf þeirra fé-
laga nái yfir nokkra áratugi var það
ekki fyrr en árið 2003 sem þeir stigu
fyrst á svið undir formerkjum sveit-
arinnar.
Fyrsta platan þeirra, sem ber hið
kaldhæðnislega heiti Goldie Lookin
Chaińs Greatest Hits, kom svo út í
Bretlandi 13. september 2004 og
hefur selst í rúmlega 200 þúsund
eintökum þar í landi.
Platan komst meðal annars í
fimmta sæti breska vinsældalistans.
Aðspurður um nafnaval á fyrstu
plötuna sagði liðsmaðurinn Maggot
eitt sinn í blaðaviðtali: „Ég er hrifinn
af verkum Freddie Mercury. Þegar
Queen gáfu út plötu sem þeir köll-
uðu Greatest Hits seldist hún svo vel
að við ákváðum að reyna það sama.“
Þeir hafa í kjölfarið leikið á flest-
um virtustu tónlistarhátíðum í Bret-
landi og víðar í Evrópu og haldið auk
þess fjöldann allan af tónleikum fyr-
ir troðfullu húsi. Nú er svo komið að
Íslendingum að fá að mynda sér
skoðun á þessum röppurum og
skemmtikröftum. Tækifærið gefst
hinn 10. febrúar næstkomandi.
Áætlað er að hefja miðasölu í
fyrrihluta desember og verður nán-
ar tilkynnt um það innan skamms.
Tónlist | Goldie Lookin Chain á leið til landsins
Rapp, grín og glens
Æringjarnir í Goldie Looking Chain eru væntanlegir hingað til lands.
www.youknowsit.co.uk
www.glcforum.com
LEIKARINN Pat Morita lést á
heimili sínu í Las Vegas síðast-
liðinn fimmtudag, 73 ára að
aldri. Morita varð heims-
frægur fyrir hlutverk sitt sem
kennarinn aldraði í kvikmynd-
unum Karate Kid 1, 2 og 3 og
var tilnefndur til Óskars-
verðlauna fyrir leik sinn í
fyrstu myndinni árið 1984.
Pat Morita var bandarískur
í húð og hár en hann var fædd-
ur í Kaliforníu hinn 28. júní ár-
ið 1932. Hann lék lítil hlutverk
um árabil í sjónvarpsþáttum á
borð við The Odd Couple og
Green Acres áður en hann
landaði hlutverki í þáttaröð-
inni Happy Days. Þegar sýn-
ingum Happy Days lauk fékk
hann aðalhlutverkið í eigin
þætti, Mr. T and Tina, sem
varð skammlífur.
Morita lék í þremur kvik-
myndum um karatestrákinn
en í þeirri síðustu, The Next
Karate Kid, frá árinu 1994, lék
hann á móti Hilary Swank.
AP
Pat Morita er þekktastur fyrir
hlutverk sitt í Karate Kid.
Pat Morita
látinn
Breska æsifréttablaðiðSun heldur því fram að
popparinn Elton John ætli
að ganga í hjónaband með
David Furnish, sambýlis-
manni sínum til marga ára.
Að sögn blaðsins verður at-
höfnin látlaus og munu ein-
ungis foreldrar brúð-
hjónanna verða viðstaddir
þegar þeir setja upp hring-
ana.
Um kvöldið verður svo
blásið til veislu og er búist
við fjölda frægra ein-
staklinga á gestalistanum.
Elton John lýsti því yfir í
viðtali við blaðið að athöfnin
yrði látlaus. Foreldrar
þeirra verða vottar enda
hafi þeir stutt mikið við bak-
ið á þeim í gegnum tíðina.
„Við viljum hafa athöfnina
látlausa til að sýna þeim
virðingu,“ sagði Elton John.
Ekki kemur fram í blaðinu
hvenær athöfnin fer fram.
Fólk folk@mbl.is