Morgunblaðið - 26.11.2005, Side 81
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 2005 81
HARRY Potter er mættur aftur á hvíta tjaldið í
kvikmyndaútgáfu fjórðu sögunnar í Potter-
ævintýrinu, Harry Potter og eldbikarinn. Þegar
hér er komið sögu eru Harry og félagar að hefja
fjórða skólaárið sitt við Hogwarts-galdraskólann
og ber veturinn ýmislegt ævintýralegt í skauti
sér. Ber þar hæst Heimsbikarkeppnina í Quid-
ditch og Þrígaldraleikana sem haldnir eru á
heimavelli þetta árið og glæsilegur dansleikur
sem haldinn er til heiðurs gestaskólunum sem
sækja Hogwarts heim í tilefni af galdraleikunum.
En eins og allir vita sem eitthvað kunna fyrir sér í
göldrum er ógn myrkraaflanna nokkuð sem ekki
verður léttvægt fundið, og ef marka má martrað-
irnar sem taka að ásækja hetjuna okkar Harry
Potter er þess ekki langt að bíða að hinn ógnvæn-
legi Voldemort finni farveg fyrir sína illu krafta á
ný.
Það er breski leikstjórinn Mike Newell sem
spreytir sig á Potter-sögunni í þetta sinn og ferst
verkið vel úr hendi. Þessi þáttur ævintýrisins fel-
ur í sér mikilvæga áfanga, hér þurfa þau Harry,
Ron og Hermione ekki aðeins að glíma við galdra-
formúlur, heimalærdóm og ásókn myrkravera,
heldur eru hormónin farin að gera usla og sjálfs-
myndin að ókyrrast sömuleiðis. Einkum eru það
þau Hermione og Ron sem eiga erfitt með að að-
lagast yfirvofandi unglingsárum meðan Harry
Potter hefur stærri hluti til að hafa áhyggjur af,
eins og til dæmis eldspúandi dreka, þó svo að
hann fari ekki varhluta af spenningnum sem
fylgir því að fá heilan árgang af stúlkum úr
frönskum galdrastúlknaskóla í heimsókn. Í þess-
ari sögu fá upprennandi kynslóðir galdramanna
jafnframt að finna fyrir fullum þunga þeirra ógna
sem bíða þeirra, og þeirri staðreynd að enginn
seiður er svo máttugur að geta vakið hina látnu til
lífsins á ný. Ævintýri Potters í þessum hluta sög-
unnar eru í anda þeirra tímamóta í þroska sem
söguhetjurnar eru að fara í gegnum, þau standa á
þröskuldi fullorðinsáranna og líkt og í sígildum
ævintýrum fer hetjan í gegnum miklar mann-
dómsraunir til að sanna sig verðuga þeirra verk-
efna sem hennar bíða í framhaldinu. Potter lendir
óvænt í hópi fjögurra útvalinna keppenda í Þrí-
galdraleikunum, sem felur í sér þrjár lífshættu-
legar þrautir: Að berjast við eldspúandi dreka, að
kafa niður í undirdjúpin til bjargar sínum nánustu
og að lokum að halda inn í völundarhús í leit að
gralinu, þar sem mesta hættan er þó sú að týna
sjálfum sér. Potter stenst raunirnar með erf-
iðismunum og uppsker óvæntan fund við höfuðó-
vininn, hinn illa Voldemort.
Harry Potter og eldbikarinn hefur talsvert
minna Hollywood-yfirbragð en t.d. hin erki-
hollywoodíska útgáfa Chris Columbus í fyrstu
Harry Potter-myndinni. Myrkur tónn er sleginn
þegar í upphafi myndarinnar sem læðir þeirri til-
finningu inn hjá áhorfanda að nú blasi alvara lífs-
ins við fyrir Harry og aðra Hogwart-liða. Engu að
síður er vel farið með tæknibrellur og tölvugrafík
í myndinni sem ljær henni sannkallaðan stór-
myndabrag þegar kemur að útfærslu æv-
intýraheimsins. Þar virðist leikstjórinn vilja ná
fram meiri fullorðinstóni en hingað til og er minna
púður sett í að útfæra og útmála hinar ýmsu
galdrabrellur og meiri áhersla lögð á að knýja
hetjusöguna áfram, byggja upp spennuþrungið
andrúmsloft og þróa persónur sögunnar á þessum
tímamótum í lífi þeirra. Útkoman er vönduð
Harry Potter-kvikmynd, þar sem komist er vel
frá því krefjandi verkefni að laga um 750 bls.
skáldsögu að kvikmyndaforminu, þ.e. ef frá er tal-
in ögn stikkorðakenndur upphafskafli. Daniel
Radcliffe vex vel með hlutverki sínu og gæðir
hann hetjuna Harry Potter bæði þroska og al-
vöruþunga. Aðrir leikarar styrkja jafnframt sög-
una, bæði þeir fullorðnu úrvalsleikarar sem finna
má í hverju rúmi og þeir sem yngri eru. Það er
ekki annað að sjá en Harry Potter sé að styrkjast
sem kvikmyndafígúra, og fer þroskinn og alvöru-
þunginn bæði söguhetjunni og ævintýrinu vel.
Manndómsraunir Potters
KVIKMYNDIR
Sambíóin Reykjavík, Keflavík og Akureyri,
Háskólabíó, Selfossbíó og Ísafjarðarbíó.
Leikstjórn: Mike Newell. Aðalhlutverk: Daniel Radcliffe,
Rupert Grint, Emma Watson, Michael Gambon, Robert
Pattinson og Ralph Fiennes. Bandaríkin, 157 mín.
Harry Potter og eldbikarinn (Harry Potter and the Goblet of
Fire) Reuters
„Útkoman er vönduð Harry Potter-kvikmynd, þar sem komist er vel frá því krefjandi verkefni að
laga um 750 bls. skáldsögu að kvikmyndaforminu [...] Daniel Radcliffe vex vel með hlutverki sínu og
gæðir hann hetjuna Harry Potter bæði þroska og alvöruþunga,“ segir í dómi.
Heiða Jóhannsdóttir
MAGADANSHÚSIÐ verður með
árlegar nóvembersýningar sínar í
dag í Tjarnarbíói. Hefst fyrri sýn-
ingin kl. 17 og er tileinkuð byrj-
endahópum. Einnig koma fram á
þessari sýningu þær maga-
dansmeyjar sem sigruðu í áhuga-
mannahópi í Íslandsmeist-
arakeppninni í magadansi í ár sem
og Josy Zareen, eigandi Maga-
danshússins.
Seinni sýningin hefst kl. 20 og þá
stíga á svið framhaldshópar hússins
auk Arabian Dance Company
ásamt Josy Zareen. Verður þá mik-
ið um dýrðir og sýndur hefðbund-
inn magadans, slæðudans, maga-
dans með spænsku ívafi og
Bollywood-dans. Einnig koma fram
á þessari seinni sýningu sigurveg-
ararnir í Íslandsmeistarakeppninni
í magadansi í atvinnumannahópi,
þær Rosanna Ragimova, Waraporn
Chanse og Jóhanna Jónas.
Aðgangseyrir er 1.000 kr. og
hvetur Magadanshúsið áhugafólk
um dans að mæta á staðinn.
Magadans í
Tjarnarbíói
Josy
Zareen
MYNDIR KL. 12 UM HELGAR Í SAMBÍÓUNUM KRINGLUNNI
KRINGLANÁLFABAKKI
HARRY POTTER OG ELDBIKARINN B.i. 10 ára
kl. 1 - 2 - 4.05 - 5.05 - 7.10 - 8.10 - 10.15 - 11.15.
HARRY POTTER AND THE... VIP kl. 2 - 5.05 - 8.10 - 11.15
LORD OF WAR kl. 8 - 10.30 B.i. 16 ára.
Litli Kjúllin m/Ísl. tali kl. 2 - 4 - 6
CHICKEN LITTLE m/ensku tali kl. 2 - 4
TIM BURTON´S CORPSE BRIDE kl. 4 - 6
ELIZABETH TOWN kl. 5.45 - 8 - 10.30
TWO FOR THE MONEY kl. 10.30 B.i. 12 ára.
FLIGHT PLAN kl. 8 B.i. 12 ára.
WALLACE AND GROMIT m/Ísl. tali kl. 2
HARRY POTTER OG ELDBIKARINN kl. 12 - 2 - 4 - 6 - 8 - 10 B.i. 10 ára
SERENITY kl. 8 - 11 B.i. 16 ára.
Litli Kjúllin m/Ísl. tali kl. 12 - 2 - 4
CHICKEN LITTLE m/ensku tali kl. 6
KISS KISS BANG BANG kl. 10.30 B.i. 16 ára.
WALLACE AND GROMIT m/Ísl. tali kl. 2