Morgunblaðið - 26.11.2005, Page 84
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
VIÐ SELJUM ATVINNUHÚSNÆÐI
FYRIR FYRIRTÆKI OG FJÁRFESTA
I I I
I I I
VELDU EIGNAMIÐLUN
eignamidlun@eignamidlun.is www.eignamidlun.is
Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali
HJÓNIN Hrafnhildur Magnúsdóttir og Guðmundur
Hárlaugsson ákváðu að stokka upp í lífi sínu. Þau
seldu raðhúsið sitt og fyrirtæki í góðum rekstri og
héldu í fjögurra mánaða heimsreisu. Hrafnhildur
segir það mikið frelsi að losna úr viðjum vinnu-
brjálæðis og hlutasöfnunar. „Ferðalagið veitti okk-
ur nýja sýn á lífið. Við ætlum ekki að láta það líða
áfram í vana og ætlum ekki að bíða með að láta
drauma okkar rætast,“ segja þau og halda von
bráðar á vit ævintýra til Chile þar sem þau ætla að
læra spænsku. | 36
Seldu eigur sínar og
héldu í heimsreisu
Hrafnhildur og Guðmundur fengu nýja sýn á lífið.
NOKKRIR aðilar, m.a. Stangveiðifélag
Reykjavíkur (SVFR), Fiskræktarsjóður og
fleiri, hafa gert bændum á vatnasvæði
Hvítár í Árnessýslu tilboð þess efnis að
þeir fái peningagreiðslu gegn því að hætta
netaveiðum í ánni, samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins. Netaveiði í Hvítá er talin
hafa neikvæð áhrif á stangveiði í ám á
svæðinu, m.a. í Soginu, Stóru-Laxá, Brúará
og Tungufljóti í Biskupstungum.
Bjarni Júlíusson, formaður SVFR, segir
að það sé eitt mesta hagsmunamál stang-
veiðimanna í landinu að netaveiði verði
hætt og að hjá SVFR séu menn tilbúnir til
að leggja sig alla fram til að svo megi
verða.
„Við viljum leita allra leiða til að neta-
veiðinni á Hvítárssvæðinu verði hætt. Við
teljum best ef hægt er að leysa þetta með
samningum við veiðiréttareigendur, eins og
gert var í Borgarfirði. Við erum tilbúnir í
samstarf við heimamenn, getum lagt fram
fjármagn og þekkingu til að stuðla að upp-
byggingu stangveiðinnar fyrir austan fjall.“
20 þúsund í stað 750 króna
Í skýrslu Atvinnuþróunarsjóðs Suður-
lands um stangveiði og netaveiði á laxi
kemur fram að reikna megi með að verð-
mæti hvers lax sem veiddur er í net í ám á
Hvítársvæðinu í Árnessýslu sé um 750
krónur en verðmæti hvers lax sem veiddur
er á stöng á sama svæði sé um 20 þúsund
krónur.
Bændur fá tilboð í netalagnir
Eftir Bryndísi Sveinsdóttur
bryndis@mbl.is
Vilja netin | 8
„Í SKÓLANUM, í skólanum, er skemmtilegt
að vera,“ er gjarnan sungið. Af myndinni að
dæma eiga þær ljóðlínur vel við í Grunnskól-
anum í Hveragerði. Þessir kátu krakkar
voru þar úti í frímínútum í gær þegar ljós-
myndari átti leið hjá. Nú styttist í upphaf að-
ventu og þá er þess að vænta að jólin setji
svip sinn á skólahaldið og jólaskreytingar
prýði skólahús landsmanna.
Morgunblaðið/RAX
Skemmtilegt í skólanum
ÆFING til að bregðast við hugsan-
legum heimsfaraldri inflúensu var
haldin hér á landi í vikunni og var hún
liður í evrópskri viðbragðsæfingu
sem haldin var samtímis í löndum
ESB og EFTA. Almannavarnadeild
ríkislögreglustjóra og embætti sótt-
varnalæknis stjórnuðu æfingunni, en
samkvæmt samþykkt ríkisstjórnar-
innar stjórna þessar stofnanir við-
búnaði og aðgerðum steðji sjúkdóms-
faraldur að Íslandi. Auk fyrrgreindra
embætta tóku lögreglan, Flugmála-
stjórn, Vegagerðin, Landhelgisgæsl-
an, Rauði krossinn og hluti heilbrigð-
isþjónustunnar einnig þátt í æfing-
unni.
Að sögn Haraldar Briem sótt-
varnalæknis var fyrst og fremst verið
að prófa samhæfingu og samskipti
Evrópuríkjanna ef heimsfaraldur
kæmi upp. Einnig voru stjórnun og
skipulag hér innanlands prófuð. Við
æfinguna var stuðst við þá atburða-
rás að upp kæmi einhvers staðar far-
aldur. Alþjóða heilbrigðismálastofn-
unin tilkynnti síðan að heimsfaraldur
væri á næsta leiti. Síðan brysti hann á
og Alþjóða heilbrigðismálastofnunin
sendi út leiðbeiningar. Þá tvo daga
sem æfingin stóð var þjappað saman
fimm til sex mánaða atburðarás.
Í æfingunni var prófuð samvinna
Samhæfingarstöðvarinnar (SST) í
Skógarhlíð og embættis sóttvarna-
læknis. Haraldur taldi að sá þáttur
hefði gengið mjög vel. Hann sagði að
ef grípa þyrfti til víðtækra sóttvarna-
aðgerða yrði stuðst við ákveðið skipu-
lag sem myndi snerta allt mannlíf hér
á landi. Æfingin að þessu sinni var á
takmörkuðu sviði og fór ekki víða.
Ekki var t.d. farið í víðtækar aðgerðir
á heilbrigðisstofnunum.
Haraldur nefndi að í október síð-
astliðnum hafi farið fram æfing gegn
bólusótt og stóð hún einnig í tvo daga,
en var ekki jafn víðtæk og æfingin nú.
Helgi Már Arthursson, upplýs-
ingafulltrúi heilbrigðis- og trygg-
ingamálaráðuneytisins, tók þátt í æf-
ingunni og gegndi stöðu upp-
lýsingafulltrúa.
Hann sagði að stjórn æfingarinnar
hefði gengið mjög vel.
Æfðu viðbrögð við faraldri
Eftir Guðna Einarsson
gudni@mbl.is Var liður í evrópskri viðbragðsáætl-
un gegn heimsfaraldri og tókst vel
BRESKA rappsveitin Gold-
ie Lookin Chain er vænt-
anleg hingað til lands
snemma á næsta ári. Sveitin
heldur tónleika á Nasa við
Austurvöll hinn 10. febrúar
næstkomandi.
Sveitin er skipuð átta
manna kjarna en rapp, grín
og glens ásamt beittri þjóð-
félagsgagnrýni er aðalsmerki þeirra. Goldie
Lookin Chain gaf út fyrstu breiðskífu sína árið
2004 sem hefur fengið góðar viðtökur víða um
Evrópu. Ber hún nafnið Goldie Lookin Chain’s
Greatest Hits. | 78
Rappgrínarar á
leið til landsins
VERÐI lagaákvæði um tekju- og eignarskatt ekki
breytt fyrir gildistöku þess um áramót verður gerð
tvísköttunarsamninga Íslands við önnur ríki í
ólestri þar sem ákvæðið virðist takmarka mjög
heimildir ríkisstjórnarinnar til að gera slíka samn-
inga. Þetta segja lögmennirnir Gunnar Gunnarsson
og Jón Elvar Guðmundsson í grein í Morgun-
blaðinu í dag.
Lögmennirnir segja þetta stafa af orðalagi í
grein í lögum nr. 129/2004 þar sem segir m.a.: „Rík-
isstjórninni er heimilt að gera samninga við stjórnir
annarra ríkja um gagnkvæmar ívilnanir á sköttum
erlendra og íslenskra skattaðila sem eftir gildandi
skattalöggjöf ríkjanna eiga að greiða skatt af sama
skattstofni bæði á Íslandi og erlendis.“ Þeir segja
ólíklegt að önnur ríki skilgreini skattstofn með ná-
kvæmlega sama hætti og gert sé í íslenskum lögum
og því verði þegnum þessara landa í undantekning-
artilvikum gert að greiða tvisvar skatt af sama
skattstofni. „Með vísan til ofangreinds er ekki ann-
að að sjá en að heimild ríkisstjórnarinnar til gerðar
tvísköttunarsamninga við önnur ríki sé svo tak-
mörkuð samkvæmt lögum nr. 129/2004 að hún sé í
raun óvirk,“ segja lögmennirnir.
Telja tvískött-
unarsamning-
um stefnt í óefni
Heimild | 44
♦♦♦
ENGIN meiðsl urðu á fólki þegar
tveir bílar ultu í Hveradalabrekku í
gærkvöldi. Fyrri bíllinn valt laust
fyrir tíu, en sá seinni rétt eftir tíu.
Voru lögreglumenn rétt ókomnir á
staðinn til að aðstoða ökumann
fyrri bílsins þegar seinni bíllinn
valt.
Einn maður var við stýrið á fyrri
bílnum, en tvær stúlkur óku í þeim
seinni. Sluppu allir við meiðsl og
þykir það mildi.
Ultu báðir bílarnir á sama stað á
veginum, en mikil hálka var á þess-
um slóðum og akstursaðstæður erf-
iðar. Bílarnir eru báðir talsvert
skemmdir og voru þeir færðir til
Selfoss með kranabíl.
Tvær bílveltur
á sama tíma