Morgunblaðið - 13.12.2005, Page 11

Morgunblaðið - 13.12.2005, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. DESEMBER 2005 11 FRÉTTIR Laugavegi 63 (Vitastígsmegin) – sími 551 2040 Fallegar jólagjafir Silkitré og silkiblóm ÞAÐ BESTA FYRIR ÞIG Góðir skór á alla fjölskylduna í stærðum 16 - 50 töskur & skór -ný sending -mikið úrval Í vídd L og XL 2 3 4 5 6 7 1 Nánar á netsíðu www.svanni.is Sendum lista út á land Sími 567 3718 15% JÓLAAFSLÁTTUR Í DESEMBER Hlýlegar jólagjafir, úlpur, kápur, jakkar og peysur Steiking án feiti • Djúpar pönnur • Grunnar pönnur • Grillpönnur • Pottar í úrvali Keramik- og títanhúð sem flagnar ekki af Charlott ehf. Smiðjuvegi 11, gul gata, Kóp., sími 568 2770. Opið 13-17 mán.-fös. Ný glæsileg Ergonomic lína Létt, stílhrein og sérlega falleg Jólagjöf sem endist FORVARNAFRÆÐSLA í grunn- skólum hefur mikil áhrif á viðhorf nemenda til fíkniefna og eftir slíka fræðslu myndu töluvert færri þiggja fíkniefni, væru þau í boði, heldur en í þeim hópi nemenda sem ekki hafa fengið fræðslu. Þetta kemur fram í niðurstöðum úr árangurskönnun sem Halldóra Pétursdóttir, nemi í matsfræðum við Háskóla Íslands, vann fyrir forvarnafélagið „Hættu áður en þú byrjar“ en félagið er samstarfsverkefni Lögreglunnar í Reykjavík, Marita á Íslandi og Reykjavíkurborgar. Félagið hefur verið starfrækt undanfarin átta ár með það að markmiði að fræða ung- linga í efstu bekkjum grunnskóla og foreldra þeirra um skaðsemi fíkni- efna. Könnunin var framkvæmd í 9. bekkjum grunnskóla og voru spurn- ingalistar lagðir fyrir tvo hópa, alls um 280 nemendur, í öðrum hópnum voru nemendur sem fengið höfðu forvarnafræðslu en í hinum ekki. Meðal þess sem kom fram í könn- uninni var að 67% þeirra sem fengið höfðu forvarnafræðslu forvarna- félagsins töldu hana breyta afstöðu sinni gegn fíkniefnum, jafnframt töldu 50% þeirra sem ekki höfðu fengið fræðslu að slík fræðsla myndi hafa áhrif á viðhorf þeirra og einnig töldu nemendurnir almennt að fræðslan hafi áhrif á viðhorf ung- linga til fíkniefna. Spurningalistar voru einnig send- ir út til foreldra en svarthlutfallið var aðeins 35% og því varla hægt að vinna úr niðurstöðunum marktækt. Styrkara samband við foreldra eftir fræðslu Stór þáttur í forvarnafræðslu fé- lagsins er samfræðsla með for- eldrum og fer hún fram eftir fræðslufund með nemendum. Magn- ús Stefánsson, fræðslufulltrúi fé- lagsins, og Marita, sem er forvarna- svið Samhjálpar, segir það gert til að styrkja sambandið á milli ungling- anna og foreldra þeirra. „Miðað er að því að hægt sé að ræða málin opinskátt heima og þá sé sama hvort umræðan snúist um fíkniefni og allt það sem þeim fylgir, kynhegðun eða bara hvað sem við- kemur því að vera unglingur. Að fá fjölskylduna til að sameinast á nýjan leik á þessum sundurslitnu tímum,“ segir Magnús og telur það hafa tek- ist með ágætum. Magnús vísar í niðurstöður könn- unarinnar þar sem fram kemur að í þeim hópi nemenda sem ekki höfðu farið á fræðslufund var hlutfall þeirra sem ræddu mjög oft eða frek- ar oft við foreldra sína um fíkniefni um 27% en það hafði hækkað um níu prósent hjá þeim nemendum sem farið höfðu á fund. Fræðsluefni fyrir sjöunda bekk í vinnslu Í ábendingum Halldóru, sem sá könnunina, kemur fram að forvarna- fræðsla þurfi að byrja fyrr í grunn- skólum, en hún hefst nú í flestum skólum í áttunda bekk. Hjá forvarnafélaginu er í vinnslu fræðsluefni fyrir sjöunda bekk en að sögn Magnúsar er það mjög vand- meðfarið verkefni og ekki hægt að notast við sömu kennslufræði og fyr- ir efri bekkina. Verður verkefnið unnið með sál- og félagsfræðingum en nú er unnið að því að afla fjár- magns. „Við viljum reyna að mæta þeirri þörf sem við skynjum oft hjá foreldrum, svona ráðaleysi gagnvart menningu unglinga og öllu þessu áreiti sem þeir verða fyrir frá tölv- um og fjölmiðlum,“ segir Magnús en hugmyndafræðin byggist á því að samhæfa forvarnir og lífsleikni, styrkja á nemendur í að segja nei og verða um leið sjálfstæðari. Einnig verður lagt upp með samfræðslu fyrir foreldra og þar aðallega fjallað um sniff, áfengi og tóbak en einnig siðferðislega skyldu gagnvart m.a. tölvuleikjum. „Undanfarin átta ár höfum við verið að benda foreldrum eldri krakka á þessa tölvuleiki sem bann- aðir eru innan átján ára en mun yngri börn hafa aðgang að. Slíkir leikir geta brenglað viðhorf þeirra til lífsins og allra hluta þannig að for- eldrar eiga að láta sig þessa hluti varða, mun meira en verið hefur.“ Stórtónleikar á laugardag Næstkomandi laugardag verða haldnir stórtónleikar í Austurbæ til styrktar forvarnastarfinu. Vonast er til að nægt fjármagn safnist svo hægt verði að klára vinnslu verkefnisins fyrir sjöunda bekk en einnig þarf félagið fjárhags- legan grunn til að þjálfa upp fleiri forvarnafulltrúa og endurnýja tæki og tól. Flestir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi í Austurbæ en þar koma fram söngvarinn Edgar Smári, Páll Óskar, Dóri DNA, hljómsveitin Jakobínarína og hin fornfræga stórsveit Egó stígur síð- ust á svið og tryllir lýðinn. Tónleik- arnir hefjast klukkan átta og hægt er að nálgast miða í Austurbæ á skrifstofutíma en einnig á vefsvæð- inu midi.is. Grunnskólanemar í 9. bekk láta síður blekkjast af gylliboðum fíkniefnasala eftir að hafa tekið þátt í forvarnastarfi Vinnsla að hefjast á fræðslu- efni fyrir sjöunda bekk Eftir Andra Karl andri@mbl.is Morgunblaðið/Guðrún Vala Magnús Stefánsson forvarnafulltrúi hefur á fundum frætt foreldra grunnskólabarna og aðra um skaðsemi vímu- efna, vímuefnavarnir og almenn samskipti við unglingana og hafa forvarnir skilað árangri.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.