Morgunblaðið - 13.12.2005, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 13.12.2005, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. DESEMBER 2005 21 MINNSTAÐUR SUÐURNES LANDIÐ Hvolsvöllur | Húsnæði Hvolsskóla á Hvolsvelli nærri því tvöfaldast með tilkomu viðbyggingar sem tekin var formlega í notkun síð- degis síðastliðinn föstudag. Með þessu er sveitarstjórn Rang- árþings eystra að leysa brýn hús- næðismál skólans og búa í haginn fyrir lokaáfanga sameiningar allra grunnskóla sveitarfélagsins í einn. Viðbyggingin er í tveimur hús- um, að hluta til á tveimur hæðum. Samtals er gólfflatarmál viðbygg- ingarinnar liðlega 1.400 fermetrar sem er litlu minna en eldra skóla- húsið. Ágúst Ingi Ólafsson, sveit- arstjóri Rangárþings eystra, segir að húsnæði Hvolsskóla hafi verið orðið allt of lítið. Unnið er að því að sameina alla grunnskóla sveit- arfélagsins sem voru fjórir við sameiningu. Grunnskóli Austur- Landeyja í Gunnarshólma og Grunnskóli Fljótshlíðar hafa verið lagðir niður og hætt verður að kenna í Seljalandsskóla að loknum þessum vetri. Eftir það fer öll kennsla fram í Hvolsskóla. Notast hefur verið við lausar kennslu- stofur á Hvolsvelli en þær verða lagðar smám saman niður. Um 260 börn á grunnskólaaldri eru nú í sveitarfélaginu en skólinn á að rúma 300 börn. Að sögn sveitarstjórans fylgir því umtalsvert fjárhagslegt hag- ræði að sameina skólana á einum stað, þótt það sé mikið átak að byggja yfir hann. Þá sé samein- ingin talin faglega góð. Einstaklingsmiðað nám Í viðbyggingunni sem nú var tekin í notkun er nýr aðal- inngangur skólans, mat- og sam- komusalur og kennslurými. Nýja húsnæðið er hannað með tilliti til einstaklingsmiðaðrar kennslu, og hluti eldra húsnæð- isins hefur verið breytt í þá veru. Það þýðir að fleiri en einum ár- gangi er kennt í opnu rými og tveir til þrír kennarar annast kennsluna saman ásamt fleiri sér- fræðingum. Hátíð var í skólanum í tilefni dagsins með þátttöku nemenda. Við hina formlegu athöfn afhenti oddviti Rangárþings eystra, Ólaf- ur Eggertsson, Unnari Þór Böðv- arssyni skólastjóra lyklavöldin en hann hafði áður afhent nemendum skólann. Gestum gafst síðan kost- ur á að skoða húsnæðið. Fjórir grunnskólar Rangárþings eystra sameinast endanlega í einn skóla frá og með næsta hausti Húsnæði Hvolsskóla nærri tvöfaldast Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is Ljósmynd/Katrín Möller Eiríksdóttir Fimmundarsöngur Stúlkur úr 9. bekk syngja fimmundarsöng við vígslu skólans, f.v. Þórdís Erla Ólafsdóttir, Fanney Björk Ólafsdóttir, Kristín Anna Jensdóttir, Hjördís Sigurbjörnsdóttir og Klara Sif Ásmundsdóttir. Hvassahraun | Byggingafélagið Eykt ehf. er með hugmyndir um að byggja fimmtán þúsund manna íbúðabyggð á mörkum Hafnarfjarð- arbæjar og Vatnsleysustrandar- hrepps. Félagið hefur óskað eftir samstarfi við hreppsnefnd Vatns- leysustrandarhrepps og að land Hvassahrauns verði skilgreint sem íbúðahverfi í aðalskipulagi og sam- svarandi beiðni hefur verið send bæjaryfirvöldum í Hafnarfirði varð- andi það svæði sem er Hafnarfjarð- armegin bæjarmarkanna. Bréf Péturs Guðmundssonar, stjórnarformanns Eyktar ehf., var lagt fram á fundi hreppsnefndar Vatnsleysustrandarhrepps fyrir skömmu. Þar kemur fram að hann er eigandi jarðarinnar Hvassa- hrauns og eigandi samþykkts kaup- tilboðs í hálfa jörðina Lónkot í Hafn- arfirði. Óskar hann eftir því að við endurskoðun aðalskipulags Vatns- leysustrandarhrepps verði gert ráð fyrir blandaðri íbúðabyggð í landi Hvassahrauns. Sams konar erindi er sent Hafnarfjarðarbæ vegna Lónkotslands. Hreppsnefnd Vatns- leysustrandarhrepps samþykkti að fela sveitarstjóra og oddvita að ganga til viðræðna við Pétur. Bæj- arráð Hafnarfjarðar ákvað að vísa skipulagsþætti málsins til skipulags- ráðs. Sett hefur verið upp hugmynd að íbúðabyggð á þessu svæði og það er raunar látið ná út fyrir jarðirnar tvær. Um er að ræða svæðið frá sumarhúsunum í Hvassahrauni, meðfram ströndinni, langleiðina að álverinu í Straumsvík. Pétur segir frá þeim hugmyndum sínum að svæðið verði deiliskipulagt á næstu tveimur árum í samvinnu landeig- anda og sveitarfélaganna og síðan byggt upp í áföngum með samvinnu sömu aðila á tímabilinu 2008 til 2020. Pétur Guðmundsson vildi ekki tjá sig um hugmyndirnar þegar haft var samband við hann í gær. Jó- hanna Reynisdóttir sveitarstjóri segir að þarna sé greinilega stór- hugur á ferðinni, fimmtán þúsund manna byggð sem gæti risið á tíu árum. Nánast sé verið að byggja upp nýtt sveitarfélag á mörkum Vatnsleysustrandarhrepps og Hafn- arfjarðarbæjar. Telur hún að meiri- hlutinn sé á landi Hvassahrauns og lendi því innan Vatnsleysustrandar- hrepps, ef til komi, ef til vill um 10 þúsund manna byggð. Til saman- burðar má geta þess að nú eru 1000 íbúar í hreppnum, flestir í Vogum sem eru í hinum enda sveitarfé- lagsins. „Við höfum ákveðið að ræða við bréfritara. Auðvitað erum við áhugasöm um mál sem stækka sveitarfélagið,“ segir Jóhanna. Hún tekur fram að unnið sé að endur- skoðun á aðalskipulagi Vatnsleysu- strandarhrepps og að málið verði tekið til skoðunar við þá vinnu. Pétur Guðmundsson lætur þess getið í bréfi sínu að hann sé aðili að Rauðhóli hf. sem síðastliðin þrjú ár hafi unnið að uppbyggingu bland- aðrar íbúðar- og atvinnubyggðar í Norðlingaholti í samstarfi við Reykjavíkurborg. Segist hann hafa rætt það við aðra eigendur félagsins að það kæmi með beinum hætti að uppbyggingu umræddrar byggðar á mörkum Vatnsleysustrandarhrepps og Hafnarfjarðarbæjar og hafi verið tekið vel í það. Eykt hefur tryggt sér byggingarland í Hvassahrauni og Lónkoti Nýtt fimmtán þús- und manna hverfi á bæjarmörkunum   .% *8!-)   $%       M $- # $ "N$ Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is féllu alveg fyrir þessu og keyptu eins hús.“ Ingþór og Rósa vinna bæði í Hafnarfirði en segjast ekki finna fyrir fjarlægðinni. Hann vinnur hjá Gámaþjónustunni í útjaðri Hafnarfjarðar en hún inni í bæ. Það taki ekki nema fimmtán eða tuttugu mínútur að aka í vinn- una. Jóhanna Reynisdóttir sveit- Vogar | Fjölskylda þúsundasta íbúa Vatnsleysustrandarhrepps flutti lögheimili úr Hafnarfirði um miðjan nóvembermánuð. Þá var Alexandra Líf Ingþórsdóttir, sem varð þessa heiðurs aðnjót- andi, aðeins nokkurra daga göm- ul en hún fæddist 10. nóvember. Foreldrar Alexöndru, Ingþór Guðmundsson og Rósa Sigurjóns- dóttir, eru Hafnfirðingar. Þau keyptu sér einbýlishús í Vogum og fluttu þangað í haust með tveggja ára son, Andra Má. „Okkur fannst þetta spennandi. Svo er fasteignaverð miklu lægra hér en í Hafnarfirði,“ sagði Ingþór þegar hann er spurður hvers vegna þau hafi yf- irgefið heimahagana. „Ég von- aðist eftir sameiningu sveitarfé- laganna, var alveg sannfærður um að af henni yrði,“ bætir hann við en sameining þessara tveggja sveitarfélaga var felld í Vatns- leysustrandarhreppi í haust. Rósa segir að fjölskyldunni líði mjög vel í Vogunum. „Ekki spill- ir fyrir að besta vinafólk okkar er að koma á eftir okkur. Þau arstjóri kom færandi hendi til fjölskyldunnar í gær í tilefni þess að Alexandra Líf var skráð þúsundasti íbúinn á hrepp- skrifstofunni. Færði hún litlu stúlkunni barnaföt, bleiur og innstæðu í Íslandsbanka og fjöl- skyldunni allri körfu með ýmsum matvörum til jólanna. Litli bróð- ir gleymdist ekki, hann fékk sinn pakka. Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Færandi hendi Jóhanna Reynisdóttir, sveitarstjóri í Vogum, tók vel á móti þúsundasta íbúa sveitarfélagsins og fjölskyldu hans. Ingþór Guðmundsson heldur á Andra Má og Rósa Sigurjónsdóttir á Alexöndru Líf. Vonaðist eftir sam- einingu við Hafnarfjörð ÍBÚAR Vatnsleysustrandarhrepps eru nú orðnir þúsund talsins. Uppbyggingin heldur áfram og útlit er fyrir það að 1200. íbúanum verði fagnað fyrir lok næsta árs. Hreppsnefnd Vatnsleysustrandarhrepps hóf markaðs- átak á árinu 1999 með úthlutun lóða og kynningu og var markmiðið að fjölga íbúunum í þúsund á fimm árum. Einkum var höfðað til fjölskyldufólks á höfuðborgar- svæðinu og landsbyggðinni. Þá voru íbúarnir 700 svo áætlunin var stórhuga. Markmiðið náðist á sex árum því nú eru íbúarnir orðnir yfir eitt þúsund, samkvæmt bók- um hreppsskrifstofunnar. Heldur áfram Og uppbyggingin heldur áfram, nú í samvinnu við Tré- smiðju Snorra Hjaltasonar. „Við fórum þá leið að biðla til verktaka og fundum einn sem var tilbúinn til að vinna að þessu með okkur,“ segir Jóhanna Reynisdóttir sveitar- stjóri. Trésmiðja Snorra Hjaltasonar fékk úthlutaðar lóðir fyrir þrjú fjölbýlishús í Vogum og lóðir undir ein- býlishús í Dalahverfi, alls 80-90 íbúðir. Unnið er að gatnagerð í samvinnu við verktakann. Að auki úthlutaði hreppurinn hálfum öðrum tug lóða til einstaklinga í Dala- hverfi. Jóhanna segir að flutt sé inn í tvær blokkirnar hjá Snorra og verið að byggja þá þriðju og húsin verði afhent á næsta ári. Segir hún að fyrirtækið sé búið að selja um 95% allra íbúðanna. Þá er verið að hanna svæði fyrir íbúðir aldraðra við Akurgerði, í samvinnu við Búmenn og Trésmiðju Snorra Hjaltasonar. Gert er ráð fyrir 400 fermetra þjónustuein- ingu sem sveitarfélagið tekur á leigu af Búmönnum og fjórtán þjónustuíbúðum í tengslum við það, ásamt sex hefðbundnum íbúðum í parhúsum á svæðinu. Fólk, 50 ára og eldra, á kost á að kaupa sér búseturétt í öllum þessum íbúðum. Stefnt er að því að byggja svæðið upp á næsta ári. „Við sjáum fram á að við verðum orðin tólf hundruð á næst ári. Gangi það eftir samsvarar það 20% fjölgun á einu ári og er mikil sprenging í þróun sveitarfélagsins,“ segir hún. Samhliða þessu eru við gerð fjárhagsáætlunar uppi áform um að ráðast í stækkun íþróttamiðstöðvarinnar í Vogum og byggingu nýrrar félagsaðstöðu fyrir unglinga. Stefnir í nýja sprengingu

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.