Morgunblaðið - 13.12.2005, Síða 25
DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. DESEMBER 2005 25
Ólöf Erla Bjarnadóttir keramikhönnuðurhefur hannað jólakúlu fyrir árið 2005.Árið 2003 setti hún í fyrsta skipti jóla-
kúlu á markað, þannig að kúlurnar hennar eru
orðnar þrjár og hver með sitt sérkenni milli
ára. Ólöf fór að framleiða jólakúlurnar vegna
hálfgerðs misskilnings. „Það var fyrir nokkrum
árum sem við, nokkrir hönnuðir í Kirsuberja-
trénu, vorum beðnir um að skreyta jólatré fyrir
tímaritið Hús og hýbýli. Við misskildum þetta
svolítið og héldum að við ættum að búa sjálfar
til allt skrautið sem færi á tréð, þannig að við
frumgerðum fullt af skrauti. Þar á meðal gerði
ég handgerðar kúlur úr postulíni. Upp úr því
þróaðist hugmyndin að jólakúlunum og ég
ákvað að verða einhvers konar íslensk Georg
Jensen og gera kúlur árlega,“ segir Ólöf og
hlær. „Mér fannst það vera sniðugt því ekkert
þannig íslenskt var í gangi, fyrir utan jólaskeið-
ina.“
Norðurljós og snjókorn
Ólöf er með grunnþema í kúlunum en það er
kalda íslenska vetrarstemningin. Hingað til hef-
ur kúlan alltaf verið hvít með mismunandi
mynstri. „Kúlan í ár er með rómantískri stemn-
ingu, mætti kannski segja að það sé norður-
ljósaandi í henni með smávegis barokki. Fyrri
kúlurnar hafa verið snjókorn og skafrenningur.“
Að sögn Ólafar hefur kúlunum verið vel tekið.
„Þar sem ég er ein í þessu þá anna ég ekki orð-
ið eftirspurn,“ segir hún en ætlar samt að halda
áfram að hanna eina kúlu á ári næstu árin eða
áratugina. „Reyndar fæ ég foreldra mína í lið
með mér við að pakka kúlunum. Mamma er
framkvæmdastjóri yfir pökkuninni og hnýtir
borðana í kúlurnar og pabbi er yfirplastari, þ.e
hann brýtur plastið utan um kúlurnar í réttar
skorður. Þau bjarga mér algjörlega með þessari
vinnu.“
Spurð út í hvort hún skreyti jólatréð heima
hjá sér með eigin kúlum svarar Ólöf: „Und-
anfarin ár hef ég ekki átt eina einustu kúlu eftir
af eigin framleiðslu, gallaðar og ljótar kúlur
hafa þó orðið afgangs og fá þær að fara á tréð,
ég sný þeim bara þannig að þær líti þokkalega
út. Það eina sem ég vil er að hafa lifandi greni-
jólatré sem ilmar vel og svo set ég bara alls
konar skraut á það,“ segir Ólöf að lokum.
HÖNNUN | Ólöf Erla hannar jólakúluna 2005
Morgunblaðið/Ásdís
Ólöf Erla með jólakúluna sem hún hannaði.
Íslensk vetrarstemn-
ing í jólakúlunum
Jólakúlan 2005 fæst í Kirsuberjatrénu, Jólahús-
inu á Skólavörðustíg, Epal og Villeroy og Boch í
Kringlunni.
Í BELGÍU eru tveir jólasveinar, St.
Nicholas og Pere Noel, einn fyrir
hvort málsvæði, þ.e. flæmsku og
frönsku. Á vefnum santas.net er
jólasveinum víða um heim lýst, m.a.
þeim í Belgíu.
Hinn 6. desember er komudagur
þeirra beggja en það er dagur heil-
ags Nikulásar. Þá eru bakaðar sér-
stakar kökur og fólk kemur saman í
kirkjum og fjölskyldur gera sér
glaðan dag. Algengast er að fjöl-
skyldur setji gjafir undir jólatréð
og opna þær saman eftir jólamatinn
á aðfangadag, líkt og á Íslandi.
Jólasveinninn hefur lítið með jóla-
pakkana að gera í Belgíu nema hjá
sumum þegar börnin eru lítil.
BELGÍA
Tveir
jólasveinar
Ljósmynd/Halldór Sveinbjörnsson