Morgunblaðið - 13.12.2005, Side 29

Morgunblaðið - 13.12.2005, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. DESEMBER 2005 29 MENNING Mikið úrval af æfingaboltum, nuddboltum, yogadýnum og ýmsum búnaði tengdum íþróttum. Trönuhrauni 6, 220 Hafnarfirði // Sími: 565 1533 // polafsson@polafsson.is // www.polafsson.is Æfingaboltar Nuddboltar Yogadýnur Kubb spilið Vinsælt spil fyrir alla fjölskylduna 2 til 6 í hverju liði LÍKT og með bíóhljómlist þögla skeiðsins, sem erlendis var skrifuð fyrir allt að litlar sin- fóníuhljómsveitir, fóru landsmenn varhluta af hinni viðameiri kaffihúsatónlist. Hérlendis náðu „salon“- hljómsveitir Hótel Borgar (nánast eina staðarins sem bauð upp á slíkt) nefnilega sjaldnast upp fyrir tríó- eða kvartettstærð, meðan septettar og jafnvel stærri sveitir voru alvanalegar í útlöndum fram á miðja öldina þegar 70 ára blómaskeiði grein- arinnar lauk. Það kann því að virðast dálítið seint í rassinn gripið að bera löngu úrelda tóngrein á borð fyrir hlustendur er fæstir hafa neina lifandi reynslu af slíkri músík. Á hinn bóginn halda flest lögin á þessum diski enn góðu sígrænu gildi, þrátt fyrir að hafa lítið sem ekkert verið „djössuð upp“ á undanförnum áratugum – þó að ærið tilefni hafi verið til meðan djassinn var hér aðalvettvangur yngri kynslóðar, líkt og gerðist vestan hafs með vinsælustu lög Broad- ways langt fram á rokktíma. En kannski er til marks um almenna velmegun síðari góðæra að loks skuli finnast aukahilla fyrir hérumræddar fornútfærslur í fjölskrúðugu framboði augna- bliksins. Þ.e.a.s. ef nægur markhópur reynist fyrir hendi – og yrði vissulega fróðlegt af að frétta. En hvernig sem viðtökur verða, þá er margt gott um framtakið að segja. Fyrst og fremst er kvintettinn skipaður bráðflinku yngra hljóm- listarfólki, og útsetningar Hrafnkels Orra Eg- ilssonar eru yfirleitt vandaðar. Ég get að vísu ekki neitað því, sem einnig sló mig við fyrri konsertreynslu af sveitinni, að þær hljóma stundum í þynnra lagi – aðallega hvað varðar skort á sjálfstæðum aukalínum og frjálslegri píanópart – auk þess sem heild- arsvipurinn ber óhjákvæmilega með sér að bandið er tiltölulega lítið samspilað; hefur s.s. ekki þrælað sig út á ótal kaffihúsa„giggum“ eins og alvöru salonsveit hefði gert – eða bara á nægilega mörgum tónleikum líkt og t.a.m. I Salonisti. Hér vantar enn tilfinnanlega smjörþefinn af blóði, svita og tárum. Sérstaklega í tangólög- unum, sem yfirleitt eru að mínu viti einum of snyrtilega leikin og jafnvel feimnislega. Sem sé: það vantar neista herzlumunarins – hásk- ans, áræðisins og hins leiftrandi virtúósítets – á kostnað fínlega stássstofuandans. Þar með skal engu spáð um hvað öðrum kann að þykja um þessar ný„fornu“ útfærslur á ástsælustu dægurlögum okkar frá síðustu rúmum fimmtíu árum. Það snýst sem endra- nær einkum um hversu víðtæka viðmiðun hver og einn hefur út af fyrir sig. Fyrir mína parta er þó samt um efnilega byrjun að ræða, sem gæti komið til með að skila eftirtektarverðu dagsverki þegar fram í sækir. Vænlegt upphaf á vanræktri grein TÓNLIST Hljómdiskur Íslenzku lögin. Salonkvintettinn L’amour fou (Hrafn- hildur Atladóttir fiðla, Guðrún Hrund Harðardóttir víóla, Hrafnkell Orri Egilsson selló, Gunnlaugur Torfi Stefánsson kontrabassi og Tinna Þorsteinsdóttir pí- anó). Útsetningar: Hrafnkell Orri Egilsson. Upptaka í Salnum, Kópavogi 8/2005 u. stj. Sveins Kjartans- sonar. Bæklingsskrif: Ragnheiður Ásta Pétursdóttir. Lengd (óuppg.): 44:02. Útgáfa: L’amour fou. Dreif- ing: 12 tónar. MLM001 2005. L’amour fou Ríkarður Ö. Pálsson ÍSLENSKA óperan starfrækir í vetur Óperu- stúdíó þriðja árið í röð og að þessu sinni verð- ur óperettan Nótt í Feneyjum eftir Johann Strauss færð á svið. Í Óperustúdíóinu fá tón- listarskólanemendur á höfuðborgarsvæðinu tækifæri til að taka þátt í óperusýningu sem að öllu leyti er unnin eins og aðrar sýningar hússins. Nótt í Feneyjum er langstærsta verkefnið sem Óperustúdíóið hefur ráðist í til þessa en þátttakendur í uppfærslunni eru um það bil áttatíu tónlistarskólanemendur, þ.e. einsöngv- arar, kór og hljómsveit, auk listrænna stjórn- enda. Til samanburðar má nefna að innan við tuttugu manns tóku þátt í verkefninu í fyrra, Apótekaranum eftir Haydn. Leikstjóri nú verður ung austurrísk kona, Uschi Horner, og hljómsveitarstjóri Daníel Bjarnason. Umsjón með Óperustúdíóinu hef- ur Kurt Kopecky, tónlistarstjóri Íslensku óperunnar. Meira aðdráttarafl Bjarni Daníelsson óperustjóri segir ástæð- una fyrir því að verkefnið sé svona stórt í sniðum að þessu sinni þá að slíkar sýningar hafi meira aðdráttarafl. „Hinir ungu þátttak- endur fá meira út úr svona stórri sýningu. Það fá allir eitthvað bitastætt að gera enda þótt þeir séu ekki í aðalhlutverki. Markmiðið er að líkja sem best við getum eftir venjulegri uppfærslu og þetta á eftir að verða dýrmæt reynsla fyrir þessu ungu og efnilegu tónlist- armenn, bæði söngvara og hljóðfæraleikara. Svo vonumst við vitaskuld til að fá góða sýn- ingu út úr þessu.“ Undirbúningur nemendanna er þegar haf- inn en sviðsæfingar hefjast fyrri partinn í febrúar, að sögn Bjarna. Þá eiga söngnem- endurnir að vera búnir að læra sín hlutverk utan að. Frumsýnt verður 29. mars. Fyrirhugaðar eru sex sýningar á Nótt í Feneyjum og Bjarni gerir sér vonir um að hátt í 3.000 manns komi til með að sjá sýn- inguna en 1.500 gestir sáu uppfærsluna á Apótekaranum í fyrra. „Við bjóðum skólafólki á öllum aldri á sýn- inguna en það hefur gefið mjög góða raun fram til þessa. Með þeim hætti fáum við í heimsókn fjöldann allan af ungu fólki sem að öllu jöfnu kemur ekki í Óperuna. Það hefur verið ákaflega gaman að fylgjast með þessu fólki en margir hverjir sitja sem dáleiddir í sætum sínum meðan á sýningu stendur og engin leið að vekja þá til meðvitundar, jafnvel þó maður hristi þá,“ segir Bjarni og hlær. Hann segir að mikill fengur sé í því fyrir nemendurna að vinna með fagfólki og fá nasasjón af því hvernig vinnan gengur fyrir sig í óperuhúsi. „Og ef við getum hjálpað þeim að taka afstöðu til spurningarinnar „á ég að leggja þetta fyrir mig?“ þá er það auð- vitað mjög jákvætt.“ Stuðningur Íslandsbanka Eins og í fyrra kemur Íslandsbanki að kostun Óperustúdíósins og fagnar Bjarni þeirri aðkomu. „Íslandsbanki gengur að þessu verkefni með mjög jákvæðu hugarfari og Íslenska óperan fær heilmikið út úr þessu samstarfi. Við leggjum vissulega til aðstöðuna en stuðningur bankans gerir okkur kleift að ráða listræna stjórnendur að verkefninu sem skiptir auðvitað sköpum.“ Að sögn Bjarna hefur Íslenska óperan svigrúm til að setja upp tvær stórar sýningar á hverju leikári og eina smærri, sem jafnan er hugsuð fyrir börn og unglinga. „Að þessu sinni skilgreinum við Nótt í Feneyjum sem þessa þriðju sýningu, þannig að Íslenska óperan er í raun að setja upp þrjár stórar sýningar í vetur. Þar sem Óperustúdíóið er ekki háð miðasölu höfum við mun meira svig- rúm við val á óperu en ella sem er mikilvægt. Það er ekki þar með sagt að þessi sýningin geti ekki orðið smellur og þá skapast ef til vill svigrúm til að nota aðra af hinum tveimur uppfærslunum fyrir eitthvað óvenjulegt og ögrandi án þess að hugsa endilega um að selja sýninguna.“ Ópera | Óperustúdíó Íslensku óperunnar setur upp Nótt í Feneyjum Morgunblaðið/Þorkell Bjarni Daníelsson óperustjóri og Bjarni Ármannsson, forstjóri Íslandsbanka, fara yfir samstarfssamninginn fyrir undirritun í gær. Virkjar krafta 80 ungmenna Eftir Orra Pál Ormarsson orri@mbl.is LJÓÐ og innsetning skapa Tilraun um mann í herbergi uppi á hanabjálka við Laugaveg, Ég reyki, þess vegna er ég segir í ljóðinu, Fumo, ergo sum og þar með er sleginn tónninn fyrir látlausan minningaróð Jóns Laxdal um horfinn lærimeistara. Innsetning og ljóð skapa and- rúmsloft liðins tíma, orðin á blaðinu óma í huga áhorfandans þegar hann virðir fyrir sér stól og ritvélatösku, veggklukku og fleiri hluti sem Jón hefur klætt pappírsrifrildum og málað dökk- brún. Ilmurinn af horfnum hefðarvindlingum og hljóðnaðir gítartónar lifna í huganum meðan það rökkvar við Laugaveg. Jón er skáld og hef- ur hér skrifað ljóð í orðum og myndum, hann skrifar um bakgrunn sinn í heimspekinni og minnist liðins tíma. Hann er einlægur í list sinni, persónulegur en þó ekki einskorðaður við einkaheim sinn. Áhorfandinn fær greiðan að- gang að þeirri stemningu sem Jón vekur upp með innsetningu sinni og ljóði, stemningu sem er jafn sjaldséð í dag og ritvélatöskur. Í allri list Jóns má finna fyrir einstaklingn- um, listamanninum sjálfum sem fyrst og fremst gefur sér tíma, hann skoðar, hugsar, setur saman, leikur sér en er alvarlegur um leið. Hann hefur eitthvað að segja en hér er hann nær sínu einkalífi en ég hef séð í öðrum verkum en stór sýning á verkum Jóns stendur nú yfir í Hafnarborg. Jón Laxdal er einstakur í hópi íslenskra myndlistarmanna en list hans er sambland af alþjóðlegum straumum og sér- íslensku andrúmslofti. Í honum sameinast myndlistarmaður og skáld, ekki aðeins búa listaverk hans jafnan yfir hógværum ljóð- rænum tón heldur er hann ágætis skáld eins og ljóðið sem fylgir þessari innsetningu úr garði ber með sér. Tilraun um mann er fallegt og eftirminnilegt verk. Aðferðafræði Jóns telst varla nýstárleg og ekki framsetning verka hans heldur en hér kemur augljóslega fram hvern listamann Jón hefur að geyma, listamann með sterka per- sónulega sýn og markmið, íslensk myndlist væri snöggtum fátækari án hans. Þessi litla innsetning er ein af eftirminnilegri sýningum ársins og eykur á fjölbreytni íslenskrar lista- flóru. MYNDLIST Safn við Laugaveg Til 12. janúar. Safn er opið miðv.d. til föstud. frá kl. 14–18 og 14–17 um helgar. Aðgangur ókeypis. Jón Laxdal Tilraun um mann Minning Ragna Sigurðardóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.