Morgunblaðið - 13.12.2005, Side 35

Morgunblaðið - 13.12.2005, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. DESEMBER 2005 35 MINNINGAR un á honum eins og við værum það allra kúnstugasta sem hann hefði lengi séð. Við munum sakna hans einstaka viðmóts, lífsgleðinnar sem frá honum stafaði og þess að halda í hlýja hönd- ina. Við eru þakklát fyrir að hafa fengið að kynnast einstökum per- sónuleika og fyrir að hafa átt slíka fyrirmynd í okkar lífi, mann sem tók lífinu af skynsemi, áhuga og lífsgleði. Við erum líka þakklát fyrir að afi fékk að lifa lífinu eftir sínu höfði og að Svava var við hlið hans fram á síðustu stundu. Þrátt fyrir veikindi á allra síðustu vikum var aðdáunarvert að fylgjast með þeirri reisn sem var yfir honum alla tíð og hvernig hann hélt sínum helstu einkennum, hlýju og glettni, fram á síðasta dag. Við kveðjum nú afa á Selfossi í síð- asta skipti. Blessuð sé minning hans, hún mun alltaf lifa með okkur. Páll Gestsson, Steinunn Gestsdóttir, Steinþór Gestsson. Jakop Páll Hallgrímsson er dáinn í hárri elli, tæplega 94 ára. Þegar hann fæddist var Ísland eitt af fátækustu þjóðum í Evrópu enda ekki sjálfstæð, var nýlenda Danakonungs en er nú eitt af þeim ríkustu og hamingjusöm- ustu í heimi og má segja að hann og hans kynslóð hafi lifað mestu fram- farir þjóðarinnar í þúsund ár. Páll, sem var Eyfirðingur í ættir fram, ólst upp við mikið ástríki í stórfjölskyldu í Reykhúsum þar sem ríkti hin sanna bændamenning og var vel hugsað um gamla fólkið. Til fróðleiks fyrir nú- tímafólk þá stendur í sóknarmanna- tali Hrafnagilssóknar 1915 að 14 manns voru þar til heimilis og þar af fimm gamalmenni. En heimilið, sem var mjög gestkvæmt, var að mörgu leyti sérstakt því heimilisfaðirinn var sjaldan heima, alltaf á ferðinni að kynna samvinnustefnuna eða erlend- is auk þess að sinna umfangsmiklum störfum sem kaupfélagsstjóri KEA og forstjóri SÍS. Páll var því meðvit- aður um þessa hreyfingu sem var mikil lyftistöng fyrir hinar dreifðu byggðir. Hann mundi líka eftir Svein- birni Jónssyni (kenndur við Ofna- smiðjuna) sem var mikill frumkvöðull á Eyjafjarðarsvæðinu á þessum tím- um. 1923 vann hann að því að koma heita vatninu úr Reykhúsalaug upp í gamla bæinn. Ekkert var rafmagnið en hann dó ekki ráðalaus, lausnin var svo kallaður vatnshrútur sem skilaði vatninu á bæinn. Var þetta eitt af fyrstu íbúðarhúsum kynnt með heitu vatni. Seinna 1927 var svo Kristnes- hælið byggt rétt sunnan við bæjar- lækinn og þá kom rafmagnið. Með til- komu hælisins hófst baráttan við hvíta dauða norðan heiða sem hafði lagt svo margar fjölskyldur í rúst einkum í Eyjafirði. Páll varð stúdent 1931 frá MA og settist svo í lagadeild HÍ og lauk embættisprófi 1936. Farsæll náms- maður og skömmu seinna var hann konungsskipaður sýslumaður yfir Árnessýslu og þar á bökkum Ölfusár var hann allan sinn gifturíka starfs- aldur. Páll var tæplega meðalmaður á hæð og samsvaraði sér vel og var lengst af léttur í spori enda fimleika- maður á sínum yngri árum. Hann var samviskusamur og virtur embættis- maður. Móðir okkar sagði okkur frá því að eitt sinn hefði hann verið kvaddur í hús í Hveragerði þar sem maður ógnaði öllum með hlöðnum riffli. Páll ræddi við manninn sallaró- legur, gekk svo að honum hiklaust og afvopnaði hann. „Það voru hér örfá hús í fyrstu og lengi vel þekkti ég alla með nafni en nú er Selfoss kaupstað- ur með yfir 5.000 íbúa og ég þekki fæsta,“ sagði hann nýlega. Páll kynntist glæsilegri konu, Ás- laugu Símonardóttur frá Selfossi og þau gengu í hjónaband og áttu dótt- urina Drífu. Það entist ekki lengi og þau skildu en mjög kært var alla tíð með þeim feðginum Páli og Drífu. Lengi vel var Páll einbúi í stóra sýslumannshúsinu en hafði ráðskon- ur. Á þeim tíma var hann fastagestur hjá okkur um jólin á Miklubrautinni og féll vel í hópinn og kunni vel að meta rjúpurnar og rjómasósuna hennar mömmu. „Bestu rjómasósu norðan Alpafjalla.“ Seinna kom Svava Steingrímsdóttir inn í hans líf. Þau gengu í hjónaband. Það var gæfuspor. Undir starfslok Páls var heyrnin farin að gefa sig og aðspurð- ur hvort það bagaði hann ekki í starfi var svarið: „Nei, nei, ég er alveg bú- inn að heyra nóg!“ Eftir að hann lét af störfum byggðu þau Svava veglegt hús við Eyrarveg. Alltaf fékk maður höfðinglegar móttökur hjá þeim góðu hjónum og þau kunnu svo sannarlega að taka á móti gestum. Hann hélt tryggð við æskustöðvarnar og kom reglulega norður og minntist gamalla tíma með hlýju. Enda lét hann vita af því undir það síðasta að hvergi kysi hann frekar hinstu hvílu en í Eyja- fjarðarsveit. Það átti hann sameigin- legt með Káni, vesturíslenska skáld- inu sem orti: Kæra foldin kennd við snjó hvað ég feginn yrði, fengi holdið hvíla í ró heima í Eyjafirði. Við systurbörn Páls munum hann alltaf sem Pál frænda á Selfossi og móðir okkar sá ekki sólina fyrir hon- um. Hann var alltaf litli bróðir henn- ar, í hennar augum var hann einfald- lega fullkominn! Við minnumst hans sérstaklega fyrir sterkan persónu- leika sem hafði góða nærveru. Við sendum Svövu, Drífu og Gesti og fjöl- skyldu okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Í Guðs friði. Hallgrímur, Brynjólfur, Páll og Guðrún María Ingv- arsbörn. Þegar gamall fjölskylduvinur deyr rifjast upp mildar minningar í bland við einhvers konar trega. Páll Hall- grímsson var einhver nánasti vinur foreldra minna. Hann kom oft á heimili okkar í Reykjavík og gisti ósjaldan fyrr á árum. Og oft fóru for- eldrar mínir austur á Selfoss og sóttu sýslumanninn heim. Amma mín tal- aði um yfirvaldið og þótti barninu það merkilegur titill. Hitt vakti þó kannski meiri aðdáun að vitað var að Páll hafði verið mikill íþróttamaður á yngri árum og verið í frægum fim- leikaflokki þó hann talaði ekki um það sjálfur. En varla hefði þetta nú dugað miðaldra manni til að laða að sér börn og unglinga. Hvað var það þá sem gerði heimsóknir hans svona spennandi? Eiginlega ekkert sér- stakt. Menn spjalla saman og þurfa ekki að líta á klukkuna: Það er ekkert sem liggur fyrir annað en að spjalla. Börnin hlustuðu svona að minnsta kosti með öðru eyranu og urðu vitni að snilld og rökfestu sem var þó ekki sett fram með neinum orðaflaumi því maðurinn var í rauninni fámáll. En það hlýtur að hafa stafað frá honum alveg sérstakri hlýju. Annars hefði maður ekki sóst eftir að vera nálægt honum í hvert sinn sem hann kom og heyra þessa hásu rödd og þessar at- hugasemdir sem gjarnan vöktu til umhugsunar og ollu jafnvel heila- brotum svo dögum skipti. Eftir að Páll tók saman við Svövu Steingrímsdóttur, þá öndvegiskonu, hélst þetta góða samband við for- eldra mína og varð jafnvel ennþá nánara en áður og ræktað með gagn- kvæmum heimsóknum og ferðalög- um um landið þvert og endilangt. Þarna bættist í hópinn ljóðelsk kona og söngvin og slíkt var nú aldeilis að skapi föður míns. Þegar ég lít nú um öxl dáist ég að því hvað þetta sam- band foreldra minna við þau þau Pál og Svövu var skemmtilegt og frá- bært. Og nú, þegar öðlingsmaðurinn er hniginn að velli, þakkar maður bara fyrir sig: þessa einstöku vináttu og þessa miklu snilld. Baldur Hafstað. Páll Hallgrímsson og Sýslunefnd Árnessýslu áttu langa samleið. Hann tók við Árnessýslu 1. október 1937 og stýrði fyrsta sýslufundinum vorið 1938. Hann sagði mér að starfslokum að sér hefði þótt langsamlega skemmtilegast á þessum ferli að fást við mál með sýslunefndinni. Á 45 ára starfsferli eins manns í sýslunefnd gerist auðvitað margt, einkum þegar jafnframt eru uppi mestu byltingartímar þjóðarinnar. Sýslunefnd Árnessýslu tók heils hug- ar þátt í þessari umbyltingu. Staðið var áfram að uppbyggingu Héraðs- skólans á Laugarvatni. Þar lenti Páll í skólanefnd 1959–1970 og reyndist þar málafylgjumaður hvenær sem hann þurfti að beita sér. Þar á Laug- arvatni hafði hann forgöngu um upp- byggingu Húsmæðraskóla Suður- lands og lá eftir hann og samstarfsmenn hans eitt stærsta og glæsilegasta húsmæðraskólahús sem reist var hér á landi. Páll Hallgrímsson kom á örlaga- tímum að uppbyggingu Þorlákshafn- ar. Þótti í tvísýnu ráðist er Egill Thorarensen hóf þar uppbyggingu er Kaupfélag Árnesinga keypti jörðina 1934 og hóf aftur útgerð á staðnum. Páll taldi að það hefði verið eitt stærsta málið er hann vann að „þar sem allur úrræðakrafturinn kemur þar frá einum manni, Agli Thoraren- sen“. En sýslunefndir Árnes- og Rangárvallasýslu tóku við jörðinni og hafnarframkvæmdum er Egill komst ekki lengra með þetta í einkaeign Kaupfélagsins. Þá lenti á Páli for- mennska í hafnarstjórn, allt frá 1946 til þess er Þorlákshöfn varð lands- höfn. Þótti til þess tekið hve mynd- arlega Þorlákshafnarnefnd skilaði verki sínu af sér til landshafnar- stjórnar. Nefna má ég síðasta afrek Páls er hann tók að sér forystu við uppbygg- ingu Sjúkrahúss Suðurlands. Þar hafði verið starfrækt sjúkrahús á Selfossi við vanefni. Nýtt sjúkrahús var lengi í burðarliðnum og gekk hægt, bæði með teikningar og fram- kvæmdaleyfi. Margir spreyttu sig en að lokum varð það allra manna mál að taka yrði Pál sýslumann í forystu þess. Og lagðist hann þá svo fast á ár- ar að framkvæmdir hófust við það mikla sjúkrahús sem nú lifir aðra uppbyggingu við langleguálmu. Páll Hallgrímsson stóð á starfsferli sínu fyrir meira en 50 aðal- og auka- fundum Sýslunefndar Árnessýslu. Hélt hann þá framan af í Héraðsskól- anum á Laugarvatni. En svo kom að sýslan eignaðist sérstakan fundarsal árið 1948 í viðbyggingu við sýslu- mannsbústaðinn á Selfossi. Mjög þótti Páli ónæðissamt að funda á Sel- fossi, en sýslunefndarmenn gátu ver- ið út um allar þorpagrundir að sinna öðrum erindum. Var þá flutt með sýslufundina í Lindina, gamla Hús- mæðraskóla Suðurlands á Laugar- vatni og síðan í hinn nýbyggða Hús- stjórnarskóla Suðurlands. Þangað kom ég fyrst til fundar 1975 og sat þá nefndin minnst fjóra daga. Páll sýslumaður setti fundinn og úthlutaði framkomnum málum til nefnda. Síðan tóku þær til óspilltra málanna, en sýslumaður gekk á milli og gaf ráð þegar honum fannst henta. Á öðrum degi gat nefndin farið að af- greiða mál og var þá skotið á sýslu- nefndarfundi sem oft stóð ekki nema einn klukkutíma. Páll Hallgrímsson teygði aldrei lopann og í örstuttu máli gat hann dregið saman niðurstöðu sem allir voru sáttir við. Með sinni löngu setu í sýslunefnd hafði hann mótast og þágu aðrir sín mótunaráhrif frá hon- um. Sýslunefndarmenn gátu orðið býsna stuttorðir þegar foringi þeirra var það. Ég man eftir ræðum sýslu- nefndamanna sem voru ekki nema ein málsgrein. Páli Hallgrímssyni þótti mjög mið- ur er Selfosshreppur sleit sig úr sýslunefndinni og gerðist sjálfstætt bæjarfélag 1978. En þokkalegir samningar um eignir náðust um síðir og síðasta skeið sýslunefndar 1978– 1988 var mótað af mikilli einlægni og samheldni hinna „eftirlifandi“. Ég hygg að margir hinna síðustu sýslu- nefndarmanna séu sammála mér um það að mikill almennur lærdómur hafi falist í því að starfa með Páli Hallgrímssyni í sýslunefnd, slík var þekking hans og mannviska, byggð á áratuga starfsreynslu. Sjálfur sagði hann mér að ferill sinn hefði verið „svo órómantískur sem hægt er“. Það segist með öðrum orðum að hann var gæfusamur friðarhöfðingi. Ég votta konu hans, Svövu og dóttur hans, Drífu og fjölskyldu, einlæga virðingu og kveð einn ágætasta mann sem ég hefi fyrir hitt. Páll Lýðsson. Með örfáum orðum vill undirritað- ur minnast Páls Hallgrímssonar fyrrverandi sýslumanns í Árnes- sýslu, en með honum er genginn síð- asti konungsskipaði embættismaður á Íslandi. Aðrir rekja sögu hans. Fyr- ir okkur sem alin vorum upp í Árnes- sýslu á sjöunda áratugnum var sýslu- maðurinn aðeins einn og hafði setið lengi í friði við menn og málefni. Þessi hógværi og íhuguli maður var héraðshöfðingi og kom að mörgum málum sem oddviti sýslunefndar og ævinlega til góðs. Margar sögur voru sagðar af Páli. Þeim var sammerkt að lýsa manni sem hugsaði á heimspeki- legan hátt. Það var aðall Páls að geta litið aðstæður, menn og málefni frá öðrum sjónarhóli en flest okkar hinna. Kímnin var aldrei langt und- an. Um það leyti er undirritaður var að ljúka laganámi og leitaði sér vinnu bað hann föður sinn að athuga hvort laust væri rúm hjá Páli. Skömmu síð- ar var gengið eftir málalokum. Páll hafði spurt föður minn að því hvort sonurinn kynni að skrifa og hafði fengið jáyrði við því og að hann kynni að lesa líka. ,,Segðu honum að koma þegar hann er tilbúinn.“ Þetta var byrjunin á samstarfi sýslumanns og fulltrúa sem stóð til þess dags er Páll lét af störfum fyrir aldurs sakir, ríf- lega fjórum árum seinna. Af því lærði undirritaður margt, ekki sízt að lögin svara ekki öllum spurningum og þá reynir á þann sem leysa skal vand- ann. Það kom fljótt í ljós að um var að ræða hálft starf, ,,en hafðu ekki áhyggjur, rúmur helmingur lifir þessa árs og hálft næsta.“ Þegar fulltrúinn ungi fór að hafa áhyggjur af framtíðinni eftir tæpt ár í starfi var svarið þetta: ,,Ég spurði þá í ráðu- neytinu hvort skera ætti manninn langsum eða þversum.“ Páll bjó á efri hæð hússins er enn geymir skrifstofur sýslumanns Ár- nesinga. Oft sinnti hann ýmsum verkum um helgar, eins og ávallt með virðingu og hógværð. Mér var það lærdómsríkt að fylgja Páli á uppboð og við aðrar embættisgerðir, sem hann rækti af vandvirkni og hafði ávallt lag á því að allt færi vel miðað við aðstæður. Ómetanlegt var að fá tækifæri til þess að fylgjast með slík- um embættismanni. En kynnin og sá velvilji sem ávallt kom fram gagnvart ungum fulltrúa og það hve þétt hann stóð við bakið á honum þegar á reyndi væri efni í miklu lengra mál. Sannfæring mín var og er að fólk yrði ríkara af kynnum við Pál og fyrir þau er undirritaður afar þakklátur. Við Þórdís sendum Svövu, Drífu, Gesti og barnabörnum innilegar samúðar- kveðjur er við kveðjum mætan emb- ættismann en framar öllu góðan dreng. Ólafur Helgi Kjartansson, sýslumaður Árnesinga. Blað mitt blettast ekki tárum, þeg- ar eg skrifa um Pál Hallgrímsson, vin minn. Minning mín um hann er ekki blandin leiða, heldur er mynd af björtum dögum, athöfnum og ótal viðburðum. Saga okkar á Selfossi var um tíma samtvinnuð. Þegar við hjónin, Sigríður Frið- riksdóttir og börnin þrjú komum til Selfoss haustið 1968, vorum við hálf sænsk eftir áratugar dvöl í Svíaríki. Við komum frá háþróuðu velferðar- og iðnríki, sem stóð í blóma. Vorum við öll ókunnug þarna á Ölfusárbökk- um, þar sem Selfossbær stendur í dag og breiðir sig yfir lendur Flóans. Eins var um Suðurland allt nema nokkuð þekktum við Sigríður til Vestur-Skaftafellssýslu enda dvalist um tíma á Kirkjubæjarklaustri. Það er ekki ástæða til þess að lýsa þeim mun, sem var á sænsku og ís- lensku þjóðfélagi á þessum árum. Það veit sá einn sem reynt hefur. Ekki liðu margar vikur eftir kom- una til Selfoss, að eg fann að þar átti eg Hauk í horni. Allir tóku okkur vel eða létu af- skiptalaus. Kauptúnið var að stækka, losaði tvö þúsund íbúa. Seinna vissi eg, að það var ekki mín vegna, heldur föðurbróður míns, Lúðvíks Nordal Davíðssonar, sem Páll sýndi mér hlýju og vinarþel strax við fyrstu kynni. Okkar samband þróaðist svo í lífi og leik. Við bjuggum lengi í hinum opinberu embættisbústöðum staðar- ins, Hörðuvöllum eitt og tvö. Það var því aðeins yfir hlaðið að fara. Eg kom oft til Páls á fyrstu árum mínum á Selfossi en þá bjó Páll einn. Hann var yfirleitt feginn komu minni. Eg tel mig hafa þekkt hann eins og hægt var, en hann var dulur og fjarri því að vera mannblendinn. Við unnum saman í byggingar- nefnd Sjúkrahúss Suðurlands frá árinu 1971 og allt þar til hann lét af formennsku í nefndinni 1983. Sú nefndarvinna var löng og ströng. Páll taldi réttilega að hér væri um nýja stofnun að ræða en margir þeir sem störfuðu við gamla Sjúkrahúsið á Selfossi, töldu það ekki. Í dag væri öllum mönnum þetta augljóst mál. Páll var löglærður og vissi betur enda vildi hann standa rétt að öllum málum. Hann var vand- virkur. Eg minnist á þetta mál, þar sem af því spunnust óþarfa deilur, sem óbeint tafði fyrir byggingu sjúkrahússins. Páll hafði raun af þessu máli. Mikil hreppapólitík ríkti á áttunda tug síðustu aldar á Suðurlandi. Því hljóðari sem sveitarstjórnarmenn- irnir voru, þeim mun þroskaðri reyndust þeir. Það þurfti sterkan mann til að stýra Sjúkrahúsi Suðurlands í höfn. Til þess var Páll Hallgrímsson kjör- inn maður. Árið 1978 sækir Selfosshreppur um þákölluð kaupstaðarréttindi en þá varð bærinn á öðru stigi sjórnsýsl- unnar eins og sýslan. Að fengnum þessum réttindum klauf Selfosshreppur sig frá Árnes- sýslu. Þessum breytingum var Páll and- vígur. Hann vildi halda sýslunni sam- an. Yrði Selfosshreppur að kaupstað bættist fjöður í hatt Páls og yrði hann þá, og varð, bæjarfógeti og sýslumað- ur. Aðspurður um það hvort honum líkaði ekki vegtyllan. Lénharði fógeta vegnaði illa á Suð- urlandi. Páll vann verk sín af vandvirkni og kunnáttu. Hann var ekki mál- skrafsmaður en málafylgjumaður. Hann var fróður maður um fornar bókmenntir og vel lesinn. Minnið gott. Eg fór oft í smiðju til hans. Hann var mér góður og hlýr. Eg þakka kynnin. Svövu systur minni sendi eg kveðju mína og dóttur hans og tengdasyni, Drífu og Gesti, og þeirra fjölskyldu. Brynleifur H. Steingrímsson. Minningarkort 535 1825 www.hjarta.is 5351800 Pantanir í síma 562 0200 Á fallegum og notalegum stað á 5. hæð Perlunnar. Aðeins 1.350 kr. á mann. Perlan ERFIDRYKKJUR LEGSTEINAR Englasteinar Helluhrauni 10 220 Hfj. S. 565-2566

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.