Morgunblaðið - 13.12.2005, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. DESEMBER 2005 37
MINNINGAR
Smáauglýsingar 5691100
Bækur
Bækurnar að vestan. Lesendur
góðir. Við minnum á Bækurnar
að vestan. Þær eru að vísu hvorki
stórkostlegar né meiri háttar. Og
þó. Vestfirðingar leyna nú á sér!
Vestfirska forlagið.
Dýrahald
WWW.dyralif.is
Er flutt í stærra og betra húsnæði
í Stórhöfða 15. Full búð af nýjum
vörum. Frábært verð. Láttu sjá
þig. Dýralíf.is, Stórhöfða 15, 110
Rvík, sími 567 7477.
Húgó vantar heimili. Húgó er 2
ára gamall blendingur af Golden
Retriever og Border Collie. Góður
og tekur alltaf vel á móti manni!
Áhugasamir hafa samband í síma
896 7353.
Gæludýrabúr, 50% afsláttur.
Öll fuglabúr, hundabúr, nagdýrabúr,
kattabúr og fiskabúr með 50% af-
slætti. Allar aðrar vörur 30% af-
sláttur. Full búð af nýjum vörum.
Tokyo, Hjallahrauni 4,
Hafnarfirði,
Bengalkettlingar til sölu. Tilbún-
ir 4ra mánaða og eldri, fullbólu-
settir og með ættbók. Upplýsing-
ar í síma 698 4840, 483 4840 og
natthagi@centrum.is. Sjá einnig
www.natthagi.is.
Heilsa
Ath! Ótrúlegt en satt
Ertu með vandamál?
Gaia OXYtarm og Sucobloc sló
strax í gegn í Evrópu. Áttu við
vandamál, meltingarvandamál,
ristilvandamál, of hæga
brennslu, ertu of þung(ur)?
www.leit.is - smelltu á ristil-
vandamál.
✝ Sveinn Guð-mundsson fædd-
ist á Kirkjubóli í
Norðfirði 2. júlí
1923. Hann lést á
Landspítala – há-
skólasjúkrahúsi
miðvikudaginn 7.
desember síðastlið-
inn. Hann var sonur
hjónanna Guð-
mundar Sveinsson-
ar bónda, d. 10. apr-
íl 1970, og Guð-
bjargar Stefaníu
Jónsdóttur, d. 6.
des. 1983. Systir Sveins er Aðal-
björg Sigríður, f. 23. júlí 1921.
Eiginkona Sveins er Ólína
Kristín Jónsdóttir kirkjuorgan-
isti frá Miðhúsum, f. 15. júlí 1931.
Þau eiga fimm börn, þau eru: a)
Jón, f. 15. júlí 1955, unnusta
Inessa Lebedief. b) Guðmundur,
f. 27. apríl 1957, d. 27. sept. 1974.
c) Ingibjörg Erna, f. 19. maí 1960,
maki Bárður Guðmundsson. Börn
hennar Auðun, Jón Daði og
Kristín. d) Þrymur Guðbergur, f.
31. maí 1965, unnusta Hrönn Þor-
steinsdóttir. d) Guðmundur, f. 13.
apríl 1976, maki Kolbrún Hildur
Gunnarsdóttir, sonur þeirra er
Sveinn Óli. Börn hennar eru Val-
gerður Laufey, Sverrir Björn,
Stefán Björn og Alda Björk.
Sveinn stundaði nám við Eiða-
skóla og var búfræðingur frá
Bændaskólanum á Hvanneyri og
búfræðikandídat
frá Hvanneyri 1954.
Hann stundaði síð-
ar nám við Kenn-
araskóla Íslands
1974. Einnig var
hann í Noregi í
hálft ár þar sem
hann stundaði nám
vegna kristnifræði-
kennslu. Sveinn
stundaði barna-
kennslu og verslun-
arstörf um árabil
og var um tíma
nautgriparáðu-
nautur hjá Búnaðarsambandi
Borgarfjarðar. Hann var bóndi
og jafnframt kennari á Miðhús-
um í Reykhólasveit frá árinu
1955. Hann hætti kennslu fyrir
aldurs sakir árið 1993 og lét af
búskap 1995. Þau hjónin bjuggu
áfram á Miðhúsum um skeið en
fluttu til Reykjavíkur fyrir fáein-
um árum.
Sveinn tók virkan þátt í fé-
lagsmálum og vann ýmis trúnað-
arstörf fyrir sveit sína og í fé-
lagasamtökum bænda. Sveinn
gerðist fréttaritari Morgunblaðs-
ins í Reykhólasveit á árinu 1955
og sinnti því starfi alla tíð, á með-
an hann bjó í þar. Hann var heið-
ursfélagi Okkar manna, félags
fréttaritara Morgunblaðsins.
Sveinn verður jarðsunginn frá
Fossvogskirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 13.
Þegar komið er að kveðjustund
hrannast upp ótal minningar.
Í barnsminninu var alltaf sólskin
og mikið við að vera.
Þú safnaðir steinum, ræktaðir fal-
legan garð og vaktir áhuga manns á
umhverfinu.
Þú varst framsýnn og hafðir
áhuga á að gera samfélag þitt betra.
Vannst að svo mörgu sem kom sveit-
arfélaginu vel. Til dæmis væru Þör-
ungaverksmiðjan og elliheimilið
Barmahlíð ekki til komin nema
vegna ótal ferða þinna til Reykjavík-
ur á fundi með ráðamönnum til að
byggðin þarna fyrir vestan færi ekki
í eyði og hægt væri að skapa ný
störf.
Í eðli þínu varstu brautryðjandi.
Þú hafðir gaman af nýjungum og við
fundum aldrei fyrir því að þér fynd-
ist ekki taka því að kynnast ein-
hverju nýju. Þú hafðir einstaklega
gaman af að kenna og læra og sagðir
mér að þegar að því kæmi að kenn-
arinn missti áhugann á að læra þá
ætti hann að hætta að kenna. Elsti
sonur minn var svo heppinn að njóta
þess að vera mikið hjá ykkur. Frá
fjögurra ára aldri fór hann í sveitina
til ykkar mömmu og þið voruð hon-
um afar góð. Þú fylgdist vel með
barnabörnunum og spurðir alltaf um
þau.
Ég þakka þér fyrir allt sem ég
fékk í veganesti frá þér. Hvíl í friði.
Þín dóttir,
Ingibjörg.
Elsku pabbi minn. Á lokastund er
mér efst í huga hve gjöfull þú varst á
ráð og stuðning. Þú varst ekki
kannski alltaf sammála, en studdir
samt og gafst ráð, sem voru meira
virði en allt. Ég þakka þér þá náð-
argjöf þína að geta brosað og allt
virtist svo gott. Það var svo mikils
virði þegar ég sté mín fyrstu spor í
áttina út í heiminn til að fóta mig. Ég
gat ávallt leitað til þín og minning
um yndislegan föður mun ávallt lifa.
Þinn sonur,
Guðmundur Sveinsson.
Mín minning um þig verður ávallt
um hve glaðlegur þú varst.
Ávallt brosmildur, en ákveðinn.
Hlýjan sem frá þér streymdi var
svo notaleg og ég mun sakna þess.
Þegar litli Sveinn Óli Guðmundsson,
sonur minn, fæddist, barnabarn þitt
og nafni, þá varst þú svo glaður og
hrifinn. Ávallt svo þolinmóður við lít-
inn dreng sem er svo kröftugur og
vinnusamur, það sagði svo margt um
þig.
Þú þreyttist aldrei á að ræða um
þekkingu, kennsluna sem þú stund-
aðir af svo mikilli natni og þekkingu
þína á náttúrunni, en ég veit að þú
safnaðir steinum af natni, því mikil
var þekking þín á auðæfum sem
náttúran gaf og virðing fyrir þeim.
Elsku Sveinn, við þökkum þér
samfylgdina og fróðleikinn sem þú
gafst óspart. Þú verður í huga mér
og minna barna ávallt sem hlýr og
notalegur maður sem gaf þekkingu
sína óspart. Bros þitt, hlýja og glað-
legheit verða minning okkar um þig.
Kær kveðja
Kolbrún Hildur Gunn-
arsdóttir og börn.
Elsku Afi. Við þökkum þér fyrir
allar góðu minningarnar sem þú
gafst okkur systkinunum. Þú varst
alltaf svo góður við okkur. Vildir
okkur svo vel og gafst okkur svo
mikið. Það var svo gaman að kíkja til
ykkar ömmu í heimsókn. Þú verður
ávallt í minningum okkar og við
söknum þín. Okkur finnst það mjög
leiðinlegt að börnin okkar munu ekki
fá að kynnast þér og finna hversu
góður og skemmtilegur maður þú
varst. Við vonum að þú fylgist áfram
með okkur og getir verið stoltur af
okkur. Guð geymi þig og minningu
þína.
Auðun, Jón Daði og
Kristín.
Elsku afi minn. Ég vil fyrst þakka
þér svo mikla hlýju og kærleik sem
þú hafðir alltaf til reiðu, þrátt fyrir
veikindi þín. Alltaf varstu jákvæður
og brosandi við mér, þótt ég hafi á
mínum fimm árum verið frekar dug-
legur drengur og kraftmikill. Ég
hefði getað lært svo mikið af þér
hvað varðar náttúruna, sem við höf-
um átt sameiginlegan áhuga á. Þú
vissir svo mikið um slíkt, en ég hef
alveg frá byrjun verið mikill náttúru-
kall, eflaust hef ég það frá þér, það
segja allir.
Bros þitt, afi, og hlýja, verður
minning okkar um þig, yndislegt
heimili ykkar ömmu og afa í Heið-
argerði og söknuður því þú verður
ekki þar til að segja: „Sæll Sveinn
Óli, komdu til afa.“ En minningin um
þig og þitt bros verður ávallt lifandi
þar, því þú markaðir spor þín þar.
Nú er komið að kveðjustund elsku
afi. Við söknum þín öll og munum þig
ávallt.
Þinn
Sveinn Óli Guðmundsson
og fjölskylda.
Okkur langar að þakka Sveini fyr-
ir svo mikla hlýju okkur systkinum
til handa. Þann tíma sem við höfum
þekkt þau Ólínu og Svein hafa hlýja,
gestrisni og brosmildi verið svo
ríkjandi í þeirra fari. Að fara í Heið-
argerðið var alltaf vissa um yndis-
legar móttökur og hlýju sem Sveinn
og Ólína voru svo natin við. Minning
þín mun lifa skært í okkar huga,
elsku Sveinn,
Valgerður Laufey Þráinsdóttir,
Kolbrún Camilla Jónsdóttir,
Sverrir Björn Þráinsson, Stefán
Björn Aðalsteinsson og Alda
Björk Aðalsteinsdóttir.
Blessað veri grasið
sem grær kringum húsin
bóndans og les mér
ljóð hans,
þrá og sigur
hins þögula manns.
(Snorri Hjartarson.)
Sveinn Guðmundsson móðurbróð-
ir minn ólst upp á Kirkjubóli í Norð-
firði við öll algeng sveitastörf en
stundaði síðan búfræðinám við
bændaskólann á Hvanneyri. Hann
kvæntist Ólínu Jónsdóttur frá Mið-
húsum í Reykhólasveit árið 1955 og
þau bjuggu þar myndarbúi um langt
skeið. Í barnsminni mínu eru eftir-
minnilegar heimsóknir að Miðhúsum
en þar fóru saman höfðinglegar mót-
tökur og ævintýraleg náttúra, æðar-
fugl á hreiðri, selur í sjó og stundum
sást haförn á flugi.
En bústangið var frænda mínum
ekki nóg. Hann aflaði sér frekari
menntunar og stundaði kennslu um
árabil. Sem kennari opnaði Sveinn
myndabók náttúrunnar fyrir mörg-
um og hann var einnig frábær ís-
lenskumaður. Landið, náttúran,
tungan og bókmenntirnar mynduðu
hjá honum órofa heild sem hvíldi á
traustum grunni.
Kennslustörfin áttu vel við Svein
enda átti hann afar auðvelt með að
ná til barna og unglinga. Fyrir
tveimur áratugum lágu leiðir okkar
saman í Reykhólaskóla þar sem
hann kenndi bæði líffræði og ís-
lensku og var sérlega vel liðinn af
nemendum og samstarfsfólki. Hann
var glaðsinna og mikið ljúfmenni í
öllum samskiptum.
Í fyllingu tímans brugðu Sveinn
og Ólína búi á Miðhúsum. Þau fluttu
suður til Reykjavíkur, í húsið við
Heiðargerði sem afi og amma reistu
á sínum tíma og þar bjó Sveinn síð-
ustu æviár sín.
Langri vegferð Sveins Guðmunds-
sonar lýkur þegar skammdegið er
sem svartast og grös og jurtir liggja í
dvala. En sól mun aftur hækka á lofti
og náttúran kvikna til lífsins á nýjan
leik. Og ljúfar minningar um góðan
dreng munu lifa.
Blessað veri grasið
sem grær yfir leiðin,
felur hina dánu
friði og von.
Bjarki Bjarnason.
SVEINN
GUÐMUNDSSON
FRÉTTIR
FYRIR jólin mun BYKO bjóða til
sölu rauða innkaupapoka til styrkt-
ar krabbameinssjúkum börnum.
Pokinn verður til sölu í öllum versl-
unum BYKO á 100 kr. Heildar-
upphæðin sem safnast mun renna
óskert til félagsins. Stefnan er sett
á að selja 10.000 poka fyrir jólin,
segir í fréttatilkynningu.
Á myndinni eru Rósa Guðbjarts-
dóttir, framkvæmdastjóri SKB, og
Ívar Sigurjónsson, markaðsstjóri
hjá BYKO, þegar salan fór af stað á
föstudag.
Selja poka til
styrktar krabba-
meinssjúkum
börnum
Morgunblaðið birtir minningargreinar alla útgáfudagana.
Skil Minningargreinar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is
(smellt á reitinn Morgunblaðið í fliparöndinni – þá birtist valkosturinn „Senda
inn minningar/afmæli“ ásamt frekari upplýsingum).
Skilafrestur Ef birta á minningargrein á útfarardegi verður hún að berast fyr-
ir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða
þriðjudegi).
Lengd Minningargreinar séu ekki lengri en 2.000 slög (stafir með bilum -
mælt í Tools/Word Count). Ekki er unnt að senda lengri grein. Hægt er að
senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur.
Minningargreinar
Fimm ferðir virka daga
Sæmundur Sigmundsson sérleyf-
ishafi, sem m.a. hefur annast ferðir
milli Reykjavíkur og Akraness, segir
ekki rétt að í dag sé boðið upp á þrjár
til fjórar ferðir á dag milli Reykja-
víkur og Akraness. Farnar séu fimm
ferðir á dag virka daga.
LEIÐRÉTT
Á NÆSTA ári býður www.ljos-
myndari.is upp á nokkur mismun-
andi ljósmyndanámskeið. Um er að
ræða helgarnámskeið, þriggja
daga námskeið, fjögurra daga nám-
skeið og Photoshopnámskeið, auk
fjarnámskeiða. Námskeiðin henta
þeim sem eru að byrja í ljósmyndun
og vilja ná betri tökum á stafrænu
ljósmyndatækni, auk þeirra sem
vilja auka þekkingu sína á sviði
ljósmyndunar, segir í fréttatilkynn-
ingu.
Hægt er að kaupa gjafabréf á
jólatilboði fram til 18. desember,
með allt að 20 prósenta afslætti.
Námskeiðin kosta frá kr. 9.200 til
18.000 kr. Námskeiðin eru haldin í
Völuteigi 8, í Mosfellsbæ, leiðbein-
andi er Pálmi Guðmundsson.
Nánari upplýsingar á www.ljos-
myndari.is.
Ljósmynda-
námskeið
STOFNUNFUNDUR SVEF, sam-
taka fólks sem vinnur að vefmálum,
verður haldinn á morgun, miðviku-
daginn 14. desember kl. 19.30, í
húsnæði Íslandsbanka að Kirkju-
sandi (gengið inn um aðalinngang).
Markmiðið með stofnun samtak-
anna er að efla íslenskan vefiðnað
og samfélag þeirra sem starfa við
hann, hvetja fólk til að miðla af
þekkingu sinni og vera andlit stétt-
arinnar út á við, segir í frétta-
tilkynningu.
Á fundinum verða stofn-
samþykktir bornar undir fund og
kosið í stjórn samtakanna. Gesta-
fyrirlesari verður Jón Ingi Þor-
valdsson.
Þeir sem ætla að sækja fundinn
eru beðnir að senda póst á svef@s-
vef.is.
Stofnfundur sam-
taka um vefmál
Í STAÐ þess að senda út jólakort og
jólagjafir til viðskiptavina sinna
ákvað Innnes ehf. – heildverslun að
gefa Hjálparstarfi kirkjunnar og
Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur tvö
bretti af Gevalia-kaffi til að deila út
til skjólstæðinga sinna fyrir jólin.
Gevalia-kaffi verður því í hverjum
pakka sem afhentur verður úthlut-
unardagana 16.–22. desember í
Sætúni 8.
Síðasti umsóknardagur hjá
Hjálparstarfi kirkjunnar er í dag,
þriðjudaginn 13. desember, kl. 11–
12 og 14–16.
Á myndinni eru frá vinstri; Að-
alheiður Franzdóttir, fram-
kvæmdastjóri Mæðrastyrksnefndar
Reykjavíkur, Vilborg Oddsdóttir,
félagsráðgjafi Hjálparstarfs kirkj-
unnar og umsjónarmaður innan-
landsaðstoðar, og Páll Hilmarson,
framkvæmdastjóri markaðssviðs
hjá Innnesi.
Innnes gefur
Gevalia-kaffi