Morgunblaðið - 15.12.2005, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 2005 51
Atvinnuauglýsingar
Markaðsdrifinn
vef- og tæknistjóri
Ráðgjafarfyrirtæki sem m.a. starfar á sviði
markaðsmála, ferðaþjónustu og upplýsinga-
tækni óskar eftir kraftmiklum, heiðarlegum
og hugmyndaríkum starfsmanni.
Verkefni innanlands og erlendis.
Nánari upplýsingar um starf og
fyrirtækið á vefsíðum okkar.
www.netid.is www.visitorsguide.is
Fjölbreytt
skrifstofustarf
MS Reykjavík óskar eftir að ráða starfsmann
á aðalskrifstofu félagsins á Bitruhálsi 1.
Leitað er að starfsmanni með verulega reynslu
af bókhaldi, afstemmingum og innheimtu.
Tölvufærni, m.a í Excel, er nauðsynleg. Verk-
efnin lúta einkum að færslu bókhalds, af-
stemmingum og skýrslugerð. Viðkomandi yrði
jafnframt staðgengill aðalféhirðis. Áhersla er
lögð á sjálfstæð og öguð vinnubrögð, góða
framkomu og þjónustulund.
Um fullt starf er að ræða.
Vinnutími er frá kl. 8:30 til 16:15.
Í boði er starf hjá traustu fyrirtæki í góðu um-
hverfi. Æskilegt er að viðkomandi geti byrjað
sem fyrst.
Nánari upplýsingar veitir skrifstofustjóri
í síma 569 2200.
Umsóknarfrestur er til 23. desember nk. og
skulu umsóknir berast til starfsmannastjóra
MS, Bitruhálsi 1, 110 Reykjavík eða á netfangið
starfsmannasvid@ms.is
MS er framleiðslu-, þjónustu- og markaðsfyrirtæki á sviði mjólkur-
framleiðslu sem býður starfsfólki sínu upp á reyklausan vinnustað.
Hjá MS og dótturfyrirtækjum starfa um 400 manns.
í Hveragerði
Upplýsingar
veittar í síma
483 4694 eftir
kl. 14.00
Vinsamlega hafið
samband í síma
569 1440 eða sendið
tölvupóst á
netfangið
bladberi@mbl.is
á eftirtalda staði
Vatnsenda
Austurberg
Teigahverfi Mosfellsbæ
Hraunsholt Garðabæ
Raðauglýsingar 569 1100
Fundir/Mannfagnaðir
Hluthafafundur
Mjólkurfélags Reykjavíkur hf.
Áður boðuðum hluthafafundi Mjólkurfélags
Reykjavíkur hf. sem vera átti þriðjudaginn
20. desember nk. er frestað til föstudagsins
30. desember nk.
Fundurinn verður haldinn á Grand Hotel
Reykjavík og hefst hann kl. 11.00.
Fyrir fundinum liggur tillaga stjórnar um breyt-
ingu á samþykktum félagsins. Lagt er til að
stjórn þess fái heimild til útgáfu nýs hlutafjár
og að ákvæði um forkaupsrétt hluthafa að því
falli niður. Jafnframt að stjórn skipi þrír menn
og einn til vara. Tillögurnar liggja frammi á
skrifstofu félagsins frá og með miðvikudegin-
um 21. desember nk.
Dagskrá fundarins verður sem hér segir:
Tillaga stjórnar um breytingar á samþykktum
félagsins.
Kosning stjórnar.
Önnur mál, löglega upp borin.
Stjórn Mjólkurfélags
Reykjavíkur hf.
Aðalfundur
Vesturgötu 3 ehf.
Aðalfundur Vesturgötu 3 ehf. verður haldinn
þriðjudaginn 27. desember 2005 kl. 17.00 í
Hótel Reykjavík Centrum við Aðalstræti,
Fógetastofu.
Dagskrá fundarins er eftirfarandi:
1. Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt
samþykktum félagsins.
2. Önnur mál.
Stjórnin.
Tilboð/Útboð
ÚU T B O Ð
Útboð nr. 13987
Hjólaskófla fyrir Flugmálastjórn
Íslands
Ríkiskaup, fyrir hönd Flugmálastjórnar Íslands,
kt. 550169-6819, óska eftir tilboðum í eina hjóla-
skóflu, 18-21 tonn að stærð og með a.m.k. 190
hestafla vél.
Hjólaskóflan má vera notuð að 8.000 vinnustund-
um, ekki vera eldri en 8 ára og ekki kosta meira
en 8 milljónir kr. án vsk. Áætlaður árlegur notk-
unartími er aðeins 300 klst.
Útboðsgögn eru til sýnis og sölu á kr. 3.500 hjá
Ríkiskaupum, Borgartúni 7, 105 Reykjavík. Til-
boðin verða opnuð á sama stað hinn 29. desem-
ber 2005 kl. 14:00, að viðstöddum þeim bjóðend-
um sem þess óska
Tilkynningar
Tillaga að breytingu á
sérstöku svæðisskipulagi
fyrir Fljótsdalslínur 3 og 4,
Fljótsdalur - Reyðarfjörður
Skipulagsstofnun auglýsir tillögu Landsnets
að breytingu á Sérstöku svæðisskipulagi fyrir
Fljótsdalslínur 3 og 4, Fljótsdalur - Reyðarfjörð-
ur samkvæmt 15. gr. skipulags- og byggingar-
laga. Í skipulagstillögunni felst að Fljótsdals-
lína 4, þar sem hún liggur um Þórudal, Fljóts-
dalshéraði, er færð nær Brúðardalsfjalli á um
2 km kafla til að draga úr snjóflóðahættu,
minnka rask vegna vegagerðar og minnka áhrif
á landslagsheildir, gróður og fuglalíf.
Skipulagstillagan er til sýnis frá 15. desember
2005 til 12. janúar 2006 hjá Skipulagsstofnun,
Laugavegi 166, Reykjavík, og á skrifstofu
Fljótsdalshéraðs, Lyngási 12, Egilsstöðum.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta
er hér með gefinn kostur á að gera athuga-
semdir við tillöguna. Frestur til þess að skila
inn athugasemdum er til 26. janúar
2006. Athugasemdir skulu vera skriflegar og
berast til Skipulagsstofnunar, Laugavegi 166,
150 Reykjavík.
Bækur
Bækur til sölu
Árbók Fornleifafélagsins 1880-1980, Náttúrufræðingurinn 1.-15.
árg., Rímnasafn Finns Jónssonar 1905, 1.-14. hefti, Íslenskt
bjæjartal 1885, Ódáðahraun 1-3, Torskilin bæjarnöfn 1-4, Jóns-
bók 1904, Vefarinn mikli Kvæðakver, allt óbundið, Bergsætt
1-3, V-Skaftfellingar 1-4, Nokkrar Árnesingaættir, Grágás 1883.
Upplýsingar í síma 898 9475.
Félagslíf
I.O.O.F. 11 18612158½ M.A.*
Ljósheimar - andleg miðstöð,
Brautarholti 8
Viltu gefa gjöf sem nærir?
Í verslun Ljósheima er úrval af
fallegum vörum fyrir líkama,
huga og sál. Í desember er opið
virka daga kl. 14-18 og laugar-
daga 13-18. Mikið úrval af nýjum
fallegum vörum.
Hjartanlega velkomin!
I.O.O.F. 5 18612158 Jv
Almenn samkoma í Þríbúðum.
Hverfisgötu 42 kl. 20:00.
Mikill söngur og vitnisburður.
Predikun sr. Karl V. Matthíasson.
Allir hjartanlega velkomnir.
www.samhjalp.is.
Jólabókamarkaður Ferðafé-
lagsins – jólagjöfin í ár.
Fjölmargir titlar um ferðir og
ferðalög, útiveru og náttúru-
landsins. Árbækur FÍ, fræðslurit,
kort og fleira. Gjafakort Ferðafé-
lagsins einnig fáanleg á skrif-
stofu.
Verið velkomin.
Ferðafélag Íslands.
Atvinnuauglýsingar
augl@mbl.is