Morgunblaðið - 15.12.2005, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 2005 25
MINNSTAÐUR
AKUREYRI
BÆJARSTJÓRN samþykkti á fundi sínum í
vikunni með 9 atkvæðum gegn einu, tillögu
umhverfisráðs, þ.e. að tillaga að endurskoðuðu
Aðalskipulagi Akureyrar 2005–2018 verði send
Skipulagsstofnun til athugunar og síðan aug-
lýst samkvæmt skipulags- og byggingarlögum.
Oddur Helgi Halldórsson, bæjarfulltrúi L-
lista, greiddi atkvæði gegn tillögunni. Bæjar-
fulltrúar Framsóknarflokks, þau Jóhannes G.
Bjarnason, Jakob Björnsson og Gerður Jóns-
dóttir, samþykktu tillöguna en lögðu fram svo-
hljóðandi bókun. „Í ljósi þeirrar tillögu að Að-
alskipulagi Akureyrar til ársins 2018, sem nú
er til umfjöllunar, gerum við allan fyrirvara að
breyttri landnotkun Akureyrarvallar.“
Jakob Björnsson sagði að innan síns flokks
væru mjög skiptar skoðanir varðandi Akur-
eyrarvöll, hvort völlurinn eigi að vera eða fara
og þá hvert hann eigi að fara. „Þetta á allt eftir
að ræða í skipulagsferlinu og það kemur þá í
ljós hvort þessi tillaga stendur að þarna verði
lögur stýrihópsins. „Hins vegar hef ég séð út-
færslur á byggingu stórmarkaðar á svæðinu
sem eru alls ekki slæmar. Málið er því alls ekki
til lykta leitt en það var ómögulegt verða við
umsókn Þyrpingar á þessu stigi. Þarna er
íþróttavöllur samkvæmt skipulagi, auk þess
sem ég vissi af hugmyndum stýrihópsins, sem
nú eru komnar fram, að verslunarhúsnæði á
miðbæjarsvæðinu yrði byggt á öðrum reitum.“
Oddur Helgi sagðist hafa greitt atkvæði
gegn tillögunni, þar sem hann væri ósáttur við
margt sem þar kemur fram. Hann hefði viljað
sjá tillöguna betur unna og að nokkuð væri um
ósamræmi í henni. Oddur sagðist hafa verið
því frekar fylgjandi að Akureyrarvöllur yrði á
sínum stað. „Ef völlurinn fer, þarf að finna
honum annan stað og þá vil ég gera eitthvað al-
mennilegt við svæðið.“
Oddur sagði að stýrihópurinn hefði tekið sér
hálft ár til að leggja fram tillögu að miðbæj-
arskipulaginu og hana eigi að berja í gegnum
bæjarkerfið á hálfum mánuði. „Mér finnst það
of skammur tími og að ekki hafi farið fram
næg umræða um málið.“
ekki lengur íþróttavöllur. Við erum ekkert
endilega sannfærð um að það sé rétt að völl-
urinn fari. Það liggur fyrir að halda landsmót
2009 og ljóst að byggja þarf upp frjálsíþrótta-
aðstöðu.
Málið ekki til lykta leitt
Vinnuhópur sem skipaður var vegna lands-
móts skilaði af sér fyrir um ári og hann benti á
Akureyrarvöll sem fyrsta kost og Þórssvæðið
var svo nefnt sem næsti kostur,“ sagði Jakob.
Hann sagði að einnig þyrfti að huga að að-
stæðum varðandi keppni í efstu deild í knatt-
spyrnu. Fram væru komnar auknar kröfur
sem menn hafi verið að uppfylla annars staðar.
Í tillögum stýrihópsins vegna verkefnisins
Akureyri í öndvegi og í tillögu að breyttu að-
alskipulagi, er gert ráð fyrir að Akureyrarvöll-
ur verði lagður af og að á svæðinu verði blönd-
uð landnotkun íbúðarbyggðar og útivistar-
svæðis. Hins vegar hafa Hagar og Þyrping
leitað eftir lóð á Akureyrarvallarsvæðinu fyrir
verslunarhúsnæði.
Jakob sagðist hafa verið hallari undir til-
Tillaga að aðalskipulagi Akureyrar 2005–2018 samþykkt í bæjarstjórn
Fyrirvari framsóknarmanna um
breytta notkun Akureyrarvallar
Eftir Kristján Kristjánsson
krkr@mbl.is
FÉLAGSVÍSINDA- og lagadeild og Símennt-
un Háskólans á Akureyri hafa tekið við veg-
legri bókagjöf frá Arngrími Jóhannssyni
flugstjóra. Um var að ræða 360 eintök af
kennslubókum í kínversku. Bækurnar verða
notaðar í kínverskunámskeiði sem hefst á
vegum Símenntunar HA í janúar næstkom-
andi. Þar sem Arngrímur ætlar sjálfur að
taka þátt í námskeiðinu vildi hann tryggja að
viðeigandi kennslugögn væru fyrir hendi.
Hann keypti bækurnar því í Beijing, flaug
síðan sjálfur með þær til Xiamen í S-Kína,
Kuala Lumpur, Dubai, Amsterdam, Keflavík-
ur, Akureyrar og ók þeim síðasta spölinn á
eigin pallbíl upp í Háskólann á Akureyri á
Sólborg.
Vegleg gjöf Arngrímur afhendir Ruan Yong-
mei, sendikennara í kínversku frá Ningbo-
háskóla, kennslubækurnar.
Með bækurnar
alla leið
MARKVISST er unnið að því að flytja alla
starfsemi Háskólans á Akureyri á háskóla-
svæðið við Sólborg og er hönnun á um 2000
fermerta viðbyggingu fyrir kennslu nú nán-
ast lokið. Verði hún að veruleika segir Þor-
steinn Gunnarsson rektor að líkur á því að
kennaradeild geti flust á háskólasvæðið auk-
ist verulega, en raunhæft sé að stefna að því
að það takist fyrir árið 2010.
Á ársfundi Háskólans á Akureyri í gær
gat rektor þess að háskólinn hefði ásamt
á sviði orkumála. Til skoðunar er að sér-
stakur skóli sem miðað að eins árs Msc.
námi í endurnýtanlegum orkugjöfum, en
verkefnið er unnið í samstarfi við auðlinda-
deild.
Þá þarf að stækka svæðið í aðalskipulagi
auk þess að ráðast í vinnu við framtíðar-
deiliskipulag fyrir allt háskólasvæðið. Innan
félagsins er einnig áhugi fyrir að eiga kaup-
rétt að húsnæði Borga, rannsóknahúss há-
skólans, eftir ákveðinn tíma, 25–30 ár.
helstu samstarfsaðilum sínum stofnað einka-
hlutafélagið Þekkingarvörður, en því er ætl-
að að byggja upp þekkingarþorp við háskól-
ann. Þar er ætlunin að saman komi háskóla-
og rannsóknastofnanir ásamt þekkingarfyr-
irtækjum til að sinna öflun, miðlun og hag-
nýtingu þekkingar. Félagið mun í samstarfi
við Akureyrarbæ beita sér fyrir gerð deili-
skipulags fyrir háskólasvæðið.
Fyrsta þróunarverkefni félagsins verður
að byggja upp orkugarða og styrkja skólann
Byggja upp orkugarða við háskólann