Morgunblaðið - 15.12.2005, Blaðsíða 6
6 FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
1
Me
tsö
lu
29
Æ
5
Me
tsö
luli
sti
Mb
29
11
a lar bæ
k
HEILLANDI ÆVISAGA
Auður Eir
og Edda Andrésdóttir
„... lífleg og fróðleg frásögn ... ætti að bæta margan manninn.“
—Sigríður Albertsdóttir, DV
„Skyldulesning.“ —Hemmi Gunn, Íslandi í bítið.
„...mjög vel lukkuð. ... lesandinn fær jafnvel stundum á tilfinning-
una að hann sé viðstaddur fund kvennanna tveggja, svo lifandi
er frásögnin. .... heillandi lýsing á horfnum heimi. ... Auður Eir er
frumkvöðull og fyrirmynd sem gaman er að kynnast í gegnum
vandaða bók þeirra Eddu Andrésdóttur.“ – Soffía Auður Birgisdóttir, Morgunblaðinu
YFIRTÖKUNEFND komst að
þeirri niðurstöðu snemma í gær-
morgun að Baugi Group hefði verið
skylt að gera yfirtökutilboð til ann-
arra hluthafa í FL Group. Tekið
skal fram að samkvæmt ákvæði
laga hvílir tilboðsskylda á þeim að-
ila sem eykur við hlut sinn þannig
að 40% eignarhlut sé náð og það
þarf því ekki endilega að vera
stærsti hluthafinn.
Strax í kjölfar birtingar á niður-
stöðu yfirtökunefndarinnar bárust
tilkynningar til Kauphallar Íslands
um að Oddaflug og Baugur hefðu
selt af hlutafé sínu í FL Group til
ótengdra aðila og að eftir þau við-
skipti væri sameiginlegur hlutur
þeirra undir 40% af hlutafé í félag-
inu. Sendi yfirtökunefnd þá frá sér
yfirlýsingu þar sem hún sagðist
líta svo á að skylda til að gera yf-
irtökutilboð væri ekki lengur fyrir
hendi.
Á þriðjudaginn hafði nefndin
gert þeim, sem málið varðaði,
grein fyrir álitinu í samræmi við
starfsreglur hennar.
Landsbanki kaupandi
Fljótlega í gær kom í ljós að
kaupandi að 5% hlut Baugs og 5%
hlut Oddaflugs í FL Group var
Landsbanki Íslands og að samhliða
þeim viðskiptum hefðu bæði Baug-
ur og Oddaflug gert afleiðusamn-
inga við Landsbankann sem fela í
sér að félögin bera bæði fjárhags-
lega áhættu og njóta fjárhagslegs
ávinnings af umræddum hlutabréf-
um. Í viðskiptunum var miðað við
lokagengi bréfa í FL Group á
þriðjudaginn eða 17,5.
Gunnar Viðar, forstöðumaður
lögfræðiráðgjafar Landsbankans,
staðfestir að atkvæðisréttur bréf-
anna sé hjá Landsbankanum en yf-
irtökunefndin miðar einmitt við at-
kvæðisrétt þegar hún tekur
afstöðu til þess hvort yfirtöku-
skylda hafi myndast eða ekki.
Í hálffimmfréttum Kaupþings
banka í gær er bent á að með um-
ræddum samningum við Lands-
bankann megi segja að félögin hafi
gert framvirkan samning og kom-
ist hjá yfirtökuskyldu án þess að
fórna hugsanlegum ávinningi af
hækkun bréfanna eða dreifa eign-
araðild til almennra fjárfesta.
„Í ljósi þessa má velta fyrir sér
stöðu Landsbankans í FL Group.
Bankinn fer nú með töluverðan
hluta atkvæðisréttar í félaginu, en
spyrja má hvort forsvarsmenn
hans hafi áhuga á því að hafa slík
áhrif. Í framhaldi af því má velta
upp þeirri spurningu hvort það at-
kvæðamagn sem skipti um hendur
í morgun sé nú orðið óvirkt,“ segir
í hálffimmfréttum.
Þá er bent á að eignarhlutur
Landsbankans eftir viðskiptin sé
11,73%, en þar af eru séu 10% til
varnar þeim afleiðusamningum
sem gerðir hafi verið en ekki komi
fram í tilkynningu til hversu langs
tíma þessir „afleiðusamningar“
séu.
Þá er bent á að umræddir „af-
leiðusamningar“ hljóti að setja yf-
irtökunefndina í vanda.
„Það liggur í hlutarins eðli að
fyrst hægt er að hanna samninga
með þessum hætti til að komast
hjá yfirtökuskyldu verða úrræði
nefndarinnar að teljast bitlítil. Að
vísu er það svo að í þessu tiltekna
máli verður að teljast mjög ólíklegt
að hluthafar FL Group hefðu viljað
taka yfirtökutilboði í félagið í ljósi
mikils áhuga á nýafstöðnu hluta-
fjárútboði félagsins. Hins vegar má
til dæmis velta því fyrir sér í hvaða
stöðu Landsbankinn væri ef kosið
yrði á aðalfundi félagsins, er lík-
legt að bankinn mundi kjósa gegn
viðskiptavinum sínum? Er það
jafnframt heppilegt fyrir aðra hlut-
hafa félagsins að banki fari með
10% atkvæðisréttar án þess að
bera neina fjárhagslega áhættu af
bréfunum? Niðurstaða yfirtöku-
nefndar í dag skilur eftir fleiri
spurningar en hún svarar,“ segir í
hálffimmfréttum Kaupþings banka.
Leið sem hentar öllum
Skarphéðinn Berg Steinarsson,
stjórnarformaður FL Group, segir
yfirtökunefndina hafi látið þá vita,
sem málið varðaði, á þriðjudaginn.
„Við fengum að vita þetta í gær
[fyrradag] og fórum yfir málið og
það var ákveðið að bregðast við
með þessum hætti.“
Aðspurður segir Skarphéðinn að
menn hafi farið mjög vandlega yfir
málið, m.a. með lögfræðingum, áð-
ur en ákvörðun var tekin að selja
hluti í FL Group þótt tíminn hafi
verið naumur. „Okkar niðurstaða
varð sú að gera þetta með þessum
hætti. Kauphöllin er að byggjast
upp og yfirtökunefndin er hluti af
því ferli og við vildum ekki standa í
þrefi við einn né neinn í þessu máli
þar sem það var til leið út úr þessu
sem hentaði öllum. Bæði við og
hluthafar FL Group almennt vilja
að félagið sé skráð á markaði.“
Starfar ekki í samvinnu við
opinberar eftirlitsstofnanir
Viðar Már Matthíasson, formað-
ur yfirtökunefndar, segir nefndina
ekki í sjálfu sér starfa í samvinnu
við opinberar eftirlitsstofnanir,
nefndin hafi verið sett á fót með
samningi stofnaðila, sem séu fjár-
festinga- og markaðsaðilar. „Þegar
við höfum athugað mál þá sendum
við okkar álit til þeirra sem hafa
hagsmuni að gæta sólarhring áður
til að þeir geti komið með athuga-
semdir. Við eigum að gera það
samkvæmt starfsreglum okkar.
Það er sem sé á þessum sólarhring
sem þeir sjálfsagt undirbúa þessar
breytingar,“ segir Viðar Már.
Hann segir nefndina ekki hafa nein
lagaúrræði til þess að þvinga aðila
til að fara að áliti hennar, Fjár-
málaeftirlitið sé hinn opinberi eft-
irlitsaðili sem ráði yfir þvingunar-
úrræðum en það taki sjálfstæða
ákvörðun um það hvort þeir vilja
skoða mál eða ekki.
Samið um skiptingu
Niðurstaða yfirtökunefndar,
byggðist á því áliti hennar að ekki
hefði verið unnt að líta öðruvísi á
en að skipting hlutafjár við hluta-
fjáraukningu í FL Group, sem
kynnt var í nóvember, hefði verið
gerð með samkomulagi og að þar
með hafi Oddaflug og Baugur Gro-
up samið um skiptingu hlutafjár
sín á milli. Tekið er sérstaklega
fram að þar sem sameiginlegur
hlutur Oddaflugs annars vegar og
Icon ehf. og Materia Invest ehf.
hins vegar hafi ekki náð 40% marki
laganna og sameiginlegur hlutur
tveggja síðast greindu félaganna
og Baugs Group hafi heldur ekki
náð þessu marki hafi nefndin ekki
talið ástæðu til að athuga hugs-
anlegt samstarf eða tengsl þessara
aðila.
Aftur á móti taldi yfirtökunefnd
að upplýsingar frá FL Group og
Baugi Group þessa efnis að ástæð-
ur skiptingar hlutafjárins hefðu al-
farið ráðist af fjárhagslegum styrk
félaganna ekki hafa ráðið úrslitum
í málinu.
Þá sagði nefndin að einnig bæri
að hafa í huga að þegar á hefði
reynt hefði reynst vera mikil um-
frameftirspurn eftir hlutafé í FL
Group eða um 320% miðað við þá
átta milljarða sem í boði hefðu ver-
ið.
Yfirtökunefnd taldi að ekki hefði
heldur verið unnt að líta framhjá
því að á þeim tíma, sem máli skipti,
hefðu tveir fulltrúar Baugs verið í
stjórn FL Group með eiganda
Oddaflugs, sem hefði verið formað-
ur stjórnar. Hafi samstarf þeirra
m.a. um hlutafjáraukningu því
óhjákvæmilega verið náið. Hið
sama eigi við eftir 1. nóvember
2005, en þá hafi fyrrverandi stjórn-
arformaður verið orðinn forstjóri
félagsins, en annar fulltrúa Baugs
Group hf. í stjórn orðinn formaður
hennar.
Taldi félögin hafa
samið um skipt-
ingu hlutafjár
Oddaflug og Baugur selja 10% hlut í FL Group til
Landsbanka Íslands í kjölfar álits yfirtökunefndar
Morgunblaðið/Árni Sæberg
LAUNANEFND sveitarfélaganna
fjallaði á fundi í gær um erindi Fé-
lags leikskólakennara (FL) og Fé-
lags grunnskólakennara (FG) þess
efnis að kjarasamningar félaganna
verði endurskoðaðir í ljósi nýrra
samninga sem Reykjavíkurborg
hefur gert við Starfsmannafélag
borgarinnar og Eflingu. Var erindi
FL vísað til samstarfsnefndar en
erindi FG hafnað, að sögn Gunnars
Rafns Sigurbjörnssonar, formanns
launanefndarinnar. Nefndin hefur
ákveðið að boða til sérstakrar
launamálaráðstefnu í janúar.
Gunnar Rafn segir að þótt endur-
skoðunarákvæði séu í kjarasamn-
ingum leik- og grunnskólakennara,
sé ekkert í samningunum um að
taka eigi þá upp ef önnur félög gera
öðruvísi samninga.
Hann segir að bókað hafi verið á
fundinum að erindi leikskólakenn-
ara verði tekið fyrir í samstarfs-
nefnd launanefndarinnar og FL.
Segist hann gera ráð fyrir að sá
fundur fari fram fljótlega. Erindi
FL um endurskoðun kjarasamning-
anna byggðist á svokallaðri bókun 1
í kjarasamningi félagsins, en launa-
nefndin ályktaði á fundinum að
túlkun FL á bók-
uninni væri mun
víðtækari en hún
segði í raun til
um. „Við teljum
að Félag leik-
skólakennara of-
túlki bókunina og
að ekki felist í
henni heimild til
þess að taka upp
kjarasamn-
ingana,“ segir Gunnar Rafn. Hann
bætir við að málin verði hins vegar
rædd á eðlilegum vettvangi, þ.e. í
samstarfsnefndinni.
Efnt til launamálaráðstefnu
Gunnar Rafn segir að erindi
grunnskólakennara hafi verið hafn-
að á fundi nefndarinnar. „Það var
gert á þeirri forsendu að í kjara-
samningi launanefndarinnar og
grunnskólakennara væru engar for-
sendur til þess að taka málið upp
við núverandi aðstæður,“ segir
hann.
Á fundi launanefndarinnar var
samþykkt samhljóða að efna til
launamálaráðstefnu þeirra sveitar-
félaga sem hafa veitt launanefnd-
inni umboð sitt til gerðar kjara-
samninga, en það hafa öll sveitar-
félög landsins gert. „Sú ráðstefna
verður haldin 20. janúar næstkom-
andi. Þar verður rætt um stöðu
launanefndarinnar og stöðuna í
kjaramálum sveitarfélaga. Það sem
hefur átt sér stað í kjaramálum síð-
ustu vikurnar verður haft til hlið-
sjónar,“ segir Gunnar Rafn. Aflað
verði gagna um
launakostnað og þróun á vinnu-
markaði í samanburði við kjara-
samninga á vegum launanefndar
sveitarfélaga áður en ráðstefnan fer
fram. Á henni verði lögð fram gögn
sem sýna launaþróun hjá viðsemj-
endum launanefndarinnar.
Spurður um hvort nýlegir samn-
ingar Reykjavíkurborgar við Efl-
ingu og starfsmannafélag Reykja-
víkurborgar kunni að hafa áhrif á
samstarf launanefndarinnar við
sveitarfélögin segir Gunnar svo ekki
vera. „Reykjavíkurborg hefur ekki
falið launanefnd sveitarfélaganna að
semja við þessi félög svo þarna eru
engin tengsl á milli,“ segir hann.
Launanefnd sveitarfélaganna fundaði í gær um erindi FL
og FG um að endurskoðun kjarasamninga fari fram
Endurskoðunarákvæði
ekki talin eiga við
Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur
elva@mbl.is
Gunnar Rafn
Sigurbjörnsson