Morgunblaðið - 15.12.2005, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 2005 55
DAGBÓK
Um þessar mundir eru liðin tíu ár fráfrumsýningu kvikmyndarinnar umtónskáldið Jón Leifs; Tár úr steini.Af því tilefni hefur verið gefinn út
vandaður tveggja diska pakki sem inniheldur
DVD-disk með kvikmyndinni ásamt fjölbreyttu
ítarefni og CD-disk með tónlistinni úr kvik-
myndinni. Myndin kom út á VHS-spólum á sín-
um tíma, en er löngu uppseld. Íslensk tón-
verkamiðstöð gaf út geisladisk með tónlistinni
úr kvikmyndinni; en hann hefur einnig verið
ófáanlegur undanfarin ár. Þessi nýja tvöfalda út-
gáfa er samstarfsverkefni Kvikmyndafélagsins
Tónabíós og Tónverkamiðstöðvarinnar.
Leikstjóri myndarinnar var Hilmar Oddsson
og framleiðandi Jóna Finnsdóttir.
Hvers vegna er ráðist í þessa endurútgáfu
nú?
„Okkur fannst einfaldlega kominn tími til. Við
höfum verið að fá fyrirspurnir um hvar hægt sé
að fá myndina, ekki síst frá útlöndum, þar sem
Jón Leifs á orðið mikið af aðdáendum,“ segir
Hilmar.
Hvað er í pakkanum?
„Þetta er tveggja diska pakki. Það er annars
vegar DVD-diskur með kvikmyndinni Tár úr
steini og skýringartexta á þremur tungumálum.
Á þessum diski er einnig vönduð heimildamynd
um gerð myndarinnar og alls kyns annars konar
ítarefni, eins og stiklur og skyggnur. Svo má
heyra leikstjóra og aðalleikara rifja upp minn-
ingar frá samstarfinu og fjalla um vinnubrögð
sín og annað tengt gerð myndarinnar.“
Geturðu metið hvaða þýðingu hún hafði fyrir
tónlist Jóns Leifs?
„Þegar við Hjálmar H. Ragnarsson byrjuðum
að rannsaka ævi Jóns með tilliti til kvikmynda-
gerðar var til eitt verk, Requiem, á geisladiski.
Lítið hafði verið gefið út á hljómplötum þannig
að það var fremur erfitt að fá ekki að heyra
nema hluta höfundarverksins. Tíu árum síðar
hef ég verið að gera það að gamni mínu að fara
í hljómplötuverslanir í Evrópu, Norður- og Suð-
ur-Ameríku og einnig í Asíu og í öllum stærstu
og metnaðarfyllstu verslununum hef ég ekki að-
eins fundið Jóns Leifs-diska heldur heila rekka.
Það segir ýmislegt um útbreiðslu tónlistarinnar.
Ég veit að við áttum þátt í þessu öllu ásamt Sin-
fóníuhljómsveit Íslands og fjölmörgu íslensku
sem og erlendu tónlistarfólki og áhugafólki um
tónlist.“
Hvaða þýðingu hafði myndin fyrir þinn kvik-
myndaferil?
„Mjög mikla. Hún fékk einstaklega góðar við-
tökur hér heima og einnig erlendis.
Ég fann eftir hana að til mín voru gerðar
meiri kröfur, sem ég reyni auðvitað sífellt að
verða við. Einnig hafði hún margs konar önnur
áhrif á líf mitt, en of langt mál yrði að fara hér
út í þá sálma.“
Kvikmyndir | Tár úr steini, myndin um Jón Leifs, komin á DVD með tónlist og ítarefni
Á aðdáendur um allan heim
Hilmar Oddsson
fæddist í Reykjavík.
Hann er menntaður
kvikmyndagerð-
armaður frá Kvik-
myndaháskólanum í
München. Hann hefur
gert fjórar leiknar bíó-
myndir ásamt fjölda
sjónvarps- og heim-
ildamynda. Hilmar
vinnur nú að heim-
ildamynd um Dieter Roth, auk þess sem hann
undirbýr næstu kvikmynd sína.
Hugleiðingar fyrir jólin
EITT tímabilið tekur við af öðru í líf-
inu. Árin þjóta áfram og áður en var-
ir eru sumir orðnir fimmtugir á með-
an aðrir halda upp á sextugsafmælið
sitt.
Unglingurinn er á öðru máli. Hon-
um finnst tíminn oft vera á hraða
snigilsins. Unglingurinn bíður eftir
einu og öðru sem hinum fullorðna
finnst sjálfsagt mál. Enda fyrir
löngu búinn að fá bílpróf og engir
staðir standa honum lengur lokaður
vegna aldurs. Tíminn framundan
hefur sinn sérstaka sjarma. Hann er
merktur auglýsingum sem hvetja
menn til að taka upp veskin og kaupa
gjafir sem síðan er pakkað inn í sér-
gerðan pappír og lagðar undir jóla-
tréð.
Jólin í ár eru skárri heldur en í
fyrra að því leytinu til að nú má veiða
sér rjúpu í matinn og fá rétta bragð-
ið sem mörgum finnst tilheyra á jól-
um. Í gamla daga var rjúpan kölluð
„fátækrakrás“ og höfð á borðum hjá
fólki sem ekki hafði efni á að slátra
lambi. Svona breytast tímarnir. Eitt
sem breytist ekki er Jesús Kristur.
Fæðingar hans er minnst á jólum.
Hann lifir í dag og um aldir. Amen.
Konráð Rúnar Friðfinnsson.
Dreifing DV og Frétta-
blaðsins í Hveragerði
ÉG er áskrifandi að DV og bý við
Heiðarbrún í Hveragerði. Erum við
íbúar hér við götuna orðnir lang-
þreyttir á útburði DV og Frétta-
blaðsins. Sem viðmiðun hef ég Morg-
unblaðið, sem ég er einnig áskrifandi
að, en það er komið klukkan rúmlega
sex á hverjum einasta morgni. En í
dag, mánudaginn 12. desember,
klukkan að ganga fjögur þá er hvor-
ugt blaðið komið, DV eða Frétta-
blaðið. Og þegar hringt er til að fá
skýringu á þessu þá fær maður loðin
svör í afgreiðslunni – en það vantar
ekki að maður sé rukkaður fyrir
blaðið.
Ég óska eftir því að þeir sem
stjórna útburði þessara blaða hér í
Hveragerði fari að taka sig á. Við í
Hveragerði erum ekki minni mann-
eskjur en fólkið sem býr á höf-
uðborgarsvæðinu.
Áskrifandi DV.
Lágar örorkubætur
ENN einu sinni vil ég skrifa um lág-
ar örorkubætur. Fer það virkilega
illa í mann hversu lágar bæturnar
eru. Eins gengur ekki að skattleggja
þessar bætur, skilja menn það ekki?
Að geta ekki gefið barnabörnum sín-
um jólagjafir er bara alltof sárt.
Eyða á andvirði sölu eigna okkar
landsmanna í m.a. hátæknisjúkra-
hús, eru þau ekki fyrir hendi? Hér
eru gerðar allar aðgerðir nú orðið.
Þetta er orðin tóm vitleysa.
Styðjum fólk sem þjáist.
Sigríður Björnsdóttir.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Hlutavelta | Systurnar Viktoría Rós
og Magdalena Ósk Bjarnþórsdætur
héldu tombólu til styrktar Rauða
krossi Íslands og söfnuðu þær 3.625 kr.
Bróðir stúlknanna, Alexander Már, 9
mánaða, fékk að koma með.
Hlutavelta | Þrjár bekkjarsystur úr
2.J. í Kársnesskóla söfnuðu flöskum og
dósum að andvirði 855 kr. og færðu
Kópavogsdeild Rauða krossins. Þetta
voru þær Margrét Kristín Kristjáns-
dóttir, Ósk Jóhannesdóttir og Ósk
Hind Ómarsdóttir.
Marimekko flytur um áramót úr
IÐU húsinu að Laugarvegi 7.
30-40%
afsláttur af öllum fatnaði til jóla.
Vönduð jólagjöf á góðu verði.
STÓRÚTSALA V/FLUTNINGA
Opið til kl. 22 öll kvöld til jóla
Um er að ræða eignarland, 2 ha spildu nefnd Veðramót í landi
Úlfarsfells, sem áður tilheyrði Mosfellsbæ en tilheyrir nú Reykja-
vík. Á umræddri spildu eru tvö hús, annars vegar einbýlishús á
einni hæð byggt 1974 og hins vegar sumarhús sem búið hefur
verið í allt árið.
Eignir sem gefa mikla möguleika. Verðhugmynd fyrir landið,
íbúðarhúsið og sumarhúsið 50 millj.
Nánari upplýsingar á skrifstofu FM í síma 550 3000.
Sjá einnig fmeignir.is. Tilvísunarnúmer: 11-0394.
Úlfarsfell - Einbýli/sumarhús
A
ll
ta
f
ó
d
ýr
ir
Nr. 1 í Ameríku
APÓTEK OG HEILSUBÚÐIR
Góð heilsa - Gulli betri
Lið-a-mót
FRÁ
1. c4 g6 2. Rc3 Bg7 3. g3 e5 4. Bg2 d6 5.
d3 Rc6 6. e4 h5 7. h3 Be6 8. f4 exf4 9.
gxf4 f5 10. Rf3 fxe4 11. Rg5 Dd7 12.
Rd5 0–0–0 13. dxe4 Bd4 14. Hb1 He8
15. b4 Dg7 16. Kf1 Rd8 17. Hb3 Bxd5
18. cxd5 Rh6 19. Hd3 Bb6 20. Bf3 Hhf8
21. Kg2 Dd7 22. a4 a6 23. Dc2 Kb8 24.
Bd2 Hg8 25. a5 Ba7 26. Hc1 He7 27.
Hc3 Hf8 28. b5 axb5 29. a6 c5 30. dxc6
bxc6 31. Dd3 Bc5 32. Be3 Bxe3 33.
Dxe3 Da7 34. Dd3 Dc7 35. Hxc6 Rxc6
36. Dxb5+ Ka7 37. Hxc6 Db8 38. Dd3
Db2+ 39. Hc2 Db6 40. Dc3 Hb8 41.
Df6 Rg8 42. Dxg6 Dd4 43. Re6 Dd3 44.
Hf2 h4 45. f5 Dc3 46. Dg5 Rf6 47. Df4
De1 48. Dxd6 Hg8+ 49. Bg4
Staðan kom upp á heimsbikarmóti
FIDE sem fer senn að ljúka í Khanty-
Mansyinsk í Rússlandi. Teimour
Radjabov (2.704), svart, hafði framan
af átt í vök að verjast í skák sinni gegn
Diego Flores (2.479) en nú snerist tafl-
ið heldur betur við. 49. … Dxf2+! og
hvítur gafst upp þar sem eftir 50. Kxf2
Rxe4+ vinnur svartur drottninguna til
baka með dágóðum vöxtum.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Svartur á leik.
Samkirkjuleg
guðþjónusta á þýsku
Samkirkjuleg guðþjónusta verð-
ur haldin í Dómkirkjunni 4. sunnu-
dag í aðventu, 18. desember og
hefst kl. 15.
Séra Gunnar Kristjánsson pró-
fastur og séra Jürgen Jamin halda
guðsþjónustuna sameiginlega. Mar-
teinn H. Friðriksson og Bergþór
Pálsson sjá um tónlistarflutning.
Eftir guðþjónustuna er söfnuðinum
hjartanlega boðið í jólamóttöku
þýska sendiherrans, í sendi-
herrabústaðinn, Túngötu 18,
Reykjavík.
Ökumenischer Gottesdienst zu
Advent und Weihnachten.
AUCH in diesem Jahr findet ein
deutschsprachiger ökumenischer
Advents- und Weihnachtsgottes-
dienst statt. Diesmal am 4. Advent,
den 18. Dezember 2005, um 15.00
Uhr in der Dómkirkja.
Propst Gunnar Kristjánsson und
Pfarrer Jürgen Jamin werden den
Gottesdienst gemeinsam leiten. Die
musikalische Ausgestaltung liegt in
Händen von Marteinn H. Frið-
riksson und Bergþór Pálsson. Im
Anschluß an den Gottesdienst ist
die Gemeinde herzlich zu einem
Weihnachtsempfang in der Resi-
denz des deutschen Botschafters,
Túngata 18, eingeladen.
ÚT ER komin á vegum Skruddu Söng-
bók Gunnars Þórðarsonar sem hefur
að geyma nótur og söngtexta laga eft-
ir Gunnar.
Gunnar Þórðarson hefur um ára-
tugabil verið í fremstu röð íslenskra
tónlistarmanna og tónskálda. Hann
var meðal annars forsprakki og aðal-
lagasmiður hljómsveitanna Hljóma og
Trúbrots og er höfundur margra ást-
sælustu dægurlaga þjóðarinnar.
Hann hefur samið og hljóðritað yfir
fimm hundruð lög. Einnig hefur hann
útsett og stjórnað upptökum á fjölda
hljómdiska. Undanfarið hefur Gunnar
unnið að því að velja lög úr öllum
þeim fjölda dægurlaga sem eftir hann
liggur og hefur nú afraksturinn litið
dagsins ljós í söng- og nótnabókinni
góðu.
Nýjar bækur