Morgunblaðið - 15.12.2005, Blaðsíða 28
28 FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Slökkvilið
Höfuðborgarsvæðisins
Gætið að því að skraut,
s.s. borðar og greinar,
séu aldrei of nærri
kertaloganum og að
skrautið sé staðsett
neðan við kerti, þannig
að kertaloginn nái ekki
til þess
Munið að
slökkva á
kertunum
i
DAGLEGT LÍF
„ÞRÓUNIN er orðin sú að fólk er
í kapphlaupi við að sækja sér
skemmtun og afþreyingu annars
staðar en heima hjá sér og það er
slæmt og stressandi,“ segir Ásta
Hrafnhildur Garðarsdóttir, verk-
efnastjóri átaksins Verndum
bernskuna.
Verndum bernskuna er átak sem
stendur fram í lok júní á næsta ári
og á að vekja alla uppalendur til
umhugsunar um það hversu stutt
tímabil bernskan er í lífi hverrar
manneskju og hversu mikilvægt
það er að börnin fái að njóta þess
að vera til.
Nýlega opnaði átakið, inni á
heimasíðu sinni, aðventubanka
með góðum hugmyndum að sam-
verustundum fjölskyldunnar yfir
jólahátíðina auk þess sem
skemmtilegar sögur og leikja-
hugmyndir fylgja með. „Á aðvent-
unni er mikið að gera hjá öllum.
Þegar fjölskyldan loksins hittist
heima í frítímanum er rokið upp til
handa og fóta og til að gera eitt-
hvað einhvers staðar annars staðar
en heima. Það er endalaust kapp-
hlaup við atburði í staðinn fyrir að
slaka á og vera heima hjá sér í ró-
legheitum,“ segir Ásta.
Kostar ekkert að vera heima
Hún segir að þau sem standi í
þessu átaki hafi lúmskan grun um
að margt fólk átti sig ekki á því
hvað er hægt að gera mikið heima
án þess að það kosti neitt og hvað
það er hollt fyrir börn og foreldra
að slaka á í rólegheitunum og njóta
þess sem er ekki eitthvað sem aðr-
ir eru að búa til fyrir þau. „Fólk á
að taka sér þann tíma sem það hef-
ur, kveikja á kertum og horfa út
um gluggann í rólegheitum, ekki
reyna að gera allt í einu. Það er til
dæmis tilvalið fyrir fjölskylduna að
fara saman í gegnum gömul leik-
föng og föt og gefa í hjálparsöfnun,
það er líka góð leið til að útskýra
tilgang jólanna fyrir börnunum.
Einnig er gaman að láta börnin
hjálpa til við þrifin því börnum
finnst gaman að taka þátt í því
sem þeir fullorðnu gera.“
Aðventubankinn verður opinn út
verkefnið en breytist í hugmynda-
banka fjölskyldunnar eftir jól.
Ásta er gift og á þrjá stráka á
aldrinum þrettán, þriggja og hálfs
árs og tæplega tveggja ára. Hún
segir fjölskylduna vera mjög dug-
lega við að gera ekki neitt yfir há-
tíðirnar. „Okkur finnst best að
vera bara heima og gera ekki neitt
annað en að skoða dótið okkar,
hlusta á jólalög og bara vera sam-
an. Svo förum við mikið út að
labba og á snjóþotur ef veður leyf-
ir. Við erum mikið í því núna að
leika Íþróttaálfinn og svo spilum
við svolítið með þeim elsta og bök-
um saman,“ segir Ásta.
„Þegar maður er með þrjú börn
er svo mikið fyrirtæki að koma öll-
um út, vera í bíl í mikilli umferð og
fara í búðir, að ég sleppi því og vil
frekar vera heima með börnunum
og njóta þess.“
Ásta segir jólaundirbúninginn
langt kominn hjá sér. „Ég fór bara
ein í búðir og keypti gjafirnar, svo
hengdum við upp jólaskrautið sam-
an og erum bara að dúlla okkur í
öðrum jólaundirbúningi.“
SAMVERA | Hugmyndir að fjölskyldustundum
Fólk í kapphlaupi við atburði
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Ásta Hrafnhildur Garðarsdóttir ásamt jólastúfunum Gunnari og Þorsteini.
Aðventubankann má skoða á:
www.verndumbernskuna.is
JÓLAMATUR er yfirleitt afar
bragðgóður en líka mjög fitandi.
Uppskriftirnar eru hefðbundnar og
frá því fyrir daga hitaeiningamæl-
inga og kólesterólþekkingar, eins
og fram kemur á heilsuvef
MSNBC.
Hráefnið í uppskriftirnar er oftar
en ekki rjómi, smjör, kjöt, hnetur,
sykur – úrvalshráefni sem notað er
til að búa til eitthvað alveg sérstakt
lostæti sem tengist hátíðunum. Dr.
Marlene Schwartz, næringarfræð-
ingur við offitumiðstöð í Bandaríkj-
unum, ráðleggur fólki þar að skipu-
leggja stórhátíðadagana með það
fyrir augum að borða skynsamlega,
þ.e. borða hollt og hitaeininga-
snautt fæði að degi til áður en sest
er að hátíðarborði með hitaein-
ingabombum að kvöldi. Fólk ætti
að hugsa sig tvisvar um áður en
það fær sér aftur á diskinn.
Borðið skynsamlega
JÓLAMATUR
Líklega borgar sig bara að fá sér einu sinni á diskinn af jólamatnum.