Morgunblaðið - 15.12.2005, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 2005 29
DAGLEGT LÍF
Í nóvember birtist viðtal viðbútasaumskonuna Helgu Ein-arsdóttur. Hún var þá komin af
stað í jólaföndrinu og var meðal
annars nýbúin að gera jólauglur.
Þessar jólauglur eru í miklu uppá-
haldi hjá Helgu enda ólst hún upp
við að hafa slíkar á jólatrénu og hef-
ur föndrað þær reglulega frá æsku.
Uppskriftina að þeim fékk hún í
Eldhúsbókinni og gefur lesendum
hana hér.
Nú er tilvalið fyrir alla fjölskyld-
una að setjast niður eina kvöldstund
og skemmta sér við að gera þessar
einföldu uglur.
Jólauglur
Þessar skemmtilegu uglur eru
búnar til úr litlum könglum,
skreyttum með mislitu filti í skær-
um litum. Könglana er hægt að tína
út í garði eða kaupa í föndurbúð.
Filtið fæst í vefnaðarvöruverslunum.
Byrjið á því að festa sterkan þráð
í köngulinn, hann á að standa út úr
hausnum á uglunni og er notaður til
að hengja hana upp.
Sníðið síðan 2 stk. úr filti eftir
sniðinu og límið efri hlutana saman.
Sníðið augun einnig eftir sniðinu.
Hafið hringina þrjá, þann stærsta
samlitan uglunni, næsta í skærum
lit, er fer vel við hana, og þann
innsta og minnsta dökkan. Límið
alla hringina saman og límið þá síð-
an á ugluhausinn. Látið stærstu
hringina í augunum víxlast svo þeir
myndi nefið um leið.
Þræðið þráðinn í nál og dragið
efst í gegnum ugluhausinn, svo
lykkja myndist.
Þá er uglan komin og tilvalið að
hengja hana á jólatréð eða annars
staðar til skrauts.
Jólauglur á tréð
Morgunblaðið/Sverrir
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn