Morgunblaðið - 15.12.2005, Blaðsíða 24
24 FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
AUSTURLAND
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Kárahnjúkavirkjun | „Borinn
byrjar væntanlega sitt verk fyrir
helgi,“ segir Sigurður Arnalds,
upplýsingafulltrúi Landsvirkj-
unar um Kárahnjúkavirkjun. Því
má ætla að allir TBM-risabor-
arnir vinni í aðrennslisgöngum
virkjunarinnar á næstunni. TBM
3 var stöðvaður í júlí, dreginn
aftur á bak út úr aðrennsl-
isgöngunum í Glúmsstaðadal
undir bert loft, tekinn þar í
sundur og settur saman á nýjan
leik til að unnt væri að snúa
honum við og bora í hina áttina
– til móts við bor sem er undir
miðri Fljótsdalsheiði. Borarnir
vinna að jafnaði á um 150 m
dýpi og er ætlað að heilbora um
47 km af göngum.
Alls hafa TBM borarnir malað
22,5 km af göngum nú þegar.
Þristurinn
snýst
fyrir helgi
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Á vaktinni Borstjóri hefur það
vandasama verk að fylgjast með
hverri hreyfingu bors og bergs.
Álftanes | Ný Nautil-
us-heilsuræktarstöð
verður opnuð í Íþrótta-
miðstöð Álftaness
snemma í janúar á
næsta ári, en samn-
ingur þess efnis var
undirritaður milli
sveitarstjórnar Álfta-
ness og forsvarsmanna
Nautilus á Íslandi.
Þetta verður fjórða
Nautilus heilsuræktin
sem opnuð er á Ís-
landi, en hinar eru í
sundlaug Kópavogs,
Íþróttamistöðinni Versölum í
Kópavogi og í Suðurbæjarlaug í
Hafnarfirði. Nautilus er stærsta
heilsuræktarkeðja á Norð-
urlöndum með um 140 stöðvar og
er einnig starfrækt í Póllandi,
Bretlandi og Sviss.
Að sögn Kjartans Más Hallkels-
sonar, rekstrarstjóra Nautilus á
Íslandi, er það hluti af skemmti-
legri þróun Álftaness sem stækk-
andi bæjarfélags að fá sína eigin
líkamsræktarstöð. „Við höfum
líka verið með marga meðlimi
héðan af Álftanesi í öðrum stöðv-
um okkar og þeir hafa haft sam-
band við okkur og lýst yfir mikl-
um áhuga á að koma og æfa
hér,“ segir Kjartan. „Kortin
þeirra munu líka gilda í sund-
laugina hér, enda skuldbindum
við okkur til að kaupa árskort í
sund fyrir hvert einasta árskort
sem við seljum.“
Fyrsta líkamsræktarstöðin Fulltrúar Álfta-
nesbæjar og Nautilus voru ánægðir með þá
möguleika sem skapast með nýrri stöð.
Fyrsta líkamsræktar-
stöðin opnuð á Álftanesi
Egilsstaðir | Um næstu áramót
opnast raforkumarkaðurinn fyrir
almenning og minni fyrirtæki. Því
ætlar Samband sveitarfélaga á
Austurlandi (SSA), í samvinnu við
fleiri aðila, að standa fyrir kynning-
arfundi á Hótel Héraði, Egilsstöð-
um, fimmtudaginn 15. desember kl.
16.
Segir í fréttatilkynningu frá SSA
að fólk viti ekki glöggt hvað opinn
raforkumarkaður þýði í raun, enda
lítil eða engin kynning farið fram
fyrir almenning. „Til að kynna okk-
ur hvað þessar breytingar merkja í
raun og hvaða möguleikar það eru
sem opnast fyrir almenning og
minni fyrirtæki á Austurlandi munu
fulltrúar frá Orkustofnun, Lands-
neti og RARIK kynna breyting-
arnar og hvað getur verið í boði,“
segir Þorvaldur Jóhannsson, fram-
kvæmdastjóri SSA.
Kynningarfundurinn hefst með
ávarpi Valgerðar Sverrisdóttur,
iðnaðar- og viðskiptaráðherra, og í
kjölfarið verða framsögur. Ívar
Þorsteinsson rafmagnsverkfræðing-
ur og Haukur Eggertsson iðn-
rekstrarverkfræðingur fjalla um
hlutverk Orkustofnunar, raforku-
lögin og niðurgreiðslur, Þórður
Guðmundsson, forstjóri Landsnets,
og Guðmundur I. Ásmundsson,
framkvæmdastjóri kerfisstjórnunar
Landsnets, ræða hlutverk fyrirtæk-
isins í markaðsumhverfinu. Eftir
kaffihlé verður fjallað um hlutverk
dreifiveitna og breytingar á rekstr-
arumhverfi af Tryggva Þ. Haralds-
syni, rafmagnsveitustjóra ríkisins,
og Ólöfu Nordal, deildarstjóra sölu-
sviðs RARIK. Fundi lýkur með
pallborði og er hann opinn öllum
sem áhuga hafa á málefninu.
Samband sveitarfélaga á Austurlandi gengst fyrir
kynningu á breyttu raforkuumhverfi
Fjallað um opnun
raforkumarkaðarins
Reyðarfjörður | Félag ljóðaunnenda
á Austurlandi gaf nýlega út ljóða-
bókina Í hélu haustsins, eftir Helga
Seljan fyrrum skólastjóra á Reyð-
arfirði, alþingismann og fram-
kvæmdastjóra Öryrkjabandalags-
ins. Ljóðin í bókinni eru tæplega 100
talsins, frá ýmsum tímum, tilefnin
oft líðandi stund í gamansömum tón
en lítilmagninn er höfundi hugleik-
inn. Menningarnefnd Fjarðabyggð-
ar og Menningarsjóður Kaupfélags
Héraðsbúa styrktu útgáfuna.
Helgi og fjölskylda buðu til kynn-
ingar í Safnaðarheimilinu á Reyð-
arfirði þar sem hann og fjölskyldan
skemmti gestum með ljóðalestri og
söng við undirleik Ingólfs Bene-
diktssonar og Þorláks Friðriks-
sonar. Rifjaður var og upp ýmis
kveðskapur á gamansaman hátt frá
fyrri tímum. „Þetta er alveg á yztu
mörkum/og asskolli verð ég feiminn/
Þegar ég andans asnasparki/
ota fram í heiminn“ varpaði skáld-
ið fram í upphafi kynningar.
Formaður Félags ljóðaunnenda á
Austurlandi er Magnús Stefánsson á
Fáskrúðfirði og með honum í stjórn
Guðjón Sveinsson á Breiðdalsvík og
Aðalsteinn Aðalsteinsson í Fellabæ.
Þetta er fimmta ljóðabókin sem fé-
lagið gefur út, en samtals hefur það
gefið út sjö bækur. Félagið verður
10 ára á næsta ári og félagar eru
110.
Nú er í undirbúningi útgáfa á
heildarsafni skáldkonunnar Erlu.
Mun í þeim bindum verða töluvert af
efni ljóðskáldkonunnar Guðfinnu
Þorsteinsdóttur sem ekki hefur ver-
ið birt áður, en auk þess að yrkja
ljóð orti hún fyrir börn og safnaði
þjóðsögum.
Andans asnasparki
otað fram í heiminn
Morgunblaðið/ÞH
Fer mikinn Helgi Seljan les úr ný-
útkominni bók sinni.
Kópavogur | Bæjarráð Kópavogs út-
hlutaði á fundi sínum í síðustu viku
byggingarrétti á Kópavogstúni, í
Þingum og Hvörfum. Í samræmi við
úthlutunarreglur var dregið milli um-
sækjenda sem metnir voru jafnsettir
af bæjarráði. Fór drátturinn fram að
viðstöddum fulltrúa sýslumanns.
Að loknum úrdrætti var ljóst að
eftirfarandi einstaklingar og fyr-
irtæki hlytu byggingarrétt á reitn-
um:
Kópavogstún
Einbýli
Kópavogsbakki 1 Björg Gísladóttir
Kópavogsbakki 2 Guðjón Ingólfsson
og Hulda Jónasdóttir
Kópavogsbakki 3 Sverrir Matthías-
son og Ásdís Ólafsdóttir
Kópavogsbakki 4 Emil Þór
Guðmundsson og Guðbjörg
Kristjánsdóttir
Kópavogsbakki 5 Magnús V.
Jóhannsson og Bjarnveig
Ingvarsdóttir
Kópavogsbakki 6 Flosi Eiríksson
og Nína Björk Sigurðardóttir
Kópavogsbakki 7 Logi Kristjánsson
og Ólöf Þorvaldsdóttir
Kópavogsbakki 8 Björn Ingi Sveins-
son og Katrín Gísladóttir
Kópavogsbakki 9 Jónas Haraldsson
og Halldóra Teitsdóttir
Kópavogsbakki 10 Elín Þórðardóttir
og Albert Þór Jónsson
Kópavogsbakki 11 Kristín H.
Þorbjörnsdóttir og Gunnar Freyr
Sverrisson
Kópavogsbakki 13 Árni Þorsteinsson
og Ragna Hafsteinsdóttir
Kópavogsbakki 15 Guðmundur J.
Jónsson og Þórhildur H. Ingólfs-
dóttir
Parhús
Kópavogsbarð 1 Árni Harðarson og
Jóna Karítas Ívarsdóttir
Kópavogsbarð 2 Unnar Friðrik Páls-
son og Auður Þorgeirsdóttir
Kópavogsbarð 3 Erna Hauksdóttir
og Jóhannes Júlíus Hafstein
Kópavogsbarð 5 Halla Garðarsdóttir
og Sveinn Sigurðsson
Kópavogsbarð 4 Arnar Björnsson og
Kristjana Helgadóttir
Kópavogsbarð 6 Árni Emilsson og
Þórunn Sigurðardóttir
Kópavogsbarð 7 Kristín Anna Her-
mannsdóttir og Jónas Kristinn Gunn-
arsson
Kópavogsbarð 8 Orri Árnason
Kópavogsbarð 9 Einar Stefán Krist-
insson og Guðný Katrín
Einarsdóttir
Kópavogsbarð 10 Kristinn Jörunds-
son og Steinunn Helgadóttir
Kópavogsbarð 11 Ívar Pálsson og
Guðný Sigurjónsdóttir
Kópavogsbarð 12 Jörundur Krist-
insson og Gunnhildur Árnadóttir
Kópavogsbarð 13 Hlíðar Þór Hreins-
son og Drífa Margrét
Guðbjörnsdóttir
Kópavogsbarð 14 Sigurgeir
Kjartansson
Kópavogsbarð 15 Ólafur Már Hreins-
son og Heiðrún Svanhvít Níelsdóttir
Kópavogsbarð 16 Ármann Örn
Ármannsson
Kópavogsbarð 17 Ólafur H.
Kristjánsson og Sólveig J.
Guðmundsdóttir
Kópavogsbarð 18 Sigrún Guðjóns-
dóttir og Jón Davíð Hreinsson
Kópavogsbarð 19 Kristján E. Yng-
varsson og Guðrún Eggertsdóttir
Kópavogsbarð 20 Vilhjálmur Á. Ás-
geirsson og Katrín S. Guðjónsdóttir
Fjórbýlishús
Kópavogsbrún 1 Stikuvík ehf.
Kópavogsbrún 2 Maximus ehf.
Kópavogsbrún 4 Jón og Salvar ehf.
Fjölbýlishús
Kópavogstún 2 Úthlutun frestað
Kópavogstún 4 Dverghamrar ehf.
Kópavogstún 6 KS verktakar hf.
Kópavogstún 8 KS verktakar hf.
Kópavogstún 10 Faghús ehf.
Kópavogstún 12 Faghús ehf.
Þjónustuíbúðir
Kópavogstún 3 Sunnuhlíð
Kópavogstún 5 Sunnuhlíð
Kópavogstún 7 Sunnuhlíð
Kópavogstún 9 Sunnuhlíð
Fjölbýlishús
Kópavogsgerði 1 Bygging ehf.
Kópavogsgerði 3 Byggingarfélagið
Gustur ehf.
Kópavogsgerði 5 Rúmmeter ehf.
Kópavogsgerði 9 Ris ehf.
Þing
Einbýli m. hesthúsi
Dalaþing 1a Elvar Ólason
og Ýr Vésteinsdóttir
Einbýli
Engjaþing 2 Sigrún H.
Óskarsdóttir og Valgarður I.
Sverrisson
Parhús
Frostaþing 2a Valbjörn
Höskuldsson
Frostaþing 2b Árni Þór Árnason
og Guðný Egilsdóttir
Hvörf
Breiðahvarf 6 Sigurbjörn Bárðarson
og Fríða H. Steinarsdóttir
Dimmuhvarf 13 Ragnheiður Kr.
Guðmundsd. og Egill Erlingsson
Dimmuhvarf 13a Sturla B. Johnsen
og Lilja B. Skúladóttir
Lóðum úthlutað við Kópavogs-
tún, í Þingum og Hvörfum
Reykjavík | Tæp 80% reykvískra
grunnskólabarna fara fótgangandi
eða á hjóli í skólann en einungis
rúmlega 20% með einkabíl eða í
strætisvagni. Þetta kemur fram í
símakönnun sem IMG Gallup gerði
fyrir Umhverfissvið Reykjavík-
urborgar á ferðamáta grunnskóla-
barna. Nánar tiltekið fóru 75,7%
skólabarna fótgangandi í skólann,
2% á hjóli, 19% með einkabíl og
3,2% í strætó. Í frétt á fréttavef
Reykjavíkurborgar segir Hjalti
Guðmundsson, framkvæmdastjóri
Staðardagskrár 21 hjá Umhverf-
issviði, niðurstöðuna koma á óvart.
„Margir foreldrar þekkja bílaþvög-
una fyrir framan skólabyggingar
rétt áður en fyrsti tíminn hefst og
álykta sennilega að flestallir keyri
börnin í skólann,“ segir Hjalti. Það
að 20% barna sé skutlað á einkabíl-
um er þó sennilega nóg til að skapa
öngþveiti við skólabyggingar.
Börn í Miðborgar- og Hlíðahverf-
inu eru duglegust að ganga en um
85% gera það og í Breiðholti ganga
82% barna. Fæst börn ganga aftur
á móti í skólann í Árbæ og Graf-
arholti eða einungis 63%.
Reykvísk grunnskólabörn vistvæn
Samvera eldri borgara
fimmtudaginn 15. desember
Aðventusamvera eldri borgara kl. 15:00
Almennur söngur, upplestur o.fl.
Kaffiveitingar að venju
Allir velkomnir
Glerárkirkja
GLERÁRKIRKJA