Fréttablaðið - 28.03.2003, Page 4
4 28. mars 2003 FÖSTUDAGUR
Hvenær lýkur stríðinu í Írak?
Spurning dagsins í dag:
Áttu von á skattalækkunum
eftir kosningar?
Niðurstöður gærdagsins
á www.frett.is
26,6%
5,6%
0,7%
Innan mánaðar
67,1%Síðar
Innan tveggja vikna
Innan viku
Kjörkassinn
Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun
frétt.is
ÞÝSKALAND, AP „Það var eitthvað
ekki í lagi með þá, þeir virtust á
taugum,“ segir Charles Horgan,
liðþjálfi í Bandaríkjaher, sem
slasaðist þegar borgaralega
klæddir Írakar réðust á hersveit-
ina sem hann var í. Írökum hefur
verið legið á hálsi að hermenn
þeirra klæði sig eins og óbreytta
borgara til að komast nær óvina-
hermönnum en ella.
„Einn þeirra var með riffil svo
ég sneri byssuturninum,“ segir
Horgan. „Þá heyrði ég hvin og
sagði við sjálfan mig: „Guð minn
góður, nú dey ég.“ Um leið sprakk
sprengja sem hæfði bílinn og
Horgan þeyttist úr honum.
Jamie Villafane, ökumaður
bílsins, segir að árásin hafi ekki
komið mönnum algjörlega á
óvart. „Við höfðum verið upplýst-
ir um hvað þeir kynnu að gera,“
segir hann. Það hafi þó dregið úr
varkárni þeirra að flestir óbreytt-
ir borgarar sem þeir höfðu komist
í tæri við höfðu tekið þeim vel.
Horgan og Villafane hafa báðir
verið fluttir á sjúkrahús í Þýska-
landi ásamt fleiri bandarískum
hermönnum sem særst hafa í
Írak. ■
Innrás í Írak/Fjölmiðlar
Barátta fjöl-
miðlanna
ÍRAK Fréttamenn fylgjast með öll-
um atburðum innrásarinnar í Írak
sem þeir komast í tæri við, stríðs-
aðilum hvort tveggja til ánægju
og ama.
Það kom berlega í ljóst þegar
fyrstu matvælasendingunum frá
Kúvæt var dreift til almennings í
Safwan í sunnanverðu Írak. Þar
voru um 300 manns til að taka á
móti matvælum frá Rauða krossi
Kúvæts. Fréttamennirnir voru þó
litlu færri. Um 200 þeirra þekkt-
ust boð kúvæsku ríkisstjórnarinn-
ar um far á vettvang til að mynda
matvælagjöfina. ■
BEÐIÐ EFTIR GEIMSKOTI
Geimskot Japana kemur á sama tíma og
mikil spenna ríkir vegna kjarnorkuáætlunar
Norður-Kóreu.
Japanir á loft:
Njósnir úr
geimnum
JAPAN, AP Japanir bjuggu sig í gær
undir að skjóta á loft geimflaug
sem átti að flytja fyrstu njósna-
gervihnetti þeirra á sporbraut í
kringum jörðu. Tveimur gervi-
hnöttum var komið fyrir um borð
í geimflaug sem skjóta átti á loft
skömmu eftir miðnætti að ís-
lenskum tíma.
Mikill viðbúnaður var hafður
þegar geimflauginni var komið
fyrir á skotpalli sínum. Vega-
hindrunum var komið fyrir í ná-
grenninu og hundruð óeirðalög-
reglumanna voru til að varna mót-
mælendum aðgang. ■
SKÓLABÖRN
Þó engin sjúkdómstilfelli hafi komið upp í
skólum í Hong Kong hafa yfirvöld í hérað-
inu ákveðið að loka öllum grunnskólum
landsins í tíu daga.
Dularfulli öndunarfæra-
sjúkdómurinn:
Yfir 1000
í sóttkví
HONG KONG, AP Yfirvöld í Hong
Kong hafa gripið til þess ráðs að
setja 1.080 manns sóttkví í tíu
daga til þess að reyna að hefta út-
breiðslu hins dularfulla öndunar-
færasjúkdóms sem breiðst hefur
út um héraðið á undanförnum vik-
um. Um 370 manns hafa greinst
með sjúkdóminn í héraðinu og hef-
ur hann nú þegar orðið tíu manns
að bana. Samfara sóttkvínni verð-
ur öllum grunn- og framhaldsskól-
um á svæðinu lokað.
Fólkið sem sett hefur verið í
sóttkví á það sammerkt að hafa
haft náið samneyti við sýkta ein-
staklinga. Er því gert að halda sig
heima og hafa reglulega samband
við heilbrigðisyfirvöld. Fari menn
ekki að þessum fyrirmælum geta
þeir átt yfir höfði sér sekt eða
fangelsisvist.
Gripið var til sambærilegra að-
gerða í Singapúr fyrr í vikunni. ■
ATKVÆÐAGREIÐSLA Pólska þingið
þurfti að endurtaka atkvæða-
greiðslu um vantraust á einn ráð-
herra ríkisstjórnarinnar. Í ljós
kom að þegar greidd voru at-
kvæði um yfirlýsinguna í fyrra
skiptið brugðu tveir stjórnar-
þingmenn á það ráð að greiða at-
kvæði fyrir tvo fjarverandi fé-
laga sína. Ráðherrann hélt örugg-
lega velli þrátt fyrir að kjósa
þyrfti tvisvar um pólitíska fram-
tíð hans.
Málið er allt hið vandræðaleg-
asta fyrir Leszek Miller forsætis-
ráðherra og ríkisstjórn hans, sem
er í minnihluta á pólska þinginu.
Miller sagði réttast að þeim sem
hefðu greitt atkvæði með óheið-
arlegum hætti væri vikið úr
flokki vinstribandalagsins sem
stendur að ríkisstjórninni. Hann
hvatti þá einnig til að segja af sér.
Það hefur gerst einu sinni að
íslenskur þingmaður hafi greitt
atkvæði fyrir fjarstaddan þing-
mann. Matthías Bjarnason
greiddi atkvæði fyrir Árna John-
sen í febrúar 1992. Matthías sagð-
ist vita hvernig Árni hefði greitt
atkvæði hefði hann verið við-
staddur. „Ég hefði aldrei gert
þetta ef um einhverja málefnaaf-
stöðu hefði verið að ræða,“ var
haft eftir honum í Morgunblað-
inu. Atkvæði voru greidd um
hvort vísa ætti frumvarpi um Há-
skólann á Akureyri til nefndar. ■
Samræmd próf:
Íslenskupróf
í maí 2004
MENNTUN Fyrsta samræmda prófið
í framhaldsskólum verður lagt
fyrir nemendur í íslensku í maí á
næsta ári.
Menntamálaráðuneytið hefur
tilkynnt að ný reglugerð um fyrir-
komulag og framkvæmd sam-
ræmdra stúdentsprófa í fram-
haldsskólum hafi tekið gildi.
Samkvæmt reglugerðinni
verða samræmd stúdentspróf
haldin tvisvar á ári, á prófatíma
framhaldsskólanna í maí og des-
ember. Fyrst verður prófað í ís-
lensku eins og áður sagði en í maí
árið 2005 verður fyrst prófað úr
þremur greinum: íslensku, ensku
og stærðfræði, og velja nemendur
þá tvær greinar af þremur. ■
Á SJÚKRAHÚSI Í ÞÝSKALANDI
Hermennirnir sögðu fréttamönnum frá
reynslu sinni í Írak.
Árásir borgaralega klæddra Íraka á bandaríska hermenn:
„Guð minn góður,
nú dey ég“
PÓLSKI FORSÆTISRÁÐHERRANN
Leszek Miller, forsætisráðherra Póllands (til
hægri), var brosmildur þegar hann tók á
móti efnahagsmálaráðherra Sviss. Hann
var ekki jafn brosmildur við atkvæða-
greiðsluna í gær.
Pólskir þingmenn feta í fótspor íslensks starfsbróður:
Kusu fyrir fjarstadda þingmenn
LANDSFUNDUR Davíð Oddsson, for-
maður Sjálfstæðisflokksins, lof-
aði skattalækkun í ræðu sinni við
setningu landsfundar Sjálfstæð-
isflokksins í Laugardalshöll í
gær. Hann sagði að bjart væri
yfir íslenskum
þjóðmálum á
meðan það rign-
di eldi og
brennisteini í
Írak.
„Við viljum
lækka tekju-
skatt um 4% á kjörtímabilinu,“
sagði Davíð. „Við viljum afnema
eignarskatt algerlega. Við viljum
lækka um helming virðisauka-
skatt á matvæli, bækur, húshitun,
rafmagnskostnað og annað sem
tilheyrir lægri virðisaukaskatts-
þrepinu. Við viljum hækka
barnabætur um 2000 milljónir
króna. Við viljum helminga öll
skattþrep erfðafjárskatts, þannig
að almennt þrep verði aðeins 5%
og að fyrstu milljónirnar verði
erfðaskattlausar. Og við viljum
auka skattfrelsi vegna viðbótar
framlaga í lífeyrissparnað.“
Davíð sagði að hingað til hefði
Sjálfstæðisflokkurinn ekki lofað
beinum skattalækkunum fyrir
kosningar, en nú yrði breyting á.
„Hér er um bein loforð okkar
að ræða, sem við efnum, fáum við
til þess styrk. Því má treysta.“
Davíð varð tíðrætt um stríðið í
Írak og varði þá ákvörðun ríkis-
stjórnarinnar að styðja innrás
Bandaríkjamanna.
„Við Íslendingar höfum tekið
afstöðu í þessu máli. Við höfum
tekið afstöðu með írösku þjóðinni
og gegn einræðisherranum. Við
höfnuðum þeim kosti að vera í
hópi þjóða sem lýstu bak við
tjöldin yfir stuðningi við banda-
menn, en óskuðu nafnleyndar til
að losna við óþægindi heima fyr-
ir. Og ég er ekki í neinum vafa
um að íslenska ríkisstjórnin
gerði það sem var bæði rétt og
ærlegt.“
Í ræðu sinni gagnrýndi Davíð
stjórnarandstöðuna harkalega og
sérstaklega þá staðhæfingu
hennar að skattar hefðu hækkað í
stjórnartíð Sjálfstæðisflokksins,
sem hann sagði alranga. Þá gagn-
rýndi hann einnig það sem hann
kallaði persónupólitík stjórnar-
andstöðunnar, þ.e. að reynt hefði
verið að gera persónu sína sem
tortryggilegasta.
Undir lok ræðu sinnar setti
Davíð út á þá sem vildu breyta
kvótakerfinu og sagði: „Upp á
síðkastið hafa andstæðingar okk-
ar hvað eftir annað, jafnt innan
þings sem utan, flutt tillögur,
ræður og ályktanir af fullkomnu
ábyrgðarleysi í garð þessarar
mikilvægu atvinnugreinar.“
trausti@frettabladid.is
DAVÍÐ ODDSSON, FORMAÐUR SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS
Í ræðu sinni gagnrýndi Davíð stjórnarandstöðuna harkalega og sérstaklega þá staðhæfingu hennar að skattar hefðu hækkað í stjórnartíð
Sjálfstæðisflokksins, sem hann sagði alranga.
Davíð lofar 4%
lækkun tekjuskatts
Landsfundur Sjálfstæðisflokksins var settur í gær. Formaður flokksins segir bjart yfir íslenskum
þjóðmálum. Hann gagnrýndi persónupólitík stjórnarandstöðunnar. Varði kvótakerfið og réttlæti
stuðning við innrás í Írak.
„Við höfum
tekið afstöðu
með írösku
þjóðinni.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
I/
B
IL
LI